Morgunblaðið - 18.05.1997, Síða 8

Morgunblaðið - 18.05.1997, Síða 8
8 G SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Gift í 41 ár IARÐURINN þeirra er ævintýri líkastur, fá- gætar plöntur í öllum regnbogans litum og sól- ’skálinn þeirra eitt blóma- haf, jafnvel núna í maí. í þessari gróðurvin synda litlir gullfiskar í heimagerðri tjöm og fuglar spíg- spora um. Jafnvel hunangsflugurn- ar fá að vera óáreyttar. Það er auðsýnilegt að væntumþykjan er söm hjá þeim báðum, Huldu Filipp- usdóttur og Áma Kjartanssyni varðandi garðinn. Það kemur líka á daginn að þetta telja þau leyndar- dóminn að farsælu fjörutíu og eins árs hjónabandi,- að rækta garðinn sinn og eiga sameiginleg áhuga- mál. „Ég hefði ekki viljað vera án eins einasta dags í þessi 41 ár“, segir Hulda. „Við höfum verið af- skaplega lánsöm og átt góð ár sam- an.“ TJALDIÐ fenntí í kaf og þurftí að moka þau út úr því. Síðan hefur bungan verið kölluð Brúðarbunga. ÁRNI og Hulda áttu fjörutíu ára brúð- kaupsafmæli í fyrra og héldu upp á af- mælið með fjölskyldunni í Jökulheimum. Sameiginleg áhugamál lykill að farsælu hjónabandi Þau segjast alveg viss um að leyndardómurinn að farsælu hjóna- bandi sé að fínna sameiginleg áhugamál og rækta hjónabandið sitt með þeim hætti. Þau ráku í áratugi verslunina Vogaver en þrátt fýrir að hafa ver- ið saman oft og tíðum í vinnunni vom þau líka einhuga í flestu sem þau tóku sér fýrir hendur utan vinnu. „Við höfum bæði áhuga á garð- rækt og höfum haft mikla ánægju af því að sinna garðinum okkar öll árin. Auk þess erum við bæði með ólæknandi fjallabakteríu", segja þau en um árin hafa þau verið uppi um fjöll og fírnindi þegar tækifæri hefur gefist. „ í mörg ár höfum við farið saman á skíði stundum tvö og oft líka með vinahópi, við höfum gengið vikulega með vinum, erum saman í leikfími og það líður ekki sá dagur að við förum ekki saman í sund“, segja þau. Vinahópurinn er orðinn stór og þau segja að nán- ustu vinina hafí þau eignast í fjalla- ferðunum. „Það myndast náin tengsl þegar verið er á jökli eða á fjöllum uppi og þau tengsl sem við mynduðum fyrir fjórum áratugum haldast enn og eru sterk. Milli okk- ar hefur myndast ævilöng vinátta", segir Árni. Ferðalög eiga upp á pallborðið hjá þeim Huldu og Áma og þau hafa ferðast víða bæði innanlands og erlendis. „Hún er meira að segja búin að hafa mig í golf“, segir Ámi en bætir við að stund- um fari hann bara með til að draga kerruna fyrir frúna. „Svo virðist sem við höfum meira að segja smitað bömin af þessu fjallaklifri okkar, þau eru með skíðabakter- íuna og sleppa ekki tækfæri sem býðst til að fara á fjöll“, segja þau en bömin em fjög- ur og bamabömin orðin 12 talsins. Eitt bama- bamabam er í fjöl- skyldunni. - Þið fórað í sér- staka brúðkaupsferð? „Já. Sr. Bjami Jóns- son gifti okkur þann 26. maí 1956 í stofunni heima hjá sér í Lækjar- götunni. Þar vora við- staddir okkar nánustu, Áslaug Ágústsdóttir, kona sr. Bjama, lék á orgel og við sungum sálm. „Þetta var af- skaplega falleg athöfn og hún fór fram um kvöldmatarleyt- ið eftir vinnu hjá mér. Daginn eftir fóram við af stað á jökulinn", segir Ámi. Ógleymanleg brúðkaupsferð Vorið áður höfðu þau átt þátt í að byggja skálann í Jökulheimum og þá kviknaði hugmyndin hjá þeim að fara ári síðar þangað í brúð- kaupsferð. Það má segja að við höfum vígt skálann í brúðkaups- ferðinni því fram að því hafði hann ekki verið notaður. „Þetta var ógleymanleg ferð, við voram þrett- án í hópnum og ferðin var meðal annars farin á vegum Landmælinga íslands en við tókum að okkur, þessi hópur, að þríhymingsmæla jökulinn. Við voram því meira að HULDA Filipusdóttir og Árni Kjartansson í brúðkaupsferðinni á Vatnajökli árið 1956. segja á fullum launum í brúðkaups- ferðjnni“, segja þau og brosa. Hulda og Ámi slógu upp brúðkaupsvéislu þegar í Jökulheima var komið. „Að vera á jökli er eins og að koma inn í aðra veröld, þannig var það að minnsta kosti á þessum áram okkar þar. Við fóram árlega eftir brúðkaupsferðina og síðan af og til m.a. þegar við áttum tíu ára brúð- kaupsafmæli og í fyrra á fjöratíu ára brúðkaupsafmælinu okkar“, segir Hulda. Þá tók öll fjölskyldan sig til og fór yfír hvítasunnuna í Jökulheima og það segja þau hjónin að hafí verið gaman. Þannig varð nafnið Brúðarbunga til í brúðkaupsferðinni forðum var veðrasamt. Þau fóru um allan jökulinn til að mæja og gistu í tjöld- um. Hulda og Árni voru í litlu tveggja manna tjaldi en eina nótt- ina þegar þau vora á bungu einni á Kverkfjallahrygg snjóaði svo tjaldið þeirra í kaf. Það þurfti að minnsta kosti að moka þau ú dagaði. Vinur Sigurður Þórarins- son skírði bunguna við þetta tilefni Brúðarbungu og í dag heitir hún enn Brúðarbunga. Það er meira að ið inn á Þannig að brúðkaupsferð Árna og Huldu gleymist seint. ÞAÐ er oft erfitt að fá blóm- in til að vera jöfn um allan vasann þegar hann er frek- ar víður og búa á til fallega borðskreytingu. Heillaráð er að taka svokall- að blómalím- band og líma >að þversum og langsum á blómavas- ann eins og sést á myndinni. Blómunum er síðan rað- að í götin sem myndast. habitat K R I N G L U N N I /

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.