Morgunblaðið - 26.10.1997, Blaðsíða 20
20 E SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Huga þarf að öryggi barna innan veggja heimilisins
Lítil börn
slasast heima
HIÐ ljúfa skeið hjalandi og friðsæla
ungabarnsins í vöggunni líður fljótt
hjá. Eins og hendi sé veifað er litli
• spekingurinn í vöggunni farinn að
renna sér á annarri rasskinninni,
skríða og að lokum hlaupa um íbúð-
ina. Engu er hlíft enda er ekki hægt
að jafna saman hinum síbreytilega
nýja heimi og gömlum þvældum
leikfóngum. Prátt fyrir að foreldr-
arnir hiaupi sussandi og óandi um
íbúðina tekst bömunum að valda
skemmdum á innanstokksmunum
og sjálfum sér skaða ef ekki er grip-
ið í taumana með viðeigandi ráðstöf-
unum.
Pví miður verða alltof mörg ís-
lensk börn fyrir slysum inni á heim-
ilum. í yngsta aldurshópnum, frá
fæðingu til fjögurra ára, verða flest
(60%) og alvarlegustu slysin inni á
' heimilunum. Langalgengast er að
lítil böm verði fyrir höfuðáverka við
fall, t.d. af skiptiborði eða rúmi.
Varhugavert er að hafa barn í háum
barnastól án beislis enda tekur það
barnið aðeins augnablik að koma
sér uppúr.
Brunaslys alltof algeng
Alltof algengt er að böm brennist
og því miður er brunasvæðið oft
stórt. Einfaldar reglur til að hamla
gegn algengum bmnaslysum felast
, í því að drekka ekki heita drykki
með lítið bam í fanginu og setja
ekki heita drykki á lág borð, t.d.
sófaborð, í seilingarfjarlægð frá
barninu. Kranavatn getur verið var-
hugavert enda þolir húð barna ekki
meira en 55 gráðu heitt vatn. Ef
vatnið er heitara myndast branasár
á húð barnanna.
I eldhúsinu era hættumar við
hvert fótmál og er eldavélin var-
hugaverðust. Böm ættu ekki að
hafa tækifæri til að kveikja á elda-
HLÍF fyrir eldavélar er hægt að nota í tvenns konar tilgangi. Ef elda-
vélin er ekki í notkun er hlifin yfir tökkunum svo börnin kveiki ekki á
eldavélinni. Ef eldavélin er í noktun er hlífínni rennt upp svo börnin
komist ekki að pottum og pönnum.
vél eða toga í potta á eldavélarhellu.
Ef öryggisgrind hefur ekki verið
komið fyrir á eldavélinni er ágætt
að venja sig á að nota fremur aftari
en fremri hellurnar á eldavélinni til
að minnka hættuna á slysum.
Best er að venja sig á að nota að-
eins fáar tegundir af hreinsiefnum
og geyma brúsana alla í sama
skápnum. Skápnum eða öðram
hirslum fyrir eiturefni þarf að loka
með bamalæsingu. Athygli er vakin
á því að grillvökvi er hættulegt efni
og á alls ekki að standa utan dyra
við grillið.
Svaladyr eru spennandi
Best er að hafa böm í góðum
inniskóm eða svokölluðum stjörnu-
sokkum á hálum gólfum, t.d. park-
eti. Innihurðir hafa valdið alvarleg-
um slysum á borð við fmgurmissi
enda lenda lítil börn oft milli stafs
og hurðar. Mikilvægt er að koma í
veg fyrir slys af því tagi með viðeig-
andi öryggisbúnaði.
Eðlilegt er að öryggislæsingar
séu á gluggum og bilið milli glugga-
karms og opins glugga á ekki að
vera lengra en 9 sm. Sama regla
gildir um rimla í handriði og bilið á
milli gólfs og upp í handrið. Ekki er
síður mikilvægt að hafa öryggislæs-
ingar á svaladyrum því litlum börn-
um fínnst spennandi að komast út á
svalir. Slys í framhaldi af slíkum
ævintýram gera sjaldnast boð á
undan sér.
Flest slys á börnum verða þegar
mest er að gera inni á heimilunum
milli kl. 17 og 20 á kvöldin. Gott er
að skapa ákveðna reglu um hvar
lítil börn eru á þeim tíma, t.d. geta
minnstu börnin dundað sér í leik-
grind, aðeins eldri börnum er hægt
að rugga í rólu í eldhúsdyrunum og
enn eldri börnum þykir gaman að
teikna við matborðið.
Ábending til afa
og ömmu!
Að lokum skal minnt á að huga
verður að öryggi barnanna í öllu
nánasta umhverfi. Því má t.d. ekki
gleymast að afí og amma verða að
gera svipaðar öryggisráðstafanir og
foreldrar barnanna inni á sínum
heimilum. Oft eru einmitt mestu
hætturnar hjá eldra fólki, t.d. vegna
lyfja og eiturefna.
Öryggishluti inni á heimili er
hægt að fá í stórmörkuðum, bygg-
ingarvöraverslunum og barnavöru-
verslunum. Nauðsynlegar leiðbein-
ingar er hægt að fá hjá Slysavarna-
félaginu.
Enn meiri verðlækkun
nmo
|Grensásvegi 8, 105 Reykjavík
sími 581 4448
Höfum boðið þessar frábæru gæðainnréttingar á góðu
verði með 20% afslætti.
Nú bjóðum við betur
20%
Bjóðurn fram
til 1. des. 97
Comp Activ
innréttingar
á sérstaklega
góðu verði.
aukaafsláttur fram til 1. des.
MIKILVÆGT er að verja litla
fingur gegn varasömum hurðum
á heimilinu. Hægt er að nota sér-
stakan hurðastoppara eða vefja
handklæði utan um hurðarhún-
ana svo að hurðin lokist ekki.
FYRIR stigaop er nauðsynlegt
að setja öryggishlið til að
hindra að börnin falli niður
stigann.
ÖRYGGISLÆSING er nauðsyn-
leg til að læsa inni hættuleg
efni. Öryggislæsingin er því til
viðbótar gagnleg til að læsa
hnífa og skæri niður í skúffum.
Fyrir heimili
kaffiunnandans.
Kaffivélar frá
Gerðar til að endast
og endast.
Lagar espresso, cappuccino,
ömmusúkkulaði, uppáhellt
kaffi, tevatn og fl og fl.
KAFFIBOÐ ef
símar: 562 10 29 / 899 30 34