Morgunblaðið - 18.05.1997, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 G 5
Hver situr hvar
■9
s AÐ tíðkast við
V brúðkaupsat-
y 1 hafnir að konur
/• sitja vinstra megin
í kirkjunni en karlar
hægra megin. í 5. bindi íslenskrar
þjóðmenningar segir dr. Hjalti
Hugason um þetta: „Aðgreining
karla og kvenna við guðsþjónustu
er ævaforn. Má rekja hana aftur
til fornkirkjunnar.. .aðgreining-
.. .eftir kynferði við guðsþjónustu
og aðrir siðir sem tengdust kirkju-
ferð og byggðust á sambærilegri
kynskiptingu voru hluti af víðtæk-
ari kyngreiningu er kom fram á
flestum sviðum lífsins og stafaði
meðal annars af hefðbundnum
hugmyndum samfélagsins um mis-
jafna stöðu og hlutverk karla og
kvenna."
Eftir þessu að dæma er augljóst
að þessi venja að karlar og konur
sitji ekki saman við fjölmennt
kirkjubrúðkaup á uppruna sinn í
nánast sjálfsögðu misrétti kynj-
anna sem var við lýði og er ekki
víst að menn átti sig á því nú til
dags.
I þessum kafla kemur fram að
augljós stéttaskipting hafi verið í
guðsþjónustunni og sátu hinir
efnameiri fremst og síðan hver á
eftir öðrum eftir efnahag. Konur
sátu þá alltaf vinstra megin hversu
mektugar sem þær voru en pilt-
börn virðast þó oft hafa setið hjá
mæðrum sínum.
C77
i
i
»
L
Aðgreiningin hvarf fyrir
nokkrum áratugum en heldur
enn velli við hjónavígslur
Dr. Hjalti segir ennfremur:
„Þegar reynt er að gera sér grein
fyrir hvenær aðgreining karla og
kvenna við guðsþjónustu hvarf er
athyglisvert að áberandi margir
heimildarmenn sem fæddir eru
fyrir 1910 kannast ekki við siðinn
af eigin raun. Það bendir til að
hann hafi verið horfinn af þeirra
heimaslóðum fyrir 1920. . .Af
þeim heimildarmönnum sem upp-
lýsingar gefa um hvenær aðgrein-
ing hvarf telja tveir að breytingin
hafi orðið þegar upp úr aldamót-
unum, sex nefna annan tug aldar-
innar, fimm segja um 1920 og
fjórir um 1930.“ Þá segir Hjalti:
„Síðustu leifar kynskiptrar sæta-
skipanar í kirkjum er sú venja að
karlar og konur sitji sitt hvorum
megin við miðgang við kirkjubrúð-
kaup.“
FRÁ nútímakirkjubrúðkaupi í Bessastaðakirkju. Kynskipting
brúðkaupsgesta er hliðstæð þeirri sætaskipan sem ríkti við guðs-
þjónustur fyrr á öldum. Myndin er úr 5. bindi Isl. þjóðmenningar.
LENGI var venja að syngja ákveðna
brúðkaupssálma við giftingarat-
hafnir en á þessu hefur orðið breyt-
ing síðustu árin. Að sögn ýrnissa
presta sem rætt var við um tónlist-
arflutning við brúðkaup er ekki
lengur sjálfgefið að fluttir séu ein-
göngu hefðbundnir sálmar við brúð-
kaup.
Brúðhjón hafa oftar en ekki
ákveðnar hugmyndir um hvaða tón-
list þau viija að sé flutt við athöfn-
ina og prestum finnst eðlilegt að
taka tillit til þess.
Brúðhjón velja þá oftast lag eða
lög sem tengjast sambandi þeirra á
einhvern hátt og minningar eru
bundnar við, stundum er lesið upp
ljóð eða einhver orð úr Biblíunni
sem þau vilja senda hvort öðru.
Hanna María Ásgrímsdóttir og
Róbert Fragapane sem giftu sig í
gær, laugardag í Garðakirkju, hjá
séra Braga Friðrikssyni, prófasti
ákváðu að velja sitt lagið hvort.
Hanna Maria valdi gamlan Pres-
leyslagara Can’t help falling in love
with you og Róbert kaus að senda
Hönnu Maríu Hún hring minn ber
eftir Vilhjálm heitin Vilhjálmsson.
Lögin verða leikin á orgel kirkjunn-
ar.
Róbert sagði að þau hefðu at-
höfnina stutta en brúðarmarsinn
yrði að sjálfsögðu leikinn, svo og
útgöngumarsinn og kór Garða-
kirkju flytti nokkur lög.
Hann hafði eftir sr. Braga Frið-
rikssyni að mikil Qölbreytni væri í
lagavali þegar brúðhjón ákveða
hvaða lög þau langar að láta leika.
“Með þessu lagavali okkar erunt
við að flytja hvoit öðru boð. Mér
finnst það fallegt og rómantískt og
ég held að þetta sé mjög algengt.
Það gerir athöfnina persónulegri
en ar.nars," sagði Róbert.
Brúðkaupsveislan
ykkar ______
í góðum höndum
á Hótel Sögu
-þín saga!
Hótel Saga er rétti staðurinn fyrir
brúðkaupsveisluna. Falleg og hlýleg
salarkynni henta vel fyrir. stærri og
smærri veislur og fagfólk með ára-
langa reynslu í veislustjórn og skipu-
lagningu aðstoðar væntanleg brúð-
hjón við allan undirbúning.
Glæsilegar veitingar eru í umsjón mat-
reiðslumeistara hótelsins sem útbúa
til dæmis kaffihlaðborð, snittur, smá-
réttahlaðborð eða kvöldverð. Eftir
veisluna geta brúðhjónin snætt kvöld-
verð í Grillinu með sínum nánustu
og^til að fullkomna daginn eyða þau
nóttinni í brúðarsvítunni á Sögu. I
brúðarsvítunni fá þau nýgiftu blóm
og freyðivín og girnilegan morgun-
verð daginn eftir. Svítan fæst á vildar-
kjörum ef veislan er haldin á hótel-
inu.
Á Hótel Sögu er metnaður og reynsla
í að útbúa veglegar brúðkaupsveislur
á sanngjörnu verði.
Allar nánari upplýsingar veitir starfs-
fdlk á söludeild í síma 552 9900.