Morgunblaðið - 01.06.1997, Side 14
14 E SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
REYKJANES - STAÐA GROÐURS OG UPPGRÆÐSLU
* ^
A aðalfundi Skógræktarfélags Islands sem haldinn var í Hafnarfírði sl. sumar héldu þeir Andrés Amalds og
Þröstur Eysteinsson eríndi um stöðu og framtíðarmöguleika gróðurs og ræktunar á Reykjanesi sem athygli
vöktu. Hér stikla höfundar í eftirfarandi greinum á stóru um svipað efni sem á jafn mikið og ekki síður eríndi
til okkar þegar sól hækkar á lofti og gróður byijar að taka við sér þar sem hann er á annað borð. Einnig þótti
fróðlegt að fá fram svör við nokkrum áhugaverðum spumingum hjá þremur forsvarsmönnum sveitarfélaga sem
eiga ekki síst hagsmuna að gæta á Reykjanesi.
Um skógræktarskilyrði
á Reykjanesskaga
Stöðva þarf jarðvegsrof víða á sunnanverðum
Reykjanesskaga, segir Þröstur Eysteinsson og
binda sandinn við Reykjanes, rækta skóg í grennd
við þéttbýli og víðar til útivistar og jarðvegsvernd-
ar, græða illa gróið land.
Á Reykjanesskaga,
sem annars staðar á
láglendi íslands er
eðlilegur hástigsgróð-
ur skógur eða kjarr,
en í dag er aðeins lít-
ill hluti hans klæddur
þeim gróðri. Fyrir
þessu eru nokkrar
ástæður, sem sumar
tengjast náttúrunni
en aðrar landnýtingu
sem ekki er við hæfi.
Ekki er þó nokkur
vafi að með vilja,
vinnu og vali á réttum
tegundum og aðferð-
um er hægt að bæta
Þröstur
Eysteinsson
gróðurfar Reykjanes-
skagans til muna.
Landgerðir
Á Reykjanesskaga
er fjölbreytt landslag
og bjóða mismunandi
landgerðir upp á mis-
munandi möguleika til
landnýtingar og upp-
græðslu. Einnig er
þörfin á uppgræðslu
og skógrækt misbrýn
eftir landgerðum.
Yst á Reykjanesi
eru sandorpin hraun
þar sem óstöðugleiki
sandsins veldur því að
gróður á erfitt uppdráttar. Sandur
á hreyfingu hefur tilhneigingu til
að breiðast út yfir gróið land og
þess vegna er afar brýnt að binda
hann með gróðri.
Misgömul nútímahraun þekja
stóran hluta svæðisins. Á þeim
sem eru yngri en ca. 3000 ára
ræður gamburmosi ríkjum. Ofríki
hans dregur mjög úr hraða gróð-
urframvindu þar sem fræ annarra
plöntutegunda eiga erfitt með að
spíra í honum. Lífríki þessara
hrauna er því mjög fábreytt. í
eldri hraunum hefur gróðurfram-
vinda náð lengra og þar er víða
að finna lynglendi eða birkikjarr.
Birkið á Reykjanesskaga er lág-
vaxið og kræklótt og nær óvíða
mannhæð, jafnvel þar sem það
hefur verið friðað fyrir beit í ára-
tugi eins og í Heiðmörk. Skóg-
rækt í hraunum er hvorki auðveld
né nauðsynleg til jarðvegsverndar
en ekkert mælir þó gegn því að
rækta þar skóg því engin hætta
er á útrýmingu þessarar landgerð-
ar.
Þar sem ekki eru nútímahraun
eru víðast rýrir móar eða blásnir
melar. Þessar landgerðir eru af-
leiðing búfjárbeitar í 11 aldir.
Sums staðar, einkum á sunnan-
verðum skaganum, er virkt jarð-
vegsrof á þessum svæðum. Afar
brýnt er að stöðva rofið og græða
þessi svæði upp.
Um hlíðar fjalla gildir það sama
og um landgerðina hér næst að
ofan, þar sem er jarðvegsrof ber
að stöðva það. Óþarfi er þó yfir-
leitt að hafast að við uppgræðslu
ofarlega í hlíðum eða uppi á tind-
um þeirra, enda eflaust mjög erf-
itt.
Skógræktarskilyrði
Almennt sagt eru skógræktar-
skilyrði lökust vestast á Reykja-
nesskaga og batna eftir því sem
austar dregur. Skjól (eða skjól-
leysi) er það sem skiptir mestu
máli. Við sjávarsíðuna setur sæ-
rok stundum strik í reikninginn
og takmarkar plöntuval. Fæstum
dettur í hug að þurrkur geti háð
Ljósmynd/Ólafur Oddsson
SITKAGRENI hefur náð góð-
um þroska efst í landi
Straums.
trjágróðri á Reykjanesskaga, en
þar sem undirlag er mjög gljúpt
(t.d. hraun) er það engu að síður
staðreynd.
Best eru skógræktarskilyrði í
neðanverðum brekkum inn til
landsins austarlega á svæðinu,
t.d. öll brekkurótin frá Kleifar-
vatni og austur fyrir Bláfjöll, og
annars staðar í brekkurótum eða
undir sprunguveggjum. Þar er
Endurheimt
landkosta á
Reykjanesskaga
Það dylst fáum sem fara um Reykjanes-
skaga að þar hefur mikil landhnignun
átt sér stað í aldanna rás. í stað grænna
grunda og vöxtulegs birkikjarrs blasa víða
við gróðurtötrar og jafnvel auðnir, skrifar
Andrés Arnalds. Afieiðingamar em víðtæk-
ar, en koma e.t.v. hvað skýrast fram í
skjólleysi og auknum skafrenningi. Skaginn,
sem er heimkynni mikils hluta þjóðarinnar,
er ekki nærri því eins byggilegur og
hann ætti að vera.
Horfnir landkostir
Þrátt fyrir berangurslega ásýnd
landsins eru raunveruleg gróður-
skilyrði góð víðast hvar á Reykja-
nesskaga. Til forna þótti þar mikil
veðursæld, samanber þá frásögn
Sturlungu að á Reykjanesi hafi
aldrei orðið „ófijóvgir akrar“.
Heimildum um gróðurfar á
Reykjanesskaga ber
öllum saman um að
nær allar þær auðnir,
melar og jarðvegssár,
sem svo víða blasa við,
hafi fyrrum verið grón-
ar. Ástæðurnar fyrir
því hve ástand þessa
landssvæðis er slæmt
eru margar. Mestu
munar þó um alda-
langa rányrkju liðinna
kynslóða, toll sem
landið galt við að fram-
fleyta þjóðinni á tímum
fátæktar og vanþekk-
ingar á takmörkunum
landsins. Einnig hafa
hraun lagt undir sig
stór svæði á sögulegum tíma.
Lítill vafi leikur á því að megin-
hluti Reykjanesskagans, að undan-
skildum yngstu hraunum og ystu
annnesjum, hefur verið vaxinn
skógi fyrrum, og lengi fram eftir
öldum. Það sýna annars vegar
kjarrleifar þær sem enn standa eft-
ir, en hins vegar má ráða hið sama
af vitnisburðum skráðra heimilda.
í Jarðabók Árna Magnússonar
og Páls Vídalíns kemur fram að um
1700 voru enn miklir skógar á
Reykjanesskaga. Þá áttu 8 jarðir
úr Grindavík og 23 jarðir úr Rosm-
hvalaneshreppi kolagerðarskóg í
Suðurnesjaalmenningum. I Vatns-
leysustrandarhreppi áttu 20 jarðir
og í Álftaneshreppi 22 jarðir kola-
gerðarskóg í almenningum. Á sum-
um jörðum, t.d. Krýsuvík, var þá
enn nokkurt kjarr í heimalöndum
en er að eyðast. Athyglisvert er að
ekki er getið um að skógur til kola-
gerðar í almenningum fari þverr-
andi. Það undirstrikar stærð þeirra
á þessum tíma, því yfirleitt var
reynt að gera sem minnst úr öllum
hlunnindum í þessari úttekt. Lyng-
rif segir líka sina sögu. Það er að
vísu talið til hlunninda á fjölda
jarða, en er þverrandi í heimalönd-
um og langsótt fyrir marga.
Mótekja var víða lítil
á skaganum. Lyng og
hrís var eftirsótt til
eldiviðar og af mörgum
býlum varð að gjalda
hríshesta, einn eða
fleiri, til Bessastaða.
Fjöruþang var helsta
eldsneytið á Vatns-
leysuströndinni og víð-
ar, en „þurrabúðar-
hyskið" átti lítinn eða
engan rétt á þangtöku.
Því urðu margir að
leita í úthagann eftir
eldivið. Þegar búið var
að eyða birkinu, var
einirinn og lyngið rifið.
Sauðfé og annar bús-
mali átti að sjálfsögðu sinn þátt í
eyðingunni og hindraði eðlilega
endurnýjun gróðursins með því að
bíta nýgræðinginn jafnharðan og
hann óx.
Rányrkjan hélt áfram allt fram
á þessa öld. Ástand gróðurs og jarð-
vegs er viða slæmt, eða jafnvel
mjög slæmt ef tekið er tillit til gróð-
urfarslegra skilyrða. Breytir þar
litlu þótt ástand lands hafi nokkuð
batnað á síðari árum, m.a. vegna
fjárfækkunar, ef litið er á skagann
í heild.
Spyrnt við fótum
Nokkuð er nú umliðið síðan augu
manna tóku að opnast fyrir því að
nauðsynlegt væri að grípa til að-
gerða til að sporna gegn frekari
eyðingu.
Haustið 1952 tóku Árni G. Ey-
lands og Sæmundur Friðriksson
saman einkar fróðlega „greinar-
gerð um athugun á að friða
Reykjanesskaga ásamt Reykjavík,
Hafnarfirði og nágrenni bæjanna
fyrir ágangi búfjár“, en sauðfé á
þessu svæði hafði verið fargað
vegna mæðiveiki haustið 1951. Úr
þessum áformum varð ekki að
sinni, sem er önnur saga, en þar
birtist m.a. úttekt á gróðri á
Reykjaneskaga, sem Steindór
Steindórsson samdi.
í lok úttektar sinnar víkur Stein-
dór að endurheimt gróðurs á
Reykjanesskaga: „En eru þá hraun-
breiður þessar dæmdar til eilífðrar
auðnar og að vera eitt ófrjósamasta
og ömurlegasta svæði á öllu land-
inu? Naumast mun svo vera. Þau
hafa einu sinni verið skógi klædd,
og það geta þau aftur orðið, ef
mannshöndin leggur þeim lið, og
tekur nú til að græða það sem áður
var eytt.“
Fyrstu landgræðsluframkvæmd-
ir á Reykjanesskaga hófust 1938
með uppsetningu 20 km girðingar
og stöðvun sandfoks vestast á skag-
anum. Ýmsir fleiri áfangasigrar
hafa náðst í verndun landkosta á
liðnum áratugum. Árin 1977-1978
var girt þvert yfir Reykjanesskag-
ann og var þá allt land vestan
Grindavíkurvegar, um 35.000 hekt-
arar, friðað fyrir beit. Síðan hefur
áburði og fræi verið dreift víða á
því svæði. Ýmsar aðrar girðingar
hafa verið settar upp, m.a. til að
friða höfuðborgarsvæðið, og auð-
velt að skoða árangur friðunar við
fjölbreyttar aðstæður, bæði með og
án uppgræðslu.
Mikil reynsla hefur aflast sem
unnt er að byggja á enn stærri
áfanga í endurheimt landkosta á
Reykjanesskaga. Á miklum hluta
skagans mun gróður taka framför-
um ef hann fær algjöran frið fyrir
búfjárbeit um nokkurn tíma. Fé er
orðið fátt og mörg sveitarfélaganna
hafa nú þegar bannað lausagöngu
sauðQár, en ekki öll og því fer féð
víða um. Komin er góð reynsla af
beitarhólfum, þannig að auðvelt á
að vera að koma til móts við þá sem
vilja stunda einhvern sauðfjárbú-
skap þótt tekið sé með öllu fyrir
lausagöngu. Slík friðun er langódý-
rasta og mikilvirkasta leiðin til að
bæta ástand gróðurs og jarðvegs
sé til lengri tíma er litið. Jafnframt
væri þá unnt að fjarlæga mikið af
girðingum, sem margar hveijar eru
komnar til ára sinna og þurfa mik-
ið viðhald.
Þar sem uppblásturinn hefur
hvað harðast unnið sín spellvirki
mun friðunin ein ekki duga. Nakið
land grær yfirleitt hægt án aðstoð-
ar. Fyrir því eru ýmsar ástæður,
en veigamestar eru e.t.v. skortur á
raka- og næringarheldni, erfiðar
spírunaraðstæður og hin gífurlega
holklakamyndun sem er í ógrónu
landi. Uppgræðsla með grasfræi og
áburði, eða öðrum aðferðum, miðar
að því að koma gróðurþróun af stað
eða flýta fyrir henni, um áratugi
eða aldir eftir aðstæðum. Þetta á
ekki hvað síst við um Miðnesheið-
Andrés
Arnalds