Morgunblaðið - 07.08.1997, Síða 8
Guðrún Arnardóttir ekki sátt við árangurinn
Erbetri
enþetta
GUÐRÚN Arnardóttir úr Ármanni varð fimmta í sínum riðli í
undanúrslitum 400 metra grindahlaupsins á heimsmeistaramót-
inu ífrjálsíþróttum í Aþenu í gærkvöldi. Þrátt fyrir ágætt hlaup
tókst henni ekki að komast í úrslit og láta drauminn rætast. Hún
hljóp á 54,93 sekúndum en næsta stúlka á undan henni, Andrea
Blackett frá Barbados, hljóp á 54,74 sekúndum og setti lands-
met. Guðrún hef ur hlaupið á 54,85 í ár og íslandsmetið hennar
er 54,81. „Það er kannske of mikið að segja að þetta hafi alit
breyst í martröð, en ég er mjög vonsvikin," sagði Guðrún í sam-
tali við Morgunblaðð eftir hlaupið.
Allt um
leikina,
liðin og
leikmenn-
ina.
^ftir lélegt hlaup hjá Guðrúnu í
Skúli U.
Sveinsson
skrifar frá
Aþenu
fyrstu umferð og hún rétt kom-
ist í undanúrslit var ekki laust við
að hjartað slægi að-
eins hraðar af spenn-
ingi þegar verið var
að kynna keppendur.
Guðrún hljóp á sjö-
undu og næstystu brautinni. Fyrir
framan hana á 8. braut var Anna
Knoroz frá Rússlandi, en enginn var
á þeirri sjöttu en þar átti Sally Gunn-
ell frá Bretlandi að vera en hún
hætti við vegna meiðsla að því að
sagt var. Guðrún byijaði mjög vel,
var önnur úr blokkunum og var fyrst
yfir fyrstu grind eftir að hafa farið
framúr þeirri rússnesku. Þegar stúlk-
umar fóru yfir þriðju grind var Guð-
rún enn fyrst og útlitið bara nokkuð
bjart, en þegar þær komu í síðustu
beygjuna var hún komin í fimmta
sæti og þegar síðasta grind var að
baki hóf hún ágætan endasprett en
náði ekki stúlkunni frá Barbados og
draumurinn um úrslitahlaupið var
úti. „Ég er mjög ánægð með að kom-
ast í úrslit og að setja met. Ég vissi
af henni (Guðrúnu) fyrir aftan mig
og gaf allt sem ég átti til að verða
á undan henni,“ sagði Blackett
ánægð eftir hlaupið.
Aðeins ein stúlka í riðli Guðrúnar
var með lakari tíma í ár þannig að
ef til vill má segja að það hafi verið
óskhyggja að hún kæmist í úrslit.
„Nei, alls ekki. Ég hélt ég væri betri
en þetta og það er ekkert mikil-
mennskubijálæði. Stelpan sem var á
undan mér hljóp á 54,74 og það er
tími sem ég á alveg að geta hlaupið
á, en því miður tókst það ekki í dag.
írska stúlkan, (Susan Smith) hefur
bætt sig helling hér, en ég hef eigin-
lega alltaf unnið hana. Hún hljóp á
54,63 í undanrásunum og hvers
vegna á ég ekki að geta það? Það
er ekkert óraunhæft. Eg er þó ánægð
með að ég reyndi virkilega. Hlaupið
í fyrstu umferðinni var lélegt og ég
man hreinlega ekki eftir því,“ sagði
Guðrún og brosti út í annað.
Guðrún sagði að nú yrði hún og
Norbert Elliott þjálfarinn hennar að
fara yfir undirþúninginn. „Ég geri
mér ekki alveg grein fyrir hvað hefur
mistekist hjá okkur, kannski eitthvað
í vetur eða í sumar, en ég hef verið
að bæta mig bæði í 200 og 400
metra hlaupi. Ég veit ekki hvað það
er sem þarf til að bæta mig í grind-
Reuter
GUÐRÚN Arnardóttlr á hlaupabrautlnnl (400 m grindahlaupl
á heimsmelstaramótlnu í Aþenu í gær.
inni fyrst það gerðist ekki núna. Ég
hef þann galla að mér líður best þeg-
ar ég er með einhvern fyrir framan
mig til að elta. Ég þyrfti að athuga
hvort ekki megi vera með gulrót
þannig að ég geti elt hana. Flestum
finnst vont að hlaupa á innstu braut
en ég vildi frekar vera þar en á þeim
ystu.
A Olympíuleikunum fannst mér
vera einn ákveðinn punktur þar sem
mér mistókst, en þegar ég fer yfir
hlaupið núna er ekki um það að ræða.
Ég verð að komast yfir þennan galla
með að þurfa alltaf að elta einhvem.
Auðvitað ætlar maður ekki að hægja
á sér þegar maður er fremstur en
þetta er eitthvað í undirmeðvitund-
inni. Það má kannski segja að ég
hafi verið heppin að komast í undan-
úrslitin og mér leið alls ekki vel í
gærkvöldi (fyrrakvöld) eftir hlaupið,
en sem betur fer náði Norbert að
byggja mig upp fyrir hlaupið í dag
og ég er mjög þakklát fyiir að fá
að hafa hann hér með mér. Eftir
Ólympíuleikana í fyrra var ég alveg
miður mín og mér hefur aldrei liðið
eins illa og þá, ég fékk algjört sjpkk.
Núna líður mér mun skárr en það
er samt erfitt að sætta sig við að
hafa ekki náð lengra. En maður verð-
ur að líta á það sem gott er og reyna
að sætta sig við að vera í níunda
sæti og ætli kvöldið fari ekki í það.
Ég var talsvert trekkt fyrir hiaupið
en hugsaði með mér að ég væri þó
altént í undanúrslitum og það væru
margar stelpur sem vildu vera í mín-
um sporum," sagði Guðrún.
Hún vildi koma á framfæri þakk-
læti fyrir að fá að vera á heimsmeist-
aramótinu. „Það er auðvitað hægt
að komast á svona mót án þess að
fá styrki en til langs tíma litið er það
erfítt. Afreksmannasjóður bjargaði
því að við Jón Arnar erum hér og
aðrir styrktaraðilar hafa einnig bjarg-
að miklu. Peningar láta okkur ekki
vinna eða komast í úrslit en þeir
gera okkur kleift að vera á þeim stöð-
um þar sem slíkt gæti gerst. Við Jón
Arnar erum orðin svo „gömul" og
höfum ýmis önnur áhugamál sem við
værum alveg tilbúin að snúa okkur
að. Ég var til dæmis alveg til í að
hætta eftir Ólympíuieikana, en þegar
ljóst var að ég myndi fá styrk til að
halda áfram tímdi ég því ekki.“ Þú
ert búin að vera nokkuð lengi að,
ertu ekkert orðin leið á að æfa svona
mikið?
„Já, ég á tíu ára A-landsliðsaf-
mæli í ár þannig að ég hef verið
dálítinn tíma að, en ég er ekki leið
á að æfa. Auðvitað koma tímar þar
sem maður verður dálítið leiður en
ég hef fengið svo rosalega mikið út
úr íþróttum. Keppt víða, farið í há-
skóla vegna þeirra og kynnst mörg-
um þannig að maður fær ýmislegt
út úr því að vera í íþróttum. Ég er
þannig að mér líður illa ef ég hreyfi
mig ekki og eftir erfiða æfingu líður
mér yfirleitt mjög vel. Nú liggur leið-
in annaðhvort heim til íslands eða á
mót hér í Evrópu, umboðsmaður
minn er að vinna í því núna því það
átti allt að skýrast eftir þetta mót
hvort maður fengi einhvers staðar
inni á móti.“
Þú sagðir við Morgunblaðið eftir
Meistaramótið að þú ættir þér draum
og lofaðir að segja okkur hann eftir
heimsmeistaramótið. Hver var
draumurinn?
„Ææi! Ég verð auðvitað að standa
við það?“ sagði Guðrún með spumar-
svip og þegar blaðamaður kinkaði
kolli hugsaði hún sig aðeins um og
sagði síðan: „Ég ætlaði í úrslit og
hlaupa á 54,4. En nú verður maður
bara að æfa meira fyrst það tókst
ekki. Ég skal gera það einn góðan
veðurdag. Ég skal!“ sagði Guðrún og
af svip hennar að dæma mun hún
gera það.
Sally Gunnell meidd
S ALLY Gunnell frá Bretlandi, fyrrum heims- og Ólympíumeistari,
tók ekki þátt i milliriðlum 400 metra grindahlaupsins i gær vegna
meiðsla. Hún meiddist á fæti í undanrásunum á þriðjudag. Gunn-
ell er 31 árs og lýsti því yfir fyrir HM í Aþenu að mótið yrði síð-
asta alþjóðlega mótið áður en hún legði hlaupaskóna á hilluna.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR / HM í AÞENU