Morgunblaðið - 19.06.1997, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1997 B 3
Aðalfundur Hlutabréfasjóðsins Auðlind hf.
Hagstætt
rekstrarár
aðbaki
HLUTHÖFUM Hlutabréfasjóðsins
Auðlindar hf. fjölgaði um 3.300 á
síðasta rekstrarári, l.maí 1996-30.
apríl 1997, og er Auðlind nú þriðja
ijölmennasta hlutafélag landsins
með tæplega sjö þúsund hluthafa.
Eignir sjóðsins hækkuðu um 266%
á síðasta ári og námu rúmlega íjór-
um milljörðum króna í lok reikn-
ingsársins. Þetta kom meðal annars
fram í máli Sveins Hannessonar,
stjórnarformanns Hlutabréfasjóðs-
ins Auðlindar, á aðalfundi sjóðsins
þann 10. júní síðastliðinn.
í skýrslu stjórnar kemur fram
að hagnaður Hlutabréfasjóðsins
Auðlindar samkvæmt rekstrar-
reikningi nam 326,2 milljónum
króna á síðasta rekstrarári saman-
borið við 46,4 milljónir rekstrarárið
á undan. Tekið skal fram að það
reikningsár stóð einungis í tíu mán-
uði. Þá eru að auki færðar beint
yfir á eigið fé 477,9 milljónir króna
en sú tala er þannig fengin að óinn-
leystur gengishagnaður þessa
reikningsárs er 758,2 milljónir
króna en þar dregst frá reiknuð
hækkun á tekjuskattsskuldbindingu
sem nemur 280,3 milljónum króna
á þessu reikningsári. Sambærileg
hækkun óinnleysts gengishagnaðar
umfram hækkun skattskuldbind-
ingar nam á fyrra reikningsári 216
milljónum króna. Raunverulegur
hagnaður sjóðsins að teknu tilliti
til þessa er því um 800 milljónir
króna á síðasta reikningsári saman-
borið við rúmar 260 milljónir króna
reikningsárið á undan.
Góðæri tekið að láni
í máli Sveins kom fram að af-
koma flestra félaga á Verðbréfa-
þingi íslands hafi haldið áfram að
batna á árinu 1996. „Þennan bata
má að miklu leyti rekja til áfram-
haldandi stöðugs efnahagsum-
hverfis þrátt fyrir umtalsverða
aukningu bæði í neyslu og fjárfest-
ingu. Fjárfesting í atvinnulífinu
jókst talsvert miðað við árið á und-
an, en þrátt fyrir umtalsverða aukn-
ingu síðustu tvö ár, er fjárfesting
hér á landi enn i lægri kantinum
hvort sem miðað er við fyrri ár eða
nýtt meðaltal OECD ríkja. Mikill
hagvöxtur á síðasta ári átti þannig
að hluta til rætur að rekja til auk-
innar fjárfestingar sem tvímæla-
laust er af hinu góða. Hitt er lak-
ara að hagvöxturinn er að miklu
leyti til kominn vegna aukinna út-
gjalda umfram aukningu þjóðar-
tekna. Góðærið er því að verulegu
leyti tekið að láni af heimilum í
landinu.
Afkoma fyrirtækja hefur senni-
lega ekki verið betri það sem af er
þessum áratug og jafnvel þó lengra
væri litið til baka. Fyrirtækin hafa
af sama skapi styrkt eiginfjárstöðu
sína jafnt og þétt, sem veitir þeim
betri möguleika til sóknar og vaxt-
Hola í höggi
LANDSBRÉF og auglýsinga-
stofan Hér & nú hafa komið
fyrir nýrri tegund auglýs-
inga sem ætlað er að höfða
til kylfinga á Grafarholt-
svelli. Auglýsingarnar eru
ekki á yfirborði jarðar held-
ur ofan í golfholunum og á
þeim stendur „Góð sveifla
hæfir okkur“.
Að sögn Kristjáns Guð-
mundssonar, markaðsstjóra
Landsbréfa, er auglýsingun-
um ekki síður ætlað að hafa
skemmtanagildi en auglýs-
ingagildi. „Við hjá Lands-
bréfum höfum á undanförn-
um árum átt gott samstarf
við Golfklúbb Reykjavíkur og
fleiri og unnið markvisst að
því að kynna þjónustu okkar
fyrir kylfingum. Yfirleitt höf-
um við farið hefðbundnari
leiðir en við fögnum hveiju
tækifæri til að reyna eitthvað
nýtt og spennandi."
Aðalsteinn Leifsson hjá
auglýsingastofunni Hér &
nú segir að auglýsingarnar
veki mikla athygli hjá kylf-
ingum sem hreinlega komist
ekki hjá því að komast í
snertingu við skilaboðin.
„Auglýsingarnar valda
engri sjónmengun eins og
stór og mikil auglýsinga-
skilti gera gjarnan og golf-
holur eru nýstárlegur og
skemmtilegur miðill fyrir
auglýsingar sem hingað til
hefur ekki verið nýttur til
þeirra nota.“
VIÐSKIPTI
HLUT ABRÉF AS J ÓÐURINN Auðlind hf. er orðinn
þriðja stærsta hlutafélag landsins.
ar á komandi árum. Ástæðumar
fyrir betri afkomu eru margar, en
almennt má segja að sá stöðuleiki
sem ríkt hefur í efnahagslegu um-
hverfi fyrirtækja á íslandi sé undir-
staðan, sem þessi bati byggist á.
Gengi íslensku krónunnar hefur
verið stöðugt undanfarin fjögur ár
og verðbólga hefur verið með
minnsta móti.“
Verð hlutabréfa hækkað
umfram afkomubata
„Á sama tíma hefur rekstrarum-
hverfi fyrirtækjanna verið bætt með
ýmsum hætti, ekki síst vegna áhrifa
af EES-samningnum. Við höfum
smám saman verið að hverfa frá
þessu einkennilega samblandi af
óstjórn og ofstjórn sem við höfum
búið við í áratugi eftir að aðrar
vestrænar þjóðir höfðu hafnað hag-
stjórn af þessu tagi. Þá hefur skatt-
lagning fyrirtækja á margan hátt
verið samræmd því sem tíðkast
meðal okkar nágranna- og sam-
keppnislanda. Þarna gætir auðvitað
óbeinna áhrifa EES-samningsins.
Þegar við höfum galopnað efnahag-
skerfi okkar fyrir samkeppni á öll-
um sviðum getum við ekki burðast
með annað og lakara skattkerfi en
ÖSSUR hf. hefur þróað og fram-
leitt tækninýjung sem ætlað er að
auka til muna þægindi þeirra er
þurfa að nota gervifót. Um er að
ræða nýja tegund hulsu, svonefnda
Iceross Duo hulsu, sem gerð er
úr tveimur mismunandi sílikonlög-
um. Mun Össur vera fyrsti fram-
leiðandinn í heiminum sem tekst
að þróa nothæfa tveggja laga síli-
konhulsu.
í frétt kemur fram að innra lag
nýju hulsunnar auki viðloðun við
húðina og dragi þannig úr hættu
á núningssárum. Auk þess leggst
hulsan mjög jafnt að stúfnum og
keppinautarnir.
Með batnandi starfsskilyrðum
fyrirtækjanna og betri afkomu hef-
ur verð á hlutabréfum haldið áfram
að hækka og að mínu mati umfram
það sem afkomubatinn gefur tilefni
til, m.a. vegna umframeftirspurnar
á hlutabréfamarkaði. Þannig
hækkaði þingvísitala hlutabréfa á
þessu ári um tæp 38% frá áramót-
um til aprílloka samanborið við tæp
28% á sama tíma í fyrra. Þessi
mikla hækkun á verði hlutabréfa
hefur að vonum verkað sem hvati
á stjórnendur óskráðra hlutafé-
laga, enda eykst stöðugt sá fjöldi
félaga sem skráir hlutabréf sín á
Verðbréfaþingi íslands. Sex ný
félög hafa verið skráð það sem af
er þessu ári og eru þau nú orðin
38. Breikkun markaðarins á þenn-
an hátt er mjög jákvæð og nauð-
synlegt skref fyrir þróun hans,“
segir Sveinn Hannesson.
Á aðalfundinum var ákveðið að
auka hlutafé félagsins í þijá millj-
arða króna með sölu nýrra hluta í
áföngum næstu fímm árin. Einnig
var samþykkt að greiða hluthöfum-
10% arð af nafnvirði hlutafjár og
verður arðurinn sendur til hluthafa
1. ágúst næstkomandi.
stuðlar þannig að aukinni vellíðan
notandans. Nýja Duo hulsan hefur
þegar verið sett á fyrstu íslensku
sjúklingana og er væntanleg á al-
þjóðlegan markað í haust.
Össur hefur gengið til samstarfs
við nýja umboðsaðila í Þýskalandi,
Ortho-Rea Neuhof Gmbh. og Medi
Gmbh. Ákveðið hefur verið að þessi
tvö fyrirtæki skipti með sér þýska
markaðnum, sem aðeins einn um-
boðsaðili hefur sinnt hingað til.
Þannig að nú verður þjónustunet
Össurar hf. á þessu mikilvæga
svæði þéttriðnara en áður, segir
ennfremur í fréttinni.
SUNDABORQ 1, RVK • SÍMI568 3300 • FAX 568 3305
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi
fyrir vólvædd vörugeymsluhús
sem minni lagera.
Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar.
Aðeins vönduð vara
úr sænsku gæðastáli.
Mjög gott verð.
Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu
og byggingu lagerrýma.
Þjónusta - þekking - ráðgjöt. flratuga reynsla.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
Sirazsmur
SUNDABORG 1, RVK • SÍMI568 3300 • FAX 568 3305
Össur með nýjungar í þróun og framleiðslu
Fyrsta tvöfalda síli-
konhulsan á markað
IBESTAI
Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur
Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001
Útibú Suðurnesjum:
Brekkustígur 39 • 260 Njarðvik
Sími: 421-4313 »Fax 421-4336