Morgunblaðið - 07.08.1997, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 C 3
HM í AÞENU ’97
Hicham
El Guerrouj
Fæddur: 14. september
1974, í Berkan í Marokkó.
Ferill: Hann datt er hann
ætlaði að taka framúr
Noureddine Morceli frá
Alsír á lokasprettinum á
Eyðimerkurprins-
inn orðinn konungur
MAROKKÓBÚINN Hicham El
Guerrouj eða eyðimerkur-
prinsinn eins og hann er oft
nefndur sýndi yfirburði sína í
1.500 metra hlaupinu á HM í
Aþenu í gær, sýndi að hann
er konungur millivegalengda-
hlaupara. Hann vann m.a.
Noureddine Morceli frá Alsír,
sem er ólympíumeistari í
greininni og þrefaldur heims-
meistari.
El Guerrouj, sem er 22 ára og
heimsmeistari innanhúss í
greininni, hljóp á 3.35,83 mínútum
og náði þar með að hefna fyrir
ófarimar á Ólympíuleikunum í
Atlanta er hann datt á síðustu
metrunum er hann var að reyna
að komast framúr Morceli. Eftir
leikana var hann á því að leggja
skóna á hilluna en eftir að konung-
ur Marokkó talaði við hann og
hvatti hann til að halda áfram á
hlaupabrautinni snérist honum
hugur.
Ef Morceli hefði sigrað hefði
hann orðið fyrstur til að vinna til
gullverðlauna á fjóram heims-
meistaramótum í röð. Hann endaði
hins vegar aðeins í fjórða sæti í
gær og átti aldrei möguleika á
móti El Guerrouj. Spánverjar
Fermin Cocho og Reyes Estevaez
komu næstir og átti Estevaez mjög
góðan endasprett og skildi Morceli
eftir án verðlauna.
Hlaupið fór rólega af stað en
þegar kom að þriðja hring, sem
er talinn mikilvægastur, tók El
Guerrouj til sinna ráða og náði
afgerandi forystu og þá var aldrei
spuming um hver tæki við gull-
verðlaununum.
Það þótti vel við hæfi að hlaupa-
konan Nawal El Moutawakel, sem
varð fyrsti ólympíumeistari Mar-
okkó árið 1984, afhenti honum
gullpeninginn eftirsótta að loknu
hlaupi.
Áföll ítug-
þrautinni
ÞAÐ voru fleiri en Jón Amar
Magnússon sem ekki tókst að
jjúka keppni í tugþraut á
heimsmeistaramótinu. Af 34
keppendum sem hófust handa
í fyrradag tókst aðeins 20 að
ljúka SUum þrautunum 10.
Meðal þeirra sem hrukku úr
skaptinu voru Ólympiumeist-
arinn frá þvi I Barcelona árið
1992, Robert Zmelik frá Tékk-
landi, Sebastian Levicq
fremsti tugþrautarmaður
Frakka, Bandaríkjamaðurinn
Chris Huffins, rússneski meist-
arinn Lev Lobodin og pólski
meistarinn Sebastian Chmara.
Drummond
heppinn
BANDARÍSKI meistarinn,
John Drummond, var við það
að detta rétt áður en hann kom
í markið í undanrásum 200 m
hlaupsins i gær og rétt náði
að komast áfram í milliriðla.
Hann hljóp í 1. riðli og var
fyrstur þegar skammt var í
markið en þá missti jafnvægið
og var næstum kominn út af
sinni braut og við það fóru tveir
hlauparar framúr honum. „Ég
náði að halda mér inni á braut-
inni með þvi að rétta upp aðra
höndina til að halda jafnvægi.
1.500 metrunum og
missti þar með af gullinu.
Hann hefur verið bestur
í greininni á yfírstandandi
tímabili, á þrjá bestu tíma
ársins, og í fyrra vann
hann m.a. Morceli á síð-
asta stigamótinu. Hann á
heimsmetin innanhúss
bæði í míluhlaupi og
1.500 metra hlaupi. Besti
tími hans í ár er frá því
á móti í Stokkhólmi í síð-
asta mánuði er hann hljóp
á 3.29,30 mín.
Reuter
HICHAM El Guerroui frá Marokkó fagnar hér öruggum sigrl
(1.500 metra hlauplnu (Aþenu (gear. Hann er nú óumdellan-
lega besti mllllvegalengdahlaupari helms.
Johnson
ánægður
HLAUPARINN mikli, Michael
Johnson frá Bandaríkjunum,
fékk gullpening sinn fyrir 400
metra hlaupið í gær, en þá var
verðlaunaafhendingin á
Ólympíuleikvanginum í Aþenu
og völlurinn svo gott sem troð-
fullur, tæplega 80.000 áhorf-
endur. Það var mikið klappað
fyrir Johnson og hann hafði
greinilega gaman af því, brosti
út að eyrum og sagði á örstutt-
um blaðamannafundi á eftir
að sér hefði Uðið geysilega
vel. „Ég hefði átt að keppa í
fleiri greinum, það er svo gam-
anaðvinna."
Týndi skó
PATRICK Konchellah frá
Kenýa sigraði í fyrri undanriðl-
iiium (800 m hlaupinu. „Ég
missti annan skóinn minn um
leið og bjallan gaU tíl mekis um
að einn hringur væri eftír. Von-
andi finnur einhver hann og sá
er vinsamlegast beðinn um að
skila honum. Ég á aðra skó en
þessir eru langf(jótastír.“
Perec ekki
sigurviss
MAREE-Jose Perec, Ólympíu-
meistari í 200 og 400 metra
hlaupi frá Frakklandi, telur
möguleika sína á sigri i 200
metra hlaupinu ekki mikla.
„Það verður að tefjast krafta-
verk ef ég næ að vinna til verð-
launa í 200 metra hlaupinu hér
í Aþenu. Ég hefði liklega átt
að sitja heima, en það hefði
verið erfitt," sagði Perec, sem
hljóp á 22,87 sek. í undanrás-
unum.
Með mynd af syninum
Javier Sotomayor frá Kúbu sigraði
með glæsibrag í hástökkinu í
gærkvöldi, vippaði sér yfir 2,37
metra og bætti þar með árangur
sinn á árinu um þijá sentimetra og
besta árangur ársins um einn. „Ég
hef verið meiddur í nokkurn tima
og því var sigurinn kærkominn, sér-
staklega eftir það sem gerðist á
Ólympíuleikunum. Sigurinn tileinka
ég öllum sem gleymdu mér ekki á
meðan illa gekk og syni mínum, en
ég var með mynd af honum í tösk-
unni allan tímann," sagði Sotomayor
eftir sigurinn.
Keppnin var spennandi. Sotomay-
or var öraggur, stökk yfír 2,37 í
annarri tilraun og Artur Partyka frá
Póllandi, sem varð annar, felldi þá
hæð tvívegis og ákvað að nota þriðja
skiptið til að reyna við 2,39. So-
tomayor sleppti 2,39 og reyndi þess
í stað við nýtt leikamet, 2,41 en
hann á sjálfur það gamla, 2,40, sem
hann setti í Stuttgart 1993. Hann
felldi í fyrstu tilraun og veifaði til
áhorfenda og sagðist vera hættur.
Ástralinn Timothy Forsyth, sem
átti besta árangur ársins, 2,36 metra,
varð í þriðja sæti, stökk 2,35 eins
og Partyka en notaði fleiri tilraunir
á 2,29 metra fyrr í keppninni. Norð-
maðurinn Steinar Hoen varð fjórði
með 2,32 metra og missti þar með
af því að verða fyrsti Norðurlandabú-
inn til að komast á pall hér í Aþenu.
Það var hins vegar tugþrautarkapp-
inn Eduard Hamalainen sem það
gerði, varð annar í þrautinni.
Morgunblaðið/Golli
JAVIER Sotomayor, helmsmethafl í hástökki trygglr sér hér slgurinn ( slnnl sérgreln é helms-
melstaramötinu með því aö stökkva yfir 2,37 m og né um lelð besta érangrl érslns (grelnlnnl.
Sotomayor
Fæddur: 13. október 1967, í
Limonar á Kúbu.
Ferill: Heimsmethafí í há-
stökki, 2,45 m sett 1993. Varð
ólympíumeistari 1992 og
heimsmeistari árið eftir, en
hreppti annað sæti á síðasta
heimsmeistaramóti. Hefur
rúmlega tvö hundruð sinnum
stokkið yfír 2,30 m frá 1984.
Átti í meiðslum á hné og ökkla
1995 og 1996 og varð af þeim
sökum aðeins í 11. sæti á
Ólympíuleikunum í fyrra. Var
af ýmsum talinn úr leik á
meðal þeirra bestu vegna þess-
ara þrálátu meiðsla, en afsann-
aði það með sigrinum í gær.