Morgunblaðið - 06.04.1997, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 06.04.1997, Qupperneq 18
,.18 B SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ f I GUS GUS platan fékk góða dóma hér heima en seld- ist ekki nema miðlungi vel, þótti líklega ekki nógu grípandi fyrir almennan poppmarkað, en skömmu eftir áramót hófst Baldur handa um að kynna plötuna ytra, meðal annars með því að fara út og ganga á milli fyrirtækja. I einni slíkri ferð hitti Baldur útgáfustjóra bresku útgáf- unnar 4AD, Lewis Jamie- son, en Jamieson hafði áskotnast Gus Gus-plata eftir krókaleiðum og beðið um fundinn þegar í desem- ber. Skemmst er frá því að segja að Jamieson lýsti einlægum vilja 4AD að ÞEIR SEM fletta reglulega breskum tón- listar- og tískubiöðum hafa ekki komist l\já því að taka eftir hverri greininni af annarri um hóp íslenskra listamanna sem kallar sig Gus Gus, eftir marokkóskum hversdagsrétti. Fyrir skemmstu kom út með hópnum breiðskífa á vegum eins helsta útgáfufyrirtækis Bretlands og í kjölfarið hefur hver opnan af annarri verið lögð undir umfjöllun um hópinn og blaðamenn velt vöngum yfir því hvað það sé á íslandi sem skapi eins sérkenni- lega listamenn og raun ber vitni; fyrst Sykurmolana, þá Björk og nú Gus Gus, sem tímaritið Vox segir að eigi eftir að verða vinsælli en Sykurmolarnir. GUS GUS hópurinn varð nánast til fyrir tilviljun, því hópurinn kom upphaflega saman snemm- sumars fyrir tveimur árum til að gera stuttmynd. Hugmynd- ina að myndinni áttu þeir Stefán Arni og Sigurður Kjartanssynir, sem reka kvik- mynda- og hönnunarfyrirtækið Kjól og And- erson. Þeir fengu til liðs við sig Baldur Stef- ánsson til að annast fjárhagshlið myndarinn- ar og Stephan Stephensen tökumann og réðu síðan sem leikara Magnús Jónsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Emilíönu Torrini og Hafdísi Huld Þrastardóttur. Um líkt leyti hafði Daníel Ágúst leitað eftir samstarfi við liðsmenn danssveitarinnar T-World, Birgi Þórarinsson og Magnús Gunnarsson, um tónlistarsamstarf og þegar tökum á mynd- inni var frestað fram á haust þótti heillaráð að nota sumarið til einhvers annars, til að mynda að taka upp breiðskífu. Þeir Daníel Ágúst og Magnús Jónsson voru hagvanir í þeim efnum, þar sem Daní- el Ágúst var lengi liðsmað- ur hljómsveitarinnar Ný danskra, og Magnús Jóns- son fremstur meðal jafn- ingja í Silfurtónum. Þeir settu því á band nokkuð lög sem þeim Birgi og Magnúsi Gunnarssyni var falið að véla um. Birgir og Magnús lýstu því í viðtali nokkru síðar að glíma hefði tekist með þeim og lagahöfund- um um útsetningar og höfðu hvorir sitt fram að nokkru leyti því niðurstað- an varð bráðgóð blanda af nútímalegu poppi og fersk- um dansstraumum. Plata með tónlistinni kom út um haustið undir nafninu Gus Gus, eins og hópurinn hét, en þetta var í raun meira en hljómsveit, því til viðbót- ar við tónlistarfólkið, Magnúsana, Daníel Ágúst, Birgi og Hafdísi Huld, sem söng á móti Emilíönu Torr- ini, voru þeir Stefán Árni og Sigurður með í hópnum og sáu um myndrænt útlit, Stephan ljósmyndari og Baldur, sem var eins konar umboðsmaður hópsins og allsheijar reddari. Emilíana var ekki með nema á plöt- unni, því hún vildi sinna sínum sólóferii. gera við hljómsveitina útgáfusamning ef forsvarsmaður útgáfunnar féllist á það og samningar tókust á skömmum tíma. Liðs- menn Gus Gus létu þau orð reyndar falla í viðtali að þeim hefði ekki þótt koma til greina að semja við annað fýrirtæki en 4AD þegar spurðist að það hefði áhuga, því það væri uppáhaldsfyrirtæki þeirra flestra frá gam- alli tíð. Víst er 4AD um margt vel heppnað- ur samstarfsaðili fýrir Gus Gus liða, því bæði er að það er þekkt fyrir að vera með á sínum snærum merkilegar hljómsveitir og framsæknar og svo fellur sú áhersla sem fyrirtækið leggur á myndræna hlið útgáf- unnar vel að samsetningu Gus Gus hópsins, þar sem fara ljósmyndari, kvikmyndagerðar- menn, leikarar, söngvarar og hljóðfæraleik- arar, eins og áður er talið, enda er samning- urinn við hópinn allan. Eftir að samninar tókust með þeim Gus Gus mönnum og 4AD hófst vinna af kappi við að undirbúa næstu skref, því snemma var ákveðið að vinna plötuna meira og minna upp á nýtt, aukinheldur sem rétt þótti að gera endurhljóðblandanir laga til að ná inn á breskan dansmarkað og einnig að vinna upp myndband sveitarinnar sem hlaut verð- laun sem besta myndband ársins hér á landi 1995. Meðal þess sem sveitin greip til var að gera sérstaka stuttmynd með fyrsta lag- inu af plötunni, Polyester Day í stað hefð- bundins tónlistarmyndbands og gaf góða raun. Fyrsta smáskífan kom út um mitt síð- asta ár, en ekki sem eiginleg útgáfa heldur sem svokölluð hvítmiðaútgáfa sem dreift var til plötusnúða og sú fékk einnig fyrsta dóm- inn um tónlist Gus Gus erlendis þegar hún var valin smáskífa mánaðarins í því virta tónlistartímariti Muzik. Enn var þónokkur bið í eiginlega smáskífu fyrir almennan markað, en þegar hún loks kom, í septem- ber sl., var henni vel tekið og í október valdi Muzik aðra smáskífu, Chocolate, smá- skífu mánaðarins, aukinheldur sem hún komst hátt á danslista. IUPPHAFI þessa árs hófst síðan vinna við að kynna sveitina fyrir alvöru. Fyrsta skrefið í því var tónleikar hljómsveitarinnar i Perlunni þangað sem var stefnt grúa blaða- og sjón- varpsmanna víða að úr Evrópu. Umsagnir um þá ferð voru aberandi í MTV og öðrum fjölmiðlum, meðal annars í tímaritum eins og Face, Arena, Melody Maker, New Music- al Express, Jockey Slut, Vox, Dazed og Raygun og sjá má á meðfylgjandi úrklipp- um. Umfjöllun er alls staðar mjög lofsam- leg, reyndar mikið gert úr því hvað Reykja- Æjvniiy i Gus Gus fjöllistahópurinn, sem skipaður er tónlistar- mönnum, leikurum og kvikmyndagerðarmönnum svo fátt eitt sé talið, er nú tíður gestur í tísku- og tón- listartímaritum úti í heimi, Árni Matthíasson rifjar upp söguna um Gus Gus, ævintýri sem hófst á sér- kennilegan hátt og sér ekki fyrir endann á.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.