Alþýðublaðið - 15.12.1920, Síða 1
Gefið át af Alþýðwflokknum.
1920
Miðvikudaginn 15. desember.
289 tölubl.
Kosniagarrétturinn.
Sjálfsagt virðist, að við kosn-
ingar þær, er fram eiga að fara
hér í Reykjavík í næsta mánuði,
verði farið eftir þeirri stjórnarkrá
sem þá gildir, en ekki eftir þeirri,
sem búið var að nema úr lögum.
Þegar ný stjórnarskrá er lög
leidd, er sjáifsagt að semja nýjar
kjörskrár samkvæmt henni, þó
ekki sé búist við nýjum kosning-
um, því það getur komi fyrir,
hvenær sem er, að einhver þing-
maður deyi, og kosningar verði
íátnar fara fram með stysta fram-
boðsfresti.
Margir tala um að þetta mál
sé afar erfitt lögfræðisspursmál,
og skal ekkert um það sagt hér,
nema að einstaka lögfræðingi,
sem búinn er að tapa sér ofan í
fræðigrein sína, kuuni að finnast
málið erfitt. En fyrir almenning
og heiibrigða skynsemi er málið
<ofur einfalt, bæði það, að þeir
sem kosningarrétt fá 1. jan. 1921
eigi að fá að njóta hans, og eins
liitt, að margar leiðir séu til þess
að koma því fram að það verði.
Fyrir Reykvíkinga virðist einfald
asta leiðin, úr því sem komið er,
að gerður sé viðauki við auka-
kjörskrá (eða hvað menn nú vilja
kalla það) og í þann viðauka séu
teknir allir þeir, sem kosningarrétt
öðlast samkvæmt hinni nýju stjórn-
arskrá. En það þarf að gera þetta
slrax.
Þegar fjölgun þingmanna Rvfk-
ur var samþykt, hefði átt að sam-
þykkja sérstök bráðabirgðaákvæði
þessu viðvíkjandi, af því reynzlan
er búin að sýna, að stjórnarráðs-
skrifstofurnar virðast komast alvar-
Sega í bobba stundum, þegar
nauðsynlegt er að breyta eftir
heilbrigðri skynsemi.
En hver var það, sem átti að
sjá um að slík bráðabirgðarákvæði
væru samþykt? Það áttu vitanlega
þingmenn Reykjavíkur að gera.
Hér er því um alvarlega vanrækslu
af þeirra hendi að ræða, þvf ekki
verður ; séð að þeir hafi haft svo
mikið að starfa fyrir kjördæmið,
að þeir hefðu ekki getað komið
þessu lítilræði í verk. Annar þing
maðurinn er nú búinn að segja af
sér, svo það er of seint að finna
að við hann. En hvað segið þér
um þetta, herra Jakob Möller?
Höfðuð þér svo mikið að gera í
þinginu, að þér kæmust ekki til
þess að sjá um þetta? En með
leyfið að spyrja: hvað voruð þér
að gera þar altaf? Hafið þér yfir-
leitt gert þar nokkuð, þá gerið
svo vel og segið okkur það í Vísi
og látið ekki Ijós yðar undir
mæliker. Látið ekki afreksverk
yðar vera lengur leyndardóm
lýðnum!
írlandsmálin.
Brezkir brennuvargar brenna
meirihluta Corkborgar
til ösku.
Khöfn, 12. des.
Símsð er frá London að (breskir)
hérmenn hafi í gær brent til kaldra
kola meiii hlutan af bænum Cork
á írlandi, f hefndarskini fyrir árásir
Sinn-Feina.
Blödin krefjast nákvæmrar rann-
sóknar og láta sér ekki nægja
yfirlýsingu stjórnarinnar um það,
að hún hafi í bili mist stjórnina
á herliði sínu í írlandi.
Fallið hafði úr smágrein um
íbúatöluna í Bandárikjunum í
blaðinu í gær, á eftir orðunum
14,9 procent, siðan 1910.
Almannarómui' heitir leikrit
eftir Stein Sigurðsson, sem leik-
félagið „Hafnarfjörður" ætlar að
fara að leika f Hafnarfirði.
6erræði, ef sait er.
Það hefir flogið fýrir, að stjóra-
arráðið mundi ekki ætla að láta
endurskoða kjörskrána til alþingis-
kosninga hér í bæ, áður en kosn-
ingar fara fram í janúar næst-
komandi. Eitt dagblaðanna hefír
gert mikið veður út af þessu og
tekið það sem fullvíst mái. Senni-
legt er að þetta sé þó aðeins úv
lausu lofti gripið, því slíkt gerræð*
sem þetta, nær engri átt að
stjórnarráðið, þó kátlegt sé, fremdí
í andarslitrunum.
Væru kosningar iátnar farat
fram eftir gömlu kjörskránni, er
það svo skýlaust lagabrot, að
kosningarnar yrðu dæmdar ógild-
ar af sjálfu sér — það væri alveg
eins gott að þær færu aldrei fram„
svo ekki yrði fé í þær sóað.
Auðvitað á að endurskoða kjör-
skrárnar um land alt og bæta ú
þær því fóiki, sem öðlast kosn-
ingarrétt samkvæmt nýju kosninga-
lögunum þegar í stað. Og þessu
verki hefði átt að vera Jokið nú.
Fyrir þá vanrækslu má ávíta
stjórnina og á að ávíta hana.
En að stjórnin ætli að láta
þingkosningarnar hér i bæ fara
fram eftir gömlu kjörskránni, es*
slík fjarstæða, að það getur ekki
uerið satt. Maður verður að minsta
kosti að gera ráð fyrir því, að
svo sé.
Kjósandi.
12 mena fóru í land af Sterling
á Borðeyri og gengu tii Borgav-
ness og komu hingað með Skyldi
í fyrradag. Ferðin, þessa stuttw
leið, var érfið mjög vegna stöð-
ugra rigninga og mótbyrs. Urðu
göngumenn til dæmis einn dag ad
sitja um kyrt vegna vaxtar f einni
Borgarfjarðaránni. Alls voru þeir»
sem komu frá Siglufirði, 17 daga
á leiðinni þaðan, hingað til bæjar-
ins