Morgunblaðið - 19.06.1997, Qupperneq 2
2 B FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Stálsmíðjan sækir um
skráningu á Verðbréfaþingi
STJÓRN Stálsmiðjunnar hf. ákvað
á fundi sínum í gær að sækja um
skráningu fyrir Stálsmiðjuna á
Verðbréfaþingi íslands í haust. Að
sögn Ágústar Einarssonar, fram-
kvæmdastjóra Stálsmiðjunnar, hafa
engar ákvarðanir verið teknar um
útgáfu á nýju hlutafé í félaginu en
hluthafar fyrirtækisins eru 65 tals-
ins og segir Ágúst að ekki sé útlit
fyrir að erfitt verði að uppfylla það
skilyrði fyrir skráningu að hluthafar
séu fleiri en tvö hundruð talsins.
„Nokkur viðskipti hafa verið með
hlutabréf í Stálsmiðjunni á Opna
tilboðsmarkaðnum að undanfömu
án þess að fyrirtækið hafi verið
skráð formlega og hefur gengi
þeirra verið á bilinu 3,5-3,7.“
Hagnaður Stálsmiðjunnar á síð-
asta ári nam 32,7 milljónum króna
sem er 6,7% aukning frá árinu
1995 þegar hagnaðurinn nam 30,7
milljónum króna. Hagnaður af
reglulegri starfsemi hefur aukist
mun meira á milli ára eða um
72,3%, úr 17,8 milljónum í 30,7
milljónir.
Viðsnúningur hefur verið á af-
komunni frá því að félagið gekk í
gegnum greiðslustöðvun og nauða-
samninga fyrir tæpum þremur
árum. Að sögn Ágústs er bjart
framundan í rekstrinum í ár og
verkefnastaða þess mjög góð.
„Stálsmiðjan á tæpan helming hlut-
afjár í Landssmiðjunni og er náið
samstarf með fyrirtækjunum
tveimur. Stálsmiðjan sinnir fyrst
og fremst viðgerðum á skipum en
við höfum einnig verið með stór
verkefni í landi. A síðasta ári stofn-
uðum við fyrirtækið Stálverktak
þar sem við eigum 68% en Normi
í Garðabæ 32%. Stálverktak hefur
tekið að sér ýmis verkefni í álver-
inu í Straumsvík. Má þar nefna
uppsetningu á hreinsistöð, uppsetn-
ingu á öllum álleiðurunum í
Straumsvík, þrýstiloftskerfi og
smíði á öllum lokum á kerin. Auk
þess höfum við unnið verkefni fyr-
ir Járnblendiverksmiðjuna á Grund-
artanga."
Að sögn Ágústar starfa um 150
manns hjá Stálsmiðjunni en meðal
stærstu eigenda eru Málningar-
verksmiðja Slippfélagsins, Olíu-
verslun íslands, Ásgeir Pálsson,
framkvæmdastjóri Flugumferðar-
stjórnar, Ágúst Einarsson auk
ýmissa útgerðarfyrirtækja og Sjó-
vár-Almennra og Tryggingamið-
stöðvarinnar.
Stjórn Stálsmiðjunnar hf. er
skipuð þeim Valgeiri Hallvarðs-
syni, stjórnarformanni, Gunnari
Þór Ólafssyni, Hilmi Hilmissyni,
Jóni Kristjánssyni og Sigurði R.
Helgasyni.
STÁLSMIÐJAN hf.
Úr ársreikningum 1996
Rekstrarreikninqur 1996 1995 Breyt.
Rekstrartekjur Milljónir króna 632,8 429,9 47,2%
Rekstrargjöld 579,3 394,5 46,9%
Hagnaður tyrir afskriftir 53,5 35,4 51,1%
Afskriftir (12,7) (8,0) 59,6%
Fjármagnsgjöld (10,1) (9,6) 4,8%
Hagnaður af reglulegri starfsemi 30,7 17,8 72,3%
Önnur starfsemi 2,0 13,6 -85,0%
Hagnaður fyrir skatta 32,7 31,4 4,2%
Reiknaðir skattar (0,01) (0,8) -98,5%
Hagnaður ársins 32,7 30,7 6,7%
Efnahagsreikningur 3l.des. 1996 1995 Breyt.
I Eianir: \ Veltufjármunir Milljónir króna Fastafjármunir 134,1 228,4 110,8 132,6 21,0% 72,3%
Eignir samtals 362,6 243,4 49,0%
I Skuldir og eigið fé: i Skammtímaskuldir 122,5 86,7 41,3%
Langtímaskuldir 116.4 83.4 39,7%
Skuldir samtals 239,0 170,1 40,5%
Eigiðfé 123,6 73.3 68.6%
Skuldir og eigið fé samtals 362,6 243,4 : 49,0%
Veltufé frá rekstri 41,3 34,5 \ 19,7%
*
Utboð á ríkisvíxlum
Meðal-
ávöxtun
lægri en á
VÞÍ
TEKIÐ var tilboðum í ríkisvíxla að
fjárhæð 2.609 milljónir króna hjá
Lánasýslu ríkisins í gær. Um var
að ræða útboð á þriggja, sex og
tólf mánaða ríkisvíxlum. Alls bár-
ust 16 gild tilboð í ríkisvíxla að
fjárhæð 3.959 milljónir króna.
Meðalávöxtun samþykktra til-
boða í ríkisvíxla til þriggja mánaða
er 6,99%, sex mánaða 7,30% og
tólf mánaða 7,60%. Meðalávöxtun
samþykktra tilboða í ríkisvíxla er
nokkru lægri en ávöxtunarkrafa á
Verðbréfaþingi íslands.
Stefán Stefánsson, hjá áhættu-
stýrisviði Landsbréfa, segir að er-
lendar fjármálastofnanir séu farnar
að taka þátt í útboðum á ríkisbréf-
um og það sé að öllum líkindum
vegna þess vaxtamunar sem er á
milli íslensku krónunnar og mynt-
anna í gengisvoginni. „Þessi munur
hefur verið nokkuð mikill og segja
má að hann sé óeðlilega mikill. Það
eru því forsendur til þess að hann
eigi eftir að minnka vegna minnk-
andi lánsfjárþarfar íslenska ríkis-
ins, aukins lánshæfis íslenska ríkis-
ins á erlendum mörkuðum og vegna
þess að fyrirtæki og stofnanir hafa
í auknum mæli leitað til erlendra
lánastofnana um lánsfé.“
Rekstrartekjur Dagsprents námu 144
milljónum króna á síðasta ári
Tapið nam 26
millj. króna
Hlutaijárútboði í Plastos-Umbúðum hf. lokið
Bréfin seldust upp
á klukkustund
TAP Dagsprents hf., útgefanda
Dags-Tímans, nam 26 milljónum
króna á síðastliðnu ári. Samkvæmt
áætlunum fyrirtækisins munu
rekstrartekjur fyrirtækisins aukast
um 60% á þessu ári eða úr 144 í
230 milljónir króna. Í skýrslu Eyj-
ólfs Sveinssonar, stjórnarformanns
Dagsprents, til aðaifundar, sem birt-
ist í Degi - Tímanum, segir að
tekjuáætlanir vegna sameiningar
Dags og Tímans hafi staðist að
mestu Ieyti en kostnaður hafí orðið
meiri en upphaflega var ráðgert.
Á aðalfundinum kom fram að
rekstrartekjur Dagsprents í fyrra
Metfjöldi til
Spánaríár
Madrid. Reuter.
FLEIRI ferðamenn munu koma til
Spánar í ár en nokkru sinni fyrr og
mun þeim fjölga um 2-3% á einu
ári að sögn Jose Manuel Fernandez
Norniella ferðaþjónusturáðherra.
Alls komu 41,3 milljónir ferða-
manna til Spánar 1996 og námu
tekjur af þeim 3,5 milljörðum peseta
eða 24 milljónum dollara.
Fernandez Norniella sagði að 21,4
milljónir gesta hefðu komið á fyrstu
fímm mánuðum þessa árs, sem er
4,5% aukning miðað við sama tíma
í fyrra. Af þeim sem komu voru 64%
flokkaðir sem ferðamenn en 36% var
skipað í flokk gesta sem komu í stutt-
ar skoðunarferðir án þess að gista.
Fernandez Norniella sagði að
ferðamönnum frá Norðurlöndum
mundi fjölga langmest á þessu ári.
Búizt er við fleiri ferðamönnum frá
Englandi og að þeir verði jafnvel
fleiri en 1994 þegar um átta milljón-
ir Englendinga fóru til Spánar vegna
styrks pundsins.
hefðu numið 144 milljónum króna
en 120 milljónum árið 1995. „Áætl-
anir féiagsins gera ráð fyrir enn
frekari tekjuaukningu og að tekjur
verði um 230 milljónir á árinu 1997.
Lagt hefur verið í töluverðar fjár-
festingar í tengslum við stofnun hins
nýja dagblaðs. Einungis hluti þeirra
fjárfestinga var eignfærður á árinu
en afgangurinn gjaldfærður og nam
því tap af rekstri félagsins um 26
milljónum króna á síðasta ári.“
í skýrslu Eyjólfs segir að tekjuá-
ætlanir hafí staðist að mestu leyti
en kostnaður hafi orðið meiri en
áætlað var þar sem ákveðið hafi
verið að standa að útgáfunni með
mun veglegri hætti en upphaflega
var ráðgert. Að öllu leyti sé þó um
ákvarðanir að ræða en ekki óvænta
liði. „Þessi kostnaðarauki veldur þó
seinkun á því að rekstur blaðsins
standi undir sér. Upphaflega var
ráðgert að færa blaðið til hagkvæm-
ara horfs um áramót en síðar var
horfið frá þeirri tímasetningu. Þar
er því strax orðin fimm mánaða
frestun á því að blaðið standi undir
sér og líklegt er að reynt verði að
halda þessari auknu útgáfu eitthvað
áfram. Það er hins vegar með halla-
lausum rekstri og skráningu á hluta-
bréfamarkaði sem blaðið mun end-
anlega festa sig í sessi því að þang-
að er hægt að sækja fé til góðra
verka og frekari uppbyggingar."
Eigið fé féiagsins var um síðustu
áramót um 64 milljónir króna sem
er 16 milljóna króna aukning frá
árinu áður og er eiginfjárhlutfallið
37,7%. Ný stjórn hefur ákveðið að
nýta rétt til útgáfu á nýju hlutafé
auk sölu á eigin bréfum og verður
miðað við gengið 1,7. Stefnt er að
skráningu fyrirtækisins á Verð-
bréfaþingi íslands á næsta ári.
Dagur-Tíminn er nú gefinn út í
tæplega 15 þúsund eintökum sam-
kvæmt skýrslunni.
ÖLL hlutabréf í útboði Plastos-
Umbúða hf. seldust upp á einum
klukkutíma í gærmorgun eftir að
það hófst hjá verðbréfadeild Búnað-
arbankans. Um var að ræða nýtt
hlutafé í fyrirtækinu að nafnvirði
17,5 milljónir króna sem voru seld
á tæpar 43 milljónir króna eða á
genginu 2,45. Svarar það til um 20%
af heildarhlutafé fyrirtækisins. Að
NORRÆNI fjárfestingarbankinn
(NIB) hefur samþykkt að veita Ung-
verska þróunarbankanum (Magyar
Fejlesztési Bank) allt að 50 milljóna
bandaríkjadala (3,5 milljarða króna)
lán. Þessum fjármunum skal varið til
fjárfestingarlána til smárra og meðal-
stórra fyrirtækja í Ungverjalandi þar
sem bæði ungversk og norræn fyrir-
tæki koma við sögu. Þá hefur NIB
undirritað almennan samstarfssamn-
ing við ungversk stjómvöld um sam-
starf á sviði fjármögnunar.
Tilgangur þessara samninga milli
NIB og Ungveija er að auka sam-
starf milli norrænna og ungverskra
fyrirtækja að því er fram kemur í
frétt frá bankanum. Samningunum
er einkum ætlað að auka samstarf
á sviði orku-, umhverfis, fjarskipta-
og samgöngumála og í innviðarupp-
byggingu sveitarfélaga.
Norræni fjárfestingarbankinn er
nú þegar aðili að allmörgum lána-
sögn húsvarða í Búnaðarbankanum
var röð áhugasamra fjárfesta byijuð
að myndast fyrir utan bankann um
klukkan fimm í morgun og er bank-
inn var opnaður voru um 30 manns
í röðinni.
Sölufyrirkomulag var með þeim
hætti að hver og einn mátti í mesta
lagi kaupa bréf fyrir 490 þúsund
krónur að markaðsvirði og var
verkefnum í Ungveijalandi. Fyrir
skömmu var veitt lán til uppsetning-
ar GSM farsímakerfis í Ungveija-
landi en að því verkefni vinna m.a.
fínnsk, dönsk, norsk og sænsk síma-
fyrirtæki. Nýja samningnum er ætlað
að auka möguleika NIB á að taka
þátt í verkefnum í Ungveijalandi.
Hliðstæður samstarfssamningur var
gerður við pólsk stjórnvöld árið 1996
og hefur hann þegar leitt til aukinna
lánveitinga til Póllands.
Norræni fjárfestingarbankinn sér-
hæfír sig í fjármögnun verkefna sem
stuðla að eflingu atvinnulífs með
samstarfi yfir landamæri milli Norð-
urlandanna fímm og styrkja stöðu
norrænna fyrirtækja á alþjóðavett-
vangi. Lán bankans er bæði veitt
fyrirtækjum í einkaeign og í eigu
hins opinbera. Bankinn hefur nú
hæstu mögulegu lánshæfiseinkunn
(Aaa/AAA) frá Moody’s og Stand-
ards & Poors.
hveijum einstaklingi aðeins heimilt
að kaupa fyrir sjálfan sig og einn
annan aðila samkvæmt umboði.
Alls keyptu um 120 einstaklingar
hlutabréf og fengu færri en vildu.
Að auki var starfsmönnum gefinn
kostur á að kaupa hlutafé fyrir
sömu upphæð á lægra gengi eða
2,25.
Plastos-Umbúðir hf. hefur þegar
fengið auðkenni á Opna tilboðsmark-
aðnum og er því hægt að hefja við-
skipti með hlutabréf þess þar. Síð-
degis í gær hafði þegar verið skráð
kauptilboð á genginu 2,70 en lægsta
sölutilboð var á genginu 3,05.
Andri Sveinsson, verðbréfamiðlari
hjá Búnaðarbankanum, segir að
markmiðið með þessu fyrirkomulagi
hafi verið að koma í veg fyrir að
fólk biði klukkustundum saman í
biðröð án þess að fá neitt. Þessi
áætlun hafi tekist þar sem flestir
þeirra sem biðu gátu keypt hluta-
bréf. Bréf voru seld í gegnum síma
til að þjóna íbúum landsbyggðarinn-
ar og segir hann marga hafa nýtt
sér þá þjónustu.
Plastos-Umbúðir hf. framleiðir
allar tegundir plastumbúða fyrir inn-
anlandsmarkað. Helstu vörutegund-
ir fyrirtækisins eru áprentaðir burð-
arpokar, heimilispokar og lagerpok-
ar. Mest er selt til fyrirtækja í mat-
vælaiðnaði og sjávarútvegi eða rúm-
lega 55% af heildarframleiðslu. Tii-
gangurinn með útboðinú var að afia
fjár til fjárfestinga í nýjum fram-
leiðsluvélum, greiða niður skuldir og
breikka hluthafahóp fyrirtækisins
en hingað til hefur fyrirtækið nær
eingöngu verið í eigu Sigurðar Odds-
sonar, framkvæmdastjóra fyrirtæk-
isins, og fjölskyldu hans. Áð sögn
Sigurðar nam velta fyrirtækisins um
180 milljónum króna fyrstu fimm
mánuði ársins og er það nokkuð
hærra en rekstraráætlun gerði ráð
fyrir.
Norræni fj árfestingarbankinn
Lánar tíl samvinnu
norrænna og ung-
verskra fyrirtækja