Morgunblaðið - 29.07.1997, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1997 C 15
í
Hellulagning
Gróður og garðar
Steinsteyptar hellur hafa reynst vin-
sælasta og ódýrasta stéttarefnið, segir
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðinfflir.
Þær veðrast fallega og endast í áratugi,
ef rétt er að staðið 1 byrjun.
ÞEGAR hafist er handa við bygg-
ingu garðsins er sjálfsagt að raða
verkefnunum þannig að eitt rekist
ekki á annað. Reglan er að vinna
frá húsinu út að lóðarmörkum og
meðfram þeim út úr lóðinni um
bflastæðið. Ef svo háttar til að
jarðvinnu sé ekki lokið, svo sem
flutningi jarðefna til og frá lóðinni,
jarðvegsskiptum í gróðurbeðum,
grunngreftri fyrir stéttar og stein-
hleðslur - eða öðru því sem kallar á
notkun og umferð jarðvinnutækja
á lóðinni, er best að ljúka öllu slíku
áður en farið er að helluleggja eða
setja niður gróður og aðra varan-
lega hluti.
I fáum dráttum er hver garður
gerður úr eftirfarandi byggingaþátt-
um: Heliulögn, steinhleðslu, skjól-
veggjum, grasflöt, skjól- og skraut-
gróðri. Útfærslan getur svo verið
allt á milli naumleika og ofhlæðis.
Afbrigðin og frávikin eru óteljandi.
En til þess að gefa yfirlit, sem þó er
alls ekki tæmandi, skal þess freistað
að gera þessum hugtökum skil í
nokkrum næstu pistlum.
Stéttarefni
Svæðum eins og gangstéttum og
veröndum þarf að halda þurrum og
þokkalegum til þess að þau nýtist
sem best. Það þarf einnig að vera
auðvelt að halda þeim við frá ári til
árs með engum tilkostnaði og litlu
vinnuframlagi. Steinsteyptar hell-
ur, sem hægt er að fá í margskonar
útfærslum hvað varðar stærðir,
form og áferð, hafa reynst vin-
sælasta og ódýrasta stéttarefnið.
Þær veðrast fallega og endast í
áratugi ef rétt er staðið að lögn
þeirra í byrjun. Hellur úr grjóti,
bæði tilhöggnu sem náttúrulegu,
koma einnig til greina í hellulögn
en framboð á þeim er lítið á mark-
aðinum og það sem býðst þykir
nokkuð dýrt. Hellur úr íslensku
grjóti eru torsóttar nema fyrir þá
sem búa nálægt góðum hellutökum
og fá leyfi til að nýta þau.
Grundvallai-atriði hellulagnar er
að hellurnar geti ekki færst úr stað
eftir að búið er að leggja þær.
Gliðnun og missig stafar oftast af
því að undirvinnan hefur ekki verið
sem skyldi. Gera þarf grunn fyrir
allar hellulagnir, fjarlægja allt efni
sem getur þanist út í frosti (frost-
virk efni = mold, méla og leir) að
minnsta kosti 60 sentimetra niður
fyrir endanlegt yfirborð stéttarinn-
ar og setja í staðin efni sem frost
hefur ekki áhrif á (frosttrygg efni
= möl og sandur) og hafa burð til
að halda uppi stéttinni.
Einnig þarf að varast að vatn
geti safnast fyrir í grunni stéttar-
innar. Fyllt er í grunninn í
nokkrum áföngum og hverju lagi
jafnað og þjappað eins vel og kost-
ur er með ímalli eða vélþjöppu.
Flestir nota möl í neðri lögin og
svo grófan sand (hellusand) í efstu
10-15 sentimetrana. Þennan sand
þarf að vera hægt að „strauja" í
jafnt og þétt yfirborð sem hellurn-
ar eru svo lagðar á.
Helluþykktin
Við áfyllingu burðarefnanna í
grunn stéttarinnar þarf að taka til-
lit til helluþykktarinnar og skilja
borð sem henni nemur eftir upp að
væntanlegu yfirborði stéttarinnar.
Ef stéttin er lögð í hreinum mold-
arjarðvegi, svo sem framræstri
mýri, þarf að taka grunninn dýpri,
a.m.k. 80 sentimetra, og gera jafn-
vel ráð fyrir um 1% sigi írá endan-
legu yfirborði.
Sé stéttin lögð meðfram húsi er
sjaldan þörf á að taka dýpri grunn
en 40 sentimetra. Ef stétt er lögð á
fast undirlag, svo sem klöpp, hraun
eða grjótfyllingu (,,púkk“) kallar
það ekki á annað undirlag en sand-
púðann sem þarf til að leggja stétt-
ina slétta og í réttri hæð. Til að
koma í veg fyrir gliðnun stéttarinn-
ar þarf grunnurinn að vera um 15-
20 sentimetrum breiðari en stéttin,
sitt hvoru megin við hana ef hún
liggur frjálst eins og stígur - en
garð megin liggi hún meðfram
vegg.
Tilgangurinn með grunninum
undir stéttinni er að koma í veg
fyrir að frost geti fært hana úr stað
eða haft áhrif á hana. Vissulega
getur fyllingin lyfst þegar jörð
frýs, en sé hún ríflega tiltekin í
dýpt og breidd fellur stéttin aftur í
sömu skorður þegar frostið fer úr.
Naum fylling, aftur á móti, hefur
það í for með sér að frostvirku efn-
in eiga greiðari leið undir stéttina,
bæði að neðan og frá hlið, svo að
hún fellur ekki aftur í fyrra horf og
aflagast, gliðnar og skekkist, við
frosthreyfingamar.
Best að tveir menn
hjálpist að
Sjálf hellulögnin er tiltölulega
auðveld og æfist fljótt. Best er að
tveir menn hjálpist að. Sé unnið
með jafnþykkar steinsteyptar hell-
ur eða tilhöggnar er burðarlagið
jafnað og formað eftir því sem
stéttin á að vera í framtíðinni - að
frádreginni helluþykktinni. Þægi-
legast er að gera það með réttskeið
sem dregin er yfir sandinn eftir
sliskjum sem komið er fyrir í réttri
hæð.
Sem sliskjur er best að nota
tveggja tommu vatnsrör sem graf-
in eru ofan í sandinn með hæfilegu
millibili til að réttskeiðin geti leikið
eftir þeim þegar hún er dregin
sikksakk yfir þannig að hún jafni
allar misfellur og skilji eftir renni-
slétt og fast yfirborð. Þá er rörun-
um lyft varlega burt og í far þeirra
er fyllt með sandi eftir því sem á
verkið líður og hellulögnin er kom-
in í gang.
Ekki er gott að slétta allan sand-
inn í einu nema að auðvelst sé að
komast að og hægt um vik að hellu-
leggja allt í einni færu. Venjulega
er sléttað í nokkrum færum og lok-
ið við að helluleggja hverja fyrir
sig áður en byrjað er á þeirri
næstu.
Það er áríðandi að ganga ekki á
sandinum eftir að búið er að jafna
hann. Þess vegna þarf oft að byrja
með smærri færur meðfram hús-
veggjum eða þegar hellulagt er í
horn milli tveggja veggja. Þá er
alltaf byrjað í horninu og unnið út
frá því og síðan lengi-i veggnum
eftir að búið er að leggja helluflöt
sem hægt er að athafna sig á án
þess að stíga á sandinn.
Falli þétt saman
Það er líka áríðandi að hellurnar
falli þétt hver við aðra og viðstöðu-
laust á sinn framtíðarstað í fyrstu
atrennu. Gæta verður þess að þær
dragi ekki sandinn til undir sér í
fallinu og að sandkorn fari ekki í
fúgurnar á milli þeirra. Gerist
þetta, byrja hellurnar að ramba og
línurnar skekkjast þannig að
mynstrin ganga ekki upp.
Aðferðin er sú að hellan sem
lögð er er látin skorðast með neðra
hornið sem veit að vegg eða fyrri
helluröðinni og til hálfs á þeirri
hellu sem lagt er frá og síðan látin
falla beint niður. Þannig verður
fúgan þétt og línan rétt.
Fyrir óvana er betra að fást við
hellur af viðráðanlegri stærð,
10x20, 20x20, 15x30 eða 30x30
sentimetra hellur er auðveldara að
leggja rétt en stærri hellur. Þar að
auki gefa smærri hellur líflegri fleti
og betri hlutfóll í litlum garði en
stórar hellur.
Það er líka auðvelt að blanda
saman og gera mynstur úr hellum
sem ganga upp í stærð sín á milli.
Byrjendur ættu að varast gleið-
hyrndar hellur og skrauthellur
með óreglulegum hliðum. Slíkar
hellur getur verið tafsamt að
leggja og varla á færi annara en
fagmanna.
Þar að auki eru hellur af slíkri
gerð háðar tískusveiflum og geta
því orðið ansi leiðigjarnar og
þreytandi eftir nokkur ár. Þetta á
líka við yfirborðslitaðar skærlitar
hellur. Ef ætlunin er að hafa
upphitun í stétt, hitaveitu eða
rafrnagn, er líka rétt að leita til
fagmanna.
Fínum sandi sópað yfir
Þegar hellulögn er lokið er fínum
sandi sópað yfir stéttina þannig að
hann fylli allar fúgur. Það kemur í
veg fyrir að í þær safnist mold sem
fllgresi nær að spíra í. Margir
steypa meðfram köntum hellu-
stétta. Mín reynsla er sú að kant-
steypan geri ekki það gagn sem
henni er ætlað, það er að segja að
halda við stéttina. Við gangstéttar
vilja þessir steypukantar springa
við frosthreyfingar vetrarins og
verða til lýta og trafala þegar garð-
urinn er hirtur.
Oftast nær dugir að hafa sand-
fyllinguna utan við stéttina ríflega
til að hún haldi við af sjálfu sér.
Einnig er hægt að koma þar fyrir
„sextommu sinnum tveir“ timþur-
planka upp á rönd og festa hann
niður með hælum á þeirri hliðinni
sem snýr frá kantinum. Plankinn á
ekki að sjást, bara að styðja við.
Svo eru líka á markaði sérstakir
steyptir kantsteinar til að styðja
við stéttar. Til að koma þeim niður
á réttan hátt þarf talsverða leikni
og fagkunnáttu. En kantsteypan á
við á hellulögðum bílastæðum, þar
sem notaðar eru þykkari hellur og
sterkara undirlag.
BIFROST
fasteignasala
Vegmúla 2 • Sími 533-3344 -Fax 533-3345
Pálmi B. Almarsson Jón Þór Ingimundmrson Guðmundur Bjöm Steinþórsson
lögg fasleignasali Ágústa Hauksdóttir lögg. fasteignasali
ALLAR EIGNIR Á ALNETINU.
H ttp://www.bifrost-fasteignasaIa.is
OKKUR VANTAR
Vegna mjög mikillar sölu í júní og þaö sem af er júlí vantar
okkur eignir á skrá.
M.a. einbýiishús, parðhús, parhús, hæðir, 2ja-6 herb. íbúðir,
raunar allar tegundir eigna.
BIFRÖST - GRÆN FASTEIGNASALA
Stærri eignir
Hrauntunga-Aukaíbúð. Mjög
gott 256 fm einbýlishús á tveimur hæð-
um ásamt innb. bílskúr. Möguleiki á
aukaíbúö. 5-6 herb. Glæsilegur garður.
Parket og flísar. Verð 17,9 millj.
Fannafold - Raðhús. Sérllega fal-
legt og vel skipulagt raðhús 150 fm á
einni hæð ásamt 32 fm innbyggðum
bílskúr. Vandaðar innréttingar og gólf-
efni. 4 svefnherbergi. Sólskáli. Suður
lóð. Verð 13,9 millj.
Hraunbær - Raðhús. Vorum að
fá I sölu gott 143 fm raðhús á einni
hæð ásamt 20 fm bílskúr. Rúmgóð
stofa, hol og fjögur svefnherbergi.
Þvottahús og búr innaf eldhúsi. Verð
11,5 millj.
Tunguvegur. Gott einbýlishús 329
fm á tveimur hæðum ásamt 40 fm inn-
byggðum bílskúr á þessum frábæra
stað. Rúmgóðar stofur. Sjónvarpshol. (
húsinu eru sjö svefnherbergi. Sólstofa
og suðurverönd. Eign sem beðið hefur
verið eftir. Allar nánari upplýsingar á
skrifstofu okkar.
5-6 herb. og hæöír
Háteigsvegur. Mjög rúmgóð 4-5
herb. 143 fm íbúð á 2. hæð í þrfbýlis-
húsi. Þrjú rúmgóð svefnherbergi. Stórt
eldhús. Suðurstofa, suðursvalir. Sauna.
Verð 9,6 millj.
Gullengi - Ein góð. Mjög falleg
og ný 115 fm 5. herb. íbúð á 3. hæð
ásamt bílskúrrétti. Parket og flísar. Áhv.
ca. 6 millj. húsbréf. Verð 9,5 millj.
Safamýri - Rúmgóð. Falleg og
mjög rúmgóð 5 herb. endaíbúð á 4.
hæð í fjölbýli. Suðursvalir, arinn. Verð
8,9 millj.
4-ra herbergja
Ásbraut - Glæsi útsýni. Mjög
góð 4ra herb. íbúð á 4. hæð ásamt bíl-
skúr. Glæsilegt útsýni. Flús í topp
ástandi. Áhv. 6,2 millj. Verð 8 millj.
Vesturbærinn - Grandar. Mjög
góð 123 fm 5 herb. íbúð, á tveimur
hæðum, ásamt stæði í bílgeymslu. 4
svefnherb. Parket. Áhv. 5,7 veðd. og
húsbr. og fl. Verð 9,8 millj.
Hraunbær - Gott verð. Falleg 97
fm 4ra herb. íbúð í góðu fjölbýlishúsi.
Nýtt eldhús. Áhv. 4,3 millj. húsbr. Verð
aðeins 6,5 millj.
Stelkshólar - Bílskúr. Falleg 89
fm 4ra herb. ibúð á 3. hæð ásamt bíl-
skúr. Áhv. 3,7 millj. Verð 7,9 millj.
.Austurströnd - Laus fljótlega
Falleg 80 fm 3ja herb. ibúö á 5. hæð
ásamt stæði í bílskýli. Stutt í alla þjón-
ustu. Áhv. 1,3 millj. veðd. Verð 8 millj.
Furugrund - Aukaherbergi
Góð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð ásamt
aukaherbergi í kjallara, alls 76 fm Eik-
arparket á gólfum, suðursvalir. Húsið er
nýviðgert. Lyklar á skrifstofu. Áhv. 3
millj. Verð 6,5 miilj.
Kambasel - Bílskúr. érlega falleg
92 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð í mjög
góðu húsi ásamt 26 fm bílskúr. Fallega
innréttuð íbúð. Paket og físar. Áhv. 6
millj. Verð 7,9 millj.
Nýlendugata. í fallegu húsi, á
þessum eftirsótta stað bjóðum við
stórglæsilegar 3ja herb. íbúðir. Allt ný
standsett. Sjón er sögu ríkari. Áhv. 3,5
millj. húsbréf. Verð frá 6,8 millj.Tvær
Ibúðir eftir.
Leirutangi - Sériega falleg. Sér-
lega falleg 92 fm 2ja-3ja herb. íbúð á
jarðhæð í fjórbýlíshúsi. Fallegar innrétt-
ingar. parket. Stórt sjónvarpshol.. Sér
lóð. Áhv. 1 miilj. Verð 6,3 millj.
Flétturimi - Ein góð. Mjög falleg
90 fm 3ja herb. ibúð á 2. hæð. Mjög fal-
lega innréttuð íbúð. Áhv. 5,4 millj. hús-
bréf. Verð 7,5 millj.
2ja herbergja
Gnoðarvogur - Góð lán. Tölu-
; vert endurnýjuð 60 fm 2ja herb. endaí-
: búð. Nýtt flísalagt bað. Fallegt eldhús.
Parket. Áhv. 2,8 millj. veðd. og fl.
Hamraborg - Gott verð. Björt
og rúmgóð 83 fm 3ia herb. íbúð á 2.
hæð í góðu fjölbýli. Ollum framkvæmd-
um lokið. íbúðin er laus, lyklar á skrif-
stofu. Áhv. 3 millj. Verð 6.150 þ.
Krummahólar - Bílskýli Falleg
44 fm 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í
lyftuhúsi. Áhv. 2,3 mlllj. veðd ofl. Verð
aðeins 4,5 millj. Skipti á dýrari eign á
svæði 104-105.
Dúfnahólar. Falleg 63,2 fm Ibúð á
2. heeð i nýlega máluðu stigahúsi.
Parket á stofu og holi, suöursvalir.
Rúmgott svefnherbergi. Áhv. 2,2 veðd.
Verð 5,3 millj.
Laufirimi - í sérflokki. Óvenju
glæsiieg 60 fm 2ja herb. íbúð, með sér
inngangi, á jarðhæð í nýju húsi. Sér-
smiðaðar innréttingar. Áhv. 3,8 millj.
húsbréf. Verð 5,8 millj.
Krummahólar - Lítil útb. Góð
E43 fm 2ja herb. ibúð á 4. hæð ásamt
stæði í bílskýli. Áhv. 2,7 millj. veöd. og
fl. Greiðslub. 20 þ. pr. mán. Verð 4,2
x: millj.
3ja herbergja ■ j______Til leigu
Sæviðarsund - Aukaherb. Falleg
72 fm 3ja herb. (búð á 1. hæð f litlu fjöl-
býli ásamt aukaherb. í kjallara með að-
gang að snyrtingu. Frábær staðsetn-
ing. Verð 7,9 millj
Langholtsvegur. Til leigu gott ca
185 fm lager- og skrifstofuhúsnæði.
Góð aðkoma. malbikaðplan. Þrjú
skriftsofuherbergi. Laus 1. ágúst n.k.
Nánari upplýsingar gefur Pálmi.
NÝBYGGINGARI KÓPAVOGSDAL. 2ja, 3ja, 4ra, 5 og 6 herb. íbúðir og sérbýli.
Galtalind Fjallalind
Lautasmári Melalind
Ljósalind Grófarsmári
Fifulind Funalind
Allar nánari uppiýsingar á skrifstofu okkar.
VERÐ OG GREIÐSLUKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI
Leitið að merki (p í ^
fasteignaauglýsingum! Félag Fasthgnasala