Morgunblaðið - 04.02.1997, Side 4

Morgunblaðið - 04.02.1997, Side 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ HAIMDKIMATTLEIKUR Þung skref í Þýskalandi Islendingar fóru á kostum þegar þeir mættu Dönum í riðlakeppni HM í lok liðins árs og tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni sem hefst í Japan um miðjan maí. Undirbún- ingur fyrir þá rimmu hófst með æfingum og tveimur leikjum í Þýskalandi og verður að segjast eins og er að byijunin var hroðaleg. Fyrri leikurinn var ömurlegur af hálfu íslenska liðsins en það tók sig þó á í seinni leiknum og hefði alveg eins getað fagnað sigri. Ekki útfiutningsvara Fyrri leikurinn var slakur. Jafn- ræði var með liðunum fyrsta stund- arfjórðunginn en þegar staðan var 8:8 skildu leiðir og eftir það stóð ekki steinn yfír steini hjá íslensku strákunum. Sendingar og skot voru út í bláinn og heimamenn svöruðu með hveiju markinu á eftir öðru eftir hraðaupphlaup. 18 sinnum gerðu gestirnir afdrifarík mistök og menn fara ekki langt með slíkum vinnubrögðum. í sjálfu sér er ekki mikið um þessa viðureign að segja. Menn voru úti á þekju, hugarfarið var við eitthvað allt annað en leikinn og rassskeliing- in var sanngjörn. Aðeins Róbert Sig- hvatsson sýndi lit, barðist í vöminni og var öruggur á línunni, en aðrir fóru í verkið með hangandi haus. Gunnar Viktorsson var eini leikmað- urinn í hópnum sem kom ekki inná og hann má þakka fyrir það. Hlynur Jóhannesson fékk eldskímina, var settur í markið átta mínútum fyrir leikslok í vonlausri stöðu og varði ekki skot en ekki er við hann að sakast. Fjórir leikmenn íslenska liðsins em atvinnumenn í íþróttinni og flest- ir hinna gæla eflaust við að láta drauminn rætast en enginn fær samning út á þennan leik. Strákamir vissu upp á sig skömm- ina og mættu til leiks í Russelsheim með allt öðru hugarfari, einbeittir og ákveðnir. Þeir tóku völdin í sínar hendur frá fyrstu mínútu og þótt Valdimar léti veija tvö vítaskot frá sér var staðan vænleg eftir 25 mín- útur, 11:8. Þá hrökk allt í baklás og heimamenn gerðu fjögur síðustu mörk hálfleiksins. Sóknarleikur ís- lenska liðsins riðlaðist greinilega þegar Patrekur og Dagur fóru út af í staðinn fyrir Róbert Duranona og Sigurð en byijunarliðið hefði ömgg- lega gert út um leikinn. Seinni hálfleikurinn var í jámum í 10 mínútur en íjóðveijar nýttu sér mistök mótheijanna, náðu þriggja marka forystu og héldu henni nán- ast það sem eftir var. 25 fyrstu mínútumar vom góðar hjá íslensku strákunum. Guðmundur varði vel, þótt mótheijamir fengju boltann aftur oftar en ekki, vömin var ömgg og sóknarleikurinn mark- viss. En mistökin í sókninni vom afdrifarík eftir þennan góða kafla og Þjóðveijamir gengu á Iagið. Óafsakanlegt Frammistaða íslenska liðsins í þessum leilqum er óafsakanleg. Það er í hópi 24 bestu liða heims en Ijóð- veijar verða að láta sér nægja að fylgjast með HM úr ijariægð. Strák- amir em að spila á fullu og eiga að vera í góðri æfingu. Þeir fengu tíma til að stilla strengina, vom í einangr- un á góðu ijallahóteli og því engin utanaðkomandi tmflun en samt skil- uðu þeir ekki dagsverkinu. „Þetta var eins og stemmningin í húsinu, steindautt," sagði Kristján Arason, fyrmm landsliðsmaður, við Morgun- blaðið eftir seinni leikinn og þakkaði fyrir að hafa ekki séð þann fyrri. ísland og Þýskaland léku tvo æfingaleiki í hand- knattleik um helgina. Þjóðveijar unnu 32:24 í Ludwigshafen á laugardag og 25:22 í Russels- heim á sunnudag. Steinþór Guðbjartsson fylgdist með undirbúningnum og leikjunum í Þýskalandi og ræddi við leikmenn og þjálfara. Tal um þreytu heyrðist en hvorki Dagur né Ólafur, sem léku með félagsliði sínu á laugardagskvöld og óku eftir leikinn til móts við hópinn, vildu kenna því um hvernig þeir léku. Ólafur var langt frá sínu besta, gerði þrjú mörk í fyrri hálf- leik en síðan fylgdu sex skot út í bláinn. Dagur byrjaði vel en yfir- vegunina vantaði þegar á reyndi. Viggó Sigurðsson, þjálfari þeirra, sagði hins vegar að það væri alltaf erfitt að koma nánast beint í leik eftir mikið álag eins og þeir hefðu búið við að undanförnu en liðið þyrfti að gera betur. „Þeir misstu tökin undir lok fyrri hálfleiks og náðu sér ekki á strik eftir það.“ Á byrjunarreit Liðið fær ekki marga leiki fram að HM í Japan. „Ef vel á að vera þurfum við miklu fleiri leiki erlend- is fyrir hvert stórmót,“ sagð Boris Bjarni Akbaschev, aðstoðarlands- liðsþjálfari. Hann bætti við að reynslan á útivelli væri mjög mikil- væg og ef menn stæðu sig ekki ætti að gefa öðrum tækifæri. Þor- björn Jensson, landsliðsþjálfari, sagðist ekki loka á neinn og í því sambandi benti hann á að ef Jason Ólafsson hefði ekki verið að leika með liði sínu á laugardag hefði hann verið með í fyrri leiknum. Hins vegar sagði Þorbjörn við strákana að þeir yrðu að bæta við aukaæfingum hjá sér ef þeim þætti ekki nógu mikið æft hjá liðunum. Sigurður Bjarnason tók hann á orðinu og bað um aðstoð í því efni. Auðvitað verður að gera þá kröfu til landsliðsmanna að þeir séu í æfingu og ef svo er ekki eiga þeir að bæta úr því. En frumskil- yrði er að þeir mæti í landsleiki með réttu hugarfari. „Þetta er ekki auðvelt,“ sagði Patrekur Jóhannes- son, „Stundum koma dagar sem ekkert gengur upp og þetta var einn af þeim,“ sagði hann um fyrri leikinn. Eftir stendur að liðið er á byijunarreit og hefur rúma þijá mánuði til að finna lausnina. Engin örvænting Þótt illa hafi farið í Þýskalandi um helgina er ekki ástæða til að örvænta. Þessir drengir kunna sitt fag og betra er að falla á skyndi- prófi en lokaprófi. Þetta var líka ágæt áminning. Menn geta ekki leyft sér að taka að sér verkefni án þess að gera sitt besta. Æfinga- leikur er æfingaleikur en menn verða að gefa sig í verkið og strák- arnir eru reynslunni ríkari. Annað sem vert er að hafa í huga er að Geir Sveinsson var ekki með og hann er lykilmaður í vörn- inni. Arangurinn byggist fyrst og fremst á góðri vörn og ekki á að þurfa að hafa áhyggjur af þeim þætti. Agaður sóknarleikur eins og í byijun seinni leiksins er líka vænlegur til árangurs og það vita þessir piltar, samanber leikina við Dani. Með þessu kemur góð mark- varsla og Þorbjörn kann lagið á þessu hlutum. Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson RÓBERT Jullan Duranona gefur ungum þýskum handknatt- lelksáhugamönnum elglnhandarárltun á æfingu í Þýskalandl um helglna. Hann gerði þrjú mörk í fyrri tapleiknum en sjö í þeim seinnl, þar af fimm af vítalínunnl. Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari segir leikina tvo lærdómsríka Einbeitingin verður alK- af að veratil staðar Þorbjörn Jensson, landsliðs- þjálfari í handknattleik, tók úrslitum leikjanna við Þjóðveija með stóískri ró og sagði við Morg- unblaðið að þau væru góður út- gangspunktur að vinna frá. „Fyrri leikurinn er dæmi um hvernig ekki á að leika handknatt- leik,“ sagði hann. „Allt var í ólagi, ekki góð vörn, ekki góð sókn. Við gerðum 14 mistök tæknilegs eðlis og fengum á okkur 12 mörk eftir hraðaupphlaup. Það er vonlaust að spila þannig en í seinni leiknum fækkaði tæknilegu mistökunum í fimm og Þjóðveijarnir gerðu fimm mörk eftir hraðaupphlaup. Eftir skellinn á laugardag lögðum við áherslu á að spila agað í Russels- heim og tókst það oft á tíðum. Hins vegar gerðum við óþarfa mistök í stöðunni 11:8 fyrir okkur og misstum leikinn í 12:11 fyrir þá. En þrátt fyrir skell í fyrri leiknum var hann ágætis ráðning til að vinna út frá. Þegar menn koma ekki rétt stemmdir til leiks verður uppskeran svona.“ Þorbjörn var með ýmsar upp- stillingar og hann sagði það já- kvætt að hafa getað notað menn í ýmsum stöpum. „Það styrkti hópinn að fá Ólaf og Dag í seinni leikinn. Við lékum illa á laugar- dag en betur á sunnudag. Hins vegar er getan til að gera betur fyrir hendi og því er þetta spurn- ing um að laða alltaf fram það besta, að venja sig á það. Ég er ekki sérstaklega ánægður með eitt eða annað en þó ánægður með það að við gátum spilað góða vörn lengst af í seinni leikn- um. Það er atriði sem við þurfum að byggja á með hraðaupphlaup í huga.“ Þið áttuð í erfiðleikum með 6-0 vörn Þjóðverjanna. „Já, þeir spiluðu hana vel, eru hávaxnir og því eru ekki miklir möguleikar á að skjóta yfir þá. Sókn á móti svona vörn verður að byggjast á þolinmæði. Menn verða að Iáta boltann ganga hratt á milli manna og bíða eftir að mótheijarnir geri mistök. Aðalat- riðið er að láta boltann vinna, því hann fer hraðar en mennirnir, og nota færið þegar það gefst.“ Hefurðu skýringu á einbeiting- arleysinu? „Það er erfitt að skýra það. Það þarf ofboðslega mikla einbeitingu í handbolta og miklu skiptir að einbeita sér að réttu hlutunum. í síðasta verkefni okkar, á móti Dönum, var gífurleg einbeiting og uppskeran samkvæmt því. Nú komu menn saman hver úr sinni áttinni á mismunandi tíma í tvo leiki sem í raun skiptu engu, þótt allir leikir skipti máli. Menn voru að hugsa um allt aðra hluti og héldu að þetta kæmi af sjálfu sér en það kemur ekkert af sjálfu sér. Menn verða alltaf að gera eins vel og þeir geta því annars er útlokað að spila góða leiki. Ég vil að menn njóti lífsins, hafi gam- an af hlutunum og þyki skemmti- legt að vera í hópnum en frá síð- asta fundi fyrir leik og út leikinn eiga menn eingöngu að einbeita sér að leiknum og enginn má svindla á því.“ Skiluðu þessir leikir því sem þú vildir fá út úr þeim? Já, að mörgu leyti, en auðvitað vildi ég ekki tapa. Við lærum af þessu að ekkert er sjálfgefið og leikimir, einkum sá fyrri, eru ágæt- is útgangspunktur til að vinna frá.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.