Morgunblaðið - 26.10.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.10.1997, Blaðsíða 8
8 E SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ VAL Á UPPSETNINGU OG EFNI FYRIR GLUGGA Gluggatj öld skapa andrúmsloft VIÐ inngöngu í vistarveru blas- ir oftar en ekki við gluggi. Um- gjörðin utan um gluggann veitir því fyrstu tilfinninguna fyrir andrúmsloftinu í herberginu. Rómantísk gluggatjöld gefa t.a.m. til kynna að búast megi við mjúkum línum og hlýlegu andrúmslofti. Gluggatjöld geta hvort heldur sem er fallið inn í eða skorið sig frá annarri inn- réttingu. Sjónrænt geta glugga- tjöld ýkt og dregið úr lofthæð. Flestum ber hins vegar saman um að aðaltOgangur glugga- tjalda sé falinn í því að halda úti óboðinni birtu og augnatilliti. Asdís Jóelsdóttir, fata- og hí- býlahönnuður, segir að við val á uppsetningu og efni glugga- tjalda sé eðlilegt að byi-ja á því að velta fyrír sér spurningum eins og hvað glugginn sé stór, hvar glugginn sé á veggnum og hversu margir gluggar séu í rýminu. Eðlilegt er að huga að sérstöðu rýmisins og öðrum hlutum í rýminu, þ.e. húsgögnum, myndum og gólfefni. Efnisval Við efnisval er ekki síður mikil- vægt að hafa íbúana og notagíldi rýmisins í huga. Gluggatjöld í eld- húsi og barnaherbergi verður KAPPINN er felldur með slétt- um borða. Uppsetningin er því fremur stflhrein og um leið klassísk. Myndar umgjörð um fallegan stofuglugga. t.a.m. að vera auðvelt að þvo. Þvottaleiðbeiningar verður að lesa vandlega og leita svara við því hvort efnið hlaupi eða missi glans í þvotti. Rýmið, lofthæð, áklæði á húsgögnum o.fl. gefur til kynna hvort efnið geti verið smá- eða stórmynstrað, röndótt eða einlitt. Alla ofangi-einda þætti er eðlilegt að hafa í huga við val á uppsetningu á glugga- tjöldum. Efnismagn áætlað Þegar efnismagn er áætlað verður að muna að taka inn í myndina ef efnið er munstrað saman. Rykking fer eftir því hvort efnið er þunnt eða þykkt, smá- eða stórmynstrað. Gluggatjöld eru oft 1-2 cm niður að gólfi eða gluggakistu. Aðrir möguleikar eru að lengj- ur nái 10 cm niður fyrir glugga- kistuna eða niður á miðjan vegginn fyrir neðan gluggakist- una. Kappar, sléttir, rykktir, sniðnir til eða ekki, eru venju- lega 1/3 eða 1/5 af sídd glugga- tjaldalengjunnar. Kapparnir eru faldaðir og oft bryddaðir með skábandi. Fellitjöld geta verið með felli- böndum eða spýtum, ófóðruð eða fóðruð, með kanti að neðan, með spýtu að ofan og neðan o.s.frv. Otaldir eru fylgihlutir á borð við bönd og slaufur. LENGJURNAR eru saumaðar undir kappann svo ekki þurfi nema eina stöng. Með því að stytta kappann í átt að miðju er skapað hlýlegt svip- mót. Gluggaijöldin eru dregin til hliðar með böndum með slaufum. Kappi og bönd eru brydduð með skábandi. EFNIÐ var valið í upphafi og lagði Iínurnar fyrir uppsetninguna. Gluggaljöldin mátti hvorki rykkja né láta falla alveg slétt niður. Lausnin fólst í því að hafa lokufellingu fyrir neðan hvert lykkjuband til að fá hreyfíngu í efnið. Gardínustangirnar eru úr smíðajárni og njóta sín vel þar sem bil er á milli lykkjanna. Diskamottur úr sama efni gera svipmót eldhússins hlýlegra. Bólstrun er löggilt iðngrehi I Meistarafélagi bólstrara eru einungis fagmenn sem óhœtt er að treysta Meistarafélag Bólstrara Merkið tryggir fagleg vinnubrögð Ás-húsgögn Helluhrauni 10 Hfj. 555 0564 Bólstrarinn hf. Hverfisgötu 74 Rvk. 551 5102 Bólstrun Ásgeirs Vorsabæ 12 Rvk. 587 3820 Bólstrun Ásgríms Bergstaðastræti 2 Rvk. 551 6807 Bólstrun Elínborgar Norðurtúni 13 Bst.h. 555 4443 Bólstrun Gunnars Skeifunni 4 Rvk. 581 3344 Bólstrun Jóns Sig. Lyngheiði 4 Hverag. 483 4516 Bólstrun Karls Jónss. Langholtsvegi 82 Rvk. 553 7550 Bólstrun Magnúsar Byggðarholti 27 Mos. 566 6431 Bólstrun Óskars Fjarðarási 23 Rvk. 587 0287 Bólstrun Sveins Iðnbúð 5 Gbæ. 565 7322 Bólstrunin Miðstræti 5 Rvk. 552 1440 Bólsturverk sf. Kleppsmýrarvegi 8 Rvk. 553 6120 Dúna bólstrun Lyngbergi 39b Hfj. 555 3950 Form bólstrun Auðbrekku 29—30 Kóp. 554 4962 GÁ. Húsgögn hf. Ármúla 17a Rvk. 553 9595 HP húsgögn Ármúla 44 Rvk. 553 2035 HS-bólstrun ehf Kirkjuvegi 35 Self. 482 1805 Húsgagnav. Öndvegi Síðumúla 20 Rvk. 553 3200 Kaj Pind hf. Síðumúla 33 Rvk. 568 2340 Ragnar Björnsson hf. Dalshrauni 6 Hfj. 555 0397 Innbú ehf. Smiðjuvöllum 6 Kef. 421 4490 Bólstrun Bjarna Hólabergi 78 Rvk. 557 8020 Valhúsgögn Ármúla 8 Rvk. 581 2275 Á Akureyri Bólstrun Björns H. Sveinss. Hafnarstræti 88 Ak. 462 5322 Bólstrun Einars Guðbj. Reykjasíðu 22, Ak. 462 5553 Svampur og bólstrun Austursíða 2 Ak. 462 5137 UT D ItÁletmn OO ALr 4CO 4 7CO Morgunblaðið/Jón Svavarsson HER hafa gluggatjöldin verið fóðruð til að hægt sé að loka birtuna algjörlega úti. Þau eru fest upp á með sömu aðferð og gluggatjöldin til hægri. Fléttað vatterað band, fest við vegginn með kósum, heldur gardínunni frá glugganum. TIL að hægt yrði að loka alveg eða að hluta fyrir birtuna að ut- an var ákveðið að skipta glugga- tjöldunum. Neðri gluggatjöldin eru fóðruð með einlita efninu og því er hægt að breyta um stfl með því að snúa gluggatjöldun- um við. Gluggatjöldin eru fest með því að setja kósa (stálhring) í efnið og króka í loftið á móti. VANDINN að ofan var stór suðurgluggi með svalaliurð og skágluggar til hliðanna. Efnið þurfti að hleypa birtu í gegnum sig því ekki mátti útiloka alveg birtu í stofunni. Felligluggatjöld úr röndóttu efni urðu fyrir valinu til að teygja á lofthæðinni miðað við lárétta línu gluggans. Ein síð lengja með „kastalaböndum" er höfð fyrir svalahurðinni. Hilla með áfastri gluggatjaldastöng er notuð til að draga úr mikilli lofthæð fyrir ofan gluggann. Franskur rennilás er notaður til að festa gardin- una í skáanum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.