Morgunblaðið - 16.05.1997, Síða 4

Morgunblaðið - 16.05.1997, Síða 4
4 B FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997 DAGLEGT LIF MORGUNB LAÐIÐ • STÚDENT • PÖNKARI • SAUMAKONA • LÍNUSTJÓRI • LEIKBÚNINGAHÖNNUÐUR Klæðir filmstjörnur úr og í Morgunblaðið/Helga Kristín EINHVERJIR muna Lindu kannski sem söngkonu í pönksveit- inni Q4U og félagar hennar í Háskólanum hafa ekki gleymt þegar hún mætti út í enskudeild fyi-sta skóladag fyr- ir allmörgum árum. Viðstaddir, þeirra á meðal greinarhöfundur, stungu saman nefjum, pírðu augun á stóran plasthatt og svarta vínyl- regnkápu og veltu fyrir sér hvað pönkdrottningin væri að villast þarna á háskólalóðinni. Á daginn kom síðan að fæstir stóðu henni á sporði hvað varð- aði nákvæmni og samviskusemi I námi, auk þess að hún vann fyr- ir sér með saumaskap með- fram skólanum. Linda segir líka að hún hafi alls ekkert byrjað í pönkinu fyir en eftir stúdents- próf og að skoð- anasystkini þess tíma hafi mikið gantast með að hún væri eini pönkarinn sem kynni að leggja saman í heftinu sínu. „Eg var mjög feiminn unglingur og geymdi uppreisnina. Hins vegar hlaut að koma að henni svo ég kláraði stúd- entsprófið fyrst.“ Linda býr í háreistu timburhúsi í útjaðri franska hverfísins í New Orleans, með Lukku sinni, sjeffer: hundi sem á sjö ára afmæli í dag. I vetur vann hún að leikbúningagerð fyrir sjónvarpsþætti hjá kapalstöð- inni USA og tökur eru nýhafnar aft- ur. Þættirnir eru byggðir á kvik- myndinni The Big Easy, sem Denn- is Quaid og Ellen Barkin léku í á sínum tíma. Sögusviðið er New Orleans, líkt og í þáttunum, sem bera sama nafn og kvikmyndin. Á morgun ætlar Linda hins veg- ar að halda veislu fyrir Lukku. „Eg byrja á því að fara með hana út að borða á hundaveitingahúsi sem ný- búið er að opna í franska hverfinu. Svo fær hún sína bestu vini í heim- sókn og allir fá eitthvað gott að naga,“ bætir hún við. Ji Þeir sem vilja slá lopp- um á tölvu- þráð til Lukku geta sent á netfangið Iukka11@ibm. net Berglind Garðarsdóttir, stúdent, pönkari, línustjóri, saumakona, enskufræðingur og leikbúningahönnuður býr í New Orleans og gegnir nafninu Linda Gardar. Helga Kristín Einarsdóttir reyndi að veiða upp úr henni sögur af Brad Pitt, Tom Cruise, Eric Roberts, Kelly Lynch og Teri Hatcher, kærustu bófa og ofurmenna. Saumaði á dúkkurnar Linda vann á saumastofu í nokk- ur ár og segir saumaáhugann senni- lega alltaf hafa blundað í sér. Til dæmis hafi hún snemma fengið mömmu sína til að hjálpa við að sauma föt á dúkkurnar. „En það var eiginlega tilviljun sem réði á endan- um. Ég var blönk og tók skyndi- ákvörðun um að klára námið i Flensborg utanskóla. Til þess að geta það varð ég að taka allar verk- legar greinar á einu ári og skráði mig í módelteikningu og sauma- skap.“ Frumraun í búningagerð fyrir kvikmyndir þreytti hún í samvinnu við Karl Júlíusson og Hrafn Gunn- laugsson þegar hann gerði I skugga hrafnsins og Hrafninn flýgur. „Hrafn bauð mér líka að vinna við þá þriðju, sem mér fannst mjög freistandi, en gat ekki þegið. Hann er skemmtilegur karl, þótt hann sé furðulegur. En ég var á leið til út- landa.“ Linda segir sitt hlutverk hafa verið að gæta þess að ekki væri misræmi milli búninga í myndun- um. „Ég passaði til dæmis að leik- ararnir væru í réttum fatnaði á réttum tíma. Tökum sem dæmi útisenu þar sem ein persónan geng- ur gegnum dyr. Innisenan er kannski tekin viku eða mánuði síð- ar og þá þarf að passa að viðkom- andi karakter sé í sömu fótum og hann sást í utandyra. Hérna úti er það gert með því að taka polaroid myndir af búningum hvers og eins í hverri senu. Þarna var ekki um neitt slíkt að ræða þannig að ég varð að teikna myndir af búningun- um í handritið, hvar var hneppt, hvar slaufa, og þess háttar." Linda hætti sem línustjóri á saumastofu eftir kvikmyndir Hrafns og saumaði fyrir Tískuhús Stellu þar til Stella seldi og flutti til Los Angeles. Þegar enskunáminu lauk fékk hún „hundleið" á sauma- skapnum og afréð að koma ekki ná- lægt slíkri vinnu framar. Þá fór hún að vinna hjá Verslunarmannafélagi Reykjavíkur. „Seint eina nóttina eftir langvinna skemmtanatörn settist ég niður og spurði sjálfa mig: Hvað ertu eiginlega að gera? í sömu andrá hringir Stella frá Los Angeles og vill ólm fá mig í heim- sókn.“ Hrifnari af leikhúsinu Linda notaði tækifærið og kynnti sér nokkra skóla í sólskinsfylkinu og hóf í kjölfarið, eða árið 1990, tveggja ára meistaranám í leikbún- ingadeild California Institute of the Arts. „Nemendur eru aldrei fleiri en 16 og kennarar fjórir, þannig að aðstaða til náms var ótrúlega góð.“ Á námstímanum hannaði hún bún- inga fyrir kvikmyndir, leikhús og dans, 2-3 leikrit og 2-3 danssýning- ar árlega. Þá gátu þeir sem vildu hannað búninga að auki fyrir stutt- ar bíómyndir. „Að náminu loknu fékk ég atvinnuleyfi tímabundið því tækifærin til þess að vinna við fag- ið á íslandi eru ekki það mörg,“ segir Linda. I fyrstu vann hún mest við alls kyns Shakespeare-upp- færslur, tónlistarmyndbönd og aug- lýsingar og segir ekkert betra en að vinna við leikhús. „Þótt kvikmyndir séu spennandi er ekkert sem jafn- ast á við að sjá tjaldið fara upp í fyrsta skipti þegar allt er komið heim og saman. Ef tekjumöguleik- arnir væru hinh- sömu myndi ég taka leikhúsvinnu framyfir." Þegar náminu lauk var Lindu boðið í _ útskriftarferð til New Orl- eans. Áii síðar, nánar tiltekið á sunnudagskvöldi, flutti hún til borg- arinnar, fór í partý og kynntist leigusalanum Jerry, sem reyndist eiga ódýrt hús handa henni að búa í. Næstu mánuði var hún í samstarfi með vinkonu sinni og bjó meðal annars til hatta úr fjöðrum högg- deyfa. „Ég féll fyrir New Orleans á viku og sá að ég hafði ekkert að gera í LA Ef maður vill komast áleiðis í búningahönnun er best að vera þar eða í New York. Hins veg- ar vil ég frekar búa á stað, sem mér líkar, þótt ég þurfi að aðstoða aðra búningahönnuði. Snobbið er svo mikið í LA. New Orleans er yndis- leg, hún er svo karabísk í sér. Ég heyrði eitt sinn sagt í gríni að borg- aryfirvöld hefðu sótt um sjálfstæði frá Bandaríkjunum og það væri ekki fjarri lagi. Ameríkanar sem hafa ferðast til Evrópu finnst borg- in evrópsk og hún hefur það fram- yfir aðrar borgir í Ameríku að frumbyggjarnir voru Frakkar og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.