Morgunblaðið - 25.03.1997, Síða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR25.MARZ 1997 B 5
Olafur
áfram hjá
Stoke
„FORRÁÐAMENN Stoke
vildu framlengja dvöl mína
hjá félaginu fram á fimmtu-
dag, en upphaflega stóð til
að ég færi heim síðasta laug-
ardag. Það er góðs viti og nú
er bara standa sig í varaliðs-
leiknum við Grimsby á mið-
vikudagskvöldið. Ég væri al-
veg tilbúinn að vera hjá Stoke
fram á vor,“ sagði Ólafur
Gottskálksson, markvörður
úr Keflavik, í samtali í gær.
Sem kunnugt er stóð Ólafi
til boða að fara til Skotlands
og leika með Raith Rovers í
úrvalsdeildinni þar í landi, en
hann sagði þann kost ekki
hafa verið vænlegan og því
hefði hann horfið frá honum
en boð Skotanna stendur enn.
„ Annaðhvort verð ég hjá
Stoke fram á vor eða kem
heim og æfi með Keflavík eins
og ekkert hafi í skorist.“ Ólaf-
ur sagði mikið velta á æfinga-
leiknum á miðvikudaginn, að
honum loknum yrði tekin
ákvörðun um framhaldið en á
fimmt udaginn lokar enski
knattspyrnumarkaðurinn.
Eftir það verður ekki hægt
að kaupa leikmenn til félaga
fyrr en að leiktíðinni lokinni í
maí.
Gunnar
Már hjá
Malmö
GUNNAR Már Másson, knatt-
sjpyrnumaður með Leiftri i
Ólafsfirði, fór til Malmö FF í
síðustu viku og dvelur þar til
reynslu við æfingar og
keppni. Um helgina lék Gunn-
ar æfingaleik með Malmö
gegn 1. deildarliði Olympic
og gerði hann tvö mörk i 5:0
sigri. Mörk Gunnars voru ann-
að og fimmta mark leiksins.
Gunnar reiknar með að vera
um nokkurn tíma í herbúðum
Malmö FF við æfingar.
Eyjólfur
kom Hert-
hu á sporið
EYJÓLFUR Sverrisson skor-
aði fyrsta mark Herthu Berlín
í 5:2 sigurleik liðsins á
GUtersloh á laugardaginn.
_■■■■ Markið var sér-
Jón Halldór lega glæsilegt,
Garðarsson gert með hjól-
skrífar fré hestaspyrnu úr
Þýskalandi miðjUm vita-
teig eftir fyrirgjöf. Hafnaði
hnötturinn í bláhorninu
hægra megin án þess að
markvörður andstæðinganna
kæmi nokkrum vörnum við.
Mark Eyjólfs kom á 52. mín-
útu en þá höfðu leikmenn
Gfersloh gert bæði mörk sín.
Markið, sem þykir eitt það
fallegasta sem gert hefur ver-
ið í þýsku knattspyrnunni í
mánuðmum, hleypti miklum
krafti í félaga Eyjólfs og fór
svo að þeir bættu við fjórum
mörkum áður en yfír lauk án
þess að andstæðingarnir gætu
klórað i bakkann.
ÍÞRÓTTIR
IÞROTTIR
Rólegheit á Nesinu
ÞAÐ verða Keflvíkingar og Grindvíkingar sem mætast í úrsiitum
úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik í ár, eins og ífyrra. Keflavík
vann KR, 100:95, á sunnudaginn ífjórða leik liðanna og sigraði
því 3-1. Úrslitarimman hefst miðvikudaginn 2. aprfl í Keflavík.
FH-ingar úr
leik með sæmd
Meistaralið Hauka heldur sínu striki
Leikurinn á sunnudaginn varð
aldrei verulega spennandi þó
svo að munurinn væri aldrei mik-
ill. Maður hafði einhvern veginn á
Itilfinningunni að
Skúli Unnar Keflvíkingar væru
Sveinsson öruggir um sigur.
skrifar Bæði lið byijuðu
rólega, gerðu mikið
af mistökum og hittu illa. Allt var
samt í járnum, liðin skiptust á um
BCJ Ham-
borg úr leik
GUÐMUNDUR Bragason og
félagar lyá BCJ Hamborg
töpuðu tvívegis um helgina i
úrslitakeppninni um laus
sæti i þýsku 1. deildinni í
körfuknattleik. Þar með eru
vonir BCJ um sæti í efstu
deild orðnar ansi litlar.
„Þetta var hálfgert klúður.
Við komumst yfir í siðari
hálfleik í báðum leikjunum
en það var eins og okkur
skorti trú á að við gætum
þetta,“ sagði Guðmundur,
sem gerði 8 stig í fyrri leikn-
um en 17 í þeim síðari.
Bandaríski leikmaður liðsins
lék ekki með og að sögn
Guðmundar gerði það gæfu-
muninn. „Vonir okkar eru
ekki miklar, en það eru sex
leikir eftir og tölfræðilega
eigum við enn von,“ sagði
Guðmundur.
Sigur í SÍð-
asta leik
LARISSA, lið Teits Örlygs-
sonar í grisku 1. deildinni,
sigraði Byzantinos AO með
20 stiga mun i siðasta leikn-
um í deildinni um helgina og
tryggði sér þar með 12. sæt-
ið. Teitur lék með í stundar-
fjórðung og gerði átta stig,
hitti í þremur af fjórum til-
raunum sinum. Larissa mæt-
ir Aris í úrslitakeppninni og
það lið sem fyrr sigrar í
tveimur leikjum kemst
áfram.
Herbert
meiddur
„ÞAÐ má segja að ég hafi
verið fjarri góðu gamni,“
sagði Herbert Arnarson,
leikmaður hjá Donar í hol-
lensku 1. deildinni í körfu-
knattleik, I gær. Donar tap-
aði fyrir Den Bosch í síðasta
leiknum, sem skipti engu
máli því Donar varð í öðru
sæti og Den Bosch í því
fyrsta. Herbert lék ekki með,
meiddist lítillega á öxl í síð-
ustu viku og var því látinn
hvíla. MikiII hiti var í áhorf-
endum og varð að gera hlé
á leiknum og leikmenn fóru
til búningsherbergja eftir að
hollenskum leikmanni Donar
hafði lent saman við banda-
rískan leikmann Den Bosch
með þeim afleiðingum að
sauma þurfti sex spor í höfuð
þess hollenska en þijú í höku
hins.
að hafa nokkurra stiga forystu en
þegar staðan var 34:32 fyrir KR
og sex mínútur til leikhlés kom
kafli þar sem gestirnir gerðu 18
stig gegn tveimur stigum KR,
46:50, en heimamenn löguðu stöð-
una örlítið fyrir hlé.
Keflvíkingar komu værukærir
til síðari hálfleiks og það nýttu
KR-ingar sér, komust einu stigi
yfir en gerðu síðan ekki stig í fjór-
ar mínútur. Á meðan gerðu Kefl-
víkingar hins vegar 17 stig og
náðu góðri forystu á ný, 57:71.
Þegar 4,32 mín. voru eftir jafnði
KR, 84:84, en Guðjón Skúlason,
fyrirliði Keflvíkinga, greiddi vest-
urbæingum náðarhöggið með
þriggja stiga körfu þegar 2,45
mín. voru eftir, og náðu tíu stiga
forystu nokkrum sekúndum síðar,
85:95. Það var samt óþarfi hjá KR
að gefast upp svo snemma.
Skömmu síðar gafst tækifæri á
að jafna með því að nýta tvö víta-
skot og gera síðan þriggja stiga
körfu, en vítaskotin misfórust og
sigur Keflvíkinga var í höfn.
Hermann Hauksson átti stórleik
fýrir KR og hefði að ósekju mátt
fá boltann oftar frá félögum sínum.
Bow og Eford áttu báðir ágætis-
leik en aðrir náðu ekki að sýna
sitt besta. Hjá Keflvíkingum var
Johnson góður og Kristinn Frið-
riksson var í miklum ham; gjör-
samlega vonlaust er að stöðva
Kristin þegar hann leikur eins og
á sunnudaginn. Hann gerði sex
þriggja stiga körfur og skoraði að
auki úr sex vítaskotum. Falur var
góður í fyrri hálfleik og Guðjón í
þeim síðari.
Ótrúlega
létt hjá
Völsurum
Valsmenn unnu Snæfell næsta
auðveldlega í öðrum leik lið-
anna um laust sæti í úrvalsdeild að
■HHH ári. Liðin mættust á
SkúliUnnar föstudaginn og þá
Sveinsson sigraði Snæfell
skrifar 78:72 en á sunnu-
daginn sigraði Valur
94:73 og liðin þurfa því að mætast
þriðja sinni í kvöld og verður þá leik-
ið í Stykkishólmi.
Valur var með forystu nær allan
leikinn á sunnudaginn ef undan eru
skildar nokkrar mínútur snemma í
fyrri hálfleik. Það skemmdi mikið
fyrir Snæfelli hversu uppteknir sum-
ir leikmenn liðsins voru við að röfla
í dómurunum, sérstaklega þeir leik-
reyndu. Sjálfsagt getur liðið leikið
vel, en þá verða lykilmenn að hugsa
um það sem þeir eru að gera, ekki
eyða bæði tíma og kröftum í stöðugt
röfl.
Valsmenn léku vel og enginn bet-
ur en Bergur Emilsson sem gerði
27 stig. Bjarki Gústafsson átti ágæt-
an leik, en meiddist snemma í síðari
hálfleik og kom ekki meira við sögu
eftir það. Gunnar Zoéga var einnig
sterkur og Ólafur Jóhannson er dug-
legur strákur sem gefst aldrei upp.
Ragnar Þór Jónsson lék einnig ágæt-
lega en hefur oft leikið betur.
Tómas Hermannsson átti góðan
leik fyrir Snæfell og var sá eini sem
lék vel. Terrence Harris er alls ekki
nægilega góður leikmaður til að
leika í 1. deildinni hér á landi ef
marka má þennan leik. Bárður Ey-
þórsson var slakur og munar það
miklu fyrir liðið.
TÍMABILI FH-stúlkna M.deild
kvenna lauk með sprennuþrungn-
um hætti í framlengingu í Kapla-
krika þegar þær mættu Hauka-
stúlkum öðru sinni í undanúrslit-
um á sunnudaginn. Eftir jafnan
og stórskemmtilegan leik fengu
Haukastúlkur aukakast þegar
tvær sekúndur voru eftir af fram-
lengingunni og að mati dómara
leiksins dugðu þær til að taka
aukakastið; gefa á útileikmann
sem stökk upp og skaut í stöng
og inn því markið var dæmt gilt
og 20:19 sigur Hauka varð stað-
reynd.
Vörn FH var mjög sterk frá upphafi
og Haukar áttu í basli með að
finna leiðina að markinu, tókst meðal
gggggggm annars ekki að skora
Stefán mark á tíu mínútna
Stefánsson kafla um miðjan hálfleik
skrífar á meðan FH náði 7:4
forystu. En bikarmeist-
arar Hauka stilltu saman strengi sína
í leikhléi því þeir jöfnuðu strax eftir
hlé og náðu síðan 15:12 forystu. Það
dugði ekki til slá FH út af iaginu því
aftur liðu rúmar tíu mínútur án marks
hjá Haukum, sem misstu forskotið til
FH, en náðu að jafna fyrir leikslok.
FH-stúlkur fengu reyndar tvívegis færi
á að gera út um leikinn þegar ein og
hálf mínúta var eftir en vítaskot þeirra
fór í slá, boltinn hrökk í hendur þeirra
á ný en skot af línu fór einnig í þversl-
ána. Framlengja þurfti því leikinn. Þar
náðu Haukar tveggja marka forskoti,
sem FH tókst að vinna upp en Andrea
skoraði sigurmarkið.
FH-liðið sló hvergi af í leiknum og
var nærri að ná oddaleik gegn Hauk-
um. Vörnin gaf hvergi eftir en sem
fyrr vantaði meiri brodd í sóknarleik-
inn. Þórdís Brynjólfsdóttir, Hrafnhildur
Skúladóttir, Dagný Skúladóttir og Alda
Jóhannesdóttir markvörður voru best-
ar.
Haukastúlkur voru lengi í gang en
tókst engu að síður að bjarga sér fyrir
horn. Vörnin var góð og þær reyndu í
sókninni en komust lítt áleiðis. Judit
Esztergal var að venju allt í öllu en
Harpa Melsteð og Vigdís Sigurðardótt-
ir markvörður voru góðar.
„Hræddur
umað
EDDA Lúvfsa Blöndal frá Þórshamri er hér hlaðln
verðlaunum, en hún sigraðl f kvennaflokkl og var
í sígursveít Þórshamars í hópkata.
„ÉG er mjög ánægður með báða leikina
gegn Haukum hjá mínum stelpum því
þær léku mjög vel, gáfust aldrei upp
og sýndu Haukum að það er ekki hægt
að ganga að sigrinum vísum hjá þeim,“
sagði Viðar Símonarson þjálfari FH-
stúlkna eftir leikinn. „Það hefur verið
mikið álag á stúlkunum því flestar eru
einnig að leika í öðrum og þriðja flokki
og ég var hreinlega hræddur um að
sprengja þær en það gerðist ekki. Þær
hafa aldrei náð svona langt og ég vona
að þær haldi allar áfram enda komnar
með smjörþefinn af sigri,“ bætti Viðar
við en flestir leikmenn meistarafiokks
spila einnig með 2. og 3. flokki þar sem
þeir eru meðal annars bikarmeistarar
og enn í úrslitakeppninni.
Stjaman skein
of skært fyrir
Framstúlkur
sprengja
stelpumar“
Morgunblaðið/Kristinn
STJÖRIMUSTÚLKUR áttu ekki í neinum erflðlelkum með Framara í Safamýrl á laugardag. Hér
sæklr IMína K. Björnsdóttir að Svanhildi Þengilsdóttur, iínumannl Fram.
Morgunblaðið/Halldór
ÁSMUNDUR ísak Jónsson, Þórshamri, bar sigur
úr býtum í karlaflokkl.
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðiö/ Knstinn
KRAFTURINN leynlr sér ekki í andllti Damons Johnsons leik-
manns Keflvíkinga þar sem hann nær frákasti áður en KR-
ingurinn Hermann Hauksson nær knettinum.
KARATE
Þórshamar
réð ferðinni
Edwin
Rögnvaldsson
skrífar
framkvæmir
Islandsmótið í kata fór fram í
Smáranum í Kópavogi á laugar-
dag. Aðstandendum mótsins tókst
vel upp við fram-
kvæmd þess og var
boðið upp á sýning-
aratriði þegar hlé
varð á keppni. í kata
keppandi ákveðnar
æfingar á gólfínu einn síns liðs og
miðast þær við það að hann beijist
við ímyndaðan andstæðing. Fimm
dómarar gefa keppandanum ein-
kunn á bilinu 6 til 8 að æfingunum
loknum, en hæsta og lægsta ein-
kunnin er felld niður. Þær einkunn-
ir sem eftir eru eru þá lagðar sam-
an og fást þá heildarstig, sem gilda
í keppninni.
í einstaklingskeppni karla sigr-
aði Ásmundur ísak Jónsson frá
Þórshamri. Hann hlaut 23,3 stig,
en Grétar Hostert frá KFR fékk
22,9 stig og varð annar. í þriðja
sæti hafnaði Vilhjálmur Svan Vi-
hjálmsson frá KFR, en hann hlaut
22,8 stig. Ásmundur sagðist ekki
hafa litið á sigur sem sjálfsagðan
hlut. „Ég bjóst ekkert frekar við
því að sigra, en ég hef stefnt að
því að undanförnu. Sigur er alls
ekki sjálfsagður í þessari íþrótt,"
sagði Ásmundur Isak, en hann
hefur nú sigrað fímm sinnum síð-
ustu sjö árin.
í kvennaflokki varð Edda Lúvísa
Blöndal frá Þórshamri hlutskörp-
ust, en hún hlaut alls 22,7 stig
fyrir æfingar sínar. í öðru sæti
varð Björk Ásmundsdóttir, sem
hlaut 22,4 stig, en Sólveig Krista
Einarsdóttir varð þriðja, en hún
fékk 22 stig. Þær eru allar í Þórs-
hamri. Edda Lúvísa var að vonum
ánægð með sigurinn, en sagði þó
að erfiðara væri að keppa hér á
landi en erlendis. „Það er auðveld-
ara að keppa erlendis, því þar er
maður nær óþekkt nafn og hefur
því allt að vinna. Hérna gerir fólk
miklar kröfur og hefur jafnvel gert
ráð fyrir því að maður sigri,“ sagði
Edda.
Einnig var keppt í hópkata og
A-sveitir Þórshamars sigruðu í
flokkum beggja kynja. Kvenna-
sveitin hlaut 22,5 stig, en karla-
sveitin fékk 22,7 stig fyrir æfingar
sínar.
Karl Gauti Hjaltason formaður
Karatesambandsins var mjög
ánægður með framkvæmd mótsins.
„Einnig glaður árangur keppenda
mig sem sýnir framfarir í íþrótt-
inni. Þá vil ég koma á framfæri
þakklæti til forseta íslands, herra
Ólafs Ragnars Grímssonar og eing-
inkonu hans fyrir að heiðra mótið
með viðveru sinni og eins til Ell-
erts B. Schram forseta ÍSÍ.“
KORFUKNATTLEIKUR
■
Stjörnustúlkur lögðu Framara
í Safamýri á laugardag og
tryggðu sér rétt til að leika til úr-
slita um Islands-
Edwin meistaratitilinn.
Rögnvaldsson Lokatölur urðu
skrifar 29:17 og var sigur
gestanna aldrei í
hættu. Garðbæingar hófu leikinn
með miklum látum og litu aldrei
um öxl.
Framstúlkur misnotuðu fyrstu
átta sóknir sínar og skoruðu sitt
fyrsta mark þegar tæpar átta mín-
útur voru liðnar af leiknum. Þær
hresstust þó eftir það og sóknar-
nýting þeirra var 50% eftir ófarirn-
ar í upphafi. Vörn Garðbæinga
neyddi heimamenn til að taka skot
í slæmum færum framan af, en
auk þess misstu Framarar boltann
margsinnis. Guðríður Guðjóns-
dóttir skoraði sjö af níu mörkum
Fram í fyrri hálfleik og var langb-
est heimamanna.
Framstúlkur áttu slæman dag,
en allt aðra sögu var að segja af
gestunum. Þeir skoruðu sex mörk
í röð í upphafi og léku við hvern
sinn fingur. Ragnheiður Stephen-
FIMLEIKAR
sen gerði átta mörk í fýrri hálfleik
og voru þau í öllum regnbogans
litum. Þegar 20 mínútur voru liðn-
ar höfðu Stjörnustúlkur níu marka
forskot og brugðu heimamenn á
það ráð að taka Herdísi Sigur-
bergsdóttur úr umferð, en það
hafði lítil áhrif á gang leiksins.
Staðan í leikhléi var 21:9, gestun-
um í hag.
Gerist stundum
„Stundum gerist það að liðið
leikur nákvæmlega eins og þjálfar-
inn segir,“ sagði Ólafur Lárusson,
þjálfari Garðbæinga, og átti þá
við frammistöðu Stjörnustúlkna í
leiknum. Lítið gerðist í síðari hálf-
leik og gerðu bæði liðin aðeins
átta mörk eftir leikhlé. Sóley Hall-
dórsdóttir var í miklu stuði í marki
Stjörnunnar og varði 24 skot. Inga
Fríða Tryggvadóttir var að vonum
ánægð með sigurinn og vonaðist
til að úrslitaleikirnir við Hauka
yrðu skemmtilegir. „Þær eru
meistararnir og við höfum allt að
vinna. Ég vona bara að leikirnir
verði jafn spennandi og í fyrra.“
Rúnar stóð sig
vel í Svíþjóð
Rúnar Alexanderson sigraði á fimleikamóti í Svíþjóð um helgina, fékk
49,150 stig. Mótið var úrtökumót fyrir ljögurra landa mót sem fram
fer á Spáni, en Rúnar keppti sem gestur. Hann sigraði á svifrá, í hringj-
um og á bogahesti þar sem hann fékk 8,300 stig. Á tvíslá varð hann í
þriðja sæti, sjöundi í gólfæfingum og áttundi í stökki.