Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Mikið framboð fyrir íþróttaáhugamenn . ■ ■
SUNNUDAGUR MÁNUDAGUR ÞRIÐJUDAGUR MIÐVIKUDAGUR FIMMTUDAGUR FÖSTUDAGUR LAUGARDAGUR
23 24 25 26 27 28 29
Haukar - KA Undanúrsl. karla í handk., 1. leikur ## Fram - UMFA Undanúrsl. karla í handk., 2. leikur KA-Haukar 2. leikur KR-UMFG Úrslitak. í körfuk. kvenna, 3. leikur Skiðalandsmót á Ólafsfirði og Dalvík UMFA-Fram Undanúrsl. karla í handk., 3. leikur (ef þarf) Skíðalandsmót Haukar- KA 3. leikur (ef þarf) UMFG - KR Úrslitak. í körfuk. kvenna, 4. leikur (ef þarf) Skfðalandsmót
%
30 31 1 2 3 4 5
Skíðalandsmót Skiöalandsn^^ Stjarnan - Haukar r Urslitak. kvenna íhandb., 1. leikur Keflavík - Grindavík Úrslitak. í körfuk. karla, 1. leikur Skíðalandsmót , KR - UMFG Úrslitak. í körfuk. kvenna, 5. leikur (ef þarf) ísland - Kína Landsleíkur í handk. á (safirði fsland - Kína Landsleikur í handk. á Selfossi Haukar - Stjarnan Úrslitak. kvenna I handb., 2. leikur Grindavík - Keflavík Úrslitak. í körfuk. karla, 2. leikur Stjarnan - Haukar Urslitak. kvenna í handb., 3. leikur \
6
Keflavík - Grindavík Úrslitak. í körfuk. karla, 4. leikur ???-??? Úrslitak. í handk. karla, 1. leikur
■ MARÍA Guðmundsdóttir körfu-
knattleikskona úr KR leikur ekki
með liðinu í úrslitunum og hefur
ekki gert frá áramótum. María er
ófrísk og hætt í körfubolta, um sinn
að minnsta kosti.
■ VALA Flosadóttir úr ÍR og
heimsmethafi unglinga í stangar-
stökki var nýlega kjörin efnilegasti
íþróttamaður Malmö fyrir árið 1996.
Það voru íþróttafréttamenn í Malmö
sem stóðu að kjörinu. Þá var Vala
einnig kjörin efnilegasta fijáls-
íþróttakona Skáns nýlega.
■ HRUND Grétarsdóttir, hand-
knattleikskona úr Stjörnunni, gerði
25. mark liðs síns á laugardaginn,
eða það hélt hún. Gieymst hafði að
skrá hana á leikskýrslu og þar sem
leikurinn var ekki hafinn á ný þegar
þetta uppgötvaðist var markið dæmt
af og hún fékk rauða spjaldið.
■ STJÖRNUSTÚLKUR voru ekki
ánægðar með að markið skyldi dæmt
af en Guðríður Guðjónsdóttir,
þjálfari og leikmaður Fram, sneri
sér að þeim og sagði, „Verið ekki
að þessu. Þetta er nú bara eitt
mark.“ Sjónarmið Guðríðar er
skiljanlegt, því munurinn hefði orðið
14 mörk ef markið hefði verið gilt.
■ HELGI Valur Daníelsson lék í
Mm
FOLK
fyrsta skipti með meistaraflokki í
síðustu viku er hann kom inn á í lið
Fylkis þegar það mætti KR í Reykja-
víkurmótinu. Helgi er aðeins 15 ára
gamall.
■ AGANEFND ítalska knatt-
spyrnusambandsins breytti um helg-
ina úrskurði sínum vegna sjö leikja
banns sem það dæmdi Sinisa Mi-
hajlovic hinn sterka vamarmann
Sampdoria í á dögunum. Eftir að
forráðamenn félagsins og áhorfendur
höfðu mótmælt kröftuglega breytti
dómari leiksins, sem rak Mihajlovic
útaf, orðalagi á skýrslunni og þá var
ákveðið að bannið yrði tveir leikir.
■ BANDARÍSKA stúlkan Tara
Lipinski varð um helgina yngsti
heimsmeistari sögunnar í listhlaupi
á skautum. Á laugardaginn var hún
14 ára, níu mánaða og 12 daga göm-
ul, 32 dögum yngri en Sonia Henie
frá Noregi var þegar hún sigraði
árið 1927.
■ BRESKI grindahlauparinn Matt-
hew Douglas á yfir höfði sér þriggja
mánaða keppnisbann vegna misnotk-
unar lyfja sem em bönnuð.
■ ANDRE Agassi tapaði í 2. um-
ferð Lipton-mótsins í tennis um
helgina, en hann sat hjá í fyrstu
umferð. Ástralinn örvhenti, Scott
Draper, sigraði 7-6 (7-5), 6-1 og
er þetta í fjórða sinn á árinu sem
Agassi tapar fyrsta leik í móti.
■ BORIS Becker ákvað tveimur
tímum áður en hann átti að mæta
Ianda sínum, Hendrik Dreekman
að hætta við, hann hefur verið slæm-
ur í úlnlið.
■ JOSE Maria Olazabal lék á 67
höggum á síðasta degi á golfmóti á
Kanaríeyjum á sunnudaginn. Þar
með bar hann sigur úr býtum í mót-
inu en þetta er þriðja mótið sem
Olazabal tekur þátt í síðan hann
byijaði að keppa á ný eftir 18 mán-
aða frí vegna veikinda í lok febrúar.
í heildina lék Spánveijinn á 20 högg-
um undir pari vallarins eða á 272
höggum og var tveimur höggum á
undan Bretanum Wayne Westford.
AGABROT
Talsvert hefur mætt á aga-
nefndum tveggja sérsam-
banda að undanförnu og eru
menn ekki á eitt sáttir um niður-
stöður þær sem nefnd-
irnar komust að.
Aganefnd Hand-
knattleikssambandsins
úrskurðaði Aron Krist-
jánsson úr Haukum í
þriggja leikja bann.
Dómarar leiksins settu
á skýrstu sína að brotið hefði
verið þess eðlis að það félli undir
þann lið sem gæfi tvö refsistig.
Aganefndin lét Aron hafa þijú
og þar með fékk hann bann. í
aganefnd eiga að vera þrír menn
og einn til vara. Einn skal vera
lögiærður. Enginn nefndar-
manna er það og enginn vara-
maður er í nefndinni. Það er lág-
markskrafa að HSÍ fari að eigin
reglugerðum.
Annað atvik sýnu alvarlegra
gerðist í Keflavík ( síðustu viku
þar sem einn leikmanna Keflvfk-
inga var hreinlega laminn af leik-
manni KR, frekar tvisvar en einu
sinni. Aganefnd Körfuknattleiks-
sambandsins kom saman hið sna-
rasta, eins og henni ber, og úr-
skurðaði umræddan leikmann í
tveggja leikja bann. Sá úrskurður
er stórfurðulegur. Auðvitað á
leikmaður að fá miklu fleiri leiki
í bann fyrir að ganga i skrokk á
mótheija sinum.
En það er annað sem einnig
er furðulegt í sambandi við þetta.
Úrskurður aganefndar tekur
gildi á hádegi næsta fóstudag,
en þá verður umræddur leikmað-
ur trúlega löngu farinn af landi
brott þannig að aganefndin hefði
alveg eins getað komið saman í
haust. Þegar reglum aganefndar
var breytt 1993 hefur einhvern
vegin gleymst að halda inni
ákvæðum, um að úrskurður aga-
nefndar i úrslitakeppninni taki
tafarlaust gildi. Úrslitakeppnin
hefur greinilegt verið prúðmann-
lega leikin síðan, þvi enginn vissi
um þessa óvæntu breytingu fyrr
Verður endirinn sá að
félögin verða að setja
áhorfendur í bann?
en á laugardaginn þegar úr-
skurður féll.
Aftur að handknattleiknum og
alvarlegasta atvikinu sem hér
verður rætt um; Framkomu
stuðningsmanna Vals eftir tapið
gegn Haukum á fóstudaginn.
Það er hægt að fyrirgefa að leik-
mönnum hlaupi kapp i kinn, jafn-
vel þjálfurum. En það er algjör-
lega óskiljanlegt hvemig full-
orðnir menn, sem hvunndags
virðast nokkuð eðlilegir, geta
umbreyst þegar þeir fylgjast með
iþróttaMk. Af svip sumra í sjón-
varpsútsendingu, meðal annars
landsliðsnefndarmanns, var ljóst
að menn voru ekki á þeim buxun-
um að ræða við dómarana. Eitt-
hvað ailt annað og verra virtist
vera þessum trylltu mönnum efst
í huga. Sem betur fer tókst þeim
ekki ætlunarverk sitt, þótt einn
hafi náð að slá annan dómarann.
Svona atvik leiðir hugann að
því hvort félög eða sérsambönd
eigi ekki að geta bannað ákveðn-
um mönnum að sækja íþróttavið-
burði. Séu menn þvílíkar ham-
hleypur að þeir ráði ekki við sig
þegar komið er á áhorfendapalla
íþróttaþúsa þarf að gera eitt-
hvað. Áhorfendur hafa verið sett-
ir í bann erlendis og ef svo held-
ur fram sem horfir hér virðist
það því miður eina lausnin.
Skúli Unnar
Sveinsson'
Hvers vegna eru SIGURÐUR SVEINN SIGURÐSSON og félagarenn langbestir?
Yfirfoygging
breytir miklu
SIGURÐUR Sveinn Sigurðsson, 21 árs nemi á félagsfræði-
braut Verkmenntaskólans á Akureyri, er orðinn vanur þvf að
fagna íslandsmeistaratitli í íshokki. Skautafélag Akureyrar
varð meistari sjötta árið í röð á laugardagskvöldið, er lið fé-
lagsins sigraði Björninn í þriðja úrslitaleiknum í röð. Sigurður
hef ur verið með öll sex árin, er reyndar ekki sá eini sem það
hefur afrekað en yngstur þeirra. Sigurður, sem kjörinn var
skautamaður ársins í fyrra, er í sambúð með Guðrúnu Krist-
ínu Blöndal.
kautasvellið á Akureyri er í
Innbænum og íshokkí hefur
löngum verið talin íþrótt þeirra
■■■ sem þar búa. Sig-
Eftir urður Sveinn er
Skapta enda Innbæingur í
Hallgrímsson húð og hár.
„Meirihluti liðs-
manna er Innbæingar og þannig
hefur það alltaf verið. Það er þó
aðeins að aukast að strákar úr
öðrum hverfum komi inn í liðið.
En svellið er í Innbænum, tjörnin
þar frýs á veturna og í gamla daga
var fólk líka mikið á skautum á
Pollinum þegar hann lagði þannig
að það er mikil hefð fyrir skauta-
iðkun á þessu svæði.“
Hvers vegna eruð þið Akur-
eyringar enn langbestir?
„Langbestir? Við æfum meira
en þeir fyrir sunnan, ráðum yfir
okkar eigin skautasvelii og getum
haft æfingar hvenær sem okkur
dettur í hug. Svo fullyrði ég að
við höfum verið heppnari með er-
lenda þjálfara en Reykvíkingarnir.
Við vorum með góða Finna fyrstu
árin og nú er hér kanadískur leik-
maður og þjálfari, Allan Johnson,
sem er mjög góður. Við Innbæing-
ar höfum líka haldið því fram að
liðið sé svona gott vegna þess hve
margir okkar spila með!“
Hvað þarf til að verða góður í
íshokki?
„Menn þurfa að vera líkamlega
hraustir. Tæknin skiptir líka miklu
máli; við íslendingar höfum mjög
góða skautatækni en talsvert
skortir á kylfutæknina og betri
almennan skilning á íshokki yfir-
leitt. Það er miklu meiri hugsun í
leiknum en almenningur gerir sér
grein fyrir.“
Þú varst um tíma við æfingar
erlendis.
„Ég var í fimm mánuði í Finn-
Morgunblaðið/Kristján
SIGURÐUR Sveinn Sigurðsson, sem hefur orðið íslands-
meistari í íshokki með Skautafélagi Akureyrar sex ár í röð.
landi 1995. Finnarnir þrír sem
voru hér að þjálfa komu frá sama
bænum, Uusikaupunki, og að til-
stuðlan eins þeirra fór og fékk að
æfa með félagsliði bæjarins."
Var það ekki lærdómsríkt?
„Jú. Ég æfði mikið og tók viss-
um framförum. Skynjaði líka hvað
okkur íslendinga skorti; betri
kylfutækni og aukinn skilning."
Hvað er það sem heillar við ís-
hokkíið?
„Hraðinn og spennan; þetta er
hraðasti „knattleikur" í heimi -
þótt enginn sé knötturinn (!), enda
tölum við alltaf um íshokkí en
ekki ísknattleik. Við íslendingar
erum það aftarlega á merinni í
þessari íþrótt ennþá að framfarir
eru miklar milli ára. Við finnum
vel hve þær eru miklar og það
heillar að fá að taka þátt í því að
byggja íþróttina upp.“
Nú stendur til að byggja yfir
svellin á Akureyri og Reykjavík.
Verður það ekki bylting?
„Jú, það breytir gífurlega miklu
fyrir okkur og íþróttina í heild. Þá
verður fyrst virkilega hægt að
búast við framförum. Eins og veð-
urfarið er á íslandi er ekki hentugt
að spila íshokkí hér undir berum
himni. Við lendum í vandræðum
um leið og fer að snjóa eða vindur
að blása. Fólk sem kemur á ís-
hokkíleik virðist hafa mjög gaman
af en enginn hefur úthald í að
standa í þtjá klukkutíma úti undir
berum himni í íslenskri veðráttu
og horfa á heilan íshokkíleik. Og
það er auðvitað vel við hæfi að
yfirbyggt vélfryst skautasvell sé
hér á Akureyri, í vetraríþróttamið-
stöð Islands."