Morgunblaðið - 28.10.1997, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER1997 B 3
ÍÞRÓTTIR
KORFUKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA
Stórsigur
Grindavík-
urstúlkna
Auðveldur sigur Grindavíkur-
stúlkna gegn vanmáttugu liði
Breiðabliks varð staðreynd, 112:24.
Ljóst var hvert
Garöar Páll stefndi strax á
Vignisson fyrstu andartökum
skrífar frá leiksins. Grindavík-
Gríndavfk urstúlkur höfðu náð
46 stiga forskoti í hálfleik, 60:14.
Allir leikmenn Grindavíkur spiluðu
af krafti og áttu flestar góðan leik
þótt mótspyrnan væri ekki mikil.
Mikill munur var á liðunum tveimur
og Breiðabliksstúlkur áttu aldrei
möguleika eins og tölumar gefa til
kynna. Það sem stendur uppúr eft-
ir leikinn var hve vel Grindvíkingum
tókst að halda einbeitingunni.
Stundum hafa lið fallið í þá gryfju
að spila illa þegar mótspyrnan er
lítil, en Grindavík spilaði vel allan
tímann þrátt fyrir þessa miklu yfir-
burði.
KRsigraöiÍR
KR vann ÍR 66:52 í íþróttahúsi
Seljaskóla á laugardag og er enn
ósigrað í deildinni. Staðan í hálfleik
var 32:22. Hanna Kjartansdóttir fór
fyrir KR og gerði 20 stig, Guðbjörg
Norðfjörð kom næst með 16. Þór-
unn Bjarnadóttir var stigahæst ÍR-
inga með 13 stig og Gunnur Ósk
Bjarnadóttir kom næst með 12. Hið
unga og efnilega lið ÍR kom KR-
ingum á óvart með mikilli baráttu
og vel skipulögðum varnarleik. Slök
vítahittni hjá IR gerði það að verk-
um að munurinn var ekki minni.
■ LÚÐVÍK Björnsson úr Garðin-
um varð í 6. sæti í +125 kg flokki
í yfir 50 ára flokki á heimsmeistara-
móti öldunga sem fram fór í Ung-
verjalandi um síðustu helgi. Lúð-
vík setti íslandsmet öldunga í hné-
beygju er hann lyfti 187,5 kg. Þá
lyfti hann 150 kg í bekkpressu og
200 kg í réttstöðulyftu eða samtals
537,5 kg.
■ FEYENOORD er tilbúið að
kaupa hollenska landsliðsmanninn
Jordi Cruyff frá Man. Utd. „Jordi
er góður leikmaður, sem við höfum
áhuga á,“ sagði Jorie van der
Herik, stjómarformaður Feye-
noord.
■ BRYAN Hamilton, landsliðs-
þjálfara N-írlands, hefur verið sagt
upp störfum. Undir hans stjóm
unnu N-írar átta af 31 landsleik
og em í 75. sæti á styrkleikalista
FIFA.
■ EMMANUEL Ammunike ní-
geríski miðvallarleikmaðurinn hjá
Barcelona verður að fara í upp-
skurð á vinstra hné og verður af
þeim sökum úr leik í nokkra mán-
uði, að sögn talsmanns félagsins.
Ammunike hefur ekki leikið með
Barcelona á yfirstandandi leiktíð.
■ JOSE Caminero leikmaður At-
hletico Madrid og spænska lands-
liðsins verður frá keppni næstu
þijár vikur vegna meiðsla í hægri
fæti. Hann meiddist í leik gegn
Espanyol um liðna helgi.
■ KRÓATÍSKA landsliðið í knatt-
spymu gæti orðið án tveggja af
sínum sterkustu leikmönnum,
þeirra Alen Boksics og Roberts
Prosinecki, í mikilvægum leikjum
gegn Úkraínu sem standa fyrir
dyrum og veita sigurliðinu rétt til
þess að leika úrslitakeppni HM á
næsta ári. Boksic meiddist á hægri
fæti í leik með Lazio um helgina
en félagi hans er meiddur á hné.
Yfirlýsing frá stjórn körfuknattleiksdeildar Breiðabliks
Blikar hætta keppni
Stjórn körfuknattleiksdeildar
Breiðabliks hefur í samráði
við leikmenn meistaraflokks
kvenna ákveðið að draga flokkinn
út úr keppni í 1. deild kvenna
íslandsmóts KKÍ. Þessi ákvörðun
stjórnarinnar kemur í kjölfar mik-
illa erfiðleika sem flokkurinn hef-
ur átt í síðustu misseri eða allt
frá haustinu 1996, en stóráföll í
tveimur af síðustu þremur leikjum
flokksins em þess valdandi að
þessi ákvörðun er tekin nú.
Ástæðulaust er að mati stjórnar-
innar að skaða sjálfsvirðingu og
þroska stúlknanna með áfram-
haldandi þátttöku í mótinu.
Það dylst engum sem fylgist
með íslenskum körfuknattleik að
kvennakarfa á íslandi er í mikilli
kreppu. Aðeins sex lið tilkynntu
þátttöku í 1. deild kvenna fyrir
yfírstandandi tímabil. Fjögur
þeirra em áberandi sterkust og
milli þeirra mun keppni um ís-
landsmeistaratitilinn standa. Í
þeirri keppni ríður á að vinna
veikari liðin með sem mestum
mun. Fórnarlömbin þurfa að þola
hverja niðurlæginguna eftir aðra
með þeim afleiðingum að sjálfs-
virðing þeirra og þroski sem
íþróttamanna þverr. Flestir leik-
menn meistaraflokks kvenna hjá
Breiðabliks eru mjög ungir að
árum og augljóst að þessar að-
stæður verða þeim ekki til góðs.
Þessi staða í kvennakörfunni
hlýtur að valda forráðamönnum
íslensks kröfuknattleiks áhyggj-
um. Það er því áskorun stjórnar
körfuknattleiksdeildar Breiða-
bliks að Körfuknattleikssamband
Íslands hefji þegar í stað mark-
vissar aðgerðir til að bæta stöðu
kvenna í kröfuknattleik hér á
landi. Körfuknattleiksdeild
Breiðabliks mun leggja sitt af
mörkum til að efla þátttöku
kvenna í kröfuknattleik. Iðkend-
um í yngstu stúlknaflokkunum fer
fjölgandi hjá félaginu og það er
einlægur ásetningur stjórnar
deildarinnar að byggja upp nýjan
meistaraflokk sem fyrst á þeim
grunni sem fyrir er.
SKIÐI / HEIMSBIKARKEPPNIN
Reuters
MICHAEL von Griinlgen gaf tónlnn með því að slgra í fyrsta stórsvlgl heimsbikarslns sem
fram fór f Tlgnes í Frakklandl á sunnudag.
KNATTSPYRNA / SVIÞJOÐ
Halmstad meistari
Það var mikil spenna í lokaum-
ferð sænsku knattspymunnar
á sunnudaginn. Halmstad tryggði
sér meistaratitilinn
með öruggum
heimasigri, 3:0, á
botnliði Ljungskile
sem þar með féll
beint niður. Á meðan gerðu meist-
arar Gautaborgar frá í fyrra jafn-
tefli við Helsingborg, en sigur hefði
þó ekki nægt þar eð Halmstad vann.
Sigur Halmstad í deildinni er
Grétar Þór
Eyþórsson
skrífar
mikið umtalaður í Svíþjóð enda
bjuggust flestir við því að stærsta
og ríkasta félagið með langsterkasta
leikmannahópinn, IFK Gautaborg,
ynni mótið eins og venjulega. Má
telja sigur Halmstad í mótinu
nokkra háðung fyrir Gautborgara
þvi að á siðustu tveimur árum hefur
Gautaborg keypt tvær stærstu
stjörnur Halmstad, Niklas Alexand-
ersson og Robert Andersson, og
þann síðamefnda í sumar fyrir 70
milljónir ISK sem er met innanlands
í Svíþjóð. Þar að auki „stal“ Gauta-
borg þjáifaranum Mats Jingblad af
Halmstad í fyrra og til að kóróna
allt saman sleppti Gautborg mið-
heijanum Mats Liljenberg ti! Halm-
stad í vor því ekki voru not fyrir
hann þar á bæ! Sá þakkaði félaga-
skiptin með því að deila marka-
kóngstitlinum með tveimur öðram
leikmönnum með 14 mörk.
Öster og Vðsterás
hanga enn uppi
Tvö Islendingalið, Öster með Stef-
án Þórðarson og Vásterás með Einar
Brekkan innanborðs léku þýðingar-
mikla leiki í sænsku deildinni um
helgina. Öster lék úti gegn Deger-
fors og nægði Degerfors sigur til að
komast í aukakeppni og senda Öster
um leið niður. Eftir að Öster hafði
náð forystu í fyrri hálfleik gerði
Degerfors tvö mörk og það síðara á
80. mínútu. Á 86. mínútu jafnaði
Niclas Persson fyrir Öster 2:2 og lið-
ið hangir enn uppi og leikur tvo leiki
sæti í Allsvenskan gegn Djurgárden
á næstunni, þann fyrri á morgun,
miðvikudag. Stefán Þórðarson lék
með Öster en gerði ekki mark.
í Vásterás léku Einar Brekkan
og félagar gegn Örebro og náðu
forystu strax á 10. mínútu með
marki Niklas Larsson en Amór
Guðjohnsen jafnaði fyrir Örebro 7
mínútum síðar með marki beint úr
aukaspymu þar sem boltinn „lak“
í hornið eftir að hafa farið í varnar-
vegg Vásterás. Á 60. mínútu náði
Stefan Bárlin enn á ný forystu fyr-
ir heimamenn eftir að hafa snúið á
Sigurð Jónsson. Johan Wallinder
jafnaði svo fyrir Örebro 7 mínútum
fyrir leikslok. Hlynur Birgisson lék
einnig með Örebro. Með jafnteflinu
tryggði Vásterás sér rétt til auka-
leikja um sæti í Allsvenskan og
mætir Hácken í tveim leikjum, þeim
fyrri á laugardag. Telja verður að
róður Vásterás verði nokkra léttari
en hjá Öster - Djurgárden hefur
mörg þúsund stuðningsmenn á leikj-
um sínum á meðan Hácken leikur
jafnan með nokkur hundrað á pöll-
unum. Með jafnteflinu gegn Vást-
erás missti Örebro af þriðja sætinu
í deildinni þar eð Malmö gerði líka
jafntefli og hafði Örebro á marka-
mun.
Dagblaðið Expressen greinir frá
því að falli Vásterás muni leikmenn
streyma frá félaginu. Er þar m.a.
nefnt að Örgryte hafi augastað á
Einari Brekkan.
Grunigen
gefur
tóninn
Svissneski heimsmeistarinn Mic-
hael von Griinigen gaf tóninn
með því að sigra í fyrsta stórsvigi
heimsbikarsins sem fram fór í Tig-
nes í Frakklandi á sunnudag. Hann
hafði mikla yfirburði í stórsvigi
heimsbikarsins í fyrra og sýndi í
Tignes að hann ætlar að halda upp-
teknum hætti í vetur. „Ég bjóst
ekki við að vera kominn í svona
góða æfingu strax. Ég reiknaði með
að minn tími kæmi ekki fyrr en á
mótunum í Bandaríkjunum í lok
næsta mánaðar," sagði sigurvegar-
inn sem nú hefur unnið 12 heimsbik-
armót í stórsvigi á ferlinum.
Hans Knauss frá Austurríki var
með besta tímann í fyrri umferð en
féll niður í sjötta sæti eftir að hafa
gert mistök 1 síðari umferðinni.
Landi hans, Stefan Eberharter, var
með besta tímann í síðari umferð.
Hann var með rásnúmer 40 í fyrri
umferð og náði þá 12. sæti og end-
aði í fjórða samanlagt. Svisslending-
urinn Steve Locher, sem vann fyrsta
stórsvigið í fyrra vetur, varð annar
og Hermann Maier frá Austurríki
þriðji. Alberto Tomba er ekki kom-
inn í æfingu og varð að sætta sig
við 17. sæti.
Compagnoni í sérflokki
Deborah Compagnoni frá Ítalíu
hafði mikla yfirburði í stórsvigi
kvenna sem fram fór á sama stað
á laugardag. Hún náði besta braut-
artímanum í báðum umferðum og
var tæpum tveimur sekúndum á
undan Martinu Ertl frá Þýskalandi,
sem varð önnur. Martina Fortkord
frá Svíþjóð náði óvænt þriðja sæti
og er þetta í fyrsta sinn sem hún
kemst á verðlaunapall á heimsbik-
armóti.
„Ég fann mig mjög vel enda í
góðri æfingu," sagði Compagnoni.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef
ekki átt í meiðslum á undirbúnings-
timabilinu þannig að ég get nú keyrt
af sama krafti og í fyrra."
Halldórfjórði
HALLDÓR Svavarsson varð
fjórði af fimmtíu keppendum
i sínum flokki, -68 kg, í opnu
Bæjaralaudskeppniuni i
karate um helgina. Hann vann
fyrstu fjórar viðureignir sín-
ar, en tapaði síðan tveimur -
3:2 fyrir Bosníumanni í keppni
um brons. Ingólfur Snorrason
tapaði fyrstu viðureign sinni
í+78 kf flokki.