Morgunblaðið - 26.10.1997, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1997 E 11
FLÍSAR HAFA NÁÐ FÖSTUM SESSI HÉR
Með áræði verða
til góðar lausnir
„NÚNA er eiginlega allt í gangi
enda er fólk að verða sífellt áræðn-
ara við að fara eftir eigin sannfær-
ingu og skapa persónulegan stíl.
Með því verða oft til skemmtileg-
ustu og bestu lausnimar," segir
Þórður R. Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Flísabúðarinnar hf.
á Stórhöfða, þegar forvitnast er um
flísatískuna.
Þórður er öllum hnútum kunn-
ugur varðandi flísar enda hefur
hann verslað með flísar í 15 ár.
„Hér áður fyrr var stundum talað
um að flísar væru kaldar. Með
betri einangrun og húshitun hefur
hins vegar smám saman orðið
breyting þar á og flísar hafa náð
fostum sessi hér. Gamlir viðskipta-
vinir koma aftur og aftur til að
kaupa flísar í nýtt húsnæði enda er
reynslan af flísunum yfirleitt mjög
góð. Flísamar em auðveldar í þrif-
um, skapa gott loft og endast með
ólíkindum lengi. Flísanotkun er
löngu hætt að takmarkast við veggi
og gólf í baðherbergjum og eld-
húsi. Fólk hefur farið í að flísa-
leggja alla íbúðina,“ segir Þórður.
„Við höfum hins vegar lagt áherslu
á heildstæða ráðgjöf og ráðleggj-
um því sjaldnast að svo langt sé
gengið. Oft hentar parket eða dúk-
ur betur í einstakar vistarverur.
Ég myndi t.d. persónulega ekki
flísaleggja bamaherbergi.“
ítalir framarlega
Flísar era aðallega fluttar inn frá
Spáni, Portúgal og Italíu. „Lengi
vel stóð engin þjóð Itölum á sporði
í flísahönnun en Spánverjamir
komu ansi sterkir inn fyrir 8 til 9
áram. Nú era ítalimir aftur famir
að sækja i sig veðrið og fyrst og
fremst með gömlum hönnuðum á
borð við Trussardi,“ segir Þórður.
Hann segir að sú almenna þróun
hafi smám saman orðið að flísa-
verksmiðjur hafi fjölgað fram-
leiðslulínum. „Flestar verksmiðjur
framleiða jafnt hefðbundnar
glerjaðar flísar og steyptar „gegn-
heilar“ flísar. Hinar síðamefndu
hafa vegna lágrar rakadrægni ver-
ið vinsælar utanhúss á Islandi.
Verðið hefur verið svo hagstætt að
bílskúrar era jafnvel flísalagðir."
Óþijótandi möguleikar
tengdir mósaík
Helsta nýjimgin í flísum felst að
sögn Þórðar í slípuðum glerjuðum
flísum. „Með slípuninni fæst
háglans, eins og á marmara, á flís-
arnar. Rispuþolið verður geysilega
gott,“ segir hann og tekur fram að
eini gallinn sé að flísamar séu dýr-
ari en venjulegar flísar. „Með
lækkandi verði í ljósi minni fram-
leiðslukostnaðar og samkeppni er
búist við því að aukning verði í al-
mennri heimilisnotkun.“
Þórður segir óhjákvæmilegt að
minnast á mósaík. „Þrátt fyrir
sókn kemur mósaík aldrei til með
að leysa flísar algjörlega af hólmi,“
segir hann og tekur fram að miklir
sflm
MÓSAÍKFLÍSAR í Planet Pulse.
Sumir
spreyta sig
sjálfír á því
að flísaleggja.
1. Límið er dregið á af-
markaðan flöt með
tenntum spaða.
2. Flísunum er þrýst þétt-
ingsfast í h'mið (flísarnar
verða að fljóta í Iíminu).
Plastkrossar á milli
flísanna teknir út.
3. „Fúgað" í raufamar
með fúguspaða, rakur
svampur dreginn yfir og
vel gætt að því að alltaf
sé farið í sömu átt.
möguleikar felist í mósaík. „Gler-
mósaík, gleijað mósaík, gegnheilt
mósaík, úrvalið af blöndum, stærð-
um og litum er algjörlega óþijót-
andi. Útkoman getur orðið mjög
skemmtileg og ég get nefnt að
mósaík frá Bisazza kemur mjög vel
út í líkamsræktarstöðinni Planet
Pulse á Hótel Esju.“
Hvað liti varðar nefnir Þórður
jarðlitina sérstaklega. „Sama í
hvaða útgáfu, gegnheilu, silki-
möttu, háglans, gárað og hijúft,
jarðlitimir halda áfram að sækja
á,“ segir hann.
India hnan vinsæl
Hann nefnir eina línu öðrum
fremur. „Ný lína frá Rex eftir
Trassardi nýtur sívaxandi vin-
sælda. Línan heitir India og bygg-
ist upp af skífuútliti með flögu-
kenndu yfirborði. Vinsældir India
á kostnað hinnar hefðbundu nátt-
úraskífu skýrast fyrst og fremst af
því að auðveldara er að halda flfs-
unum við og leggja þær.“
T
Morgunblaðið/Ami Sæberg
ÞÓRÐUR R. Magnússon segir að flísar séu búnar að skapa sér sess á íslandi.
• •
• • • •
• • • • -
sœtir sofar*
HÚSGAGNALAGERINN
• Smiðjuvegi 9 • Simi 564 1475*
Forðaðu þér og
þínum frá slvsi
af heita vatninu.
Láttu strax setja
5Ul£P varmaskipti
á neysluvatnskerfið
og lækkaðu þar
með vatnshitann.
Þér líður betur
á eftir!
Þú færð allt sem til þarf hjá okkur,
við gefum þér góð ráð. „
= HÉÐINN =
VERSLUN
SEUAVEGI2 S(MI 562 4260
Komdu í Casa
Borðstofuhúsgögn
Mörkinni 3, simi 588 0640, netfang casa@islandia.is