Morgunblaðið - 24.04.1997, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.04.1997, Qupperneq 2
2 D FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ Deilur um eðli, umfang og ástæður jarðvegs- rofs, mesta umhverfis- vanda landsins, segir dr. Olafur Arnalds að endurspegli vanþekk- ingu á vandanum. Jarðvegsrof á Islandi ROFDILAR - eru afar algengir í grónu landi og þeir eru útbreiddasta rofmyndin (um 28.200 kmz). Þeir eru oft afleiðing beitar og þess að gróðurfar er rýrt. Rofdílar í hrossahólfum eru glögg merki ofbeitar. Þeir gróa seint af sjálfu sér, einkum sökum holklaka. Ef þeir stækka eiga vatn og vindur greiða leið að yfir- borðinu og með tímanum geta t.d. myndast rofabörð. JARÐVEGSROF á íslandi er með því mesta sem þekkist utan eyðimerkursvæða jarð- ar. Nýlega lauk kortlagningu á jarðvegsrofi á landinu öllu. Þar með er fenginn nýr grunnur til að takast á við þennan mesta umhverfisvanda landsins. Lengi hefur verið deilt um eðli, umfang og ástæður jarðvegsrofs á íslandi. Þessar deilur endur- spegla ekki hvað síst að þekkingu á eyðingunni hefur verið ábóta- vant. Flestum er þó ljóst að rofið er mikið, þannig að stór landflæmi sem áður voru hulin fijósamri moldu og gróðri eru nú auðnir ein- ar. Landið tötralegra ásýndum en gróðurskilyrði leyfa, en forsenda þess að tekist sé skipulega á við vandann er skilningur á ástandi landsins, jarðvegsrofi og gróður- fari. Rannsóknastofnun landbúnað- arins og Landgræðsla ríkisins stóðu sameiginlega að því að kort- leggja rof á Iandinu, en nutu m.a. tilstyrks Framleiðnisjóðs landbún- aðarins og Rannsóknarráðs ís- lands. Kortlagningin fór fram á árunum 1991-1996. Niðurstöður kortlagningarinnar eru kynntar í nýútkominni bók: Jarðvegsrof á íslandi, sem gefin var út af Landgræðslu ríkisins og Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins. Þar er fjallað um jarðvegsrof í einstökum landshlutum og hrepp- um landsins og útskýrt hvers kon- ar rof á sér stað. Niðurstöðurnar hafa verið kynntar á fundum með bændum víða um landið og lýkur þeirri kynningu á hausti komandi. Unnið er að því að gera niðurstöðurnar aðgengilegar á veraldarvefnum (http//www.rala.is/kvasir). Rofið er fjölbreytilegt Rof á íslandi er mun fjölbreyti- legra en ætla mætti. Flestir hafa tekið eftir rofabörðunum sem eru áberandi á mörgum svæðum landsins og sandfok leynir sér ekki þegar mökkinn ber við himin. En rof á sér einnig stað með öðr- um hætti. Til dæmis geta hlíðar smám saman misst jarðvegshul- una án þess að því sé veitt mikil athygli. Litlir rofblettir, svokallað- ir rofdflar, geta opnast í gróður- þekjuna við ofbeit og traðk, sér- staklega þar sem gróðurfar er rýrt. A auðnum á sér stað mjög margbreytilegt jarðvegsrof sem hamlar vexti gróðurs, enda vantar gróðurhuluna sem annars verndar yfirborðið fyrir rofí. Þær aðferðir sem beitt var við þessar rannsóknir eru sérsniðnar að íslenskum aðstæðum en byggj- ast þó að hluta á erlendum fyrir- myndum. Kortlagningin náði til alls jarðvegsrofs. Því er skipt í tvo meginflokka, rof er leiðir til taps á grónu landi (6 rofmyndir eða rofgerðir), en hins vegar rof á auðnum (8 rofmyndir). Einnig þarf að meta hversu alvarlegt rof- ið er. Rofkvarði RALA og LR er þessi: 0: Ekkert rof 1: Lítið rof 2: Nokkurt rof 3: Talsvert rof 4: Mikið rof 5: Mjög mikið rof Það land sem hlýtur lökustu ein- kunnimar (4 eða 5) er ekki talið hæft til beitar, en á því landi sem hlýtur rofeinkunn þarf að huga sérstakiega að þróun ástandsins og grípa til aðgerða eftir þörfum. Myndir sem teknar voru úr bandarískum gervihnöttum voru notaðar sem grunnkort af landinu. Beitt er sérstökum aðferðum við vinnslu myndanna, þannig að þær sýna mjög vel hvar land er gróið og hvar ekki. Farið var um landið allt, og hvert svæði metið í samræmi við flokkun á rofi og einkunnaskal- ann. Pjalllendi var flokkað sérstak- lega og ekki gefin rofeinkunn að svo stöddu. Niðurstöður kortlagn- ingarinnar mynda viðamikinn gagnabanka þar sem landinu hef- ur verið skipt í um 18.000 eining- ar eftir því hvernig rofi er háttað á hveijum stað. Gagnabankinn er aðgengilegur í tölvukerfi RALA og LR, ásamt upplýsingum um mörk sveitarfélaga, afrétta og ýmislegt annað er snertir nátt- úrufar landsins. Heildarniðurstöður A meðfylgjandi yfirlitskorti er umfangi jarðvegsrofsins lýst. Kortið staðfestir_ það sem flestir vissu fyrir: að á Islandi á sér stað mikið jarðvegsrof. Mikið og mjög mikið jarðvegsrof (rofeinkunnir 4 og 5) á sér stað á um 22% lands- ins. Þegar jöklar, vötn og fjalllendi eru undanskilin er alvarlegt rof á yfir helmingi landsins (rofeinkunn- ir 3, 4 og 5). Hálendissvæðin skera sig nokkuð úr, sérstaklega sendin svæði í nágrenni jökla og eldfjalla, sem og sandsvæðin meðfram ströndum. Rof sem er að eyða samfelldu gróðurlendi er litið sér- staklega alvarlegum augum vegna þess hve gróðurhula landsins er takmörkuð. Slíkt rof (einkunnir 3, 4 og 5) er að finna á um 13.000 km2 lands. Það sem kom hvað mest á óvart var hve rof er víða mikið í hlíðum landsins, jafnvel á svæðum þar sem talið var að jarðvegsrof væri lítið. Ljóst er að hross geta valdið miklu tjóni í hlíðum á skömmum tíma. Skert gróðurhula í hlíðum stuðlar ennfremur að skriðuföll- um. Segja má að útbreiðsla sendinna svæða sé mun meiri en flesta ór- aði fyrir. Sandurinn berst frá jökl- um og jökulám og hann getur eytt miklu gróðurlendi á stuttum tíma þegar illa árar. Því þarf að efla mjög rannsóknir á sandfoki og þróun sandsvæða. Kortlagningin leiðir í ljós að sjaldnast er hægt að alhæfa um ástand lands í einstökum sýslum eða hreppum, og land einnar og sömu jarðarinnar er oft með mjög misjöfnum hætti. Afréttirnir eru einnig misjafnir, en á meðan ekki er skilið á milli einstakra hluta þeirra verður að líta á hvern af- rétt sem eina heild. Það leiðir til þess að sumir afréttir hljóta slæma heildareinkunn, enda þótt hlutar þeirra séu vel grónir og rof þar lítið. Oft væri auðvelt að aðskilja þessi svæði með rafgirðingum. Niðurstöðurnar sýna að stór hluti miðhálendisins er ekki hæfur til beitar, þar með taldir flestir afrétt- ir Sunnlendinga og hálendi allt frá Blöndu austur á land. Svæði sem hlutu lága rofein- kunn eru um helmingur landsins að frátöldum jöklum og fjalllendi. Láglendi Suðurlands, Vesturland, Norðvesturland og hluti Austur- lands fá víðast hvar góðar ein- kunnir með hliðsjón af jarðvegs- rofi. Um ástæður jarðvegsrofsins Draga má margvíslegar álykt- anir um orsakir jarðvegsrofsins af því að gefa rofmyndum og ro- feinkunnum nánari gaum. Þannig má ætla að rofdílar, rofabörð, jarðsil, moldarskriður og vatnsrás- ir séu allt rofmyndir er tengjast nýtingu landsins að einhveiju eða öllu leyti. Orsakasamhengið verð- ur flóknara þegar um auðnir er að ræða. Umfang sandsvæða er mikið, og þar kemur eflaust til samspil beitar og kólnandi veður- fars, sérstaklega á þrettándu öld- inni, en saga jöklanna tengist einn- ig náið þróun sandsvæðanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.