Morgunblaðið - 21.08.1997, Side 8
KNATTSPYRNA
NÝ sýndarveruleikatækni þykir renna stoðum undir að markið sem Hurst gerði í úrslitaleik HM 1966 hafi verið gilt.
Mark Geoffs Hursts
varlöglegt
BRESKA sjónvarpsstöðin Sky
hyggst styðjast við svokallaðan
sýndarveruleika við lýsingar á
knattspyrnuleikjum á Englandi
í vetur, en þessi tækni gerir
kleift að skoða ýmis atvik í
þrívídd, frá hvaða sjónarhorni
sem er, eftir að þau eiga sér
stað.
Með þessu má útkljá mörg
deilumál sem upp koma í kjöl-
far vafasamra dóma, t.d. hvort
leikmaður er rangstæður eður
ei, hvort varnarveggur stendur
níu metra frá knettinum í auka-
spyrnum eða hvort leikmaður
er í rauninni felldur ef dæmd
er vítaspyrna.
Það sem mörgum þykir þó
jafnvel enn tilkomumeira er að
með sýndarveruleikanum má
færa sum af umdeildustu atvik-
um knattspyrnusögunnar í nýj-
an búning og með mun meiri
nákvæmni en nokkurn tímann
áður segja til um hvað gerðist
í raun og veru.
Sem dæmi má nefna að sýnd-
arveruleikinn rennir sterkum
stoðum undir að markið um-
deilda sem Geoff Hurst skoraði
fyrir Englendinga á móti Þjóð-
veijum í úrslitaleik heimsmeist-
aramótsins árið 1966 hafi í raun
verið gott og gilt. Rússneski
línuvörðurinn, sem skar úr um
að knötturinn hefði farið yfir
marklínuna, hefur því líklega
haft rétt fyrir sér allan timann
og ætti nú loks, eftir 31 ár, að
geta fengið uppreisn æru.
Enn sem komið er verður þó
ekki hægt að miðla upplýsingum
sýndarveruleikans til dómara
og aðstoðardómara um leið og
hin ýmsu atvik eiga sér stað og
má því búast við að enn um sinn
haldi þeir svartklæddu áfram
að gera mistök sem sett geta
stórt strik í reikning leikja.
Birkir á förum frá Brann
BiRKIR Kristinsson, mark-
vörður Brann, er á förum frá
norska félaginu. Hann hefur
ekki leikið með aðalliði Brann
síðan hann lék á móti PSV
Eindhoven í Evrópukeppninni
31. október ífyrra. „Það er
Ijóst að ég verð ekki hjá Brann
nema fram á haustið, eða
þangað til samningur minn við
félagið rennur út. Eg sé ekki
neina framtíð fyrir mig hér.
Eftir að ég náði mér af meiðsl-
unum í vor hef ég aðeins leik-
ið með varaliðinu en annars
setið á varamannabekknum
hjá aðalliðinu," sagði Birkir.
Kjell Tennford, þjálfari Brann,
segir í viðtali við Bergens
Tidende í liðinni viku að hann þurfi
að kaupa minnst fjóra nýja leik-
menn fyrir næstu leiktíð, þar á
meðal markvörð. Hann hefur þegar
sýnt áhuga á að fá Rohnny Wesdad
markvörð Bodö/Glimt. Þannig að
Birkir er ekki inni í myndinni fyrir
næstu leiktíð.
Ekkert tækifæri
Birkir fór til Brann í Bergen
frá Fram í desember 1995. Hann
var þá aðalmarkvörður liðsins, en
nú í sumar hefur hann ekki feng-
ið tækifæri þrátt fyrir að liðinu
hafi ekki gengið sem skyldi. „Við
erum á leið út úr Evrópukeppn-
inni, erum úr leik í bikarkeppninni
og í fimmta sæti í deildinni þegar
sjö leikir eru eftir. Þetta er árang-
ur sem menn sætta sig illa við.
Ég er ekki að segja með þessu
að það sé við markvörðinn að sak-
ast, hann hefur staðið sig vel. Ég
er búinn að fá nóg hér hjá Brann
og tel nú dagana þar til ég verð
laus allra mála eftir tvo rnánuði,"
sagði Birkir.
Helst áfram erlendis
Það er ný reynsla fyrir gamla
landsliðsmarkvörðinn að vera
varamaður. „Þessi tími hefur verið
mér mikil og góð reynsla. Það er
erfitt að sætta sig við að vera vara-
maður og það tekur á taugamar.
Nú fer ég á fullu í það skoða mín
mál varðandi framtíðina. Ég hef
áhuga á að vera i knattspyrnunni
einhver ár í viðbót og þá helst er-
lendis. Ef það tekst ekki þá er
bara að fara heim til íslands og
spila þar,“ sagði markvörðurinn.
Birkir segist sakna landsliðsins,
en skildi vel að til hans væri ekki
leitað meðan hann fengi ekki tæki-
færi með aðalliði Brann. Hann
sagði að Guðjón Þórðarson lands-
liðsþjálfari hefði haft samband við
sig þegar hann tók yið landsliðinu
til að fá fréttir. „Ég skil vel að
Guðjón sé ekki að púkka upp á
leikmenn sem komast ekki liðin
hjá sínum félögum. Ég hefði auð-
vitað viljað spila í Liechtenstein en
hugsa hlýtt til liðsins og vona að
það standi sig vel.“
Ágúst Gylfason er einnig í her-
búðum Brann og er með samning
út næsta tímabil. Hann hefur ekki
verið fastamaður í byrjunarliðinu
í sumar, en hefur komið inn á sem
varamaður í flestum þeirra.
Morgunblaðið/Valur
BIRKIR Kristinsson, markvörður Brann, á æfingu fyrir lands-
leik á liðnu ári en hann hefur ekki leikfð með Brann í tæpt ár.
ítíémR
FOLK
■ PETER Benrdsley leikur að öll-
um líkindum sinn fyrsta leik fyrir
Bolton á laugardaginn þegar liðið
mætir Coventry í ensku úrvalsdeild-
inni. Annar nýliði, varnarmaðurinn
Mark Fish frá S-Afríku, gæti einnig
orðið í leikmannahópi Bolton í fyrsta
sinn.
■ HOWARD Kendall, knatt-
spyrnustjóri Everton, er á höttunum
eftir hinum 33 ára gamla Dean
Saunders hjá Nottingham Forest.
Fregnir frá Englandi herma að
Kendall sé reiðubúinn að greiða
500.000 pund (um 58 milljónir ís-
lenskra króna) fyrir Saunders.
■ TONY Dorigo, vamarmaðurinn
leikreyndi hjá Leeds, er að öllum lík-
indum á leið til Tórínó á Ítalíu fyrir
350.000 pund (rúmar 40 milljónir
íslenskra króna).
■ RÉTTARHÓLD yfir 14 stuðn-
ingsmönnum hollenska knattspymu-
félagsins Feyenoord, ákærðum fyrir
að hafa barið stuðningsmann Ajax
til bana í mars síðastliðnum, hófust
í Haarlem í Hollandi í gær. Búist
er við að réttarhöldin standi yfír í
a.m.k. eina viku.
■ SPARTA Prag í Tékklandi hef-
ur augastað á þýska miðvallarleik-
manninum Lothar Matthaus hjá
Bayern Miinchen. Forráðamenn
Spörtu hafa haft samband við þýska
félagið og segjast vongóðir um að
samningar náist.
■ UEFA, knattspyrnusamband
Evrópu, hefur tilnefnt Braga Berg-
mann til þess að dæma í riðlakeppni
EM 16 ára landsliða. Bragi dæmir
í riðli sem haldinn verður í Hollandi
í október, en í honum leika Holland,
Færeyjar og Finnland.
■ ANNAR íslenskur dómari, Krist-
inn Jakobsson, hefur einnig verið
tilnefndur til þess að dæma í EM 16
ára landsliða, en hann dæmir í riðli
í Þýskalandi í nóvember. í þeim riðli
leika Þýskaland, Sviss, ísrael og
Moldavía.
■ ÞÁ hefur knattspymusambandið
tilnefnt Eyjólf Ólafsson til þess að
dæma leik Lettlands og Eistlands
í EM 21 árs landsliða í byijun septem-
ber. Aðstoðardómarar hans í þeim
leik verða Gísli Björgvinsson og
Kári Gunnlaugsson, en fjórði dóm-
ari verður Guðmundur Stefán Mar-
íasson.
■ UJPEST í Ungveijalandi hefur
sagt þjálfara sínum, Laszlo Nagy,
upp störfum. Ástæða uppsagnarinnar
er ósætti Nagys og eins helsta stuðn-
ingsaðila félagsins.
■ JUAN Luis Hemandez frá
Spáni hefur verið ráðinn landsliðs-
þjálfari Kosta Ríka í knattspyrnu.
Hernandez er þriðji iandsliðsþjálf-
arinn á einu ári, en síðastliðinn
fímmtudag var Argentínumannin-
um Horacio Cordero sagt upp störf-
um í kjölfar 0:0 jafnteflis á móti E1
Salvador í undanriðli HM.
■ IRSKA sunddrottningin Michelle
Smith, sem vann til þrennra gullverð-
launa á ÓL í Atlanta í fyrra, hefur
nú gengið í það heilaga og tekið upp
ættamafn eiginmanns síns, De Bruin.
Hún sigraði í 400 metra fjórsundi á
Evrópumeistaramótinu í Sevilla í gær.
■ DE Bruin á hins vegar á hættu
að verða svipt gullverðlaununum og
meinuð frekari þátttaka á mótinu því
hún mætti ekki á fréttamannafund
eftir sigurinn. Öllum keppendum er
skylt að svara spurningum frétta-
manna eftir að þeir ljúka keppni, en
ekki hefur enn verið ákveðið hver
refsing De Bruins verður.
■ JON Sævar Þórðarson fyrrum
landsliðsmaður í fijálsíþróttum og
einn reyndasti fijálsíþróttaþjálfari
landsins hefur verið ráðinn til IR. Jón
mun sjá um þjálfun spretthlaupara
og stökkvara auk þess að hafa um-
sjón með meistaraflokki félagsins.
Jón hefur að undanförnu starfað að
þjálfun norðan heiða.