Morgunblaðið - 18.05.1997, Page 26

Morgunblaðið - 18.05.1997, Page 26
26 G SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Tíska í brúðarkjólum f ölbleikum tónum vinna ó Margar stúlkur dreymir um að ganga inn kirkjugólfið í hvítum kjól, með slör og litlar brúðarmeyjar trítlandi á eftir. Sumar láta drauminn rætast, aðrar skipta um skoðun með árunum og velja sér öðruvísi kjóla, jafnvel stutta sem þær geta síðan notað eftir brúðkaupið eða þær ganga inn kirkjugólfið í fallegri dragt. * rúðarkjólaleig- ur hafa sprottið upp á undanförn- um árum og nú er svo komið að mjög margar konur leigja sér kjól fyrir brúðkaups- daginn. En hvernig er tískan í brúðar- kjólum um þessar mundir? Eftir að hafa rætt við flesta þá sem reka brúðarkjólaleig- ur hér á landi stendur hvíti liturinn upp úr og síðan koma bein- hvítir kjólar. Nýir litir eru að vinna á og þá aðallega tón- ar sem fara út í gyllt og fölbleikt. Sniðin eru að verða einfaldari og perlur og pallí- ettur á undan- haldi þó alltaf séu það samt margar sem vilji hafa íburð í kjól- unum sínum. Niðurstaðan er einfaldlega að brúðarkjólar eru eins misjafnir og konurnar eru margar. Fölbleikt að ryðja sér rúms Katrín Óskarsdóttir hefur rekið brúðarkjólaleigu í mörg ár. Hún segir að hvítt og beinhvítt séu áberandi litir í sumar en bætir við að nýr litur sem hún er með í kjólum, fölbleikur, hafi vakið mikinn áhuga hjá þeim kon- um sem hafa verið að i máta að undanförnu. „Það má segja að sniðin séu í anda tískunnar á sjöunda áratugnum, einfaldir kjól- ar en oft með svokölluðu prinsessusniði.“ Minna um pallíettur og perlur Ragnheiður Guð- mundsdóttir, sem leigir út brúðarkjóla í Keflavík, segir að hvíti liturinn hafi vinninginn hjá verðandi brúðum þó alltaf séu þær líka margar sem gifti sig í kremuðum kjólum eða öðrum litum. „Það skiptir engu hvort þær eiga böm eða ekki þegar þær velja hvíta kjóla og það er eitthvað allt annað sem ræður ferð- inni með litavalið," segir hún. „Auðvitað er þetta bara misjafnt eins og konurnar em margar.“ Sniðin segir hún að séu alla vega en þó séu kjólar með prinsessu- sniði mjög vinsælir. Þeir em þá skiptir í mitti með víðum pils- um og hún er ekki frá því að einfaldari kjólar séu vinsælli en þeir íburðar- meiri. „Það verð- ur æ minna um perlur og pallí- ettur með hveiju árinu sem líður." í kúrekakjól inn kirkjugólfið Til marks um misjafnan smekk kvenna þegar brúðarkjólar eru annarsvegar segir hún að margar séu mjög hrifnar af ekta kúreka- kjól sem hún fékk nýlega að utan. „Hann er hvítur og svartur með pífum að framan og opinn í bakið. Það er stöðugt verið að spyija um þennan kjól og hann vekur mikla athygli.“ Fyrst segir Ragnheiður að konurnar komi með mömmu sína eða bestu vinkonu og velji kjól. Þær koma svo í annað skipti sjálfar og máta aftur og í þriðja skiptið rétt fyrir brúð- kaupið til að láta laga það sem þarf. „Eiginmaðurinn fær ekki að sjá kjólinn og þegar hann kemur til að máta föt má ég alls ekki minnast einu orði á kjól- inn.“ Flestar brúðarkjóla- leigur eru með fötin á herrana líka, litlu brúðar- meyjarnar og drengina, mæðurnar og jafnvel vinkon- urnar sem kannski fylgja brúð- inni inn kirkjugólfið. „Ég segi oft að gamni mínu að allt sé hægt að fá nú orðið á brúðarkjólaleigum. Ég útvega jafnvel hestvagn ef því er að skipta,“ segir Ragnheiður. Brúðarvöndurinn úr sýningarglugganum Þegar rosknar konur, um sex- tugt og yfir, eru að gifta sig leigja þær sér oft samkvæmiskjóla með stuttum jökkum. „Það er allur gangur á því í hveiju konur gifta sig og oft kaupa þær sér dragtir sem þær geta síðan notað eftir brúðkaupið. Það er líka alls ekki alltaf sem konur taka sér langan tíma til að velja fatnaðinn," segir Ragnheiður. Fyrir nokkru kom til hennar kona sem var ákveðin í að gifta sig daginn eftir og vantaði f- kjól eins og hún sagði: „NÚNA.“ Ragnheiður sagðist hafa brugðist vel við, fund- ið fýrir hana svartan einfaldan kjól, tekið brúðarvöndinn úr glugga- num, lánað henni skó sem hún hefur í búðinni fyrir þær sem eru að máta og útvegað henni viðeig- andi skraut í hárið. Leigja kjóla til Færeyja Mæðgurnar Birna Jónasdóttir og Fjóla Hersteinsdóttir reka sam- an brúðarkjólaleiguna Fjólu á Akureyri. Þetta er fimmta árið sem þær eru með reksturinn. VOLUSTEINN FLYTUR I MORKINA 1 Völusteinn opnar stærstu sérverslun landsins með föndurvörur og saumavéiar í Mörkinni 1. Kynnið ykkur opnunartilboðin í glæsilegri verslun okkar. Mörkin 1 • Sími 588 9505

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.