Morgunblaðið - 06.04.1997, Side 4
4 B SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Eftir
Steingtím Sigurgeirsson
ÍTÖLSK vín voru til umfjöllunar
hér fyrir nokkrum vikum og þá
aðallega vín frá Piemont og Ve-
neto á Norður-Ítalíu. Þá náði ég
aðeins að fjalla um lítinn hluta
þeirra ítölsku vína sem fáanleg
eru á íslandi, utan verslana ÁTVR,
og er því umfjölluninni haldið hér
áfram án þess þó að komast nærri
því að tæma umfjöllun um ítölsk
vín á íslandi.
Þótt þekktasta vínhérað Ítalíu
sé tvímælalaust Chianti í Toscana
fer undarlega iítið fyrir þeim vín-
um í innflutningnum til íslands.
Vissulega eru Chianti-vínin alltaf
til staðar inni á milli en uppistaðan
virðist byggjast á öðrum héruðum.
Þetta er í sjálfu sér ágætt því að
Italía hefur upp á svo ótrúlega
mikið að bjóða og synd væri ef
fólk kynntist aldrei öðru en Chi-
anti, Valpoiicella og Lambrusco.
Rivera
í Apulia á suðausturodda Ítalíu
(staðsett í „hælnum" á ítalska
stígvélinu) er til dæmis að finna
héraðið Castel del Monte. Þaðan
eru flutt inn ___________________
nokkur vín frá
framleiðandan-
um Azienda
Vinicola Rivera.
DOC-hvítvínið
Terre al Monte
Pinot Bianco
1994 er fölgult
og í ilm má
greina léttan
þægilegan
ávöxt, perur,
meiónu og
þurrkaðar apríkósur. Vínið er all-
sýrumikið og nær ávöxturinn ekki
fyllilega að vega hana upp nema
vínið sé vel kælt. Sé sú forsenda
uppfyllt er þetta milt og ljúft vín
og einnig mildast sýran hratt ef
vínið er látið standa skamma
stund.
Verulega á óvart kom systur-
vínið Terre al Monte Sauvignon
1994. Þægilegur og dæmigerður
Sauvignon í nefi, jafnvel ögn nýja-
heimslegur. Engi, blóm og grænn
aspas. Milt og í góðu jafnvægi í
munni. Vel gerður Sauvignon sem
er vel þess virði að reyna, rekist
menn á hann.
Frá sama framleiðanda kemur
Rupicolo di Rivera 1994, einnig
frá vínræktarhéraðinu Castel del
Monte. Rauð ber, kirsuber, epla-
mús og vottur af kanil gera þetta
suður-ítalska og ódýra vín sérstakt
og spennandi. Bragð er milli-
þungt, elegant og ferskt. Fínt jafn-
vægi og vel balanseruð væg sýra.
Vín sem vel er þess virði að gefa
gaum rekist menn á það. Tilvalið
með t.d. kálfakjöti. Rosé di Rivera
er einnig rósavín, létt og látlaust,
sem vel á skilið athygli.
Efst í gæðatröppunni hjá Rivera
er svo að fínna II Falcone 1991
úr þrúgunum Nero di Troia og
Montepulciano. Þokkalega stórt
vín með töluverðri fyllingu og fítu.
Ilmur sólbakaður og einkennist af
þurrkuðum ávöxtum. Ögn oxun
má greina i víninu sem er þó lík-
lega hluti af stílnum.
Sartori, Mirafiore,
Placido og Bolla
Frá Sartori í Veneto-héraði
kemur Soave Classico 1994.
Áfram Ítalía
Ítalía er helsta vin-
gerðarland veraldar.
Steingrímur Sigur-
geirsson heldur
áfram að kynna sér
úrval ítalskra vína
hér á landi.
Hreinn og þokkalega ferskur ilm-
ur, hnetur og jurtir ríkjandi með
nokkrum beiskleika. Bragð fremur
þykkt af Soave að vera og ágæt-
lega þægilegt og möndlukennt.
Þó er vínið farið að nálgast elli-
_______________ mörkin. Risotto
og pastaréttir
auk fiskrétta
ættu að eiga við
vínið. Valpolic-
ella 1994 frá
sama framleið-
anda hefur
þokkalega fyll-
ingu og ein-
kennist af mild-
um, rauðum
berjum. Líkt og
Soave-vínið er
það þó farið að missa ferskleika
æskunnar og er því til neyslu nú
þegar. Nokkur sýra er í víninu og
á það líklega best við pastarétti.
Loks var smakkað Amarone 1990
frá Sartori. Þykk sulta í nefi, sól-
þurrkaðir ávextir og veruleg
bragðfylling. Vínið er sætt og
sultukennt í munni, þó einungis
meðalþungt af Amarone að vera
og ætti að falla mjög vel að ís-
lenskum vínsmekk.
I Toscana-héraði er framleið-
andann Placido að finna. Placido
Chardonnay 1995 hefur þægileg-
an blómailm sem er léttur líkt og
vínið sjálft. Alls ekki slæmt vín,
þægilegt og milt en nokkuð kar-
akterlaust og skilur ekki mikið
eftir. Placido Cabernet Sauvignon
1995 leikur í sömu deild. Þetta
borðvín frá Toskana er snarpt í
ilm og bragði. Kirsuber og sólber
í nefi. Eikarlítið þótt hún sé til
staðar í bakgrunninum. Sýruríkt
á ítalska vísu en mjúkt í munni.
Ekki stórt vín en vel spunnið og
bragð- og stílhreint. Maður er
ekki yfir sig hrifinn en þokkalega
sáttur.
Mirafiore er framleiðandi í
Piemont í norðvesturhluta ítaliu.
Dolceotto di Alba 1995 ilmar af
berjasaft, kirsubeijum, ferskum
kryddjurtum og skógarbeijum.
Ungt og samanrekið vín sem sam-
svarar sér vel. Bragð fylgir ilm
vel á eftir og myndar góða heild.
Ætti að þola allþunga rétti. Það
á einnig við um Mirafíore Barolo
1992. Vissulega ekki í þungavigt-
arflokki Barolo-vína en í fínu lagi
þó. Rautt nautakjöt og soðnir
ávextir í nefi en tiltölulega létt í
munni með nokkru tanníni.
CASTELLO BANFI
MIRAFIORE
BARBERA
D'ALBA
M irtiiitiMtAMiit áMklíúHéUA
íiti TOÍfcMÍ NSÍÍÁ
I*
Frá framleiðandanum Bolla eru
fáanleg tvö vín í seríunni Creso
Bolla. Rauðvínið Creso Bianco
1991 ilmar af stöppuðum, þrosk-
uðum banönum og öðru fremur
hunangi og reykelsi. Ilmurinn er
þykkur og ágengur en bragð frem-
ur stutt og skilur lítið eftir. Í frá-
bæru lagi er hins vegar Creso
Rosso 1990 Cabernet Sauvignon.
Þéttur, þykkur litur. Ilmur sam-
fléttaður úr mörgum lögum vöfn-
um vanillusykri og vindlakassa-
lykt. Glæsilegt, þétt, þungt og
tannínríkt með löngu krydduðu
eftirbragði.
Banfi
Eitt athyglisverðasta ítalska
vínfyrirtækið er á fulltrúa á ís-
lenska vínmarkaðnum er Banfi i
Toskana, en vín þaðan eru undan-
tekningarlítið athyglisverð og góð.
Byijum þvi fyrst á undantekning-
unni. Santa Costanza Novello
1995 frá Banfi er vín sem ég átti
nokkuð erfitt með að átta mig á.
Novello eru ung vín í svipuðum
flokki og Noveau-vínin frönsku en
það er yfirleitt æskuljómi þeirra
er hrífur. Þetta vín er orðið of
gamalt til að búa yfir honum, það
er orðið þreytt og karakterlaust
og minnir helst á þokkalegt kassa-
vín. Líklega hefur það verið ágætt
fyrir einu og hálfu ári.
Banfi le Rime Pinot Grigio 1995
er hins vegar þétt vín með mildri
perlandi sýru. Blómailmur, bresk
ilmsápa og soðnar perur einkenna
ilminn og uppbygging vínsins er
þægileg. Ljúffengt sumarvín fyrir
salöt og létta pastarétti. Sannkall-
að söturvín. Freyðivínið Banfi
Brut Pinot einkennist af fallegum,
fáguðum bólum í fínu streymi sem
ljóstra þó upp í munni að ekki sé
um framleiðslu samkvæmt
kampavínsaðferðinni að ræða. Það
hefur þægilegan sætan ávöxt en
er fremur mjótt. Einfalt freyðivín
en í fínum klassa í þeim flokki.
Ögn meiri sýra hefði þó verið
æskileg. Fínt veisluvín sem þarf
að vera ískalt.
Sömuleiðis frá Banfi er Tufeto
Chardonnay 1995. Græn, súr epli
og blóm í nefi. í munni létt og
hverfult. Ekki slæmt en þolir ekki
mikinn mat. Fontanelle Castello
Banfí Chardonnay 1995 er hins
vegar feitt og smjörkennt með
vanillu og suðræna ávexti i nefi.
Að vissu leyti staðlaður, eikaður
Chardonnay en gott vin sem slíkt.
Mikið vín sem kemur aftur og
aftur í munni og breiðir úr sér í
bylgjum.
Col di Sasso 1995 er úr hinni
athyglisverðu þrúgublöndu Sangio-
vese og Cabernet. Slípað og sætu-
mjúkt vín. Fylling í konfektmolum,
hreinn ávöxtur og kirsuber í nefi.
Ágæt lengd og fylling í munni.
Ódýrt vín sem hefur alls ekki ódýrt
yfirbragð. Stórfín kaup ef borða á
pizzu, pasta eða jafnvel kálfakjöt.
Ekki stórt vín en bragðgott.
Brunello 1991 frá Banfí er vín
sem farið er að ná ágætum þroska
og í nefí greindist viðarkvoða, kjall-
ari og sterkur pennaveskisilmur.
Lakkrís kemur fram í þéttu bragð-
inu og töluverð sýra enda gæti
þetta vin vel þolað töluverða
geymslu í viðbót.
Colvecchio 1991 er Banfí-vín úr
Syrah-þrúgunni. Dökkur, þéttur
litur sem vart er farinn að sýna
þroska þrátt fyrir aldur. Sæt eik
og þægileg, reykur, Ieðurfeiti og
bílaverkstæði. Nokkur sýra í góm-
unum. Búðingur, flan eða créme
caramel. Vínið byijar feitt en fer
fljótt út í þroskaða ávexti og ávax-
taköku. Minnir á mini-útgáfu af
Cote Rotie. Ræður vart við lamb
en þetta er fínt nautavín og tilval-
ið kálfavín. Tavemelle Cabemet
Sauvignon 1993 er klassískur og
stílhreinn Cabemet. Jarðarber í
tjórha, vanilla og ögn sýra sem
ertir nefíð í upphafí. Vel balanserað
vín, skarpt með meðalfýllingu.
Matarvín fyrir alla góða rétti. Létt-
asta vinið í þessari seríu er Centine
úr þrúgunni Sangiovese. Sýrumikið
og ertandi vín, sem fellur vel að
pastaréttum.
Eitt besta vín Banfi er svo
Summus, blanda úr þrúgunum
Brunello, Cabernet og Pinot Noir.
Summus 1993 er mjög dökkt og
þétt. Einstaklega áhrifamikið vín
þar sem súkkulaði og kaffi, jörð
og steinefni ryðjast upp úr glasinu
í bland við þunga eik. Á það skilið
að menn sitji á flöskunum í kjöllur-
um sínum í 3-5 ár í viðbót.
Antinori, Villa Frattina
og Brolio
Annar af bestu framleiðendum
Italíu er Antinori og hafa nokkur
mjög frambærileg vin frá honum
verið fáanleg hér á síðustu árum.
Peppoli Chianti Classico 1993 er
eitt þeirra. Þetta er mikið vín,
stamt og sýruríkt. Nef þess er enn
lokað en greina má svart kin-
verskt te, blábeijasafa og jafnvel
snert af myntu. Þetta vín ætti að
blómstra eftir um tvö ár en það
er vel þess virði að bíða eftir því
og nú þegar sýnir það mikla dýpt.
Casalfeirra 1993 er nafn víns
annars góðs Toscana-framleið-
anda, Brolio. Áfengislegnir ávextir
mynda uppistöðu þétts, mjög
öflugs bragðmassa sem sæt eikin
umlykur líkt og silkislæða. Bragð
langt og mikið með leðurkeim í
lokin. Enn eitt vínið sem vel er
þess virði að gefa nokkur ár í við-
bót.
Villa Frattina 1992 frá héraðinu
Lison-Pramaggiore byggir eitt
vína sem hér er ijallað um á
„hinni" Cabernet-þrúgunni, Ca-
bemet Franc. Kúbanskir vindlar,
cedar-viður, nýbakað brauð og
sveskjusulta dansa um í glasinu
og þegar í munninn er komið kem-
ur í ljós yfirvegað og öflugt vín.
Áferðin er mjúk en vínið býr yfír
krafti sem tekur í. Má geyma en
er yndislegt nú þegar.
Fundað um jafn-
réttismál
Egilsstöðum - Félagsmálaráðherra boðaði til fundar
um jafnréttisáætlun ríkissljórnarinnar í Hótel Vala-
skjálf á Egilsstöðum. Fundurinn er annar í fundaröð
sem haldin verður víðar um land.
Núgildandi framkvæmdaáætlun til fjögurra ára
um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna var
samþykkt á Alþingi 1993 og gildir hún til ársloka
1997. Unnið er að gerð nýrrar fjögurra ára áætlun-
ar sem taka mun gildi um næstu áramót. Markmið
þessarra funda er að ræða áherslur í jafnréttismálum
og safna hugmyndum og ábendingum varðandi gerð
áætlunarinnar. Frummælendur voru Páll Pétursson
félagsmálaráðherra, Elín R. Líndal, formaður Jafn-
réttisráðs, Elsa S. Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri
Jafnréttisráðs og Ruth Magnúsdóttir kennari í
Grunnskóla Egilsstaða.
RUTH Magnúsdóttir, kennari í ræðustól, Sigríður Lillý
Baldursdóttir, skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneyti og
Páll Pétursson félagsmálaráðherra.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
GESTIR á fundi um jafnréttismál.