Morgunblaðið - 18.05.1997, Side 6

Morgunblaðið - 18.05.1997, Side 6
6 G SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Brúðkaup Hermanns Haukssonar og Margrétar Elíasdóttur stórt brúókaup Nú um helgina ganga í hjónaband þau Hermann Hauksson og Margrét Elíasdóttir. Það er töluvert mál að skipuleggja fjölmennt brúðkaup og þau nutu dyggrar aðstoðar móður brúðgumans, Margrétar A. Frederiksen. ÞAÐ þarf að skipuleggja brúðkaupið í tíma og hér silja þau og leggja á ráðin, Margrét A. Frederiksen, Hermann Hauksson og Margrét Elíasdóttir, ásamt syninum Martin Hermannssyni. Morgunblaðið/Jón Svavarsson ÞETTA er allt að koma, títupijónar hér og títupijónar þar. /***/'/? ERMANN Hauksson kann- ast margir við úr f y körfuboltanum en hann var kosinn besti leikmaður þessa árs í úrvalsdeild körfuknattleiks og er KR-ingur af lífí og sál. Reyndar hefur Margrét Eiíasdóttir líka komið mikið nálægt íþróttum. Hún lék handbolta með Fram fyrr á árum og hefur síðan verið að þjálfa. Þau eru búin að búa saman í nokk- ur ár og eiga soninn Martin en í janúar lét Hermann til skarar skríða og bað Margrétar. Það kom ekki annað til greina en að mamma Her- manns, Margrét A. Frederiksen, hefði hönd í bagga með undirbún- ingnum enda alvön að vinna við veislur. „Mér fannst alveg ofsalega gam- an að þau skyldu vilja hafa mig með í undirbúningnum og þetta tekur tíma þannig að um leið og ég vissi af þessu í janúar fórum við að skipu- leggja daginn“, segir Margrét, móð- ir Hermanns. Ákveðið var að gefa þau saman í Dómkirkjunni af sr. Hjalta Guð- mundssyni. Þau vilja hafa hljóðfæra- leik og Diddú syngur. Að athöfn lokinni verður fjölskyldu og vinum boðið í veislu í Valhöll og skipulagn- ingin þar er í höndum mömmunnar. Gylltur körfubolti og handbolti „Ég var strax með það á hreinu að mig langaði að hafa salinn öðru- vísi en venja er og fljótlega var ég búin að sjá fyrir mér hvernig ég 1. Panta kirkju og prest 2. Panta sal eða tjald ef það hent- ar fyrir veisluna 3. Huga að veitingum og panta þær eða úthluta verkefnum inn- an fjölskyldu 4. Panta dúka 5. Panta borðbúnað 6. Panta ljósmyndatöku 7. Skoða brúðarkjól og föt á herr- ann og börn ef því er að skipta 8. Panta blóm 9. Athuga með aðrar skreytingar vildi skreyta hann og hafa uppröðun- ina,“ segir hún. „Boðsgestir eru um 180 talsins og þar sem íþróttirnar hafa alltaf skipað stóran sess í lífi þeirra beggja fannst mér tilvalið að láta gylla körfubolta og handbolta fyrir þau og láta skipa heiðursess. Eg er líka að búa til gyllt stórt hjarta sem á að vera á brúðkaupsborðinu og eftir nokkra leit fann ég hjá Kveik, kerti og servíettur. Það sem mun setja svip á salinn verða auðvit- að brúðhjónin sjálf bæði á myndum og í eigin persónu. En mig langar að skapa hlýlega stemmningu með kertum, fallegum blómum og skreyt- ingum,“ segir Margrét sem auðsjá- anlega hefur lifað og hrærst i því að undanförnu að passa að allt smelli 10. Panta hárgreiðslu og snyrtingu 11. Athuga fylgihluti við fötin 12. Útvega bíl og bílsljóra á brúð- kaupsdaginn 13. Huga að veislustjóra 14. Tónlist 15. Skemmtiatriði 16. Hringarnir 17. Brúðkaupsnóttin 18. Boðskortin 19. Börn í brúðkaupi. Hvað á að gera fyrir þau? 20. Brúðkaupsferðin saman fyrir brúðkaup sonarins og tengdadótturinnar verðandi. Hjördís Reykdal hjá Blómavali ætlar að sjá um brúðarvöndinn og önnur blóm. „Smurbrauðsstofa Sylvíu sér um pinnamatinn en móðir brúðarinnar verður líka með kræsingar. Með matnum ætlum við að hafa vinið Muscato. “ Vinkonan saumar brúðarkjólinn Vinkona brúðarinnar, Berglind Ómarsdóttir, saumar kjólinn með brúðinni en þær sáu mynd af kjól í blaði og settust svo niður og byrjuðu að sníða. „Enginn fær svo að sjá kjólinn fyrr en ég geng inn kirkju- gólfíð, ekki einu sinni mínir nán- ustu, segir Margrét með áherslu.." Auk þess sem þær vinkonur sjá um að sauma kjólinn saumaði Margrét íslenska hátíðarbúninginn á soninn Martin: Nokkrum dögum fyrir brúðkaupið var hún að leita að fylgihlutum og var þegar búin að ákveða að fá vin sinn, Olaf Borgar, og vinkonu sína, Karólínu, til að sjá um snyrtingu og hárgreiðslu. Brúðguminn Hermann, sonur hans Martin, bróðirinn Martin og móðir hans Margrét fara öll í snyrtingu hjá Ingu í Hár og förðun. - Spennt? „Fólki finnst við afskaplega róleg yfír þessu, enda eigum við góða að sem hjálpa okkur við allan undirbún- ing. Þar að auki eru gæsa-, og steggjapartíin yfirstaðin og við þökkum bara fyrir að hafa sloppið heilu og höldnu frá þeim. Handjárnaður við bíl niður Laugaveg „Við vorum dregin út sitt hvorn daginn og lentum í ýmsum uppá- komum“, segir Hermann. Hann var handjárnaður við bíl og látinn hlaupa niður Laugaveg í fáránlegum fatn- aði, tekinn úr sundskýlunni úti í sundlaug, hárið á honum litað rautt og hann sendur í flugferð svo dæmi séu tekin af hans degi. Margrét var líka heimsótt, hún fékk flugferð líka, þurfti að reyna sig á línuskautum, kenna Spinning og kíkja í furðuföt- um á Astró. Eftir þessar uppákomur finnst þeim rólegheit framundan. Margrét, móðir Hermanns, féllst góðfúslega á að búa til lista fyrir þau pör sem eru að huga að stóru brúðkaupi þessa dagana. Veittu þeim frelsi ...til að velja eigin gjöf Gefðu gjafakort Kringlunnar og þá geta brúðhjónin valið sér sjálf það sem þau fengu ekki í brúðargjöf. Gjafakortin gilda í öllum verslunum Kringlunnar. Gjafakortin eru í þremur verðgildum, 2.500 kr., 5.000 kr. og 10.000 kr. og fást í versluninni Byggt & Búið, Kringlunni. Opiö mánudaga - fimmtudaga 10-18:30, föstudaga 10-19 og laugardaga 10-16. Sumar verslanir eru opnar lengur á kvöldin og á sunnudögum. KRINGMN frá morgni til kvölds

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.