Morgunblaðið - 07.08.1997, Page 6
6 C FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997
GOLF
MORGUNBLAÐIÐ
Myndi nota
„surlyn"
DEANE Beman, fyrrum
framkvæmdastjóri banda-
rísku PGA-mótaraðarinnar,
heimsótti Hogan fyrir nokkr-
um árum og ræddu þeir lengi
saman. „Ef ég væri að spila
í dag, myndi ég nota surlyn-
bolta," sagði Hogan íbygginn
á svip, en surlyn er efni í
hýði golfbolta sem atvinnu-
menn nota helst ekki. Þeir
nota nær eingöngu boita með
balata-hýði, sem stuðlar að
betra gripi boltans á flötun-
um. Beman varð hissa og
spurði: „Af hverju? Til hvers
myndir þú nota surlyn, hr.
Hogan?“ Hann þagði drykk-
langa stund, en sagði síðan:
JÞað er betra.“ Beman hall-
aði sér fram og spurði með
forvitnissvip: „En af hveiju
er það betra, hr. Hogan?“
Aftur kom þögn, en síðan
sagði Hogan: „Ég segi það
ekki.“
Tímasóun
EITT sinn sat Hogan í
ónefndu klúbbhúsi í Banda-
ríkjunum þegar ókunnugur
maður, sem hafði verið að
æfa dágóða stund fyrir utan,
gekk inn. Hann hóf strax að
útskýra fyrir öllum hversu
duglegur hann hefði verið að
æfa sig. Þá sagði Hogan án
þess að lita upp: „Þú hefðir
alveg eins getað verið að gera
Ieikfimiæfingar.“
Þúátt
leik“
HOGAN var ávaUt mjög ein-
beittur á golfveUinum og var
ekki málglaður. Dæmi er um
það að hann hafi ekki sagt
neitt við þann, sem lék með
honum einn hring i ónefndu
stórmóti, nema: „Þú átt Ieik.“
Fyrsti
fuglinn
HOGAN lék eitt sinn með
manni í ráshóp, sem fór holu
i höggi á 12. braut Augusta
National-vaUarins í banda-
rísku meistarakeppninni.
Hogan fékk sjálfur fugl og
sagði síðan við hinn kylfing-
inn, sem var i sjöunda himni:
„Heyrðu, þetta er í fyrsta
skiptí sem ég næ fugli á þess-
ari braut.“
Æfðiþartil
honumblæddi
ENGINN hefur þótt
slá golfboltann
eins vel og Hogan,
að matl Jacks
Nlcklaus. Hogan
var haldlnn gríðar-
legrl fullkomnun-
aráráttu,og sagð-
Ist hafa skemmt
sér konunglega
vlð æflngar.
Einn merkasti kylfíngur sögunnar,
Ben Hogan, lést fyrir rúmri viku.
Edwin Rögnvaldsson kynnti sér
lífshlaup hins hlédræga afreks-
manns, sem ávallt var talinn kald-
lyndur og hrokafullur.
Ben Hogan vann ótrúlegt afrek þegar hann sigr-
aði á opna bandaríska mótinu árið 1950, að-
eins sextán mánuðum eftir bílslys sem varð honum
næstum að bana. Eftir það sögðu læknar að hann
myndi aldrei ganga framar án þess að finna til
mikils sársauka. Hann neitaði að gefast upp og
hafði aldrei leikið betur en þegar hann sigraði á
opna bandaríska mótinu.
Hogan sigraði á 63 mótum atvinnumanna víðs
vegar um heiminn á ferli sínum. Aðeins tveir menn
hafa leikið það eftir, þeir Sam Snead og Jack Nick-
laus. Snead hefur sigrað 81 sinni, en Nicklaus hefur
unnið 70 atvinnumannamót. Hogan er auk þess í
þriðja sæti yfir kylfinga, sem oftast hafa sigrað á
fiórum stærstu mótum hvers árs. Á þeim vettvangi
hefur hann níu sinnum staðið uppi sem sigurveg-
ari, en Nicklaus hefur unnið 18 slík mót og Walter
Hagen ellefu.
William Ben Hogan var 84 ára þegar hann fékk
hjartaáfall föstudaginn 25. júlí sl., en hann hafði
þjáðst af Alzheimer-sjúkdómnum um langt skeið.
Hann hætti keppni snemma á sjöunda áratugnum,
en nokkrir kylfíngar nútímans muna eftir fulikom-
inni sveiflu hans og dularfullri framkomu. „Enginn
hefur getað slegið boltann eins vel og Hogan,“ seg-
ir Jack Nicklaus. „Ég man eftir að hafa leikið tvo
hringi með honum í opna bandaríska mótinu árið
1960. Ég var hissa á því hversu einbeittur hann var
og dáðist að hæfni hans í löngum höggum. Hann
var auk þess haldinn ótrúlegri fullkomnunaráráttu,"
segir hann.
Hogan fæddist í Stephenville í Texasríki hinn 13.
ágúst 1912. Rúmum níu árum síðar stóð hann inni
á jámsmíðaverkstæði föður síns, Chesters, sem dró
upp skotvopn og framdi sjálfsvíg 1 návist sonarins.
Ben og móðir hans, Clara, fluttu þá til Fort Worth,
þar sem drengurinn kynntist golfíþróttinni sem
kylfusveinn á Glen Garden golfvellinum. Hann gerð-
ist atvinnumaður þegar hann var 17 ára.
Æfði þartil honum blæddi
Hogan var mjög hlédrægur og sagði fátt að fyrra
bragði, en hann var sagður æfa sig þar til það blæddi
úr höndum hans. Þegar hann var spurður hvers
vegna hann æfði svona mikið, sagði
hann: „Ég varð að gera það. Svei-
flan mín var svo slæm.“ Hann við-
urkenndi þó að það værí ekki allt
og sumt. „Ég skemmti mér konung-
lega við það,“ sagði hann.
Sjálfur sagðist Hogan aldrei hafa
reynt að slá beint högg. „Ég get
BLACK & DECKER
Opna BLACK & DECKER golfmótið
verður haldið á Kiðjabergsvelli,
sunnudaginn 10. ágúst.
Skráning hefst í golfskálanum,
föstudaginn 8. ágúst eftir kl. 16:00
í síma 486 4495.
Ækfm,K&
WDECKER
sterkur i verki
það ekki og ég trúi ekki að nokkur
maður geti slegið þráðbeint högg.
Slíkt gerist bara fyrir hreina tilvilj-
un,“ sagði hann. Tommy Bolt, sem
lék lengi með Hogan á bandarísku
mótaröðinni, var eitt sinn spurður
um hvor væri betri kylfingur, Hog-
an eða Nicklaus. „Ég hef séð Nick-
laus fylgjast með Hogan við æfmg-
ar. Ég hef aldrei séð Hogan horfa
á Nicklaus æfa sig,“ svaraði Bolt.
Hogan var í hernum um tíma,
en hóf keppni á ný í ágúst 1945.
Eftir það og þangað til að hann
lenti í bílslysinu í febrúar 1949 sigr-
aði hann á alls 37 atvinnumanna-
mótum, þar af tvisvar á PGA-meist-
aramótinu og einu sinni á því opna
bandaríska. Þessi þriggja og hálfs
árs afrakstur Hogans hefði dugað
í níunda sæti yfir sigursælustu at-
vinnumenn allra tíma. Hogan er
auk þess einn fjögurra kylfinga sem
hafa sigrað á öllum fjórum stærstu
mótunum, bandarísku meistara-
keppninni [Masters], opna breska
og bandaríska mótinu og PGA-
meistaramótinu. Hinir þrír eru
Gene Sarazen, Gary Player og Jack
Nicklaus.
Eftir fyrsta sigur sinn á stór-
móti, PGA-mótinu 1946, tók Hogan
þátt í fimmtán öðrum slíkum mót-
um og vann átta þeirra. Árið 1953
tók hann þátt í sex mótum og sigr-
aði í öllum nema einu. Þar á meðal
var bandaríska meistarakeppnin
auk opna breska og bandaríska
mótsins. Engum hefur tekist að
sigra á öllum fjórum stóru mótunum
sama árið, en Hogan tók ekki einu
sinni þátt í síðustu keppninni, PGA-
mótinu, því fætur hans voru ekki
nógu sterkir til að leika 200 brautir
í holukeppni, sem þá var leikin í
PGA-mótinu.
Sannaði að ég gæti enn sigrað
Þegar bifreið Hogans og konu
hans, Valerie, var í þann mund að
skella framan á rútu, sem kom á
miklum hraða á móti þeim, kastaði
hann sér til hliðar yfir Valerie og
bjargaði þannig lífi þeirra beggja,
því vinstri helmingur bifreiðarinnar
kramdist. Aðeins sextán mánuðum
síðar gekk hann sárþjáður 36 holur
á lokadegi opna bandaríska mótsins
og komst í umspil um sigurinn með
einu frægasta höggi golfsögunnar,
þegar hann sló annað höggið á 18.
braut Merion-vallarins með 1 jámi
inn á flöt og einpúttaði. Hogan sigr-
aði í umspilinu við Lloyd Mangrum
og George Fazio daginn eftir. „Sig-
urinn á Merion er mér mikils virði,
því ég sannaði að ég gæti enn sigr-
að,“ sagði Hogan.
Hogan var jafn dularfullur í aug-
um keppinauta sinna á bandarísku
mótaröðinni og fréttamanna. Deane
Beman, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri PGA-mótaraðarinnar, sagði
eitt sinn, að ómögulegt hafi verið
Presslink
að ræða kæruleysislega um daginn
og veginn við Hogan. „Hann starði
venjulega beint í augun á við-
mælanda sínum, líkt og hann væri
að rannsaka heilabú hans,“ sagði
Beman.
Hann fann að nær öllum blaða-
greinum um sig og gafst upp við
að reyna að leiðrétta mistök ýmissa
fréttamanna. Millinafn hans er ekki
Benjamin, eins og ritað hefur verið
í fjölda ára, heldur Ben. Hann
fæddist heldur ekki í Dublin í Tex-
as eins og haldið hefur verið fram.
Hann var einnig talinn örvhentur,
þó að hann sveiflaði kylfunni eins
og rétthentur maður. Sú staðhæf-
ing er einnig röng. „Fyrsta kylfan
sem ég eignaðist var gömul tré-
kylfa fyrir örvhenta," sagði Hogan,
sem ávallt reyndi að segja sem
minnst til að gera fólk enn forvitn-
ara. „Ég held að hann hafi hlegið
að okkur í öll þessi ár,“ sagði Jim
Frank, ritstjóri Golf Magazine. Við-
töl við kappann voru afar sjaldgæf
og Hogan forðaðist eins og heitan
eldinn að ræða við fréttamenn.
„Einhvem tímann vinnur einhver
mál- og heymleysingi golfmót og
þá getið þið ekki skrifað neitt,“
sagði hann. Hogan sagði að honum
væri alveg sama þó fólk teldi hann
kaldlyndan og hrokafullan. „Sumir
skilja bara ekki hæversku. Það vilja
ekki allir vera í sviðsljósinu,“ sagði
hann.