Morgunblaðið - 20.06.1997, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997 B 7
DAGLEGT LÍF
Hannes Guðmundsson ljósmyndari hefur átt velgengni að fagna í starfí á
erlendri grund. Hannes sagði Evu Hrönn Steindórsdóttir að hann væri
„yfirlýstur“ tískuljósmyndari sem ræki eigin stofu 1 Mílanó á ítalíu.
Gróskumiklir íslendingar
Hannes var staddur hér á landi
ekki alls fyrir löngu og ekki var
hann verkefnalaus. Þ.á m. tók
hann myndirnar hér á síðunni af
fyrirsætum Eskimo Models og
einnig tók hann að sér að taka
myndir fyrir alþjóðlegt tískublað,
„Sport & Street".
„Eg var beðinn um að mynda
götutískuna hér á Islandi út frá
menningarlegu sjónarhorni og
það er ekki laust við að ég fyllist
þjóðarstolti að fá að gera verkefni
um heimalandið. Islendingar eru
mjög meðvitaðir um þá tísku-
strauma sem eru í gangi núna,
nýjar stefnur eru fljótar að sjást
hér á landi og breiddin er mikil.
Ég hef orðið var við uppsveiflu á
íslandi, ungt fólk er að gera
margt áhugavert, það er eins og
kreppan hafí rassskellt okkur
duglega, allir eru byrjaðir að gera
eitthvað."
Ljósmyndun krefst tíma
Hannesi finnst margt áhugavert
vera að gerast í ljósmyndun á ís-
landi en segir þó að oft sé ekki
mikill skilningur fyrir því að það
þarf tíma til að taka góða ljós-
mynd. „Að taka góða ljósmynd
byggist ekki eingöngu á færni
ljósmyndarans heldur einnig
samstarfi hans við förðunar-
og hárfólk, ljósamann og fyr-
irsætu og síðast en ekki síst
þarf að hafa góðan tíma í
verkefnið. Það er mikið af
hæfileikaríkum ljósmynd-
urum á íslandi en aftur á
móti eru fjárhagsáætlanir
fyrir myndatökur einfald-
lega allt of lágar, sem skilar
sér kannski í verri gæðum“.
Læt verkin tala
Það er margt í bígerð
hjá Hannesi, sem hefur
þá stefnu að leitast
alltaf við að gera bet-
ur. Hann vill lítið
segja um framtíðar-
verkefni að svo
stöddu, „ég læt
verkin tala,“ segir
hann sposkur á
svip. Eitt er þó víst,
hann ætlar sér ekki að
verða steiktur á pönn-
unni!
FYRIR fimm árum lagði
Hannes Guðmundsson land
undir fót, þá nýbakaður faðir,
og hélt til Mílanó í hönnunar-
skólann Istituto Europeo di
Design. „Ég ætlaði upphaflega að
fara út í arkitekta- og landslags-
ljósmyndun því ég hef alltaf verið
heillaður af hinu sjónræna, en upp-
götvaði þegar á leið að tískuljós-
myndun átti betur við mig. Ég var
mjög heppinn, og lenti í bekk með
hugmyndaríku fólki sem var
óhrætt við að prófa nýja hluti í
ljósmyndun."
Ástfangnar fercatöskur
Hjólin fóru fyrst að snúast hjá
Hannesi þegar hann ásamt nítján
öðrum var valinn úr 500 umsækj-
endum til að taka þátt í ljósmynda-
sýningu í Mílanó.
vill, ýmsir aðrir, eins og viðskipta-
vinir koma inn í málið og það af-
bakar oft upphaflega stefnu manns
- þeir sækjast eftir tilteknum
mönnum en vilja svo að þeir geri
eitthvað annað.“
Sjóðheit steikarpanna
Samkeppnin í Mílanó er svaka-
leg að sögn Hannesar og líkir hann
tískuheiminum við sjóðheita steik-
arpönnu þar sem maður þarf að
hreyfa sig mikið til að verða ekki
steiktur. „Það er tiltölulega lítið
mál að koma sér inn í þennan heim
en að lifa þar er allt annað
mál. Það er mikil vinna
og tímapressa en ef
rétt er haldið á
spöðunum getur
þetta verið al-
veg stórfeng-
legt líf.“
Hár og fórðun/Þórey Vilhjálmsdóttir
Fleygur
á steikarpönnunni
„Þessi sýning fékk mikla um-
fjöllun í fjölmiðlum sem bjó til
nokkur verkefni og varð til þess að
ég komst í góð sambönd við fólk í
tískuheirninum." Hannes hefur
verið að vinna mikið fyrir ítölsk
tískublöð og þá aðallega að mynda
tískuþætti.
„Skemmtilegast finnst mér að
gera tískuþætti með einhverju
ákveðnu þema. Ég fékk t.d. það
verkefni að mynda ferðatöskur og
lét ferðatöskurnar hittast í anddyri
hótels og enda saman uppi í rúmi.
Mér fannst það góð hugmynd að
gera þátt um ferðatöskur sem
verða ástfangnar en ekki get ég
sagt að viðskiptavininum hafi fund-
ist þetta eins fyndið. Maður fær
ekki alltaf að gera það sem maður