Morgunblaðið - 24.04.1997, Síða 7

Morgunblaðið - 24.04.1997, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SKÓGRÆKT OG UMHVERFISVERIMD FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1997 D 7 Landnemar Fátt gleður huga Arnórs Snorrasonar meira en að sjá góðan árangnr af ræktunar- starfi fólksins í landinu. MEÐ landnemum er átt við félagasamtök, hópa eða einstaklinga sem taka að sér að græða upp og rækta skóg á afmörkuðum spildum á löndum sem eru í umsjón skógræktarfélag- anna. Landnemar hafa verið að verki um langt skeið hjá skógræktarfé- lögunum og mikilvægur hluti af sjálfboðaliðastarfí þeirra hefur ver- ið og er unninn af landnemum. Það hefur margsinnis sýnt sig og sannað að mörg okkar þurfa að fá útrás fyrir ræktunarþörf okkar. Þessi þörf er að sjálfsögðu tilkomin vegna þess að þjóðarsálin gerir sér grein fyrir bágu ástandi landsins. Skógarnir eru eyddir og aðeins leifarnar eftir og annar gróður tötrar einir. Því er fátt sem gleður hugann eins mikið og að sjá eftir sig góðan árangur í eigin ræktunarstarfi. Þó að margir eigi lönd til ræktunar, stækkar sá hóp- ur, með auknu þéttbýli, sem ekki hefur aðgang að slíku landi. Ekki eru allir sem finna sig í því að vinna að skógrækt í sjálf- boðavinnu í stórum hópi fólks sem fátt annað hefur sameiginlegt en áhugann á málefninu og starfinu. Mörgum finnst það vænlegri kost- ur að fá afmarkaða spildu til um- ráða þar sem þeir fá að sýna hvað í þeim býr og ráða að mestu leyti ferðinni sjálfir í ræktunarstarfinu. Ekki er síður hvetjandi að geta fylgst með árangri af eigin starfi og bent á eigin verk. Því hefur sjálfboðaliðastarfið færst í auknum mæli á landnema sem hafa fengið úthlutað landnemaspildum sem þeim er falið að sjá um. Það er ekki bara að ræktunarþörfinni sé fullnægt með landnemaspildunum heldur eignast landneminn afdrep í náttúrunni þar sem hann getur notið hennar í friði og spekt fjarri skarkala og fjölmenni borgar og bæja. Landnemar í tæp fimmtíu ár Það er langt því frá að land- nemaskógrækt sé einhver ný hug- mynd. Stór hluti skógræktarstarfs- ins sem unninn hefur verið í Heið- mörk er skógrækt landnema. Til eru reglur frá 1950 um „landnám og skógrækt á Heiðmörk“, þannig að landnemaskógrækt hefur verið við lýði í tæp 50 ár. Skógræktarfé- lag Reykjavíkur reið þannig á vað- ið og hóf útdeilingu landnema- spilda á skipulegan hátt. Það voru félagasamtök, stofnanir og starfs- mannahópar sem höfðu rétt á út- hlutun í Heiðmörk. Enn eru land- nemar að störfum í Heiðmörk og á hveiju sumri mæta um 1.200 manns til að sinna sínum spildum. Obeint má segja að landnemar hafi verið að störfum hjá öðrum skógræktarfélögum víðsvegar um landið á sama tíma, því að mjög algengt var að skógræktarfélögin úthlutuðu skikum til ýmissa fé- lagasamtaka s.s. kvenfélaga og klúbba. Þetta var samt ekki gert skipulega eins og í Heiðmörk. Næstu tímamót verða þegar Skógræktarfélag Hafnarfjarðar fer að útdeila landnemaspildum í upplandi Hafnarfjarðar. Fyrstu spildunum var útdeild 1980 og var strax ákveðið að leyfa einstakling- um eða fjölskyldum að „taka flag Fersk hugmynd á fornum grunni Mynd/J.G.P. (S.í.) LANDNEMASKÓGUR - er orðinn af raunveruleika; Úr land- nemaspildu „Nordmanslaget", félagi Norðmanna á íslandi, en þeir hafa ræktað sína spildu í Heiðmörk í Reykjavík. Mynd/B.J. (S.í.) Á UPPHAFSREIT - nýjar landnemaspildur á Hálsi í Eyja- fjarðarsveit. Eftir 20 ár verður þetta svæði skógi vaxið. í fóstur" ásamt félagasamtökum og skólum. Mörg skógræktarfélög fylgdu í kjölfarið og stofnuðu til landnema- spildna á löndum sínum. Skóg- ræktarfélag Mosfellsbæjar er með spildur í norðurhlíðum Úlfarsfells, Skógræktarfélag Garðabæjar í Sandahlíð og Smalaholti við Vífils- staðavatn, Skógræktarfélag Kópa- vogs á landi Vatnsenda, Skógrækt- arfélag Eyfirðinga á Hálsi í Eyja- firði og Skógræktarfélag Rangæ- inga á Kotvelli í Fljótshlíð. Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur einnig boðið félagsmönnum sínum upp á landnemaspildur í Fellsmörk vestast í Mýrdalshreppi og hafa þar numið land á sjötta tug félaga. Að lokum ber að nefna Skólaskógana í landi Úlfljótsvatns en þar hafa allir grunnskólar í Reykjavík fengið landnemaspildur til skógræktar og er það Raf- magnsveita Reykjavíkur sem lið- sinnir yngstu landnemunum við gróðursetningarstörfin. Leiguskilmálar land- nemaspildnanna Afar misjafnt er hvaða leiðir félögin hafa valið varðandi stærð spildna, leiguskilmála. Það getur verið allt frá því að spildan er leigð án endurgjalds til 15-20 ára. Landneminn má þá ekki byggja á spildunni en verður að sinna skógrækt á hveiju ári. Spildurnar eru í minna lagi, um hálfur hektari fyrir einstaklinga en stærri fyrir félög og skóla. Þetta er það form sem Skógræktarfélög Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs hafa valið. Allt öðru vísi eru landspildur Skógræktarfélags Rangæinga sem hefur selt 5 ha spildur með þeirri kvöð að kaupendur rækti á þeim skóg. Millistig er það form sem Skóg- ræktarfélög Eyfirðinga og Reykja- víkur hafa verið með á Hálsi og í Fellsmörk þar sem land er leigt og spilduhafar mega byggja sum- arhús á a.m.k. hluta spildnanna. Öll leiguformin eiga þó það sam- merkt að höfuðtilganginum sé náð, það er að landnemin rækti þar upp skóg og annan jarðargróður þann- ig að spildan verði, þegar fram í sækir í mun betra ásigkomulagi en þegar landneminn tók við henni. Þjónusta og eftirlit skógræktarfélaganna í sumum tilvikum hafa skóg- ræktarfélögin lagt til plöntur eins og í Heiðmörk og Fellsmörk en oftast er það þannig að spilduhafi verður að sjá um að útvega sér tijáplöntur sjálfur. Þjónusta skógræktarfélaganna er margvísleg. Þau sjá um að út- vega landið, friða það og skipu- leggja spildurnar. Nýrri landnema- svæði hafa einnig verið dyggilega skipulögð með tilliti til skógræktar og landnemar hafa fengið ná- kvæmar upplýsingar um hvaða tijátegundir er vænlegastar. Samt sem áður er landnemunum gefinn laus taumurinn í sambandi við tijá- tegundaval og ræktunaraðferðir þannig að hugmyndir og frumleiki hvers og eins fái að njóta sín. Skógræktarfélögin sjá til þess að spildurnar séu aðgengilegar og er það í flestum tilvikum svo, að hægt er að keyra fólksbíl að hverri spildu yfir sumartímann. Að lokum fylgjast skógræktar- félögin með að hver og einn land- nemi standi sig í stykkinu og sé að gróðurbótastörfum helst á hveiju sumri. Fleiri vilja vera með Mikill uppgangur er í landnema- skógrækt og virðist þetta form sjálfboðaliðastarfsins falla vel að tíðarandanum. Þau skógræktarfé- lög sem nú þegar bjóða upp á spild- ur hafa ekki við að útvega ný svæði. Skf. Hafnarfjarðar og Ey- firðinga eru að stækka sín svæði og Skf. Reykjavíkur áformar land- nemaskógrækt í samvinnu við Hitaveitu Reykjavíkur í Hvamm- svík í Hvalfirði. Mörg önnur skógræktarfélög eru með landnemaskógrækt í bí- gerð enda fjölmargir tilbúnir til að leggja sitt af mörkum við upp- græðslu og skógrækt ef þeir fá sinn eigin skika til umráða. Þótt við séum fá sem búum í þessu stóra landi getum við áorkað ýmsu til að bæta ömurlega kápu landsins ef við leggjumst öll á eitt. Ef hver og ein fjölskylda gerðist landnemi yfir tveimur ha lands yrðu landnemaspildur íslands um 140.000 ha, sem er dijúgt stærra svæði en birkiskógar landsins eru í dag en þeir eru um 126.000 ha. Tveir ha eru spilda sem er 140 metrar á kant og til að rækta skóg á slíkri spildu þarf að gróðursetja 4-6.000 tijáplöntur. Ef gert er ráð fyrir að ræktunin taki 20 ár þarf aðeins að gróðursetja á hveiju ári um 2-300 plöntur en það er hæg- lega hægt að gera á einni dag- stund. Ef hver fjölskylda í landinu legði eina dagstund í skógrækt á hverju ári væri hæglega hægt að tvöfalda skóglendi landsins á að- eins 20 árum. Höfundur er skógfræðingur i\j& Skógræktarfélagi íslands. LANDNEMASPILDUSVÆÐI TIL SKÓGRÆKTAR 1 Nafn svæðis Umsjón Stærð Rjöldi spildna Landnemar spildna Heiðmörk í Reykjavík Skf. Reykjavíkur 1 ha 127 Félagasamtök, starfs- mannahópar og stofnanir Fellsmörk í Mýrdalshreppi Skf. Reykjavíkur 1 ha 60 Einstaklingar Upplönd Hafnarfjarðar Skf. Hafnarfjarðar 1-3 ha 137 Einstakl., félög og skólar Sandahlíð í Garðabæ Skf. Garðabæjar 1 ha 17 Einstaklingar, félög Smalaholt í Garðabæ Skf. Garðabæjar 1 ha ’ 16 Einstakl., félög og skólar yatnsendi í Kópavogi Skf. Kópavogs 0,6-3 ha 44 Einstakl., félög og skólar Úlfarsfell í Mosfellsbæ Skf. Mosfellsbæjar 0,5-1 ha 14 Einstaklingar Háls í Eyjafjarðarsveit Skf. Eyfirðinga 1-2 ha 39 Einstaklingar og félög Kotvellir í Fljótshlfð Skf. Rangæinga 3-5 ha 8 Einstaklingar Úlfljótsvatn í Grafningi Rafmagnsveita Rvíkur 0,5 ha 42 Grunnskólar í Reykjavík Samtals ha og spildur: 547 504 Styrkur úr Umhverfís- sjóði versl- unarinnar UMHVERFISSJÓÐUR verslun- arinnar er sjóður sem kaup- menn hér á landi hafa stofnað og stuðla á að bættu umhverfi, fegrun og uppgræðslu. Eins og menn vita er mikil þörf á fjármagni til náttúru- verndar og með stofnun sjóðsins vilja kaupmenn, með hjálp við- skiptavina, leggja sitt af mörk- um til að vernda nánasta um- hverfi. Formaður stjórnar Um- hverfissjóðs verslunarinnar er Bjarni Finnbogason en fram- kvæmdastjóri Björn Jóhanns- son. Sérstakt fagráð annast út- hlutanir úr sjóðnum árlega í samræmi við reglur sjóðsins en formaður þess er Björn Sigur- björnsson. Á síðasta ári var alls úthlutað 20 milljónum króna til 15 aðila og af þeirri upphæð hlaut Skóg- ræktarfélag Islands kr. 5.000.000.00. Þess utan hlutu þijú aðildarfélög sérstaka styrki. Stjórn Skógræktarfélags ís- lands skipaði þriggja manna nefnd til að annast úthlutunina til aðildarfélaganna í samráði við stjórn Umhverfissjóðsins. Úthlutuninni var þannig hag- að að öll aðildarfélögin, 50 að tölu, lilutu grunnstyrk en við- bótarupphæð var síðan ákveðin samkvæmt rökstuddum reglum. Félögunum var síðan gert að gera grein fyrir hvernig styrkn- um var varið. Sú skilagrein verður kynnt í sjóðsstjórninni. Þetta framla tryggir félög- unum visst fjárhagslegt bol- magn sem óneitanlega er for- senda sjálfboðaliðastarfsins sem unnið er á þeirra vegum. En framlagið er líka staðfesting á mikilvægi almennrar þátttöku við uppgræðslu og skógrækt á Islandi. -----» ♦ » Skógrækt með Skeljungi FRÁ árinu 1994 hefur Skóg- rækt með Skeljungi, sem er samstarfsverkefni Skógræktar ríkisins og Skeljungs hf., styrkt aðildarfélög Skógræktarfélags Islands með vænum fjárfram- lögum. Fyrsta árið var styrkurinn tæpur 2 millj. kr., skipt á milli skógræktarfélaganna, en þau eru um 50 talsins og fengu þá öll félögin úthlutað einhveijum fjármunum. Ári síðar var 1,7 millj. kr. úthlutað til félaganna og var félögum gert að sækja sérstaklega um styrkinn. Um 37 aðildarfélög fengu þá úthlut- að úr sjóðnum. Á síðasta ári var um 1,5 millj. kr. úthlutað og var fjöldi félaga svipaður. Á þessum þrem árum hafa félögin því fengið hátt í 5 millj. kr. til ýmiss konar skógræktar- verkefna. Fullvíst má telja að styrkur þessi hafi komið í góðar þarfir og þeim fjármunum verið velvarið. Félögin meta þennan stuðn- ing mikils og vonast til að eiga samleið með ofangreindum aðil- um með það markmið að auka og efla skógrækt á íslandi. h

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.