Morgunblaðið - 16.09.1997, Síða 1

Morgunblaðið - 16.09.1997, Síða 1
• MARKAOURINN • SMIDJAN • LAGN AFRÉTTIR • GRÓDUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • 3ðl0r$ttnMaMh Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 16. september 1997 Blað C Er hausta tekur A haustin blása oft hvassir vindar, sem feykja burt þak- plötum og húshlutum, ef ein- hvers staðar fínnst lát á þaki eða vegg, segir Bjarni Olafsson í þættinum Smiðjan. Það þarf því að líta eftir húsinu, áður en í óefni er komið. / 28 ► Málþing lagnamanna FYRIRHUGAÐ málþing lagnamanna á Egilsstöðum er viðfangsefni Sigurðar Grétars Guðmundssonar í þættinum Lagnafréttir. Víða úti á landi er það hitunarkostnaður, sem brennur einna heitast á húseigendum. / 30 ► Ú T T E K T Eininga- hús f Borgahverfi VIÐ Vættaborgir í Borga- hverfí hefur fyrirtækið Haghús ehf. riðið á vað- ið með hagkvæma gerð ein- ingahúsa. Að sögn Sveinbjarn- ar Sigurðssonar, fram- kvæmdasljóri fyrii*tækisins, komast húsin mjög nálægt því að vera heilsteypt. Húsin eru raðhús og mjög skamman tíma tekur að reisa þau, þar sem húseiningarnar eru fluttar fullfrágengnar með gluggum og gleri á bygg- ingarstað og þeim raðað þar saman. Notuð er svonefnd S- 300 steypa, sem er mun sterk- ari en venjuleg steypa. Húsin eru einangruð að utan og ým- ist múruð á hefðbundinn hátt eða klædd, en það má gera á margvíslegan hátt. Vegna stutts byggingartíma verður byggingarkostnaður minni en ella. En aðal sparn- aðurinn felst þó sennilega í því, að ekki þarf að múra inni í húsinu. Veggirnir koma sléttir frá verksmiðju. „Markaðurinn hefur tekið þessum húsum mjög vel, enda eru þau falleg og verð þeirra afar hagstætt,“ segir Magnús Axelsson, fasteignasali í Lauf- ási, þar sem húsin eru til sölu, en þau eru seld á mismunandi byggingar stigum. „Af húsunum við Vætta- borgir eru ellefu þegar seld og mikill áhugi á markaðnum á þeim tíu liúsum, sem óseld eru.“ / 18 ► íslerizkur byggingar- iðnaður styrkist BYGGINGARFYRIRTÆKIN í landinu finna nú fyrir hægum en jöfnum vexti í greininni eftir lægð undanfarinna ára að sögn Haraldar Sumarliðasonar, formanns Samtaka iðnaðarins. Aukning hefur átt sér stað á öllum sviðum byggingar- og verktakaiðnaðarins, það er íbúða- byggingum, viðhaldi og viðgerðum, hálendisframkvænídum og jarð- vinnu. Ýmis iðnaður, sem er ná- tengdur hefðbundnum byggingar- iðnaði, hefur einnig styrkt sig í sessi. Þessar jákvæðu breytingar koma fram í ýmsum tölulegum staðreynd- um, eins og teikningin hér til hliðar sýnir, en þar er byggt á upplýsing- um frá Þjóðhagsstofnun. Þannig hefur orðið 3% aukning í íbúðar- byggingum, það sem af er þessu ári miðað við sama tíma í fyrra. Að sögn Arnljóts Guðmundsson- ar, formanns Meistarafélags húsa- smiða, er atvinnuástand í bygging- ariðnaði nú mjög gott og jafnvel vöntun á mönnum. Mikill kraftur er í nýbyggingum og umsvif í viðhalds- verkefnum eru líka meiri en áður. „Sala á nýjum íbúðum tók að vaxa síðari hluta sumars og er nú mjög mikil,“ sagði hann. „Eftirspurn eftir íbúðum í Grafarvogi er nú meiri og mér er kunnugt um byggingaraðila, sem hafa legið með íbúðir þar óseld- ar mánuðum saman en hafa náð að selja þær á síðustu vikum. Þetta má sennilega þakka batn- andi samgöngum í Grafai*vogi, en hringvegur hefur m. a. verið lagður þar með sjónum. Nýju hverfin eins og Borgahverfi og Staðahverfi, sem liggja nærri sjó, hafa líka mikið að- dráttarafl fyrir marga.“ Ai-nljótur Guðmundsson kvað verð á nýjum íbúðum aðeins hafa farið hækkandi á höfuðborgarsvæð- inu, en samt væri ekki um neinar umtalsverðar hækkanir að ræða. Lítil eftirspurn væri eftir nýjum einbýlishúsum og verð á þeim enn fyrir neðan kostnaðarverð. Mikil eftirspurn væri hins vegar eftir rað- húsum á einni hæð. Islenskur byggingariðnaður 1994-97 1994 -4 -6 - -8 - -10- -9,9 1996 1997 Byggð íbúðarhús, breyting frá fyrra ári Fjöldi ársverka í byggingariðnaði 11.899 11.263 11.000 1994 1995 1996 1997 Hlutfall ársverka í byggingariðnaði af heiidarfjölda ársverka 9,4%--------------------- 1994 1995 1996 1997 Fasfceigqaicíii Fjáraangs Kynntu þér kosti Fasteignalána Fjárvangs hjá ráðgjöfum Fjárvangs í sima 5 40 50 60 Dæmi um mánaðariegar afboiganir af 1.000.000 kr. Fasteignaláni Fjárvangs’,‘ ^fcxtir (%) 10 ár 15 ár 25 ár 7,0 11.610 8.990 7.070 7,5 11.900 9.270 7.500 8,0 12.100 9.560 7.700 Miðað er við jafngreiðslulán. *Auk verðbóta ÍTTT*^ FJÁRVANGUR LOGCIIT VEITOBREFAFYHIRTÆILI Laugavegi 170,105 Reykjavfk, slmi 540 50 60, slmbréf 540 50 61, www.fjarvangur.is n>

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.