Morgunblaðið - 26.10.1997, Blaðsíða 4
4 E SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÆVINTÝRAHEIMUR BARNSINS INNI Á HEIMILINU
Barnaherbergi gegnir
ólíkum hlutverkum
Að innrétta barnaher-
bergi er spennandi og
skemmtileg iðja. Gam-
an er að gefa ímyndun-
araflinu lausan tauminn
enda er úrvalið af
skreytingum og öðrum
munum í barnaher-
bergi nánast óþrjót-
andi. Um leið verður að
varast að missa sjónar
af því takmarki að upp-
fylla þarfír og óskir
barnsins.
Grundvallaratriði er að barna-
herbergi gegnir fleiri hlutverkum
en venjulegt svefnherbergi. Bam-
inu verður að skapa aðstæður til að
hvílast, leika sér í einrúmi og taka
á móti jafnöldrum í herberginu.
Við hönnun íbúða er eðlilegt að
hafa hugfast að stærri herbergi
gefa meiri möguleika. Foreldrar
yngri bama ættu að velta því fyrir
sér hvort eðlilegra sé að bömin fái
stóra herbergið í íbúðinni.
Afgangshúsgögn algeng
í bamaherbergjum
Enn er því miður mjög algengt
að aðeins séu afgangshúsgögn í
bamaherbergjum. Þrátt fyrir að
sum hver henti húsgögnin ágæt-
lega er eðlilegt að önnur séu keypt
sérstaklega fyrir bamið og verður í
því sambandi að hafa í huga að
böm era ekki 1,70 m að hæð.
Börn þurfa auðvitað fyrst og
fremst, eins og aðrar manneskjur,
að eiga gott rúm. Ágætt er að rúm-
ið sé heldur rúmt svo að hægt sé að
koma fyrir uppáhalds tuskudýrun-
um við höfðagaflinn og dýnu verð-
ur að velja af kostgæfni og í sam-
ræmi við þyngd bamsins.
Kojur koma sér vel ef fleiri em
um sama herbergið því að með því
móti fæst stærra pláss til annarra
nota. Upphækkuð rúm fyrir einn,
svipað koju, hefur notið mikilla
vinsælda í Ikea. Á neðri hæðinni
er ýmist leikpláss eða skrifborð
og hægt er að fá innbyggðan
skáp. Sá möguleiki er fyrir hendi
að fá rennibraut úr rúminu niður
á gólf.
I herbergjum ungra bama er
Gylltar stjörnur
málaðar á loftið
GYLLTU stjörnurnar sem skína
svo skært á dimmbláa loftinu á
meðfylgjandi mynd eru gott
dæmi um það hvað gera má
sjálfur til að lífga upp á bama-
herbergið eða önnur herbergi
heimilisins.
Guðmundur Þorvarðarson
blómaskreytingamaður á heiður-
inn af þessum gylltu stjörnum.
Eftir að hafa málað loftið með
dimmbláum lit teiknaði iiann eina
stjörnu á fremur stóran pappa.
Að því loknu skar hann stjörnuna
út þannig að eftir varð pappi með
síjörnulöguðu gati. Síðan lagði
hann pappann á loftið, eftir að
það var orðið þun1; að sjálfsögðu,
og úðaði í gatið með gylltum úða.
Þar með var komin gyllt stjarna
á lofíð.
Eftir að hafa úðað nokkrar
sljörnur á víð og dreif uin loftið
var kominn þessi fallegi stjömu-
bjarti „himinn“ í herberginu.
Þessa hugmynd væri auðvitað
hægt að útfæra á annan hátt, til
dæmis með því að nota aðra liti
eða annað mynstur í stað stjöm-
unnar.
Mo.
’reunbI»*-mn-stinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ina og dró línu eftir þeim. Að
því loknu var hver bókstafur
handmálaður. Hvort stafróf
var um 10 daga vinna en ár-
angurinn er, eins og sjá má,
mjög skemmtilegur. Skreyt-
ingin hefur haft í för með sér
að Elísabet Rún hefur lært
nánast allt stafrófið. Rúmið er
eftir Erlu Sólveigu.
VEGGFÓÐURSBORÐAR hafa
verið vinsælir i bamaherbergj-
um. (Kistan).
STJÖRNURN
AR setja
skemmtileg-
au svip á her-
bergið.
ERLA Sólveig Óskarsdóttir,
húsgagna- og iðnhönnuður,
lagði á sig töluverða vinnu til
að mála skreytingu í herbergi
dætra sinna Elínar Eddu, 2
ára, og Elísabetar Rúnar, 4
ára. Hún byijaði á því að velja
bókstafi með mismunandi letri
úr leturgerðarbók. Tók lit-
skyggnur af hveijum bókstaf
Handmálað
stafróf
fyrir sig og varpaði með sýn-
ingarvél upp á vegg. Þannig
útbjó hún skapalón fyrir staf-
UPPHÆKKUÐ bamarúm hafa notið mikilla vinsælda í Ikea. Undir
rúminu er gott barnaskrifborð og skápur.
eðlilegt að koma fyrir einum góð-
um stól fyrir fullorðinn. Önnur
húsgögn ættu að vera í stærð
bamsins. Gott er að gera ráð fyrir
litlu borði og nokkmm litlum stól-
um og við skólaaldur verður að
frygg)a aðgang að góðu skrifborði.
Opnar hirslur
Nóg verður að vera af hirslum í
bamaherbergjum og þykir bömum
mjög gaman að sjá leikföngin sín.
Opnar hirslur, t.d. hillur, era því
mjög vinsælar. Yngri böm þurfa
helst að eiga góða leikfangakassa og
geta plastkassar á hjólum hentað
mjög vel. Stundum er hirslum undir
rúmfót eða leikfóng komið fyrir
undir bamarúmum. Rúmgóður
fataskápur, helst með slá, þarf að
vera í herberginu og snagar fyrir
fatnað í hæð bamsins. Gott leik-
pláss þarf að vera á gólfinu og at-
huga þarf sérstaklega að gólfefnið
sé bæði sterkt og mjúkt.
Miðað hefur verið við að 24
gráða stöðugur hiti sé í bamaher-
bergi. Fyrir utan almenna loftlýs-
ingu er eðlilegt að hafa gott lestr-
arljós og þægilegt er að hafa svo-
kallað næturlýsingu. Með því móti
er auðveldara fyrir foreldra að
fylgjast með sofandi barninu. Lítil
næturljós til að stinga í innstungur
er hægt að fá í ljósabúðum.
Barnið haft með í ráðum
Nú era daufir litir fremur en
skærir í tísku. Ef sú leið er farin er
hægt að lífga upp á veggina með
ljósmyndum og teikningum eftir
bamið í fallegum römmum. Eldri
böm vilja frekar hafa veggspjöld
með átrúnaðargoðum sínum á
veggjum.
Hingað til hefur verið algengt að
velja skærari liti í bamaherbergi og
oft veggfóður eða veggfóðursrenn-
ing í stíl. Laghentir foreldrar geta
útbúið sína eigin stensla eða málað
myndir á veggina. Ágætt er að hafa
bömin með í ráðum við val á litum
og mynstrum enda hafa þau oft
ákveðnar skoðanir frá unga aldri.
Ef koma á í veg fyrir ágreining er
hægt að velja liti eða mynstur úr áð-
ur en bamið gefur sína umsögn.
Flest böm hafa gaman að því að
hafa spegil í herberginu sínu og
skemmtilegt getur verið að hafa
krítartöflu á vegg og/eða málning-
artrönur á gólfi. Uppsetning
gluggatjalda er yfirleitt ekki flókin.
Hins vegar er um að gera að velja
fjölbreytt og skemmtileg mynstur.
Athuga þarf öryggi
rafmagnstækj a
Eðlilegt er að böm hafi meira
um umhverfi sitt að segja eftir því
sem þau eldast. T.d. er eðlilegt að
unglingar fái að velja liti á veggi í
sínu herbergi. Foreldram kann að
þykja liturinn í ósamræmi við aðra
liti eða ekki við hæfi af öðram sök-
um en í rauninni er eina leiðin til að
þróa eigin smekk fólgin í því að
prófa sig sjálfur áfram. Unglingar
þurfa betra vinnupláss en yngri
böm og meiri áhersla þarf að vera
á að hægt sé að eiga rólega stund
með vinunum í herberginu.
Ef sjónvarp eða önnur raf-
magnstæki eru í herberginu er
nauðsynlegt að huga sérstaklega
að öryggi hvað rafmagn varðar.
vel, sérstaklega í herbergjum
yngri barnanna.
\
>
>
t
)
l
t
I
I