Morgunblaðið - 18.05.1997, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 G 9
• •
fyrir myndaalbúmið
Nokkrar kirkjur í Sviss
eru kallaðar „brúð-
kaupskirkjur“ af því að
þær eru svo vinsælar
meðal brúðhjóna. Fylgst
varmeð brúðkaupií
slíkri kirkju.
. Efs>
á óskalit
st
:alista
brúðhjónanna!
ESSAR kirkjur
eiga það sameigin-
legt að vera á mjög
fallegum stöðum.
Ein slík kirkja er í Meggen
við Vierwaldstátter See, skammt
frá Luzern. En sárafáir Svisslend-
ingar gifta sig þar. Japanir streyma
þangað hins vegar og þykjast gifta
sig.
Ferðamálastjórn Luzem hefur
boðið Japönum upp á svokallaða
giftingarathöfn í Meggenhom-höll
í rúm tiu ár. Athöfnin verður vin-
sælli með hveiju árinu. Tvö hundruð
japönsk hjón keyptu brúðkaups-
pakka í fyrra. Hann felur meðal
annars í sér 10 km ferð frá hótelinu
í Luzem til Meggen í Mercedes
Benz; giftingarathöfn við orgelund-
irleik í lítilli, gottneskri kapellu á
gullfallegum stað; kampavínsglas
og gjöf frá Luzern (hálsbindi fyrir
manninn og skrautlegt staðfest-
ingaskjal um athöfnina fyrir kon-
una). Pakkinn kostar 1.500 sv.
franka, eða 73.500 kr. og hjónin
verða að vera gift að japönskum
lögum.
Vildu frekar hestvagn
Ai og Takayuki Suzuki gengu í
hjónaband í Japan í mars. Ai sá
auglýsingu um giftingarathöfnina í
Luzem í tímariti og þau flugu til
Sviss til að láta gifta sig. Þau höfðu
brúðarskartið með sér, hún
stórglæsilegan, hvítan brúðarkjól
og hann beinhvít kjólföt og lakkskó
í sama lit. Þau létu sér ekki nægja
Mercedes Benz og kusu að fara frá
Luzem til Meggen í hestvagni. Það
kostar 22.000 kr. Þau höfðu einnig
pantað 30 mínútna myndband og
36 ljósmyndir fyrir 30.000 kr. Kvik-
myndtökumaðurinn var ekki tilbú-
inn þegar þau óku í hlað á Meggen-
hom-höll svo að þeim var ekið tvisv-
ar upp að höllinni. Það var bjart
KitchenAid
mest selda heimilisvélin í 50 ár
JAPÖNSK hjón flykkjast til Luzern til að „gifta sig“ á gullfalleg-
um stað í Ölpunum.
• 5 gerðir hrærivéla í hvítu, svörtu, bláu, rauðu og gráu
• Fjöldi aukahluta
• íslensk handbók fylgir með uppskriftum
• Lágvær og þrælsterk - endist kynslóðir
• Sérstök brúðkaupsgjöf:
Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu með ísaumuðu nafni
sínu og brúðkaupsdegi
Þú gefur ekki gagnlegri gjöf
Byggt og búið, H.G. Guðjónsson, Suðurveri. Glóey, Ármúla 19, Rafbúðin, Álfaskeiði 31,
C Hafnarf. Miðvangur, Hafnarfirði. SUÐURNES: Stapafell hf„ Keflavík. Samkaup, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
C VESTURLAND : Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi Trésmiðjan Akur, Akranesi. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.
O Blómsturvellir, Hellissandi. Versl. Harnar, Grundarfirði, Versl. E. Stefánssonar, Búðardal. VESTFIRÐIR: Kf. Króks-
£ fjarðar, Króksfjarðarnesi. Skandi hf„ Tálknafirði. Kf. Dýrfirðinga, Þingeyri. Laufið, Bolungarvik. Húsgagnaloft-
(/) ið, isafirði, Straumur hf„ Isafirði. Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavik. NORÐURLAND: Kf. Hrútfirðinga, Borðeyri.
''O Kf. V-Húnvetninga, Hvammstanga. Kf Húnvetninga. Blönduósi. Kf. Skagfiróinga, Sauðárkróki. KEA, Akur-
2 eyri og útibú á Norðurlandi. Kf. Þingeyinga, Húsavik. Kf. Langnesinga, Þóshöfn, Versl. Sel„ Skútustöðum.
C AUSTURLAND: Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði. Kf. Fram, Neskaupstað, Kf. Héraðsbúa, Seyðisfirði. Kf. Hér-
■ aðsbúa, Egilsstöðum. Rafalda, Neskaupstað. Kf. Héraðsbúa, Reyðarfirði. Kf. Fáskrúðsfjarðar. Kf. A-Skaftfell-
^ inga, Djúpavogi. Kf. A-Skaftfellinga, Höfn. SUÐURLAND: Kf. Árnesinga, Vik. Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Kf.
Rangæinga, Rauðalæk, Versl. Mosfell, Hellu, Reynistaður, Vestmannaeyjum. Kf. Árnesinga, Selfossi.
SSK Einar
j Mmm | Farestveit&Co hf
Borgartúni 28 « 562 2901 og 562 2900
SUZUKI hjónin kusu að koma með hestvagni frekar en Mercedes
Benz til athafnarinnar.
og fallegt veður og stórfenglegt
útsýni yfir vatnið til Alpanna.
Mynduð í bak og fyrir
Brúðhjónin vom mynduð í bak
og fyrir næsta hálftímann. Mynda-
tökumar urðu aðalatriðið og at-
höfnin í kirkjunni ekki annað en
gott myndefni. Starfsstúlka ferða-
málastjórnar í Luzem var á þönum
við að breiða úr brúðarkjólnum,
laga slörið og benda hjónunum á
hvert þau ættu að líta svo að þau
kæmu sepi best út á myndunum.
Samstarfsmaður hennar sagði
nokkur vel valin orð um hjónaband-
ið í kirkjunni, orgelleikari lék brúð-
armarsinn hátt og hvellt og hjónin
settu upp giftingarhringana í annað
sinn. Þau voru síðan mynduð með
kirkjuna í bakgsýn, fjöllin, vatnið
og skrautlegan húsvegg hallar-
varðarins. í rigningu fá allir stórar
og litskrúðugar regnhlífar og jafn-
margar myndir era teknar.
Lokið var við filmuna þegar brúð-
hjónin skáluðu í kampavíni inni í
höllinni. Þau fengu að sjá hluta af
myndbandinu og það tísti í Ai þeg-
ar hún sá sjálfa sig sí og æ stíga
í dragsíðan faldinn á bijúðarkjóln-
um. Þau eru 24 og 25 ára gömul.
Takayuki er skrifstofumaður. Þau
ætla seinna að halda brúðkaups-
veislu í Japan. Vinir og ættingjar
fá þá örugglega tækifæri til að
skoða myndimar frá „giftingunni“
í Sviss.
Japanir gifta sig í Sviss
Það verður að vera fallegt fyrir brúðhjónin
Habitat í Kringlunni er verslun full af fallegum húsgögnum og smávörum. Skoðaðu gjafakortin og gjafalistann.