Morgunblaðið - 21.08.1997, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1997
3lfe«gtutl)lafcifc
■ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST
BLAD
Örn bætti sig í 400
metra fjórsundi
ÖBN Arnarson bætti sig um 2,42 sekúndur í
400 metra fjórsundi þegar hann synti á 4.38,19
mín. í undanrásum Evrópumeistaramótsins í 50
m langri laug í Sevilla á Spáni i gær. Þetta er
besti tími íslendings á árinu en Islandsmet Arn-
ars Freys Ólafssonar frá 1994 er 4.33,70.
Órn, sem synti á 4.40,61 á Smáþjóðaleikunum
fyrr í sumar, varð í 21. sæti af 22 keppendum
en átti lakasta tíma keppenda fyrir mótið. Þetta
er aukagrein lýá honum en í dag keppir hann í
200 m baksundi og Eydis Konráðsdóttir i 100 m
baksundi.
Agnes Kovac frá Ungveijalandi setti Evrópu-
met í 200 metra bringusundi kvenna á mótinu
í gær, en hún kom í mark á 2.24,90 min. Hún
átti fyrra metið sjálf, var 2.25,31 mín., sem hún
setti í Búdapest í apríl.
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Maurice Shourot
Einar Þór braut ísinn
eftir495 mínútur án marks
Helgi var
ekki öfunds-
verður af
hlutskipti
sínu
ÉG ákvað að draga mig aftar á
völlinn í seinni hálfleik, eftir að
hafa verið með mann á mér í fyrri
hálfleik - reyna að komast meira
inn í leikinn, semtókst," sagði
Arnór Guðjohnsen eftir sigurinn
á liði Leichtenstein í gær. Hann
sagðist skilja hvernig Helga Sig-
urðssyni leið, sem lék í fremstu
víglínu. „Helgi gat ekki leyft sér
að draga sig aftur eins og ég -
hann átti að vera fremstur. Ég
veit alveg hvernig það er að leika
fremstur með mann á sér - hef
oft verið í hlutverki Helga. Það
er ekki auðvelt að leika þannig í
níutíu mínútur. Helgi var ekki
öfundsverður. Það mikilvægasta
við leikinn hér var að við komum
strax mjög ákveðnir til leiks, tók-
um ieikinn strax í okkar hendur
og stjórnuðum honum. Það er
ekki á hverjum degi sem við fáum
þann munað upp í hendurnar. Ég
ætla ekki að vera með neinar yfir-
lýsingar, en leikur okkar er á
baíavegi - liðsheildin var mjög
góð,“ sagði Arnór, sem lék að
sjálfsögðu í grænu skónum sem
hann notaði í leik með Örebro á
dögunum er hann gerði tvö mörk.
Vangaveltur hafa verið uppi um
að Arnór gerist þjálfari hjá
sænska liðinu. „Ég er ekki tilbú-
inn til að þjálfa strax og þá allra
síst í Svíþjóð. Það segi ég vegna
þess að ég ekki hættur að spila,
en þegar ég læt draum minn um
að þjálfa rætast verður það á Is-
landi," sagði hann.
Yfirgáfu
svæðið
strax
að voru liðnar 495 mínútur án
þess að landsliðið næði að
skora mark í undankeppni HM, þeg-
ar Einar Þór Daníelsson setti knött-
inn í netið hjá Liechtenstein á 28.
mín. íslendingar höfðu aðeins náð
að skora eitt mark í undankeppninni
- það gerði Arnór Guðjohnsen gegn
Makedóníu á Laugardalsvellinum 1.
júní 1996.
„Það var ekki leiðinlegt að fyrsta
iandsliðsmark mitt skyldi vera fyrsta
mark okkar hér. Ég var á réttum
stað þegar góð sending kom frá
Rúnari - setti knöttinn í hliðarnetið.
Maður þarf ekki alltaf að spyrna fast
til að skora, heldur er aðalatiiðið að
ná að stýra knettinum rétta leið. Það
var langt síðan við skoruðum og það
var ánægulegt fyrir mig að geta brot-
ið ísinn Við komum grimmir til leiks
allir sem einn og lögðum allt sem við
áttum í leikinn og uppskáruni eftir
því. Við vorum miklu betri - versti
andstæðingur okkar var hitinn, sem
var hrikalegur."
Tveir leikmenn KR-inga skoruðu
mörk hér í Liechtenstein, Einar Þór
og Brynjar Gunnarsson. „Næsta ut-
anlandsferð okkar verður til Krítar
þar sem við KR-ingar leikum síðari
leikinn í Evrópukeppninni. Vonandi
náum við að skora þar;“ sagði Einar
Þór. Hin tvö mörk Islands gerðu
þeir Sigurður Jónsson og Tryggvi
Guðmundsson.
íslenska liðið lék allt vel og allir
lögðust á eitt um að gera sigurinn
að veruleika. A myndinni má sjá
Lárus Orra Sigurðsson í harðri bar-
áttu við besta rnann Lichtenstein,
fyrirliðann Marió Fríck, en hann leik-
ur með Basel í 1. deildinni í Sviss.
Frick er eini maðurinn í landsliði
Lichtenstein sem leikur í 1. deildinni
í Sviss, hinir leika með liðum í Licht-
enstein sem taka þátt í þriðju deild-
arkeppninni í Sviss.
ÞAÐ voru snar handtök hjá ís-
lenska landsliðshópnum eftir
leikinn gegn Liechtenstein -
hópurinn yfirgaf landið strax
eftir leikinn og hélt til Mövenpick
Hotel við flugvöllinn í Ziirich í
Sviss, þar sem liðið dvaldist í
nótt. Þeir leiknienn sem héldu
til ísiands fóru til Kaupmanna-
hafnar kl. 7.50 og þaðan til Kefla-
víkurflugvallar, þar sem lent
verður um hádegi.
KIMATTSPYRNA: BIRKIR KRISTIIMSSOIM MARKVÖRÐUR Á FÖRUM FRÁ BRAIMIM / C8