Morgunblaðið - 06.04.1997, Qupperneq 28
28 B SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dagsferð 6. apríl
Kl. 10.30 Úlfarsfell í Mosfells-
sveit. Létt fjallganga fyrir alla
Verð: 800/900.
Helgarferð 12.-13. apríl.
Kl. 8.00 Þingvelllir-Hlöðufell
Laugarvatn. Frábær göngu-
skíðaferð.
Helgarferð 12.-13. apríl
Kl. 8.00 Jeppaferð í Setrið.
Lágmarks dekkjastærð 33“ fyrir
létta bíla, 35" fyrir aðra. Ferð urr
spennandi svæði. Undirbúning
ingsfundur þann 10. apríl.
Netslóð
http://www.centrum.is/utivisi
KROSSINN
Sunnudagur: Alrnenn sam-
koma kl. 16.30. Barnagæsla er
meðan á samkomunni stendur.
Þriðjudagur Bi blíulestu r kl.
20.30.
Föstudagur Konunglegu her-
sveitirnar kl. 18.00. Barnastarl
fyrir 5—12 ára.
Laugardagur: Unglingasam-
koma kl. 20.30.
Hugleiðslukvöld
Munið hugleiðslukvöldin okkai
öll sunnudagskvöld i Sjálfeflis-
salnum kl. 20:30.
í kvöld: Jórunn Oddsdóttir.
13.4. Kristín Þorsteinsdóttir.
20.4. Kristín Þorsteinsdóttir
27.4. Upplýst síðar.
Aðgangur kr. 350.
Allir velkomnir.
Kristín Þorsteinsdóttir
- símatími
Kristín Þorsteinsdóttir verður
með símatíma hér eftir á mánu-
dögum kl. 13.00-15.00. Þeir sem
eiga erindi við hana og/eða eiga
inni svar við skilaboðum til
hennar, vinsamlega hringið á
þessum tíma.
Athugið: Þessi símatími er
ekki til tímapantana.
Frelsið, kristileg miðstöð,
Hverfisgötu 105.
Samkorrta kl. 20.00 í kvöld.
„Helgun er lífsstill"
predikari Hilmar Kristinsson.
Kl. 11.00 Frelsishetjurnar. Krakkakirkj
Þriðjudaga kl. 20.00 Frelsisfræðsla.
Föstudaga kl. 21.00 Gen-ex kvöld.
Vertu frjáls - kíktu I Frelsið!
Skyggnilýsing-
arfundur
Lára Halla Snæ-
fells heldur
skyggnilýsinga-
fund í sal Stjórn-
unarskóla íslands
fimmtudaginn 10. apríl kl. 20.30
Verður líka með blómalestur.
Allir hjartanlega velkomnir með-
an húsrúmleyfir. Miðaverð kr.
1.000. Lára verður i þætti Kristóf-
ers Flelgasonar á Bylgjunni mið-
vikudagskvöldið 9. apríl kl.
22.00-24.00.
Michael námskeið
haldið næstu þriðjudags-
kvöld frá 15. apríl til 27. maí.
Þátttakendur læra að greina kosti
og galla persónuleika síns. Þeit
finna út hvað hindrar þá í að ná
árangri og finna lífsgleði sína
Leiðbeinandi verður Jón Bjarni
Bjarnason. Þátttakendur skrá sig
i sima 565 4768 (símsvari á dag-
inn). Námskeiðsgjald er 7.500 kr
(hjón fá 20% afslátt.
Pýramídinn
- andleg miðstöð
Bíbí Ölafsdóttir
miðill verður í
Pýramídanum
dagana 12. til 15.
apríl. Tímapantan-
anir og nánari
upplýsingar í sím-
um 588 1415 og
588 2526.
Pýramídinn,
Dugguvogi 2, sími 588 1415.
Áruteiknimiðillinn
Guðbjörg Guðjónsdóttir
verður í Reykja-
vík dagana 10
og 11. apríl. Húr
teiknar áru þína oc
les úr henni
hvernig þú tengis
veraldlegum oc
andlegum þátturr
lifs þíns. Einnig teiknar hún and
legan leiðbeinanda fyrir þá, sen
lengra eru komnir inn á andlegt
brautina og kemur með upplýs
ingar frá honum til þin.
Uppl. í s. 421 4458 og 897 9509.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Morgunsamkoma kl. 11.00.
Brotning brauðsins og barna-
blessun. Fllaðborð, allir koma
með mat að heiman og borða
saman eftir samkomuna.
Kvöldsamkoma kl. 20.00.
Samúel Ingimarsson predikar. „I
skugga vængja þinna fagna ég."
Sálm. 63.8.
Aðalstöðvar KFUM og KFUK,
Holtavegi 28
Almenn samkoma og barna
stundir í dag kl. 17.00.
Ræðumaður: Leif Andersen.
Matsala eftir samkomuna.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nýja postulakirkjan
Ármúla 23
108 Reykjavik
Guðsþjónusta sunnudag kl. 11.
Verið hjartanlega velkomin í hús
Drottins.
Rauðarárstíg 26, Reykjavík,
símar 561 6400, 897 4608.
Guðsþjónusta með altarisgöngi
sunnudag kl. 20.
Sigþór Guðmundsson predikar.
Guðsþjónusta fimmtudag kl. 20.
Pýramidinn
- andleg miðstöð
Skyggnilýsingafundur
meö Björgvini Guð
jónssyni sunnudags-
kvöldiö 6. apríl
kl. 20.30.
Húsið opnað kl. 19.30.
Miðaverð 1.000 kr.
Pýramídinn,
Dugguvogi 2, sími 588 1415.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Samkoma og sunnudagaskóli kl. 11.
Ásmundur Magnússon predikar.
Kennsla í kvöld kl. 20.
Munið samkomurnar með Ulf Ekman
Fíladelfíu nk. miðvikudag og fimmtu-
dag.
Allir hjartanlega velkomnir.
Skyggnilýsingafundur
Miðlarnir Ingibjörg Þengils-
dóttir og Margrét Hafsteins-
dóttir halda sameiginlegan
skyggnilýsingafund miðviku
dagskvöldið 9. april kl. 20.30 i
Sogavegi 69 (sal Stjórnunarskól-
ans). Húsið opnað kl. 19.30.
Aðgangseyrir kr. 1.000.
FEBÐAFÉLAG
@ ÍSLANDS
MORKINNI 6 - SlMI 568-2533
Midvikudagur 9. apríl
kl. 20.30.
Myndakvöld frá Grænlandi
og Færeyjum.
Myndakvöldið er helgað næstu
nágrönnum okkar sem sannar-
lega eru þess virði að kynnast.
Fyrir hlé mun Jón Viðar Sigurðs-
son jarðfræðingur sýna myndir
og segja frá ferð sl. sumar um af-
skekktar slóðir á Norðvestur-
Grænlandi. Sagt verður frá
gönguferð um eyjuna Nuugaats-
iaq sem er norðan við Uum-
mannaq og einnig siglingu norð-
ur til veiðimannaþorpsins Kull-
orsuaq sem er 900 km norðan
við heimskautsbaug.
Eftir hlé sýnir Ágúst Guðmunds-
son jarðfræðingur myndir víða
að frá Færeyjum, bæði frá dvöl
sinni þar á síðastliðnu sumri og
frá árinu 1983.
Góðar kaffiveitingar í hléi. Verð
500 kr. (kaffi og meðlæti inni-
falið).
Ferðafélagið efnir til gönguferð-
ar á Suður-Grænlandi 8.-17. júl
og Færeyjaferðar 4.-12. júní,
myndasýningin er þó ekki tengd
þeim ferðum. Upplýsingablöð á
skrifstofunni.
Minnum á heillaóska- og áskrift-
arlista vegna afmælisrits Ferða-
félagsins, Ferðabók Konrads
Maurers. Athugið að það nægir
ein skráning fyrir hjón.
fomhjolp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42 í dag kl. 16.00.
Mikill og fjölbreyttur söngur.
Samhjálparkórinn tekur lagið.
Barnagæsla. Samhjálparvinir
vitna um reynslu sína. Kaffi að
lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Morgunsamkoma í
Aðalstræti 4B kl. 11.00
Sr. Magnús Björnsson talar um
Kennivald Bibliunnar. Fræðsh
fyrir börnin. Heilög kvöldmáltið.
Almenn samkoma í Breið
holtskirkju kl. 20.00. Friðril
Schram prédikar.
Mikil lofgjörð og fyrirbænir.
Allir velkomnir.
Kl. 11.00 Sunnudagaskóli.
Kl. 20.00 Hjálpræðissamkoma,
Elsabet Daníelsdóttir talar.
Allir velkomnir.
Mánudag kl. 15.00 Heimilasamband.
Sr. Lárus Halldórsson talar.
Allar konur velkomnar.
KENNSLA
HEILSUSETUR
ÞÓRGUNNU
Ungbarnanudd
Námskeið fyrir foreldra með
börn á aldrinum 1-10 mánaða.
Gott fyrir öll börn, hjálpar t.d. vi£
magakveisu, lofti í þörmum og
órólegum svefni. Námskeiðið
byrjar fimmtudaginn 10. apríl.
Upplýsingar og innritun
Heilsusetri Þórgunnu, Skúlagötu
26, sími 562 4745, milli kl. 11.00
og 13.00.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Húsnæði óskast
Óska eftir 4ra - 6 herb. íbúð eða
einbýlishúsi til leigu. Reglusem
og skilvísum greiðslum heitið.
Upplýsingar í símum 588 2526
og 564 1029.
Doktor í
jarðfræði
•HELGA Gunnarsdóttir varði
doktorsritgerð sína í jarðfræði við
Háskólann í Ósló 16. ágúst sl.
Ritgerðin ber heitið „Holocene
Vegetation History in the Northen
Parts of the Gudbrandsdalen Vall-
ey, South Central Norway". Á ís-
lensku nokkurn veginn svo: Saga
gróðurfars í norðurhluta Guð-
brandsdals í Noregi frá ísöld og
GULLSMIÐJAN
PYRIT - G15
V
URVAL \
SILFURKROSSA \
TIL *
FERMINGAGJAFA \
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 15
SÍMI 55 1 1 505
fram á okkar tíma. Leiðbeinendur
Helgu voru Kari E. Henningsmoen
og Kerstin Griffin.
„Það eru ftjókorn úr mómýrum
ogtjarnsetlögum sem hafa skráð
sögu gróðurfars loftslags og bú-
setu síðastliðin 9.500 ár í norður-
hluta Guðbrandsdals í Noregi.
Furutré námu land á háfjallasvæði
í austur Jötunheimum fyrir 8.600
árum. Bæði ftjókornsgreining og
aldursgreining á furustubbum
sýna að furuskógur óx upp í a.m.k.
1.300 metra hæð yfir sjávarmáli
fyrir 8.000-6.700 árum. Það þýð-
ir að meðalhitinn hefur verið
a.m.k. 1,8 gráðum hærri en hann
er núna. í kjölfar kólnandi loft-
slags færðust skógarmörkin neðar
og síðasta greinilega lækkun skóg-
armarka var fyrir 3.300 árum.
Frjógreining og fornleifarann-
sóknir benda til þess að föst bú-
seta hafi verið í afdölum norður
Guðbrandsdals á víkingaöld og
snemma á miðöldum. Fjallabúar
lifðu á landbúnaði og hreindýra-
veiðum. Á Dalsíðu í Lesjahéraði,
sem er í meira en 800 metra hæð
yfir sjávarmáli, ræktuðu fjalla-
bændur hafra, bygg og rúg. Á
þessu tímabili var loftslag mildara
en í dag og niðurstöðurnar benda
til þess að hveiti hafi þroskast þar
á heitum sumrum. Fjalladalirnir
lögðust í eyði eftir svartadauða
en 200 árum seinna hófst þar
seljabúskapur,“ segir í fréttatil-
kynningu.
Helga er fædd á Teigi í Vopna-
firði 8. maí 1957 og ólst þar upp
tii 14 ára aldurs er hún flutti með
fjölskyldu sinni til Reykjavíkur.
Foreldrar hennar eru Gunnar
Valdimarsson fornbókasali og
Sólveig Einarsdóttir fulltrúi.
Helga varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1977.
Sama ár flutti hún tii Noregs og
hefur verið við nám og störf við
Háskólann í Ósló og víðar. Sam-
býlismaður Heigu er Rolf Elías-
sen, hann vinnur hjá dagblaðinu
Aftenposten í Ósló.
Seinna frumvarp til fjáraukalaga
Viðbótarútgjöld
námu 2,3 miUjörðum
MEÐ seinna frumvarpi til fjárauka-
laga fyrir 1996 leitar ríkisstjórnin
eftir heimild til greiðslu viðbótar-
gjalda að fjárhæð 2.289 milljónir kr.
Greiðslur hafa þegar verið inntar af
hendi. Hærri fjárhæð er til í ónotuð-
um fjárveitingum og reyndust gjöld
ársins því minni en reiknað var
með. Tæplega 2 milljarða halli varð
af rekstri ríkissjóðs, þegar frá eru
reiknaðir aukavextir vegna innköll-
unar óhagstæðra ríkisskuldabréfa.
Heildartekjur ársins urðu 127,7
milljarðar kr., hálfum milljarði hærri
en fyrri fjáraukalög gerðu ráð fyrir.
Gjöldin urðu 139,7 milljarðar, 1,4
milljörðum minni en gert var ráð
fyrir. Um 12 milljarða rekstrarhalli
varð því af ríkissjóði, reiknað á
greiðslugrunni, 2 milljörðum lægri
en fjáraukalög heimiluðu. Þegar
vextir vegna innköllunar ríkis-
skuldabréfa eru reiknaðir frá er hali-
inn tæpir 2 milljarðar kr. og er það
í fyrsta sinn frá 1984 sem rekstrar-
afkoma hefur verið svo jákvæð.
í greinargerð með frumvarpinu
kemur fram að lægri útgjöld ríkis-
sjóðs en reiknað var með skýrast
af nokkrum stórum liðum sem koma
ekki til greiðslu fyrr en 1997, t.d.
stofnkostnaði vegna framhaldsskóla
og menningarstofnana og framlög
til alþjóðlegrar hjálparstarfsemi og
friðargæslu. Einnig vegna þess að
nokkrir liðir voru ofmetnir, svo sem
lífeyrisgreiðslur, ríkisábyrgðir, ár-
gjöld íslands til alþjóðastofnana og
útgjöld vegna grunnskóla.
3,7 milljarðar afgangs
Á móti 2.289 milljóna króna
umframgjöldum koma óhafnar fjár-
veitingar ráðuneyta, alls 3.730
milljónir. Hluti umframútgjalda og
afgangsheimilda er felldur niður en
hluti færður á árið 1997 og eiga
viðkomandi stofnanir því að njóta
þess eða gjalda hvernig tókst til
með reksturinn í fyrra. I frumvarpi
að fjáraukalögum er gert ráð fyrir
því að heimildir til rekstrar verði
auknar um 823 milljónir í ár vegna
afgangsheimilda liðins árs en að
rekstrarfjárveitingar skerðist á
móti um 944 milljónir kr. Ráðuneyt-
in eiga einnig óhafnar fjárveitingar
vegna viðhalds og stofnkostnaðar
að fjárhæð 715 milljónir og afgang
af tilfærsluframlögum að fjárhæð
478 milljónir króna. Þannig er fyrir-
hugað að hrein aukning nýrra heim-
ilda umfram skerðingu nemi 1.074
milljónum kr. í ár.
Ef litið er á greiðslur til einstakra
ráðuneyta sést að í heildina hafa þau
flest haldið sig innan fjárheimilda.
Helsta undantekningin er landbún-
aðarráðuneytið sem fór 134 milljónir
fram úr fjárveitingum. Viðskipta-
og umhverfisráðuneytin fóru einnig
lítilsháttar framúr fjárveitingum.
Verslunin 1928 á
Laugaveginum
NÝLEGA var verslunin 1928 Boutique opnuð að
Laugavegi 20b en hún deilir húsnæði með antikversl-
uninni Fornsala Fornleifs og er sameiginlegur inn-
gangur.
1928 er bandariskt fyrirtæki og eitt hið stærsta á
sviði endurgerðra antikskartgripa. Hönnuðir fyrir-
tækisins sækja hugmyndir sínar víða um heim, allt
frá Páfagarði til gullaldarára Holly wood, segir i
fréttatilkynningu. Einnig er á boðstólum góbilín
vefnaður í úrvali, púðar, dúkar, veggteppi og er
hægt að sérpanta fyrir viðskiptavini. Eigandi versl-
unarinnar, Iðunn Andrésdóttir, er einnig með inn-
flutning á handunnum rússneskum íkonum (helgi-
myndum) og eru þeir til í nokkrum stærðum.
EIGANDI1928, Iðunn Andrésdóttir.