Morgunblaðið - 04.02.1997, Síða 12

Morgunblaðið - 04.02.1997, Síða 12
KARATE Eyðimerkur- prinsinn sýndi styrk sinn Nýi eyðumerkurprinsinn frá Marokkó, Hicham E1 Guerro- udj, setti sitt fyrsta heimsmet um helgina er hann tók þátt í 1.500 m hlaupi innanhúss í Stuttgart. Hann hljóp vegalengdina á 3.31,18 mínút- ur og bætti eldra met sem Nouredd- ine Morceli, Alsír, setti fyrir sex árum um tæpar fjórar sekúndur en það var 3.34,16 mínútur. E1 Guerro- udj hefur oft verið nefndur arftaki Morcelis sem ókrýndur konungur millivegalengdarhlaupa. Eþíópíu- maðurinn og langhlauparinn Haile varð annar á 3.32,39 mínútum og hljóp einnig undir fyrra heimsmeti. Er sérfræðingum til efs að 5 og 10 km hlaupari eins og Gebrese- lassie er hafi í annan tíma hlaupið betur í 1.500 m hlaupi. „Ég er í sjöunda himni því allt gekk upp hjá mér í hlaupinu og árangurinn í samræmi við það og æfingar mínar síðustu vikur. Þessi árangur hressir mig eftir vonbrigð- in á Ólympíuleikunum í sumar,“ sagði E1 Guerroudj, sem er á 22. aldursári. Hann rak lestina í úrslit- um 1.500 m hlaupsins í Atlanta í sumar, en talið var nær öruggt að hann yrði í baráttunni um verð- launasæti. HAILE Gebrselassie óskar hér Hlchlam El Guerroudj tll hamingju með heimsmetið í 1.500 m hlaupi innanhúss í Stuttgart um helgina en báð- ir hlupu þeir undir gamla metinu. Ánægðir verðlaunahafar LANDSLIÐSMEIMNIRNIR í karate (f.v.) Konráð Stefánsson, Ingólfur Snorrason og Ólafur Nlelsen. Komu með tvö gull og eitt silfur frá Danmörku Þrír íslenskir landsliðsmenn í karate náðu góðum árangri í kumite á Liven-Cup ’97 sem fram fór í Árósum á laugardaginn. Kepp- endur komu frá sex þjóðum; Nor- egi, Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi og ísrael auk íslands og voru á annað hundrað talsins. Ingólfur Snorrason frá Selfossi sigraði í +80 kg flokki eftir að hafa lagt danskan keppanda í úrslitum. „Þetta er líklega besti árangur sem íslenskt landslið í karate hefur náð. Tvenn gullverðlaun og ein silf- urverðlaun hljóta að teljast gott enda mótið nokkuð sterkt,“ sagði Ingólfur sem er 22 ára og hefur æft íþróttina af kappi í sjö ár. Þeir Ólafur Nielsen, Þórshamri, og Konráð Stefánsson, KFR, kepptu til úrslita í 80 kg flokki og var viðureign þeirra æsispennandi og jöfn. Staðan var 5-5 að loknum venjulegum leiktíma en i fram- lengdum leik átti Ólafur fyrsta stig- ið og vann því sigur 6-5 og þar með gullið en Konráð varð að láta sér lynda silfrið. Milli 15 og 20 keppendur voru í hverjum þyngdarflokki og þurfti að vinna þrjár fyrstu glímurnar til að komast í úrslit. Mótið var liður í undirbúningi landsliðsins fyrir Opna skandinavíska meistaramótið sem fram fer í Svíþjóð í næsta mánuði. Reuter SUND Þrjú heimsmet féllu Kínverska sundstúlkan Han Xue bætti eigið heimsmet í 50 m bringusundi í annað sinn á fimm dögum á heimsbikar- móti i Gelsenkirchen í Þýskalandi um helgina. Hún synti á 30,77 sek. á sunnudag og var það þriðja heimsmetið sem féll á mótinu. Rússneski Ólympíumeistarinn Denis Pankratov bætti met Frakkans Franc Esposito í 200 metra flugsundi á laugardag um tæpa hálfa sekúndu, synti á 1.52,64 mín. Marcel Wouda frá Hollandi bætti metið í 400 metra fjórsundi, synti á 4.05,59 mín. og var stigahæsti sundmaður mótsins og vann sér inn bfl með þvi. Sundfólkið fékk 2.000 dollara (140 þúsund kr.) í bón- us fyrir að setja heimsmet. Nokkur Evrópumet voru féllu einn- ig á mótinu. FRJALSIÞROTTIR SKIÐI Aftur tók Skárdal HM-gullið Atle Skárdal sigraði í fyrstu grein heimsmeistaramótsins, risasvigi, í Sestriere á Ítalíu í gær og varð um leið fyrstur Norðmanna til að veija HM-titil í alpagreinum. Skárdal, sem er þrítugur, kom í mark á 0,21 sek. betri tíma en landi hans, Lasse Kjus, sem varð annar. Austurríkismenn komu síðan í þremur næstu sætum á eftir og Gúnther Mader í þriðja sæti og var þetta í fimmta sinn sem hann hlýtur bronsverðlaun á heimsmeistaramóti. Þetta voru jafnframt fyrstu brons- verðlaun Austurríkis í risasvigi karla. „Þetta er hreint útrúlegt," var það fyrsta sem heimsmeistarinn sagði eftir sigurinn í gær. Það skal engan undra því hann hefur ekki unnið heimsbikarmót í allan vetur þó svo að hann næði öðru sæti í bruni í Chamonix og Val Gardena. Sigurinn var því óvæntur. „Ég var mjög yfirvegaður og rólegur áður en ég fór í rásmarkið og þess vegna gat ég keyrt á fullu og tekið áhættu," sagði Skárdal. Jan Ove Nystuen, þjálfari ’norska liðsins, sagðist taka undir þessi orð. „Bæði Atle og Lasse voru aflappaðari en aðrir keppendur áður en þeir fóru niður brautina. Atle hafði þegar unnið HM-titil og Lasse hafði engu að tapa,“ sagði þjálfarinn. Úrslitin voru mikil vonbrigði fyrir heimamenn, ítali, og eins fyrir Frakka og Svisslendinga, sem allir höfðu gert sér góðar vonir um að komast á verðlaunapall. Veður og skíðafæri í Sestriere í gær var eins og best gerist. ■ Úrslit / B11 Fjórði tapleikur Houston íröð Chicago sigraði í 41. leik sínum á leiktíðinni er það fór í heim- sókn til Seattle í fyrrakvöld. Enn á ný var snillingurinn Michael Jordan allt í öllu hjá meisturunum. Hann gerði 45 af 91 stigi síns liðs en heimamönnum tókst aðeins að gera 84 stig. Um leið og þetta var 20. sigur Chicago á útivelli á keppnis- tímabilinu var þetta einnig fyrsta viðureign þessara liða frá því þau mættust í úrslitaleikjum NBÁ í fyrravor. „Við erum með hörkulið þó Dennis Rodman sé fjarri góðu gamni og við höldum okkar striki án hans, það er ljóst,“ sagði Jordan sem hitti úr 19 af 28 langskotum sínum. „Um leið og okkur hafði tek- ist að minnka forskotið í tvö stig tók Jordan til sinna ráða,“ sagði George Karl, þjálfari Seattle. „Hvað gat ég gert? Beðið mína menn að gæta hans betur? Það er ómögu- legt,“ bætti hann við. Gary Payton var stigahæstur Seattle- drengja með 24, Shawn Kemp gerði 16 og Detlef Schrempf 14. Shaquille O’Neal var búinn að gera 24 stig fyrir Lakers í viðureign við Washington er hann þurfti að fara af leikvelli vegna meiðsla í hné. Það breytti engu fyrir Lakers því þeir burstuðu gesti sína 129:99. Leikmenn Lakers skoruðu 79 stig í síðari hálfleik og hefur ekkert lið gert fleiri í einum hálfleik á þessu keppnistímabili. I New York átti Glen Rice ljóm- andi góðan leik og gerði 40 stig í sigurleik Charlotte á heimamönnum i Knicks, 99:93. Rice hitti úr 8 af 15 skotum frá tveggja stiga línunni og 4 af 5 skotum frá þriggja stiga línunni, auk þess sem 12 af 15 víta- köstum rötuðu rétta Ieið. Patrick Ewing lék ekki með sínu liði annan leikinn í röð vegna meiðsla í hásin. John Starks skoraði flest stig Knicksliðsins, 26. Houston varð að sætta sig við að tapa með 13 stiga mun fyrir Orlando og var þetta fjórði tapleikur liðsins í röð, en að sama skapi er allt í lukkunnar standi hjá Orlando sem vann sinn sjöunda leik í átta viðureignum. Kevin Willis gerði 23 stig og tók 16 fráköst en Hakeem Olajuwon tókst aðeins að gera 27 stig að þessu sinni. Clyde Drexler lék með að nýju eftir meiðsl og gerði 12 stig, var með 8 fráköst og 5 stoðsendingar. Charles Barkley er hins vegar enn á sjúkralista vegna meiðsla í ökkla. Indiana Pacers burstaði Houston á aðfaranótt laugardags er Reggie Miller og félagar fengu Hakeem Olajuwon og kumpána í heimsókn, lokatölur 100:74. Miller fór á kost- um í leiknum og gerði 33 stig, þar af 17 í fýrsta leikhluta. Hann hitti úr 12 af 20 skotum utan af vellin- um. Næstur honum kom Dale Davis með 17 stig. „Þetta var sigur liðs- heildarinnar og á þessari braut verð- um við að halda áfram,“ sagði sigur- reifur Miller í leikslok. Olajuwon sem átti stórleik kvöldið áður náði sér ekki á strik að þessu sinni og gerði aðeins 6 stig og tók 3 fráköst í þær rúmu 30 mínútur sem hann var inná, þar af gerði hann fyrstu körfuna þegar tæpar 19 mínútur voru liðnar af leiknum. Meistaravél Chicago hikstaði ekki vitundarvott er hún hélt til viður- eignar við Golden State á heima- velli þeirra síðarnefndu. Chicago með Scottie Pippen í broddi fylking- ar að þessu sinni, náði 37 stiga for- skoti í fyrri hálfleik og á þeim tíma gerði Pippen 23 af 32 stigum sínum. Michael Jordan og Toni Kukoc gerðu 18 hvor.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.