Morgunblaðið - 26.10.1997, Side 17

Morgunblaðið - 26.10.1997, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1997 E 17 I I I i í 1 .11 VICTOR Munos á verkstæði sínu sem hann hefur nýverið opnað, en þar gerir hann m.a. við gömul húsgögn og styttur. Morgunblaðið/Ásdís Gamlir munir gerðir upp Laugalæk 4 - 2 588 5844 MEÐ auknum vinsældum gamalla húsgagna hefur færst í vöxt að fólk geri upp gamla muni sem til dæmis amma eða jafnvel langamma áttu. Þessir munir hafa því gjarnan til- finningalegt gildi og geta jafnframt átt mikinn þátt í því að prýða heim- ilið. Victor Munos handverksmað- ur, sem hefur í mörg ár m.a. unnið að því að gera upp gömul húsgögn og styttur, segir að sem betur fer sé fólk farið að varðveita gamla muni og gera þá upp í stað þess að fleygja þeim eða láta þá grotna í geymslunni. Honum fínnst þó mik- il vægt að þegar gamlir munir séu gerður upp að þeir séu látnir halda MIKILVÆGT ER ÞEGAR GAMLIR MUNIR ERU GERÐ- UR UPP AÐ ÞEIR SÉU LÁTN IR HALDA SÍNUM GAMLA „KARAKTER" sínum gamla „karakter". Sé til dæmis gamall rokkur gerður upp, sem hefur slitið fótstigi eftir margra ára notkun, eigi ekki að smíða nýtt fótstigi heldur hreinsa og pússa það gamla upp þannig að það líti betur út en sýni samt að það hafí verið notað. Victor, sem nýverið hefur opnað handverkstæði, er tilbúinn til að gefa lesendum Innan veggja heim- ilisins ráð um það hvernig best sé að ná málningu af gömlum viðar- hlut. Aður en lengra er haldið vill Victor hins vegar taka fram mikil- vægi þess að notaðir séu gúmmí- hanskar á meðan unnið sé að því að ná málningu af húsgagninu og að það sé gert í rými þar sem lofti vel um. Ennfremur segir hann að betra sé að vera í fötum sem megi eyðileggjast. Aðferð til að ná málningu af viðarhúsgögnum Til þess að ná málningu eða lakki af gömlum húgögnum rnælir Victor með því að notaður sé málningar- uppleysir frekar en vítissódi. „Vítis- sódi sest í viðinn og getur eyðilagt trefjar viðsins ef hann er ekki blandaður í réttum hlutföllum auk þess sem þarf að stoppa ætinguna með edild,“ að sögn Victors. Áður en hafist er handa skal eins og áður segir vera á vel loftræstu svæði og leggja nokkur lög af dagblöðum á gólfíð til að eyðileggja ekki gólfefnið. Berið lakkeyði á lít- ið svæði á hlutnum, en ekki reyna að lakkeyða td. heila kommóðu í einu. Hafíð í huga að efnin, sem notuð eru, eru hættuleg heilsu manna og varast ber að fá þau á húð eða í augu. Nauðsynlegt er að hafa vatn við hendina ef efnið kæmist í snertingu við húð. Athug- ið einnig að nota allan tímann sýru- helda gúmmíhanska. Penslið eina umferð yfir og bíðið í um það bil 5 til 10 mínútur. Setjið þá aðra umferð, vel blauta, og bíðið í 20 mínútur. Skafið síðan málningu eða lakk af með málningarspaða. Einnig er hægt að nota stáluÚ eða tannbursta til þess að ná málningu af á þeim stöðum þar sem málning- arspaði nær ekki til. Hreinsið síðan svæðið vel með klút vættum úr terpentínu (White sprit). Ef viður er ekki spónlagður er hægt að nota vatn til hreinsunar. Þegar búið er að hreinsa alla málningu eða lakk af hlutnum skal hann látinn þorna í 24 tíma. Síðan er pússað yfir með sandpappír (grófleiki 120-320) fyrst grófari svo fínpússað með fínni áferð. Pússið alltaf eftir trefjastefnu viðsins (ekki þvert á æðarnar). Að þvi loknu er hvers og eins að ákveða hvort viður er bæsaður. Til þess er betra að velja lakk sem er auðvelt í meðforum. Td. oh'u, úreth- an eða vatnslakk (sellulósa lakk er mjög erfitt í meðfórum). „Ég mæli með að bera þrjár umferðir af lakki og pússa á milU með 1000 grófleika af sandpappír," segir Victor að síð- ustu. PíluGluggatjöld Suðurlandsbraut 16 sími 568 3633 Allt vetur gerst í rúminu! -gottað hægtskuii vera ° ° ...........—— ab pvo afþví í vél!* Gail flísar I Stórhöföa 17, vSð GuUInbrú, sími 567 4844 BILSKURSHURÐIR HPJjjiwia oooo ISVAL-BOkCA\ r rl r. I tOI OABAKKA 9. 1 1Hl YK.IAVIK SIMI 8/ ‘.i0 | AX 98/ 8/íil Mest notaða húsgagn heimilisins verður að þola margt. Því er rétt að œtlast til mikils af dýnunni í rúminu. T.d. verður dýnan að geta veitt burtu raka sem að berst í hana úr líkamanum á hverri nóttu - ogþar getur vel verið um að mða nokkur hundruð lítra á ári:* Gott að hœgt skuli vera að takaytra byrðið af Wonderland dýnu ogþvo í vél við 60° hita og setja það síðan í þurrkara! Kynnstu Wonderland dýnunni af eigin raun nú! Leitið nánari upplýsinga ! 'PSÁ ' . Skeifunni 6 108 Reykjavík Sími 568 7733, Fax 568 7740 epcil

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.