Morgunblaðið - 28.10.1997, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997 B 5
LEIKMENN Tindastóls fögnuðu vel ílok leiks, en það þurfti fram-
lengingu til að fá fram úrslit í leik Grindavíkur og Tindastóls á
sunnudagskvöld í átta liða úrslitum Eggjabikarsins. Á síðustu
mínútu venjulegs leiktíma höfðu bæði lið tækifæri til að gera
út um leikinn. Torrey John átti misheppnað þriggja stiga skot í
stöðunni 95:76 þegar 30 sek. voru eftir. Það sem eftir lifði leiks
stóðu leikmenn liðanna til skiptis á vítalfnu og það var svo Lár-
us Dagur Pálsson sem tryggði Tindastóli framlengingu með því
að skora úr seinna vítinu sínu þegar rúmar 4 sek. voru eftir.
Helgi Jónas átti síðan sfðasta skot venjulegs leiktíma en hitti ekki.
Jafntefli
dugði
KR-ingum
sögðu
Tindastóls-
menn fögnuðu
um mjög ákafur, tók sinn toll.
Njarðvíkingar komust yfir í fyrsta
sinn, 32:31, er rúmar þijár mínútur voru
til leikhlés og náðu síðan 15 stiga for-
ystu eftir fimm mínútna leik í síðari
hálfleik. Þennan mun tókst Haukum
ekki að brúa og urðu að játa sig sigraða.
Njarðvíkurliðið var jafnt að þessu
sinni. Páll Kolbeinsson átti góðan leik,
Örvar Kristjánsson hitti vel í fyrri hálf-
leik, og þótt Dalon Bynum skoraði ekki
mikið framan af var hann dijúgur og
mótheijarnir fengu margar villur dæmd-
ar á sig eftir brot á honum. Teitur átti
einnig ágætan leik þó svo að hann sýni
ekki enn það sem hann sýndi svo oft
áður en hann fór til Grikklands. Ekki
má gleyma Kristni Einarssyni sem átti
stórleik á lokamínútunum, gerði þá mik-
ilvæg stig og tók nokkur fráköst.
Hjá Haukum átti Sherrick Simpson
mjög góðan fyrri hálfleik og í þeim síð-
ari var Jón Arnar Ingvarsson frískur,
en hefði þó að ósekju mátt skjóta meira
því félagar hans hittu illa og Jón Arnar
getur raðað niður þriggja stiga skotum
ef sá gállinn er á honum.
Heitt var í kolunum í Keflavík
á sunnudagskvöldið þegar
heimamenn mættu ísfirðingum í
síðari leik liðanna í
Rinm Eggjabikarkeppn-
Blöndal inni' Tveim leik"
skrifar mönnum úr hvoru
liði var vísað út úr
húsinu og einn leikmaður Keflavík-
ur var fluttur í sjúkrahús eftir
harkalegt samstuð við leikmann
ísfirðinga. Keflvíkingar sigruðu og
þar var ekki fyrr en á síðustu mínút-
unum að þeim tókst að tiyggja sér
sigurinn. I hálfleik var staðan 46:38
og mæta Keflvíkingar vesturbæjar-
liði KR í undanúrslitum.
Leikurinn var fjörugur frá upp-
hafi og bar þess merki að hann
hafði mikla þýðingu fyrir bæði lið.
Keflvíkingar léku vel í fyrri hálf-
leik og virtust hafa leikinn í hendi
sér. Þeir höfðu vænlega forystu í
hálfleik, en byijunin hjá þeim í
þeim síðari var með ólíkindum.
Keflvíkingar settu aðeins 10 stig
á fyrstu 10 mínútunum og vöknuðu
þá upp við að ísfirðingar voru bún-
ir að jafna 56:56. Þá upphófst
mikil barátta þar sem báðum liðum
hljóp kapp í kinn. Upp úr sauð
skömmu síðar þegar dæmt var
ásetningsbrot á bandaríska leik-
manninn David Bevis í liði ísfirð-
inga. í kjölfarið upphófust stimp-
ingar sem lauk með því að Bevis
var vísað út. Bandaríkjamaðurinn
Dana Dungl í liði heimamanna sem
beið eftir að verða skipt inn á,
stökk inn á völlinn í hita leiksins.
Þar með voru heimamenn orðnir 6
sem ekki var löglegt og var honum
einnig vísað út. Skömmu síðar lenti
Birgir Örn Birgisson í samstuði við
einn leikmanna ísfirðinga. Hann
fékk þungt högg og var fluttur
rænulítill á sjúkrahús.
David Bevis hafði verið aðal-
maðurinn í liði ísfirðinga og eftir
að hann var farinn að leikvelli
hrundi leikur þeirra og sigur
heimamanna var sannfærandi.
„Mér fannst dómararnir afar slak-
ir, þeir höfðu engin tök á leiknum
og það er slæmt þegar léleg dóm-
gæsla bitnar á öðru liðinu," sagði
Guðjón Þorsteinsson, annar þjálf-
ari Isfirðinga, eftir leikinn. „Sigur-
inn var þýðingamikill fyrir okkur,
en dýrkeyptur. Við lékum vel í
fyrri hálfleik og seinni hluta síðari
hálfleiks sem dugði til sigurs að
þessu sinni,“ sagði Sigurður Ingi-
mundarson, þjálfari Keflavíkinga.
Falur Harðarson átti mjög góðan
leik í liði Keflavíkur ásamt þeim
Gunnari Einarssyni og Guðjóni
Skúlasyni. David Bevis var bestur
í liði gestanna en auk hans léku
þeir Ólafur J. Ormarsson, Friðrik
Stefánsson og Marcos Salas ágæt-
lega.
Þegar rúm mínúta var eftir, kom
Kevin Tuckson KR-ingum yfír, en
Björgvin Gunnarsson jafnaði fyrir
gestina með sniðskoti eftir hraða-
upphlaup á síðustu sekúndu leiks-
ins. Framlenging var vitaskuld
óþarfi og gengu leikmenn því til
búningsherbergja.
Þegar best gekk í liði KR, voru
þeir Nökkvi Már Jónsson og Marel
Guðlaugsson bestu menn þess.
Kevin Tuckson náði sér líka á strik,
en hann hafði verið slakur fram
að því - er í raun ekki nógu góð-
ur. „Við komum ef til vill svolítið
værukærir til leiks og vanmátum
Skagamennina eftir sextán stiga
sigur í fyrri leiknum. Við tókum
okkur á, börðumst í vörninni og
það gerði gæfumuninn," sagði
Marel í leikslok. Skagamenn léku
allir vel í fyrri hálfleik, en illa í
þeim síðari.
■ Úrslit / B6
Skagamenn þurftu að vinna KR
með sautján stiga mun á
Seltjarnarnesinu á iaugardag til
að komast áfram í
Edwln Eggjabikarnum því
Rögnvaldsson þeir töpuðu fyrri
skrifar leiknum á Akranesi
með sextán stigum.
Gestirnir voru ekki lengi að ná
þeim áfanga, voru komnir með
tuttugu stiga forskot seint í fyrri
hálfleik, 23:43. Forskotið minnkaði
eftir það, en var þó sautján stig í
leikhléi.
Sterkur varnarleikur
Orsakir þessara yfirburða ÍA
voru sterkur varnarleikur auk
hryllilegrar hittni heimamanna.
Skagamönnum gekk aftur á móti
allt í haginn í sókninni. KR-ingar
reyndu pressuvörn, en allt kom
fyrir ekki. Hermann Hauksson,
lykilmaður í liði KR, gerði fjölda
árangurslausra skottilrauna, en
var án stiga í leikhléi.
Heimamenn virtust ekki líklegir
til að minnka muninn, af leik þeirra
í upphafi síðari hálfleiks að dæma.
Þeim tókst ekki að koma boltanum
í körfuna fyrr en eftir um sex
mínútur, en á meðan höfðu Skaga-
menn aðeins gert fjögur stig. KR-
ingar gerðu næst þijár körfur í röð
og komust „yfir“, þ.e. munurinn
var orðinn fimmtán stig, sem dugði
KR-ingum til að komast áfram.
Eftir þessa rispu KR-inga sner-
ist leikurinn algerlega við og liðin
höfðu hlutverkaskipti frá því í fyrri
hálfleik. Heimamenn voru grimmir
í vörninni og hittni þeirra var mun
betri. Skagamenn tóku hins vegar
skot úr slæmum færum og misstu
boltann margsinnis án þess að ná
skoti. Enn fremur lentu þeir í mikl-
um villuvandræðum, en þeir höfðu
verið mjög harðir í horn að taka í
vörninni. Sökum þess misstu þeir
Alexander Ermolinskij, Dag Þóris-
son og Sigurð Elvar Þórólfsson af
leikvelli.
Grindvíklnga.
Fyrri hálfleikur einkenndist
nokkuð af taugaspennu beggja
liða og var vítahittni beggja liða
mjög slök í fyrri
„ . hálfleik. Grindvík-
Vignisson ingar komu ákveðn-
skrifar ari til leiks og höfðu
náð 10 stiga forskoti
í stöðunni 29:19. Þá tók Páll þjálf-
ari Tindastólsmanna leikhlé. Tveim-
ur mínútum síðar var staðan orðin
30:30. Fyrri hálfleikur endaði svo
með góðri rispu Grindvíkinga sem
skoruðu grimmt í lok fyrri hálf-
leiks. Staðan í hálfleik var því 47
stig heimamanna gegn 38 stigum
gestanna.
Síðari hálfleikur hófst með stór-
leik Bergs Eðvarðssonar sem_skor-
aði 16 stig í síðari hálfleik. Útlitið
dökknaði verulega fýrir Tindastóls-
menn þegar þeir misstu Sverri af
leikvelli með fimm villur þegar átta
mínútur voru eftir af venjulegum
leiktíma. Það kom hins vegar í ljós
að lið Tindastóls er sterkara en
undanfarin ár og mennirnir sem
komu af bekknum skiluðu sínu hlut-
verki vel. Grindvíkingar urðu fyrir
áfalli þegar Unndór Sigurðsson
meiddist þegar tvær mínútur rúmar
voru eftir. Síðasta villan í venjuleg-
um leiktíma var skrifuð á Darrel
J. Wilson sem þá þurfti að hverfa
af leikvelli með fimm villur.
Leikurinn var framlengdur um 5
mínútur og reyndar virtust bæði lið
halda að fleirí stig skoruð á útivelli
myndu duga Stólunum til að kom-
ast áfram. Sú regla gildir ekki og
því skipti ekki máli hvort liðið skor-
aði fleiri stig á útivelli. Þegar 9
sekúndur voru liðnar af framleng-
ingunni hvarf þriðji maður úr byij-
unarliði Grindvíkinga af velli með
fimm villur. Þá var einungis Helgi
Jónas eftir af byijunarliði Grindvík-
inga en Tindastóll hafði þá misst
tvo úr byijunarliði sínu af velli.
Þetta var of stór biti og Stólarnir
söxuðu á forskot Grindvíkinga.
Leiknum lauk eins og áður sagði
með sigri Grindvíkinga en Tinda-
stólsmenn eru komnir áfram.
Bestir í liði Grindavíkur voru
Helgi Jónas Guðfinnsson, Bergur
Eðvarðsson og Darrel J. Wilson.
Hjá Tindastól átti Sverrir góðan
leik ásamt Torrey John og Arnari
Kárasyni.
Aðspurður um leikinn sagðist
Páll Kolbeinsson vera ánægður með
að vera kominn áfram enda væri
þetta í fyrsta skipti sem þeir kæm-
ust í fjögurra liða úrslit. Erfitt hefði
verið að halda þessu forskoti, taug-
ar leikmanna voru varla í lagi og
því var vítahittnin mjög slök. Páli
fannst hans lið hefði átt að klára
þetta í venjulegum leiktíma og með
venjulegri vítahittni hefði það átt
að takast. „Það er alltaf erfitt að
spila við Grindavík og þurfa að
glíma bæði við þriggja stiga skyttur
þeirra og hinn ótrúlega Darrel J.
Wilson, sem er örugglega langbesti
útlendingurinn sem komið hefur til
landsins. Sverrir var þreyttur eftir
að hafa glímt við hann á föstudag
og því fékk hann meira pláss,“ sagði
Páll og bætti vi að hann hefði reynt
allt til að láta Darrel J. Wilson ekki
fá boltann en sá maður var einfald-
lega í stuði þetta sunnudagskvöld.
Heitt í kolun-
um í Keflavík