Morgunblaðið - 06.08.1997, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.08.1997, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1997 B 3 HM í AÞENU ’97 Michael Johnson sýndi og sannaði enn einu sinni hver er bestur „Vissi að ég myndi sigra“ MICHAEL ichael Johnson varði titil sinn í 400 metra hlaupi á heimsmeistaramótinu ifrjáls- íþróttum í Aþenu í gær. Hann hljóp á 44,37 sekúndum og heldur því áfram sigurgöngu sinni á stórmótum, hefur orðið heimsmeistari þrisvar í röð. Johnson tók forystu í hlaupinu þegar um hundrað metrar voru eftir, en þeir Iwan Thomas frá Bretlandi og Úgandamaðurinn Davis Kamoga voru í forystu framan af. Kamoga náði silfrinu, kom í mark á 44,37 sekúndum, en Bandaríkjamaðurinn Tyree Wash- ington komst fram fyrir Thomas og varð þriðji á 44,39 sek. „Þetta hefur verið erfitt tímabil og ég er mjög ánægður með að vera orðinn heill heilsu á ný. Ég hélt að ég gæti hlaupið aðeins hraðar, en sigur er sigur,“ sagði Johnson. Hefur verið meiddur Johnson hefur átt við meiðsli að stríða eftir að hafa tapað 150 metra einvígi við Kanadamanninn Dono- van Bailey í júní, en virtist nærri MICHAEL Johnson kemur í mark eftir sigurhlauplð í gær á tímanum 44,12 sekúndum. Corbett kom, sá og sigraði SUÐUR-Afríkubúinn Marius Cor- bett tryggði sér í gær sigur í spjót- kasti karla á heimsmeistaramót- inu í frjálsum íþróttum í Aþenu þegar hann kastaði spjótinu 88,40 metra. Sigur Corbetts kom nokkuð á óvart en það sem vakti þó jafnvel enn meiri athygli var að heims- og Ólympíumeistarinn Jan Zelezny frá Tékklandi náði sér aldrei á strik og varð að gera sér 9. sætið að góðu. Zelezny gerði fyrstu tvö köstin ógild en í þriðja kasti flaug spjótið aðeins 82,06 metra og komst Zelezny þar með ekki í hóp átta efstu manna og gekk að vonum vonsvikinn af velli. Bretinn gamalreyndi Steve Backley hafnaði í öðru sæti með því að kasta 86,80 metra í sínu síðasta kasti og heimamaðurinn Kostas Gatzioudis tryggði Grikkj- um fyrstu verðlaunin á mótinu þegar hann krækti í bronsið - kast- aði 86,64 metra. Marius Corbett Fæddur: 26. október 1975 í Potc- hefstroon í S-Afríku. Ferill: Corbett varð heimsmeistari unglinga árið 1994. Hans lengsta kast á ferlinum fyrir HM var 83,90 metrar og bætti hann því árangur sinn í Aþenu um 5 metra. Michael Johnson Fæddur: 13. september 1967, í Dallas í Bandaríkjunum. Ferill: Árið 1990 náði Johnson besta tíma ársins í bæði 200 og 400 metra hlaupi. Hann sigraði svo í 200 metrunum á HM í Tokyo árið 1991 og í 400 metrunum á HM í Stuttgart árið 1993. Á HM í Gautaborg fyrir tveimur árum varð John- son síðan fyrstur manna til þess að sigra í báðum þessum greinum og á ÓL í Atlanta í fyrra endurtók hann afrekið og setti um leið heimsmet í 200 metrunum. DAGSKRAIN HM í FRJÁLS-^STN ÍÞROTTUM H nn AHNA V7 gQ jfl MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 5.00 110m grindahl. ~Ka. Tugþraut 5.15 Þrístökk Ka. Forkeppni 5.30 5.000m hlaup Ko. Fyrsta umferð 6.00 Kringlukast (a) Ka. Tugþraut 6.30 800m hlaup Ko. Fyrsta umferð 7.15 200m hlaup Ka. Fyrsta umferð 7.50 Kringlukast (b) Ka. Tugþraut 8:15 200m hlaup Ko. Fyrsta umferð 9:00 Stangarstökk Ka. Tugþraut 14:50 Spjótkast Ka. Tugþraut 15:00 110m grindahl. Ka. Undanúrslit 15.10 Hástökk Ka. úrslit 15.20 200m hlaup Ko. Önnur umferð 15.50 200m hlaup Ka. Önnur umferð 16.20 800m hlaup Ka. Undanúrslit 16.40 Spjótkast Ka. Tugþraut 17.50 3.000m hlndr.hl. Ka. ÚRSLIT 17.10 400m grindahl. Ko. Undanúrsiit 17.30 1.500m hlaup Ka. ÚRSLIT 17.50 10.000m hlaup Ka. ÚRSUT 18.30 1,500m hlaup Ka. Tugþraut | Timar gætu breyst REUTERS jafn kröftugur og fyrr þegar hann jók hraðann á síðustu hundrað metrunum og kom í mark rúmum tveimur metrum á undan keppi- nautum sínum. Eftir hlaupið lagði hann kælipoka við hnéréttivöðva vinstri fótar, en eymsli í honum hafa hrjáð Johnson að undanförnu. Johnson var ekki með á úrtöku- móti Bandaríkjanna vegna meiðsla og vann sér því ekki rétt til keppni á heimsmeistaramótinu. Alþjóða fijálsíþróttasambandið veitti honum þó undanþágu, svo hann gæti reynt að verja titil sinn. „Ég hefði ekki komið ef ég teldi mig ekki eiga möguleika á sigri og ég vissi að ég myndi sigra," sagði Johnson. Tæpt en hafðist samt Sacramento tryggði sér gull Carla Sacramento frá Portúgai tryggði sér í gær sigur f 1.500 metra hlaupi kvenna á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum þegar hún hljóp vega- lengdina á 4.04,24. Regina Jacobs frá Bandaríkjunum kom í mark önnur á 4.04,63 og eftir að hafa olnbogað sér leið fram hjá tveimur keppendum tryggði svissneska stúlkan Anita Weyermann sér bronsið á 4.04,70. Sigur Sacramentos féll hins vegar f skuggann af atviki sem átti sér stað á síðasta hring hiaupsins en írska stúlkan Sonia O'Sullivan greip þá í treyju Reg- inu Jacobs og hélt henni þéttings- fast í nokkrar sekúndur. O’Suiii- van sagðist hafa gripið ósjáifrátt í treyjuna til þess að missa ekki jafnvægið þegar henni var ýtt af Anitu Weyermann, en Jacobs tók afsakanir írsku stúlkunnar ekki til greina og var óspar á yfirlýs- ingarnar þegar hlaupinu lauk. „Þú kostaðir mig sigurinn, heimska tfk,“ sagði Jacobs við O’Suliivan eftir hlaupið og gekk síðan í burtu óim af bræði. Caria Sacramento Fædd: 10. desember 1971 í Lissa- bon f Portúgal. Ferill: Sacramento hlaut silfur á HM f Gautaborg fyrir tveimur árum en hún hafnaði hins vegar í sjötta sæti á Ólympfuleikunum í Átlanta í fyrra. Guðrún Arnardóttir í undanúrslitum í 400 m grindahlaupi Skúli Unnar Sveinsson skrífar frá Aþenu Guðrún Arnardóttir úr Ármanni tryggði sér í gær rétt til að keppa í undanúrslitum í 400 metra grindahlaupi á heimsmeistaramót- inu í fijálsíþróttum í Aþenu. Hún hljóp á 55,76 sek. í und- anriðlinum og var með lakasta árangur þeirra kepp- enda sem komust í undanúrslit sem fram fara kl. 15.30 í dag. Það virtist ekki blása byrlega fyrir Guðrúnu í hlaupinu, en hún hljóp í öðrum riðli. Hún á 11. besta tímann á þessu ári af þeim stúlkum sem keppa í mótinu og því ef til vill rétt að ætlast til þess að hún kæmist í undanúrslit, sem hún og gerði - en tæpara mátti það ekki standa. Hún byijaði ágætlega og var önnur í viðbragðinu, aðeins Mirian Alonso frá Spáni náði betra við- bragði. En svo fór að halla undan Morgunblaðið/Golli GUÐRÚN Arnardóttlr, fjær, á feröinni í Aþenu í gærmorgun. fæti. Hún var í fremstu röð eftir tvær grindur en missti algjörlega taktinn í hlaupinu eftir það og munaði ekki miklu að hún dytti þegar hún fór yfir þriðju sfðustu grindina. Endaspretturinn brást Guðrún er þekkt fyrir góðan endasprett þegar grindunum sleppir enda ágætur 100 metra hlaupari. Endaspretturinn brást að þessu sinni og hún kom fimmta í mark á 55,76 sek. Besti tími Guðrúnar í ár er 54,85 sek. og íslandsmet hennar er 54,81 sek. þannig að hún á að geta mun betur. Samkvæmt upplýsingum frá Gísla Sigurðssyni fararstjóra hef- ur Guðrún verið í nuddi vegna eymsla í vöðvafestingum og gæti það haft einhver áhrif á hana er hún keppir í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.