Morgunblaðið - 06.04.1997, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 B 7
LANDSPITALINN
.../ þágu mannúðar og vísinda...
Aðstoðarlæknir/deildarlæknir
óskast á krabbameinslækningadeild frá 1.
maí nk. Starfið er fólgið í vinnu á legu- og
göngudeild í samvinnu við sérfræðinga
deildarinnar. Möguleg rannsóknaverkefni
á deildinni.
Upplýsingar veitir Þórarinn Sveinsson, for-
stöðulæknir, í síma 560 1440._____
Hjúkrunarfræðingar óskast
á geðdeild Landspítalans í stöðu deildarstjóra
á deild 11 sem er endurhæfingardeild á Kleppi.
Deildin er 12 rúma þar sem lögð er áhersla á
vinnu með einstaklinga með langvinn geðræn
vandamál.
Einnig óskast hjúkrunarfræðingar á ýmsar aðr-
ar deildir geðdeildarinnar á morgun- og
kvöldvaktir. í boði erfjölþætt og áhugaverð
hjúkrun sem spannar allt frá bráðamóttöku
til endurhæfingar.
Upplýsingar veitir Guðrún Guðnadóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, mánudaga og fimmtu-
daga kl. 8-16 í síma 560 2649.__
Læknaritari óskast
á klínískar rannsóknastofur, deild 11-D, í hluta-
starffrá 12. maí nk. Starfið erfjölbreytt ogfelst
m.a. í almennri læknaritun, bókunum og mót-
töku sjúklinga o.fl.
Umsóknarfrestur er til 3. maí nk.
Umsóknir berist til Herdísar Ástráðsdóttur,
deildarstjóra, sem jafnframt veitir upplýsingar
í síma 560 1212.
Þroskaþjálfar óskast
á endurhæfingar- og hæfingardeild Landspítal-
ans í Kópavogi í stöður deildarstjóra á deild
9 og íbúð C. Einnig eru lausar stöður
þroskaþjálfa á deildum 2, 8, 20 og á vinnustof-
um. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða þjón-
ustu og lögð áhresla á aukin lífsgæði og breytta
búsetu íbúa.
Upplýsingar veitir Salóme Þórisdóttir,
yfirþroskaþjálfi, í síma 560 2700.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi
stéttarfélags og fjármálaráðherra.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi Ríkis-
spítala, Þverholti 18, og í upplýsingum á Land-
spítala.
Óllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
jim ráðninqu verður tekin.
Háskóli íslands
Námsbraut í hjúkrun
Hjá námsbraut í hjúkrun við Háskóla íslands
er laust til umsóknar 75% starf deildarstjóra
í verknámsstofu. Hjúkrunarmenntun eráskilin
og reynsla af skipulagningu er æskileg.
í starfinu felst m.a. umsjón með sýnikennslu
í verknámsstofu. Jafnframt fylgir starfinu
ábyrgð á uppbyggingu nýs gagnasafnstil sjálf-
náms stúdenta. Einnig er gert ráð fyrir að
deildarstjórinn starfi með hússtjórn og tækja-
nefnd. Næsti yfirmaður deildarstjórans verður
formaður stjórnar námsbrautar í hjúkrunar-
fræði. Reiknað er með að ráða í starfið frá og
með 1. ágúst 1997. Laun eru skv. kjarasamn-
ingi Félags háskólakennara og
fjármálaráðherra. Frekari upplýsingar um
starfið veitir Kristín Björnsdóttir, formaður
stjórnar námsbrautar í hjúkrun, í síma
525 4978.
Umsóknarfrestur ertil 15. maí næstkomandi.
Umsóknir ásamt ítarlegri greinargerð um
menntun og fyrri störf skulu sendar starfs-
mannasviði Háskóla íslands, aðalbyggingu
við Suðurgötu, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækj-
endur verða upplýstir um það hvort og þá
hvernig starfinu var ráðstafað þegar sú ákvörð-
un hefur verið tekin.
Skólastjóri
Laus ertil umsóknar staða skólastjóra Grunn-
skóla Eyrarsveitar í Grundarfirði frá og með
1. ágúst nk. Nánari upplýsingar gefur Björg
Ágústsdóttir sveitarstjóri í síma 438 6630.
Kennarar
Grunnskóli Eyrarsveitar óskar eftir að ráða
kennara í almenna bekkjarkennslu, íslensku,
stærðfræði, raungreinar, handmennt og mynd-
mennt á næsta skólaári. Nánari upplýsingar
gefur Gunnar Kristjánsson skólastjóri í síma
438 6619.
Húsvörður
Laus er til umsóknar staða húsvarðar við
Grunnskóla Eyrarsveitar, íþróttahús og sund-
laug. Þarf að geta hafið störf í byrjun júní.
Leitað er að handlögnum og röskum starfs-
manni, sem á gott með að umgangast fólk.
Einhver verkmenntun kæmi sérvel. Umsókn-
um skal skilað á skrifstofu Eyrarsveitar, Grund-
argötu 30 fyrir 1. maí 1997.
Nánari upplýsingargefursveitarstjóri í síma
438 6630.
Grundarfjörður er kauptún á norðanverðu Snæfellsnesi, í tæplega
3ja stunda akstursfjarlægð frá Reykjavík (enn styttra þegar Hvalfjarð-
argöngin verða tilbúin.
Grundarfjörður er vaxandi byggðarlag og þar er næg atvinna. í Grund-
arfirði búa um 950 manns og hefur íbúum fjölgað um 25% síðustu
10 árin.
í Grunnskóla Eyrarsveitar eru í dag rúmlega 180 nemendur — og
fer fjölgandil Unnið er að stækkun skólabyggingarinnar og ennfremur
er að fara I gang stefnumótun i skólamálum. Við leitum að kennurum
sem vilja taka þátt í að gera góðan skóla betri.
Sjúkraþjálfari, málari,
bakari!
Langar ekki sjúkraþjálfara að koma og vinna
hjá okkur í Grundarfirði? Góð aðstaða á nýrri
heilsugæslustöð í Grundarfirði. Upplýsingar
gefur Hallgrímur Magnússon heilsugæslu-
læknir í síma 438 6682.
Ennfremur gullið tækifæri fyrir málara og bak-
ara að setja upp starfsstöð!
Sveitarstjórinn í Grundarfirði.
Rafmagnstækni-
fræðingur
Eitt af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði
málmiðnaðar og tæknibúnaðar leitar eftir
áhugasömum rafmagnstæknifræðingi til sölu-
og ráðgjafarstarfa.
Helstu verkefni
Sala og ráðgjöf á ýmsum raf- og rafeinda-
búnaði, svo sem tíðnibreytum, rennslismæl-
um, hita- og loftstýringum ásamtfjölbreyttum
öðrum rafbúnaði.
Kröfur um hæfni
Viðkomandi þarf að hafa próf í rafmagnstækni-
fræði eða hliðstætt próf. Æskileg er grunn-
menntun sem vélfræðingur eða sem rafvirki
og reynsla í notkun ofangreinds búnaðar.
Um er að ræða krefjandi sölu- og ráðgjafarstarf
þar sem áhersla er lögð á skipuleg vinnubrögð,
frumkvæði og árangur í starfi. Fyrir réttan aðila
eru góð laun í boði.
í umsókn þurfa að koma fram nákvæmar upp-
lýsingar um menntun og fyrri störf.
Farið verður með allar upplýsingar sem
trúnaðarmál og öllum umsóknum verður
svarað. Þeim, sem telja sig uppfylla þær kröfur
sem að ofan greinir, er boðið að senda inn um-
sókn til KPMG Sinnu ehf., fyrir 12. apríl 1997.
inna ehf
Rekstrar- og stjórnunarráðgjöf
Vegmúli 3, sími 588 3375.
108 Reykjavík, fax 533 5550.
KPMGSinna ehf. veitir ráögjöf á sviði stjórnunar- og starfsmanna-
mála og einnig sérhæföa ráðningarþjónustu. ffPMGSinna ehf.
er í samstarfi við KPMG Management Consulting.
Grunnskóli
Siglufjarðar
óskar eftir að ráða kennara í almenna kennslu,
sérkennslu, samfélagsfræði, náttúrufræði,
myndmennt, handmennt og heimilisfræði á
næsta skólaári. í framhaldi af yfirtöku sveitarfé-
laganna á rekstri skólans og ítarlegri úttekt á
skólastarfinu er nú unnið að margs konar
skólaþróun á Siglufirði.
Medal þess sem nú er unnið að:
• Stefnumótun bæjarins í skólamálum með
þátttöku bæjarstjórnar, skólanefndar, skóla-
stjórnenda, kennara og foreldra.
• Kannaðar möguleikar á átaki í raungreina-
kennslu í samvinnu við önnur Evrópulönd.
• Kannaðir möguleikar á aukinni notkun tölva
og margmiðlunar, m.a. með því að stækka og
bæta tölvuver.
• Unnið verður í samræmi við skólaþróunar-
verkefni AGN (Aukin Gæði Náms) á næstu
skólaárum.
• Starfsfólki skólans er boðið upp á fjölbreytta
möguleika til endurmenntunar.
• Skólinn er þátttakandi í rannsóknum á radd-
beitingu kennara við vinnu.
• Unnið er að miklum endurbótum á skóla-
húsnæði og búnaði.
Á Siglufirði er góð aðstaða til íþróttaiðkana, eitt besta
skíðasvæði landsins, nýtt íþróttahús og góðurtónlist-
arskóli. Sjávarútvegur og þjónusta tengd honum er
í mikilli framþróun og Siglufjarðarhöfn er ein stærsta
löndunarhöfn á landinu. í bænum er öll almenn þjón-
usta, þ.m.t. nýr og vel rekinn leikskóli, gott sjúkrahús
og heilsugæsla og fjölbreytt verslun.
Einnig er hér fjölbreytt félagslíf við flestra hæfi og
fjöldi ferðafólks kemur hingað á sumrin, enda er
ferðaþjónusta vaxandi atvinnugrein. Fallegar göngu-
leiðir eru í nágrenni bæjarins og góð aðstaða til hvers
konar útivistar.
Ef þið hafið áhuga á að kenna við framsækinn
skóla í lifandi bæjarfélagi á næstu skólaárum,
bjóðum við ykkur velkomin til starfa.
Siglufjarðarbær greiðir nýjum kennurum flutn-
ipgsstyrki og húsaleigubætur.
Áhugasamir hafi samband við Pétur, skóla-
stjóra, í síma 467-1184, Eyjólf, aðstoðarskóla-
stjóra, í síma 467-1181 eða Jónínu, skólafull-
trúa, í síma 467-1700.
Grunnskóli Siglufjarðar
- framsækinn skóli!
Markaðs* og
sölufulltrúi
Óskum eftir að ráða markaðs- og
sölufulttrúa til starfa hjá Kjötumboðinu.
Starfssvið: Ýmis sérhæfð, ákveðin og
afmörkuð verkefni á markaðs- og
sólusviði.
Markaðs- og sölufulltrúinn þarf að
vinna að ólíkum og krefjandi verkefnum.
Kjötumboöið er Umsækjendur þurfa að hafa frumkvæði,
markaðsfyrírtæki sem dugnað og góða framkomu, vera fljótir
selurog framleiðir að setja sig inn í hlutina og vinna vel og
kjötvörur á innlendan skipulega.
og eriendan markaö.
Fjöldistarfsmanna er80. Gerðar eru kröfur um menntun og/eða
starfsreynslu í markaðs- og sölustörfum,
ásamt góðri kunnáttu í erlendum tungu-
málum. Háskólamenntun er æskileg, en
ekki skilyrði. Reyklaus vinnustaður.
Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skrifiegar umsóknir
til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
merktar „Markaðs- og sölufulltrúi 153"
fyrir 12. apríl n.k.
Hagvangur hf
Skeifan 19
108 Reykjavík
Sími: 581 3666
Bréfsími: 568 8618
Netfang:
hagvang@tir.skyrr.is
Veffang:
http://www.apple.is
/hagvangur
HAGVANGUR RADNINGARÞJÖNUSTA
fíétt þekking á réttum tíma
-fyrir rétt fyrirtæki