Morgunblaðið - 04.02.1997, Side 7

Morgunblaðið - 04.02.1997, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 B 7 KORFUKNATTLEIKUR tandsbanW ístands larijsbsnt'J Éiands Morgunblaðið/Ásdís Ivíkingar med bros á vör lardaglnn. Þelr unnu tvöfaldan slgur ( bikarkeppnlnnl. Hér er þaö karialiðlö sem sýnir slgurbrosiö. Þeir m í boöl hafa veriö f vetur, fyrst Lengjubikarinn og nú Blkarlnn. wB 4 i|i\ ' \ S rf* ■" m éMiÆ M M i Fimmta árið í röð KEFLAVÍKURSTÚLKUR hafa ekkl veriA eftlrbátar karlaliAsins. Þær voru að vlnna blkarkeppnina flmmta ðrlA í röA og hafa því ekki tapaA bikarleik í fimm ðr. ANIMA María SigurAardóttir nær hér að koma skoti ð körfu KR-stúlkna án þess að Helga Þorvaldsdóttir (nr. 13) og Krist- ín Elfa Magnúsdóttir (nr. 8) gætu komið í veg fyrir þaA. Anna María gerði sex stig. Bikaráskríft Keflavíkur- stúlkna „ÞETTA leit ekki vel út í byrj- un,“ sagði Jón Guðmundsson, þjálfari Keflavíkurstúlkna, eftir að þær höfðu sigrað KR 64:63 í bikarúrslitaleik sem þurfti að framlengja. „Þær hafa líklega verðið yfirspenntar í upphafi leiks og náðu ekki að komast inn í leikinn fyrr en líða tók á síðari hálfleik. Það mátti varla tæpara standa en þetta hafð- ist. Reynslan skiptir miklu máli þegar komið er út í framleng- ingu en svo lentu KR stelpurnar líka f villuvandræðum þannig að það hjálpaðist ýmislegt að,“ sagði þjálfarinn. Leikurinn fór ekki vel af stað og mikið var um mistök á báða bóga. KR stúlkur voru þó mun ákveðnari og yfir- vegaðri sem skilaði Halldor , , .... . ,. _ Bachmann ser 1 stoðunm 10:0 skrifar þegar um níu mínút- ur voru liðnar af leiknum. Lánleysi Keflavíkur- stúlkna var algjört í sókninni og virtist engu máli skipta hversu langt frá körfunni var skotið eða hver gerði það, ofarií vildi boltinn ekki. Eftir að Keflavíkurstúlkur náðu loks að skora fundu þær taktinn um stund og minnkuðu muninn í tvö stig 12:10, en týndu honum strax aftur á meðan KR stúlkur skoruðu 8 stig og komust í 20:10. Það sem eftir lifði hálfleiksins hleyptu KR stúlkur þeim keflvísku ekki nær og þær höfðu 11 stiga forskot í hálfleik 34:23. í upphafi síðari hálfleiks leit út fyrir að KR stúlkur myndu halda áfram uppteknum hætti þegar þær juku forskot sitt í 15 stig, 43:28. Enn voru Keflavíkurstúlkur takt- lausar og gekk illa að notfæra sér hæðarmuninn og spila boltanum inn i teig. Á sama tíma voru KR stúlkur að leika gífurlega góða vörn og yfirvegaðan sóknarleik. Um miðjan síðari hálfleik leiddi KR með 12 stigum 54:42 og Kefla- vík virtist ekki ætla að komast áleiðis. Þegar tæpar 7 mínútur voru til leiksloka varð KR fyrir því áfalli að missa Lindu Stefánsdóttur útaf með 5 villur. Linda hafði átt * stóran þátt í því að halda Önnu Maríu Sveinsdóttur niðri í vörninni og hirti grimmt fráköstin. Svo virð- ist sem þetta hafi verið vendipunkt- urinn í leiknum því eftir þetta tóku Keflavíkurstúlkur að saxa á for- skot KR og pressan sem hafði fyr- ir leikinn verið á Keflavík var nú allt í einu komin á KR. Keflavíkur- stúlkur léku pressuvörn um allan völl og mistökum KR stúlkna fjölg- aði mikið. Hver mistök kostuðu yfirleitt körfu eða villu og þannig söxuðu Suðurnesjastúlkur smám saman á forskotið uns þær náðu að knýja fram framlengingu, 59:59. Framlengingin var hlaðin spennu og mikið var um mistök á báða bóga. Fyrstu þrjár mínúturnar var ekkert skorað en þá loks tók KR af skarið og skoraði fyrstu körfuna. Hún dugði skammt því Keflavík skoraði næstu fimm stig og tryggði sér sigurinn 64:63 eftir ótrúlega spennandi lokamínútu. í liði Keflvíkinga var Anna María Sveinsdóttir í fararbroddi en auk hennar voru Birna Valgarðsdóttir, Erla Reynisdóttir og Björg Haf- steinsdóttir góðar. í jöfnu liði KR voru Helga Þorvaldsdóttir og Guð- björg Norðijörð sérstaklega góðar og einnig hitti Sóley Sigþórsdóttir vel. Þá er áður getið um frammi- , stöðu Lindu Stefánsdóttur í vörn- inni, auk þess sem skotnýting henn- ar var góð. Svali Björgvinsson, þjálfari KR-stúlkna Dómaramir voru hlið- hollir Keflvíkingum IÐ áttum að vinna þennan leik. Svona getur körfubolti verið :aflaskiptur, við unnum fyrri hálf- sikinn með 11 stigum en Keflavík iann seinni með jafn miklum mun, vo þetta gat farið á báða vegu. Það r hallærislegt að vera að kenna dóm- irum um þegar maður tapar leik en ieir réðu ekki við þennan leik og oru hliðhollir Keflvíkingum í lokin,“ agði Svali Björgvinsson þjálfari KR iftir leikinn. „Auðvitað leist mér ekkert á blik- ina þegar við höfðum ekki skorað tig og fyrri hálfleikur næstum hálfn- .ður. Ég örvænti samt ekkert, beið iara alltaf eftir að þetta færi að koma ijá okkur. Þetta fór svo loks að koma hjá okkur í síðari hálfleik og um leið og forskot KR- inga fór að minnka var pressan komin á þær. Eftir að við náðum að knýja fram framlengingu var ég ekki í nokkrum vafa um að við myndum sigra á leikreynslunni. Það er einmitt sérstaklega gaman að því að í öllu talinu um að við höfum sigrað í framlengingunni á leikreynsl- unni að Birna Valgarðsdóttir skyldi tryggja okkur sigurinn í sínum fyrsta bikarúrslitaleik," sagði Anna María Sveinsdóttir fyrirliði bikarmeistara Keflavíkur. „Pressan var á þeim en ekki okkur fyrir þennan leik. Við mættum til hans afslappaðar og ákveðnar í að vinna leikinn. Framan af virtist það ætla að ganga hjá okkur. Það er í sjálfu sér ekki hægt að segja að neitt eitt hafi farið úrskeiðis. Við hittum vel í fýrri hálfleik og fram í þann seinni en þá fór hittnin að bregðast, þær fóru að beita pressuvörn á okkur og við fórum að klúðra. Á svipuðum tíma missum við Lindu útaf og þær fara að saxa á okkur. í framlenging- ( unni fannst okkur dómararnir bregð- ast. Þeir gerðu sig seka um mistök sem eiga ekki að sjást til dómara í úrslitaleik. Þetta er sérstaklega blóð- ugt þegar leikurinn tapast með eins stigs mun. Annars er íslandsmótið eftir og við ætlum okkur stóra hluti þar,“ sögðu KR-ingarnir, Guðbjörg Norðfjörð og Kristín Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.