Morgunblaðið - 06.04.1997, Page 19
I
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 B 19
vík sér sérkennilegur staður og
Islendingar undarlegir, aukinheld-
ur sem erlendum blaðamönnum
finnst greinilega merkilegt að
allir séu að gera eitthvað; það eru
allir með eitthvað listrænt á
prjónunum að þeirra mati og allt
fyrsta flokks. Þeir grípa því til
þeirrar skýringar þegar kemur
að því að lýsa Gus Gus að þetta
sé einfaldlega svo á íslandi; ekki
bara sé landið frábærlega fagurt
heldur eru allir listamenn eða
drykkjuberserkir nema hvort
tveggja sé.
Eftir þessa lofsamlegu og
miklu umijöllun var næsta skref
í sókn Gus Gus inn á alheims-
markað að halda tónleika erlendis og það
gerði sveitin í Lundúnum í marsbyijun
og fékk fyrir góða dóma í tónlistarritunum
Melody Maker og New Musical Express.
í Melody Maker segir að tónleikar sveitar-
innar í London Brixton Fridge hafi verið
góðir, svo góðir reyndar að mati þess sem
um fjallar að hann segir þá langbestu tón-
leika sem hann hafi séð í margar aldir.
Blaðamaður New Musical Express tekur í
sama streng.
BREIÐSKlFAN er nú komin út
og hefur fengið afbragðs dóma,
til að mynda fékk hún einkunn-
ina níu í Muzik, og framundan
mikil tónleikavertíð hjá Gus Gus
í sumar. Þegar hefur sveitinni verið boðið
að troða upp á helstu danshátíð Bretlands
í næsta mánuði, Tribal Gathering, og slást
þar í hóp flestra helstu danshljómsveita
Breta. Líkur eru og á að sveitin leiki á
Hróarskelduhátíðinni ef tími gefst til, auk-
~ inheldur sem Gus Gus er bókuð á Quart-
hátíðina norsku, og fleiri hátíðir á Spáni,
í Þýskalandi og frekari stórhátíðir í Bret-
landi. Hljómsveitin hyggst einnig leika á
almennum tónleikum í sumar í takt við
kynningu á plötunni og ýmsar hugmyndir
viðraðar í því sambandi. Það er því óhætt
að segja að Gus Gus ævintýrið sem hófst
svo sérkennilega er enn að taka á sig
ótrúlegri mynd og engin leið að spá til
um hvar það muni enda.
Sumarafleysingar
Strætisvagnar Reykjavíkur er þjónustufyrirtæki á sviði fólks-
flutninga.
Fyrirtækið vill ráða 55 vagnstjóra til afleysinga á tímabilinu
Ljúnítil 25. ágúst.
Leitað er að fólki sem hefur vilja til að vinna hjá fyrirtæki sem
leggur megináherslu á að uppfylla parfir og væntingar viðskipta-
vina.
Ákjósanlegir eiginleikar eru:
Lipurð í mannlegum samskiptum, snyrtimennska, stundvísi og
áreiðanleiki.
Viðkomandi þarf að hafa meiraprófsökuréttindi (rútupróf) og
nokkra tungumálakunnáttu.
Nýliðar sitja námskeið.
Vaktavinna, heilsdags- og hlutastörf.
Jafnt konur sem karlar eru hvattar til að sækja
umstarfið.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá farþegapjónustu í skipti-
stöð á Hlemmi. Þeim skal skilað þangað eða í þjónustustöð
SVR, Hverfisgötu 115 fyrir 17. apríl 1997. Athugið að staðfesta
þarf eldri umsóknir.
Ragnheiður Óladóltir
NÁMSKEIÐ UM MEÐVIRKNI
verður haldið 15. apnl kl. 20 og næstu þrjú þriðjudagskvöld.
Fyrirlestrar, umræður, hugleiðsla, samskiptaæfingar.
Nánari upplýsingar gefur Ragnheiður Óladóttir
í símum 897 7225 og 552 4428.
Með öllum Silfurpottum sem vinnast í Háspennu
í Kringlunni, fylgja 2 flugmiðar til Evrópu.