Morgunblaðið - 04.02.1997, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 04.02.1997, Qupperneq 18
18 C ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Kristinn Flutningur húsbréfakerfsins til bankanna ekki raunhæfur fyrr en um næstu áramót í skýrslu nefndar á vegum félagsmálaráðu- neytisins er lagt til, að ríkisábyrgð á húsbréf- um verði afnumin samkvæmt langtímaáætl- un, en húsbréfakerfíð fært til lánastofnana sem fyrst. Magnús Sigurðsson rekur hér aðalefni skýrslunnar og leitar álits hjá Sig- urði Geirssyni, forstöðumanni verðbréfa- deildar Húsnæðisstofnunarinnar. SIGURÐUR Geirsson, forstöðumaður verðbréfadeildar Húsnæðisstofnunar ríkisins. EKKI hafa enn farið fram mikl- ar umræður á opinberum vett- vangi um nýútkomna skýrslu nefndar þeirrar, sem félagsmála- ráðherra skipaði í ársbyijun í fyrra til að kanna möguleika á að draga úr ríkisábyrgð í húsbréfakerfínu og til að færa starfsemi húsbréfadeild- ar frá Húsnæðisstofnun til lána- stofnana. Þessarar skýrslu hefur samt verið beðið með nokkurri eftir- væntingu, en þar koma fram ýmsar athyglisverðar tillögur og niður- stöður. Annars vegar er þar um að ræða tillögur um aðgerðir, sem hægt er að grípa til á næstu mánuðum og hins vegar er bent á mögulega þró- un húsbréfakerfísins til lengri tíma með það fyrir augum að draga úr ríkisábyrgð á húsbréfum eða gera hana óþarfa. Nefndin leggur til, að strax verði hafízt handa um að færa afgreiðslu og alia þjónustu vegna húsbréfa- kerfisins frá húsbréfadeild til við- skiptabanka, sparisjóða og verð- bréfafyrirtækja með sérstökum þjónustusamningi, sem lokið verði við fyrir 1. aprfl. nk. Þá ieggur nefndin tii, að fram- kvæmd greiðslu- og veðmats fari saman og verði alfarið á ábyrgð viðskiptabanka, sparisjóða og verð- bréfafyrirtækja. Ábyrgðin felist í því að bæta kröfu, sem tapast vegna þess að ekki var farið í einu og öllu að reglum um greiðslu- og veð- mat. Hafízt verði handa um endur- bætur á því greiðslu- og veðmati, sem nú er grundvöllur að heimild til skuldabréfaskipta. Nefndin telur, að ekki sé unnt að hverfa frá ríkisábyrgð nema að til komi aðili, sem veitt geti sambæri- iega ábyrgð. Nefíidin leggur til, að unnið verði að afnámi ríkisábyrgðar samkvæmt langtímaáætlun með það að markmiði að öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum raskist ekki við afnám hennar, enda leiði það ekki til aukins kostnaðar fyrir hús- kaupendur eða byggjendur. Stefnumörkun til langs tíma Varðandi langtímastefnumörkun fyrir húsbréfakerfíð er í skýrslunni lagt til, að þrír kostir verði skoðað- ir sérstaklega: í fyrsta lagi, að húsbréfadeildin verði gerð að hlutafélagi, sem ríkis- sjóður eigi í upphafi og heyri undir forsjá félagsmálaráðuneytisins, en selji síðan hlutabréfín á markaði jafíiframt því, sem hlutafélagið afli eigin fjár með sama hætti. Hugsanlegir kaupendur væru innlánsstofnanir, verðbréfafyrir- tæki, lífeyrissjóðir, hlutabréfasjóðir og almenningur. Hlutafélagið lúti sömu kröfum um eiginfjárhlutfall og bankar. Ríkisábyrgð yrði veitt í upphafi gegn greiðslu ábyrgðar- gjalds en yrði felld niður á nýjum húsbréfum í áföngum. Skuldabréfa- skipti yrðu með sama hætti og nú. I öðru lagi, að húsbréfadeildin verði gerð að hlutafélagi í eigu banka og sparisjóða en ríkissjóðs í upphafí. Viðskiptabankar og spari- sjóðir sjái um fasteignaveðlán, sem yrðu endurfjármögnuð með því að bankarnir selji “Húsbréfabankan- um“ þau bréf og fái í staðinn hús- bréf útgefín af Húsbréfabanka. í þriðja lagi að setja löggjöf um fijálsa starfsemi húsbréfastofnana, sem starfí sem hlutafélög og starf- ræki veðdeildarkerfí, er veiti hús- bréfalán samkvæmt sérstökum reglum og skilyrðum. Ríkisábyrgð gæti verið aðskilin og veitt gegn gjaldi. Samkvæmt erindisbréfí nefndar- innar var verkefni hennar tvíþætt. Annars vegar að kanna, hvemig draga megi úr ríkisábyrgð í hús- bréfakerfinu og hins vegar að kanna hvemig færa megi starfsemi hús- bréfadeildarinnar til lánastofnana. Það var niðurstaða nefndarinnar, að draga megi úr áhættu ríkissjóðs með því að endurbæta aðferðir við greiðsiu- og veðmat. Jafnframt tel- ur nefndin, að ástæða sé til þess, að lánastofnanir og verðbréfafyrir- tæki axli fulla ábyrgð á því greiðslu- mati, sem þær annast fyrir hönd húsbréfadeildarinnar. í þessu felst, að skilgreind yrði ábyrgð þeirra aðila, sem annast greiðslumat fyrir hönd stofnunarinnar og gert að skilyrði, að þeir tækju ábyrgð á því, að greiðslumatið væri í sam- ræmi við þær reglur, sem húsbréfa- deildin setur. Jafnframt telur nefndin, að bæta megi veðmat, sem lagt er til gmnd- vallar veðsetningum fasteignaveð- bréfa og kemur þar tvennt til álita. Annars vegar, hvort áfram sé rétt að styðjast að hluta til við bruna- bótamat og hins vegar, hvort ekki kunni að vera betra að fela lána- stofnunum, sem jafnframt annast greiðslumat að gera jafnhliða mat á fyrirhuguðu veði. Það er mat nefndarinnar, að draga megi úr áhættu ríkissjóðs af rekstri hús- bréfadeildar með þessu móti. Mikil- vægt er, að hrinda þessum áformum í framkvæmd hið fyrsta. Vaxtaálagið of Iágt Nefndin hefur jafnframt kannað þróun vanskila og útlánatapa hjá húsbréfadeildinni með hliðsjón af skýrslu Ríkisendurskoðunar um Húsnæðisstofnunina frá október 1996. Einnig hafa verið unnið fram- reikningar fyrir nefndina á fjár- hagsstöðu húsbréfadeildar miðað við mismunandi forsendur um út- lánatöp. Niðurstaða beggja þessara athugana benda til þess, að það vaxtaálag, 0,35%, sem nú er í gildi, sé of lágt. Varðandi flutning á hluta af starfsemi húsbréfadeildar til al- mennra lánastofnana, hefur nefnd: in skoðað tvær hliðar þess máls. í fyrsta lagi, að húsbréfadeild geri nokkurs konar þjónustusamninga við lánastofnanir og verðbréfafyrir- tæki, sem þess óska, um afgreiðslu húsbréfa, þannig að væntanlegir lántakendur í húsbréfakerfínu fái alfarið afgreiðslu í þeirri lánastofn- un eða verðbréfafyrirtæki, sem þeir vilja skipta við. Með þessu væri afgreiðsla hús- bréfa einfölduð og færð nær við- skiptavinunum. Þessi breyting útaf fyrir sig dregur ekki.úr áhættu rík- issjóðs af húsbréfakerfínu, en með þessu er komið til móts við þau sjón- armið, sem sett hafa verið fram um að bæta þjónustu kerfisins við lán- þega. I öðru lagi hefur nefndin skoðað ýmsa kosti varðandi hugsanlega breytingu á starfsemi eða félags- formi húsbréfadeildarinnar, þannig að bein ríkisábyrgð á húsbréfum falli niður. Kostir þessarar leiðar, auk þess að draga úr áhættu ríkis- sjóðs, er aukin samkeppni á lána- markaði og ef til vill bætt þjónusta við lántakendur á húsnæðismark- aðnum. Hefur nefndin m. a. átt viðræður við fulltrúa lánastofnana og verðbréfafyrirtækja um þetta mál. Verði húsbréfadeildin gerð að hlutafélagi mun hún væntanlega falla undir lög um aðrar lánastofn- anir. Ákvæði laga um eigið fé lána- stofnana munu kalla á nokkuð hraða uppbyggingu eigin fjár hús- bréfadeildarinnar eða mikil stofn- framlög eigenda í upphafi og vænt- anlega arðsemiskröfu af því fjár- magni, að minnsta kosti þegar fram í sækir. Slíkt myndi þýða vaxta- hækkun á fasteignaveðbréfum frá því sem nú er eða í öllu falli hækk- un á ávöxtun húsbréfa. Eigið fé húsbréfadeildar er nú aðeins um 400 milljónir kr., en þyrfti að vera um 3 milljarðar kr., ætti hún að uppfylla ákvæði laga um aðrar lánastofnanir varðandi eigið fé. Ófullnægjandi tímamörk Félagsmálaráðherra hefur lýst því yfír, að hann telji mjög áhættusamt að afnema ríkisábyrgð á húsbréf- um. Með því yrði hagsmunum íbúðarkaupenda og húsbyggjenda stefnt í hættu. Vextir og afföll af húsbréfunum gætu hækkað. Bolla- leggingar um afnám ríkisábyrgðar- innar á húsbréfum eru því vart raunhæfar að svo komnu. Ráðherr- ann hefur hins vegar lýst yfír ánægju sinni með tillögur nefndar- innar um, að bankamir taki alfarið við greiðslumati og veðmati í hús- bréfakerfinu. En hversu raunhæft er það verk- efni í framkvæmd að flytja hús- bréfakerfið í heild sinni til lána- stofnana eigi síðar en 1. apríl eins og nefndin nefndin leggur til og það án aukins kostnaðar fyrir lán- takendur? Fyrir svörum verður Sig- urður Geirsson, forstöðumaður verðbréfadeildar Húsnæðisstofnun- arinnar, en hann starfaði með nefndinni. — Þessi tímamörk eru með öllu ófullnægjandi, segir Sigurður. — Það þarf mikla undirbúningsvinnu, áður en hægt er að færa húsbréfa- kerfíð til bankanna og að mínu mati með öllu útilokað að hægt verði að ljúka henni fyrir 1. apríl nk. Þegar greiðslumatið var flutt til bankanna á sínum tíma, vom tveir mánuðir ætlaðir til að þjálfa starfsfólkið, en það reyndist hvergi nærri nógur tími. Auk þess var gert ráð fyrir, að bankamir hefðu eftir það sjálfír á að skipa nægu starfsfólki, sem væri það vel að sér um húsbréfa- mál, að þeir gætu sinnt áframhald- andi þjálfun starfsmanna sinna, án þess að húsnæðisstofnunin kæmi þar nærri. Reyndin hefur verið sú, að stofnunin hefur oft þurft að sjá bankakerfinu fyrir leiðbeinendum á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.