Morgunblaðið - 04.02.1997, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 B 9
4-
KIMATTSPYRNA
Alan Shearer skaut
Leicester á kaf
maðurinn
KEVIN Keegan, fyrrum knatt-
spyrnustjóri Newcastle, ræddi
í fyrsta skipti um knattspyrnu
við blaðamann - eftir að hann
hætti - er hann var um helgina
að fyigjast með einuni af hest-
um konu sinnar I kappreiðum.
„Kenny Dalglish er rétti mað-
urinn fyrir Newcastle. Ég óska
honum gæfu í starfi. Hugur
minn verður alltaf bjá Newc-
astle United, mér er mjög hlýtt
til iiðsins. Ég hef átt margar
gleðistundir á St. James’ Park
og naut þess að starfa fyrir
Newcastle. Ég er hættur, þetta
er allt það sem ég vil segja um
knattspyrnu," sagði Keegan.
Þess má geta að Matching Col-
our, hestur eiginkonu Keeg-
ans, varð f fimmta sæti í kapp-
reiðunum.
SPENNAN heldur áfram á knattspyrnuvöllunum í
Englandi. 55.269 áhorfendurfögnuðu sigurmarki
Eric Cantona á Old Trafford, 33.027 áhorfendur
voru á White Hárt Lane í London, þar sem Chelsea
vann sinn fyrsta sigurfrá 1987.32.567 áhorfendur
á Goodison Park fóru ánægðir heim, Everton vann
langþráðan sigur, eftir sex tapleiki í röð. Andrúms-
loftið var rafmagnað á St. James' Park í Newcastle,
þar sem markakóngurinn Alan Shearer skoraði þrjú
mörk á síðustu þrettán mín. leiksins og tryggði
Newcastle sigur, 4:3, við geysilegan fögnuð 36.396
áhorfenda. Alls komu 302.187 áhorfendur á tíu leiki
í ensku úrvalsdeildinni. Það voru þvífleiri sem fóru
á vellina í Englandi, en búsettir eru á íslandi og
voru flestir innandyra í snjókomunni.
Alex Ferguson, knattspymustjóri
Manchester United, segir að
þó að sínir menn séu á toppnum,
geri hann sér grein fyrir að hörð
barátta sér framundan. „Ef við ætl-
um okkur að veija meistaratitilinn
verðum við að ná góðum árangri á
útivöllum, en við eigum eftir að leika
á Anfíeld Road, Highbury og Stam-
ford Bridge. „A pappímum á Ars-
enal mikla möguleika, þar sem liðið
á eftir heimaleiki sína gegn efstu lið-
unum, en baráttan er hörð og það
er ekki hægt að segja að hinn eða
þessi leikur sé auðveldur."
George Graham, knattspyrnustjóri
Leeds og fyrrum „stjóri“ hjá Ars-
enal, segir að hann hafí trú á að
Arsenal undir stjóm Arsene Wenger,
hampi meistaratitlinum þegar upp
verður staðið. „Það er ekki veikan
hlekk hjá Arsenal að finna og and-
rúmsloftið er mjög gott hjá liðinu.
Það kemur mér ekkert á óvart hver
staða Arsenal er, liðið er gott - níu
af lykilmönnum liðsins léku undir
minni stjóm hjá Arsenal," sagði Gra-
ham.
Slæmar minningar
Þegar Norðmaðurinn Egil Östen-
stad skoraði fyrir Southampton eftir
aðeins ellefu mín. á Old Trafford,
komu slæmar minningar frá The
Dell upp í huga manna, en Östenstad
skoraði þijú mörk þegar Southamp-
ton skellti Man. Utd., 6:3, í október.
Eftir þessa óskabyijun Southamp-
ton tóku leikmenn United leikinn í
sínar hendur. Ryan Giggs átti mjög
góðan leik, Ferguson færði hann af
kantinum inn á miðjuna og við hlið
hans var Tékkinn Karel Poborsky
alltaf á ferðinni. Leikmenn Sout-
hampton áttu í vök að veijast og kom
markvörður liðsins Mark Taylor í veg
fyrir að þeir fengu ekki nema tvö
mörk á sig. Gary Pallister skoraði
sitt fyrsta mark á keppnistímabilinu
á 19. mín., er hann sendi knöttinn í
netið eftir fyrirgjöf frá Eric Cantona.
Það var svo Frakkinn sem skoraði
sjálfur sigurmarkið tíu mín. fyrir
leikslok, eftir sendingu frá Giggs.
„Ooh... ah... Cantona," sungu stuðn-
ingsmenn United og knattspyrnu-
stjórinn Ferguson brosti breitt. Leik-
menn hans fögnuðu sínum öðrum
sigri á nokkrum dögum, eftir að
hafa verið marki undir.
Tíu leikmenn Derby
Stan Collymore tryggði Liverpool
sigur á Derby á Baseball Ground,
1:0. Collymore hafði lítið sést í leikn-
um áður en hann skoraði markið
sextán mín. fyrir leikslok - fékk þá
nægan tíma til að athafna sig með
knöttinn, áður en hann sendi hann
í netið. Leikmenn Derby léku aðeins
tíu nær allan seinni hálfleikinn, eftir
að Darryl Powell var rekinn af leik-
velli, eftir að hann braut á Norð-
manninum Björn Kvarme, sem féll
með miklum tilburðum. Áhorfendur
voru ekki ánægðir með leikaraskap
Kvarme og bauluðu á hann þegar
hann reis á fætur, til að fara á ný
inn á völlinn. Jim Smith, knatt-
spymustjóri Derby, var æfur eftir
leikinn og sagði að dómarinn Peter
Jones hefði ekki séð atvikið nógu vel
til þess að sýna Powell rauða spjaldið.
David James, markvörður
Reuter
ALAN Shearer fagnar þriAja marki sínu gegn Leicester,
fyrstu þrennu sinni fyrir Newcastle. Hann er markahæstur
í úrvalsdelldlnni með 20 mörk og herur sett stefnuna á að
skora melra en þrjátiu mörk fjórða keppnistímabilið í röö.
Liverpool, sýndi tvisvar frábæra
markvörslu, þegar hann varði skot
frá Dean Sturridge og Robin Van
Der Laan.
Það var ekki rishá knattspyma
sem leikmenn Leeds og Arsenal
sýndu á Eiland Road, 0:0. Leikmenn
Leeds sem hafa ekki verið að leika
skemmtilega knattspymu, héldu
marki sínu hreinu í tíunda leiknum
af siðustu sextán leikjum sínum.
Þeir léku fast gegn Arsenal og voru
Qórir þeirra bókaðir af dómara leiks-
ins, David Elleray - Lee Bowyer,
Robert Molenaar, Gary Kelly og Ian
Rush, Nigel Winterburn hjá Arsenal
var einnig bókaður. Arsenal lék án
Dennis Bergkamp, David Platt og
Martin Keown, þá hefur Ian Wright
verið meiddur og kom inná sem vara-
maður á 72. mín.
Fyrsta þrenna Shearer
Alan Shearer skoraði þijú mörk á
síðustu þrettán mín. gegn Leicester
á St James’Park og tryggði liðinu
sigur, 4:3. Newcastle skoraði fyrsta
mark leiksins, en leikmenn Leicester
svöruðu með þremur mörkum í upp-
hafi seinni hálfleiksins og leit út fyr-
ir að þeir myndu fagna sigri. Það
var þá sem Shearer fór í gang. „Við
gerðum okkur sjálfum erfitt fyrir,
en náðum að rétta úr kútnum á rétt-
um tíma. Þannig er Newcastle, við
gefumst aldrei upp,“ sagði Shearer.
Leikmenn Newcastle áttu að vera
búnir að gera út um leikinn í fyrri
hálfleik, náðu aðeins að skora eitt
mark úr óteljandi marktækifærum.
Þetta var eins og gegn Everton á
dögunum, við gáfumst ekki upp þótt
á móti hafi blásið, skoruðum fjögur
mörk undir lokin og unnum, 4:1,“
sagði Searer.
Kenny Dalglish hafði þetta að
segja um leikinn, sem var mikill
spennuleikur og tók á taugamar.
„Það er leikur eins og þessi sem
hefur gert Kevin Keegan gráhærðan
og Terry McDermott hvíthærðan.
Við höfum leikið íjóra sögulega leiki
að undanförnu."
Shearer skoraði fyrsta mark sitt
beint úr aukaspymu, eins og hann
er þekktur fyrir, á 77. mín. og á síð-
ustu sek. leiksins skoraði hann sigur-
markið með skoti af sextán metra
færi.
Faustino Asprilla var í byijunarliði
Newcastle í fyrsta skipti frá 3. des-
ember og átti stórleik, fyrirliðinn
Peter Beardsley sat á bekknum.
Hughes í stöðu Vialli
Ruud Gullit, knattspymustjóri,
gerði breytingar á byijunarliði sínu
gegn Tottenham - Vialli var aftur
settur á varamannabekkinn, stöðu
hans tók Mark Hughes. Gullit hefur
oft varað sína menn við, að það eigi
enginn öruggt sæti í liði sínu. „Eg
tefli fram þeim mönnum, sem ég tel
besta til að glíma við þau verkefni
sem við fáumst við hveiju sinni. Leik-
mannahópur minn er sterkur, það
geta ekki nema ellefu leikmenn leik-
ið inná.“ Sex af lykilmönnum Totten-
ham voru meiddir, en Darren Ander-
ton lék sinn fyrsta leik með liðinu í
tvo mánuði. Garry Francis, knatt-
spymustjóri Tottenham, lét lið sitt
leika maður gegn manni og fékk
Dean Austin það hlutverk að taka
Gianfranco Zola úr umferð. Hann
gerði það vel, en hinn fljóti Zola slapp
þó nokkrum sinnum laus og þá skap-
aðist hætta. Eftir aðeins 50 sek. tók
Zola aukaspyrnu og sendi knöttinn
inn í vítateig Tottenham, þar sem
Eddie Newton skallaði knöttinn að
marki. Sol Campbell, varnarmaður
Tottenham, varð þá fyrir því óhappi
að senda knöttinn í eigið mark.
Roberto Di Matteo bætti öðru
marki við, þegar hann sendi knöttinn
í netið af 26 m færi, án þess að Ian
Walker ætti möguleika á að veija.
David Howells svaraði fyrir Totten-
ham, undir lok leiksins var Hughes
nær búinn að bæta marki við fyrir
Chelsea, en Walker sá við honum og
varði vel.
Emerson fyrstur til aA fagna
Brasilíumaðurinn Emerson var
fyrstur til að hlaupa til landa síns,
Juninho, til að óska honum til ham-
ingju eftir að Robbie Mustoe, fyrir-
liði Middlesbrough, hafði jafnað met-
in gegn Wimbledon, 1:1. Juninho ein-
lék skemmtilega á nokkra vamar-
menn Wimbledon inn í vítateig, áður
en hann sendi knöttinn til Mustoe.
Ástæðan fyrir því að Emerson fagn-
aði, var að hann hafði áður misnotað
vítaspymu - Neil Sullivan, mark-
vörður, varði skot hans. Middlesbro-
ugh varð fyrir því óhappi að skora
sjálfsmark í byrjun leiks, Neil Cox.
Gestimir vora allan tímann betri,
Juninho hættulegur í sókninni og
Emerson stjórnaði miðjunni .
Leikmenn Everton komu í veg
fyrir að sett yrði nýtt liðsmet í 119
ára sögu liðsins - að tapa sjö leikjum
í röð. Duncan Ferguson og Nicky
Barmby sáu um það. Þetta var ann-
ar sigur Everton á tveimur mánuð-
um, en liðið byijaði keppnistímabilið
mjög vel - vann Newcastle og gerði
jafntefli við Man. Utd. Þrátt fyrir
slæmt gengi er Joe Royle ekki valtur
í sessi. „Við eram ekki byijaðir að
örvænta, þó okkur hafi ekki gengið
vel. Við munum vel þegar Royle kom
til okkar, til að bjarga okkur frá
falli og síðan urðum við bikarmeistar-
ar undir hans stjórn í fyrra og í sjötta
sæti í deildinni,“ sagði Peter John-
son, stjórnarformaður Everton.
Gary Breen, sem Coventry keypti
frá Birmingham á 2,5 millj. punda,
stjórnaði vamarleik liðsins gegn
Sheffield Wed. Vel skipulagður vam-
arleikur hélt hinum hættulegu sókn-
arleikmönnum Sheffield Wed., David
Hirts og Andy Booth, niðri. Heima-
menn höfðu tökin, en Coventry hélt
hreinu, 0:0.
ífiRÓm
FOLK
■ MATTHEW Le Tissier, fyrir-
liði Southampton, fékk það hlut-
verk að hafa gætur á David Beck-
ham hjá Man. Utd. Hann gerði það
vel, en fékk að sjá gula spjaldið hjá
dómara leiksins, Mike Riley.
■ JAN Eriksson lék sinn fyrsta
leik með Sunderland gegn Aston
Villa, eftir að hann var keyptur frá
Helsingborg á 250 þús. pund. Sví-
inn var bókaður í leiknum.
■ GIANLUCA Vialli, sem skoraði
tvö mörk fyrir Chelsea gegn Liv-
erpool á dögunum í bikarkeppn-
inni, var settur út úr liðinu fyrir
leikinn gegn Tottenham. Hann var
ekki ánægður og settist ekki á vara-
mannabekkinn með öðrum leik-
mönnum - sat fyrir utan bekkinn,
en kom til félaga sinna þegar langt
var liðið á seinni hálfleikinn.
■ CHELSEA vann sinn fyrsta sig-
ur á White Hart Lane síðan 1987.
Chelsea hafði leikið sextán leiki í
röð gegn Tottenham án þess að
fagna sigri - vann síðast á Stam-
ford Bridge fyrir sjö áram.
■ FABRIZIO Ravanelli lék ekki
með Middlesbrough gegn
Wimbledon, þar sem hann er kom-
inn í leikbann.
■ „BORO“ er komið í vandræði
vegna leikbanna. Brasilíumenn-
irnir Juninho og Emerson, eru
komnir með það mörg refsistig, að
þeir fara í bann.
■ BRYAN Robson, knattspyrnu-
stjóri „Boro“, seldi Norðmanninn
Jan-Áge Fjörtoft til Sheff. Utd.
á 700 þús. pund fyrir helgina. Hann
segir að miðvallarspilararnir Junin-
ho og Graig Hignett séu betri
miðheijar en Fjörtoft.
■ LES Sealey lék í marki West
Ham, þar sem Ludo Miklosko er
meiddur. Seley, sem er 40 ára,
mátti hirða knöttinn tvisvar úr net-
inu hjá sér, 2:1. West Ham hefur
aðeins unnið einn af síðustu sautján
leikjum sínum.
■ RIO Ferdinand, 18 ára vamar-
leikmaður, sem kom inná sem vara-
maður, skoraði mark West Ham.
Þess má geta að það eru liðnar níu
vikur síðan sóknarleikmaður skor-
aði fyrir liðið - miðvallarleikmaður-
inn Ian Bishop skoraði þá.
■ KENNY Dalglish, knattspyrnu-
stjóri Newcastle, hefur tröllatrú á
Faustino Asprilla og er ekki líkleg-
ur til að selja hann fyrir sjö millj.
punda til Italíu. Dalglish er byijað-
ir að gera breytingar á liði New-
castle - hann hefur sett David
Ginola út og einnig Peter Beards-
iey, 36 ára.
■ JIM Smith, knattspymustjóri
Derby, segir að bestu kaupin sem
hann hafí gert á ferli sínum, séu
er hann keypti Paul McGrath frá
Aston Villa. Þetta er mikið hrós
fyrir McGrath, sem er aftur kominn
í írska landsliðið. Smith hefur ver-
ið knattspyrnustjóri hjá Blackburn,
Birmingham, QPR, Oxford,
Newcastle og Portsmouth.
■ HARRY Redknapp, knatt-
spyrnustjóri West Ham, hefur ekki
gefið upp alla von að fá Mike Sher-
on, markaskorara Stoke, til liðs við
sig. Þá er líklegt að Paul Kitson,
Newcastle, gangi til liðs við „Ham-
mers“ í vikunni.
■ BRUCE Rioch, fyrrum knatt-
spyrnustjóri Arsenal, hafnaði boði
frá WBA, um að hann tæki við lið-
inu. Hann er nú aðstoðarmaður
Stewart Houston hjá QPR.
■ CHRIS Waddle, sem leikur með
Bradford, hefur einnig hafnað boði
frá Albion og einnig John Tosh-
ack, þjálfari La Coruna á Spáni.
Nú er Ian Rush, fyrirliði Leeds,
orðaður við Albion.
■ ALEX Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Man. Utd., fór aftur til Spán-
ar á sunnudaginn, til að fylgjast
með varnarmanninum Roberto Ri-
os, 24 ára landsliðsmanni, sem leik-
ur með Real Betis.