Morgunblaðið - 04.02.1997, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 04.02.1997, Qupperneq 30
30 C ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Lofthreinsibúnaður gegn hljóðmengun LOFHREINSIRÁSIRNAR eru af mismunadi styrkleika. í þeim er jafnframt hljóðdeyfir, sem deyfir utanaðkomandi hávaða. FYRIRTÆKIÐ Óson ehf. hefur hafið innflutning á hljóðdeyfum og lofthreinsirásum frá sænska fýrir- tækinu Fresh. Með þessum búnaði á að vera hægt að fá hreint loft inn í hús og draga úr utanaðkomandi hávaða um leið. Að sögn Ólafs H. Jónssonar, framkvæmdastjóra Óson, er hægt að setja þessar loft- rásir jafnt upp í eldri húsum sem nýbyggingum. Inni í húsinu, hvort sem um íbúð, skrifstofu eða annað húsnæði er að ræða, er komið fyrir innri ventli, sem er með einangruðu loki og síum til varnar ryki, umferðarmengun, skordýrum, fijókornum og bakter- íum. í gegnum vegginn sjálfan er bor- að með kjarnabor fyrir ofan glugga eða um 10 cm frá lofti fyrir hljóð- deyfandi röri. Þetta rör, sem er 14 cm í þvermál, er úr einangrunarull, sem deyfir utanaðkomandi hávaða, sem berst inn í húsið. Inni í rörið er sett stormhlíf, sem stjórnar því magni af fersku lofti, ^sem berast á inn fýrir og lokar nær alveg fyrir opið í miklum vindum eða veðrum. Utan á húsið er jafn- framt sett rist, sem fylgir með í þessum búnaði. Að sögn Ólafs kostar þessi bún- aður í heild, það er inniventill með síu, hljóðdeyfirörið, stormhlífin og rist að utanverðu 6.100 kr. án virð- isauka fyrir herbergi, sem er 10-15 ferm. og 6.800 kr. án virðisauka fyrir stærri herbergi. Bora þarf í veggi til þess að koma bessum búnaði fýrir og að sögn <31afs fer kostnaður við slíka borun eftir aðstæðum og hvort bora þarf fá göt eða fleiri. — Kjamaborun getur kostað frá 15.000 kr. og allt upp í 25.000 kr. á hvert gat, segir hann. — Oftast eru gerð tilboð í þann verkþátt. — Með þessum búnaði á að vera hægt að fá hreinna loft inn en áður og um leið minnka utanaðkomandi hávaða niður fyrir 30 decibel innan- húss, segir Ólafur. — Lágmarks- kröfur eru um, að innanhúss megi hávaðinn ekki fara yfir 30 decibel. Ef hávaði utanhúss er t. d. 65 deci- bel, þá myndi búnaður af gerðinni Fresh 80 DB minnka þennan há- vaða niður í 22 decibel innanhúss. Sænska fyrirtækið Fresh hefur allt frá árinu 1969 sérhæft sig í þróun, framleiðslu og sölu á fersk loftsrásum og ýmiss konar ventlum, sem bæði eru notaðir fyrir íbúðar- hús, fyrirtæki, opinberar stofnanir, skóla og samkomuhús og selur þennan búnað nú þegar til allflestra landa í Evrópu auk Japans. Fyrir- tækið rekur einnig dótturfýrirtæki í Danmörku, Noregi, Englandi og Þýzkalandi. — Ég tel, að þessi búnaður geti einnig komið að góðum notum hér á landi, sagði Ólafur H. Jónsson að lokum. — Loftmengun og há- vaðamengun eru vaxandi vandamál hér á landi sem annars staðar og á sumum stöðum í Reykjavík eru bæði hljóðmengun og loftmengun frá bílaumferð langt fyrir ofan leyfi- leg mörk. sák. n EKKERTSKOÐUNAGJALD FASTEIGNASALA -GÆDI Sæmundur H. Sæmundsson, sölustjóri/byggingam. Rósa Halldórsdóttir, söiufuIItrúi/ritari Sigurberg Guðjónsson, hdl. lögg. fasteignasali. Suðurlandsbraut 16 (3. hæð), 108 Rvík. Sími 588 8787, fax 588 8780 Opið virka daga 9.00-18.00. Símatími laugardaga 11-14. 2JA HERBERGJA Garðhús Falleg og rúmgóð 70 fm 2ja herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýli m/bílskúr. Vandaðar innréttingar. Verð 6,5 m. 112 Eyjabakki Góð 2-3ja herb. íbúð á fyrstu hæð. Mjög hagstæð lán um 3,0 m. Verð 5,2 m. 237 Arahólar 2ja herb. íbúð á 3ju hæð i lyftuhúsi við Arahóla. Góður staður, frá- bært útsýní. Verð 5,5 m. 298 3JA HEFiBERGJA Furugrund Falleg 3ja herb. íbúð á fyrstu hæð. ibúðin er 74 fm. Skipti á stærri eign. Verð 6,5 m. 288 Keilugrandi Falleg 3-4ra herb. íbúð á fjórðu hæð ásamt stæði í bílahúsi. Stærð er 87 fm. Góð eign. Verð 7,3 m. 275 Alfaheiði :alleg 3ja herb. íbúð á 2.1 hæð í litlu fjölbýlishúsi. Stærð 80 fm. Mjög hagstæð lán 4,9 m. Verð 7,7 m. 253 írabakki Góð 3ja herb. íbúð I fallegu sambýli. Parket á stofu, eldhúsi og forstofu. Tvennar svalir. Verð 5,9 m. 120 4RA HERBERGJA Engjasel Gullfalleg 3-4ra herbergja íbúð á tveimur hæðum í fallegu fjölbýlis- húsi. Stásrð 96 fm. Stórt eldhús, þvottavél á baði. Stæði í bílskýli. Verð 7,3 m. 153 Suðurhólar Góð 4ra herb. íbúð sem er um 100 fm. Sameign og húsið að utan I góðu ástandi. ATH: Verð aðeins 6,9 m. 271 Hraunbraut Falleg neðri sérhæð I Kóp. Hæðin er um 100 fm. auk bílskúrs sem er 32 fm Verð 9,8 m. 290 EINBÝLISHÚS/RAÐHÚS Sogavegur Glæsilegt þriggja íbúða hús á einum besta stað í borginni. Heildar- stærð um 290 fm. Vandaðar innréttingar. Hús sem gefur mikla möguleika. 219 Háagerði Fallegt endaraðhús á einum besta stað í borginni. Húsið er hæð og ris ásamt mjög góðri sólstofu. Vönduð eign. Verð 12,6 m. 277 Álfhólsvegur Fallegt raðhús við Þverbrekku í Kópavogi ásamt bílskúr. Hús- ið er 125 fm og bílskúrinn um 20 fm. Góðar innréttingar. Lítill fallegur garður. Verð 10,5 m. 234 Byggðarendi Einbýli á mjög góð- um stað með mögui. fyrir tvær ibúðir. Stærð 219 fm auk bilskúrs sem er 38 fm. Falleg eign. Verð 17,9 m. 284 Kambahraun, Hveragerði Einbýlishús á einni hæð samtals 134 fm auk bílskúrs sem er 48 fm. Falleg lóð með heitum potti. Húsið er á einum besta stað í Hveragerði. Skipti á minni eign í Reykjavík. Verð 8,7 m. 123 Langabrekka Parhús með tveimur íbúðum, samtals 181 fm ásamt bilskúr sem er 35 fermetrar. Rólegur og góður staður. Góð eign. Verð á báðum íbúðunum 13,8 m. 166 BYGGINGU Jörfalind í byggingu raðhús á ein- um besta stað i Kópavogi. Húsin eru á tveimur hæðum ásamt bilskúr. Afhend- ast fullbúin úti og fokheld inni. Verð frá 8,8 m. 246 Fjallalind ( byggingu raðhús í Kóp. Húsin eru hæð og ris, ásamt bílskúr. Stærð 175,5 fm Húsin afhendast fullbú- in úti og fokheld inni, eða lengra komin. Verð frá 8,9 m. 257 FYRIRTÆKI Vel staðsettur söluturn i Breiðholti, góð velta. Mjög hagstætt verð og greiðslu- kjör. Uppl. á skrifstofu. 187 Seljendur athugð: Vantar allar stærðir fasteigna á söluskrá VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR Ráðstöfun bílskúra Ráðstöfun bílskúra í fjölbýlishúsum hefur oft verið deiluefni. Sandra Baldvinsdóttir lög- fræðingur ffallar hér um þær reglur, sem að þessu lúta. Ifjöleignarhúsalögunum var lög- fest sú meginregla að óheimilt er að ráðstafa bílskúrum út fyrir húsið og að undanskilja þá við sölu eignarhluta, nema eigandi eigi ann- an eignarhluta í húsinu. Þó er heim- ilt að ráðstafa bflskúrum milli húsa þegar svo stendur á, að bílskúrar eru á sameiginlegri lóð þeirra, en slíkt fyrirkomulag þekkist núorðið allvíða. Með þessari reglu var tekið á álitaefnum sem snerta bílskúra og ráðstöfun þeirra og ekki var fjallað um í eldri lögum. Virðist það hrein- lega hafa gleymst og því voru bíl- skúrar og ráðstöfun þeirra tíð deilu- efni. Eiganda var heimilt að undan- skilja bílskúr til utanaðkomandi aðila. Verulegt los komst á bílskúra við fjöleignarhús og er nokkur fjöldi bílskúra í eigu utanaðkomandi að- ila, sem hafa eignast þá með lögleg- um hætti á sínum tíma. Vandamál hafa oft á tíðum skapast vegna slíkra bílskúra. Rökin bak við meginregluna Meginregla þessi byggist á því að óeðlilegt sé að bílskúr á lóð fjöl- eignarhúss sé í eigu manna út í bæ, sem jafnvel reka þar atvinnustarf- semi, s.s. bifreiðaverkstæði. Það hefur margvísleg óþægindi og flækjur í för með sér varðandi eign- ar- og afnotarétt lóðar og þátttöku í húsfélagi þegar eignarréttur að bílskúrum færist út fyrir húsið eins og brögð hafa verið að. Við því þurfti að stemma stigu. Þóttu þessi rök vega þyngra en hagsmunir eig- anda af því að hafa ftjálsan ráðstöf- unarrétt á bílskúr. Leiga bílskúra Ekki þótti ástæða til að banna eiganda alfarið að leigja bílskúrinn, þótt vissulega megi færa rök fyrir slíku banni. Aðrir eigendur hafa þó forleigurétt að bílskúr ef eigandi hans hyggst leigja hann. Réttmæt- um hagsmunum annarra eigenda ætti með því að vera nægilega borg- ið. Hnökrar á lagaframkvæmdinni Talið var að þau vandamál sem upp komu vegna bílskúra sem voru undanskildir í gildistíð eldri laga, myndu leysast átakalítið með tím- anum og slíkir bílskúrar myndu án frekari stýringar og lagaboða kom- ast í eigu eigenda í fjöleignarhús- inu. Var á því byggt að eigendur hlytu almennt að vera mjög fúsir til að kaupa slíka bílskúra þegar þeir væru falir. Hagsmunir þeirra væru augljósir. I nokkrum tilvikum hefur annað komið á daginn og það sett utanað- komandi bílskúrseigendur í vanda, þ.e. þegar svo hefur háttað til að þeir hafa viljað selja bílskúrinn en enginn í viðkomandi húsi viljað kaupa. Þá eru bílskúrseigendum flestar bjargir bannaðar, þar sem þeim er óheimilt að selja bílskúrinn til annars utanaðkomandi aðila. Eigendur hafa þannig komist í óeðlilega samningsaðstöðu gagn- vart bílskúrseigendum og jafnvel komist yfir bílskúra fyrir verð sem er langt undir því sem eðlilegt og sanngjarnt getur talist. Meginreglan um bann við sölu bílskúra hefur því í mörgum tilfell- um leitt til ósanngjarnrar og óeðli- legrar aðstöðu bílskúrseigenda. Lagabreyting. Ráðstöfun til utanaðkomandi aðila Stemma varð stigu við slíku verð- falli eigna og ávinningi fjöleignar- húsaeigenda á kostnað bílskúrseig- enda. Brýnt var að taka á þessu og setja sérstök fyrirmæli í lög sem koma í veg fyrir að ákvæði um tak- markanir á ráðstöfun bílskúra við ljöleignarhús geti haft svo óeðlileg- ar og ósanngjarnar afleiðingar sem raun ber vitni. Vilji eigendur ekki fýrir nokkurn mun kaupa þykir ekki lengur nauðsynlegt að vernda hagsmuni þeirra. Þegar svo stendur á verðúr að leyfa bílskúrseigendun- um að finna sér annan kaupanda. Því var bætt við nýrri lagagrein þar sem heimilað er að ráðstafa bílskúr í eigu utanaðkomandi aðila til annarra utanaðkomandi aðila. Skilyrði ráðstöfunar Fyrir slíkri ráðstöfun er það gert að skilyrði að eigandi bílskúrs- ins gefi hlutaðeigandi eigendum og húsfélagi kost á að kaupa hann. Skulu þeir svara kaupboðinu skrif- lega að jafnaði innan 14 daga. Berist ekki svar innan frestsins telst kaupboðinu vera hafnað. Vilji fleiri en einn kaupa ræður eigandi bílskúrsins hveijum þeirra hann selur. Náist ekki samkomulag um kaupverðið geta aðilar leitað til við- komandi héraðsdóms og fengið dómkvaddan matsmann til að meta bílskúrinn til verðs. Sömuleiðis geta aðilar skotið ágreiningi sínum til kærunefndar íjöleignarhúsamála og unað áliti hennar. VALIÐ ER AUÐVELT — VELJIÐ FASTEIGN Félag Fasteignasala

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.