Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 8
IÞROmR
KNATTSPYRNA
Tryggvi með Válerenga
gegn Rosenborg
Nils Arne Eggen vill fá Árna Gaut til Rósenborgar
Tryggvi Guðmundsson, marka-
hrókur frá Vestmannaeyj-
um, verður í sviðsljósinu á morgun
í Meistarakeppni Noregs. Hann
mun leika með nýkrýndum bikar-
meisturum Válerenga frá Ósló
gegn meisturum Rosenborg frá
Þrándheimi.
Válerenga, sem Brynjar Björn
Gunnarsson, landsliðsmaður hjá
KR, mun leika með næsta keppn-
istímabil, hefur mikinn áhuga á
að fá Tryggva til liðs við sig.
Þess vegna var ákveðið að hann
fái tækifæri til að sýna sig með
liðinu í leiknum gegn Rosenborg.
Þá má geta þess að Rosenborg
hefur áhuga á að fá Árna Gaut
Arason, markvörð Stjörnunnar, til
liðs við sig fyrir næsta keppnis-
tímabil. Hann var hjá liðinu við
æfingar í viku á dögunum og var
þjálfari Rosenborg, Nils Arne
Eggen, mjög ánægður með Árna.
„Rósenborgarmenn höfðu sam-
band við mig í dag [í gær] og
vilja fá mig út sem fyrst,“ sagði
Árni Gautur í gær. „Eg hef ekki
gengið frá samningi enn þannig
að ekkert. öruggt en útlitið er
gott og vonandi verður undirritað-
ur samningur sem fyrst.“
Verði af því að Ámi geri samn-
ing við félagið sagði hann ljóst
að hann færi strax í samkeppni
við aðalmarkvörð liðsins. Vara-
markvörðurinn er á förum sá
þriðji vill hætta. „Þetta er stórt
tækifæri og afar spennandi sem
mér stendur til boða.“
Hermann Hreiðarsson opnaði marka-
reikinginn hjá Crystal Palace
Égerí
skýjunum
HERMANN Hreiðarsson átti mjög góðan leik með Crystal Palace
sem vann Sheffield Wednesday 3:1 á útivelli. Hann skoraði fyrsta
mark ieiksins og gerði hann það með skalla eftir hornspyrnu. „Ég
er alveg ískýjunum. Það er frábær tilfinning að skora og allt
annað en að skora í eigið mark eins og ég gerði á móti Manchest-
er United um daginn. Við vorum að grínast með það á æfingu að
ég væri nú með markahæstu leikmönnum liðsins, kominn með
tvö mörk, einu minna en Lombardo," sagði Hermann.
Hann sagðist hafa verið nálægt
því að skora tveimur mínútum
áður en hann gerði markið. „Það
marktækifæri kom upp úr horn-
spyrnu og ég átti hörkuskalla sem
fór rétt yfir. Við vorum betri og átt-
um skilið að sigra. Ég er mjög
ánægður með lífið þessa dagana,
enda gaman þegar vel gengur. Ég
hef fengið góða dótna og mér hefur
verið vel tekið af stuðningsmönnum
félagsins."
Hermann fékk 8 í einkunn fyrir
frammistöðu sína á móti Sheffield
Wednesday í Sunday Mirror og hann
Guðni Rúnar
til Linz
GUÐNI Rúnar Helgason,
knattspyrnumaður þjá ÍBV,
hélt til Linz I Austurríki í gær,
þar sem hann mun kaxrna að-
stæður þjá 1. deildarliðinu
LASK Linz, sem er í fjórða
sæti í deildinni. Guðni Rúnar
verður þjá liðinu í nokkra
daga. Þess má geta að hann
skoðaði aðstæður hjá austur-
riska liðinu Lustenau, sem
Helgi Kolviðsson leikur með
og sagðist ekki hafa verið
spenntur fyrir því sem hann sá.
fékk sömu einkunn fyrir leikinn á
móti Arsenal fyrir rúmri viku. „Ég
ætti að eiga nokkuð öruggt sæti í
næsta leik,“ sagði Eyjamaðurinn sem
leikur vinstra megin í þriggja manna
vöm.
Guðni Bergsson var fyrirliði Bol-
ton sem vann Chelsea á heimavelli
1:0 og gerði Holdsworth markið á
72. mínútu. Guðni lék allan leikinn
og þótti standa sig vel. Amar Gunn-
laugsson var á varamannabekknum
og var ekki skipt inn á í leiknum.
„Það var orðið tímabært að við næð-
um að sigra í deildarleik.
Leikurinn var fjörugur og mörkin
hefðu getað orðið fleiri. Bæði liðin
fengu nokkur færi, en ég held að
sigurinn hafi verið sanngjarn," sagði
Guðni. Hann sagði næsta leik erfið-
an, en þá fær Bolton Liverpool í
heimsókn.
Ross Parry
HERMANN Hreiðarsson fagnar marki sínu gegn Sheff. Wed.
Landsliðið
tapaði í
Lubeck
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik tapaði í gær fyrir
þýska 2. deildar liðinu Bad
Schwartau, 32:31 í æfingaleik
í Ltibeck, eftir að hafa haft
tveggja marka forskot í leik-
hléi, 16:14. Leikiu'inn var nær
jafn allan timann. íslenska lið-
ið fékk tækifæri til að jafna á
lokasekúndunum en varnar-
mðnnum Bad Schwartau tókst
að verja skot Róberts Julians
Duranonas.
„Tilganginum var náð sem
var að koma saman og fara
yfir nokkur atriði fyrir Lithá-
en leikinn, úrslitin tek ég í
sjálfu sér ekki alvarlega,"
sagði Þorbjöm Jensson lands-
liðsþjálfari að leikslokum."
Eins og sést á úrslitunum
var vamarleikurinn ekki
burðugur og markverðir ís-
lenska liðsins náðu sér ekki á
strik. Bergsveinn Bergsveins-
son varði 7 skot í fyrri hálf-
leik en Guðmundur Hrafnkels-
son 2 í þeim síðari.
„Patrekur leikur með okkur
báða leikina gegn Litháen,
það er áhreinu," sagði Þor-
bjöm. „Ég notaði hann ekki í
leiknum til þess að hafa ekki
átt það á hættu að hann
meiddist.“
Mörk íslands: ólafur Stefánsson
7, Róbert Julian Duranona 6, Björgvin
Björgvinsson 4, Bjarki Sigurðsson 4,
Jason Kristinn Ólafsson 3, Dagur Sig-
urðsson 2, Gústaf Bjamason 2, Geir
Sveinsson 1, Júlíus Jónasson 1, Róbert
Sighvatsson 1.
Sigurður Bjamason lék ekki með Bad
Schwartau, þar sem hann er meiddur.
Eyjólfur
maður
leiksins
Eyjólfur Sverrisson skoraði eitt af
þremur mörkum Herthu Berlín,
þegar liðið fagnaði sigri á Karlsruhe
á Ólympíuleikvang-
inum í Berlín, 3:1.
Sigurinn var sætur
fyrir þjálfarann
Jurgen Röber, sem
var orðinn valtur í sessi. Rætt var
um það fyrir helgina að hann yrði
látinn taka poka sinn, ef Hertha tap-
aði. Þrátt fyrir sigurinn er hann ekki
öruggur með starf sitt og er rætt
um að hann og framkvæmdastjórinn
Dieter Höness verði látnir fara. For-
ráðamenn Herthu hafa þegar rætt
við pólska þjálfarann Franz Smuda.
Stjórn félagsins kemur saman á
fimmtudaginn til að ræða mál Hert-
hu.
Eyjólfur var útnefndur maður
leiksins hjá blðainu Kicker. Hann lék
á miðjunni og stóð sig vel. Eyjólfur
fékk að sjá sitt fimmta gula spjald
í vetur og fer hann í bann í næsta
leik.
Frá Jóni
Halldóri
Garöarssyni i
Þýskalandi
Bjamólfur byijaði með marki
Bjamólfur Lárusson lék fyrsta leik
sinn með Hibemian í skosku
deildinni um helgina er liðið mætti
Kilmarnock á útivelli og tapaði, 2:1.
Hann kom inn á sem varamaður
þegar 15 mínútur voru til leiksloka
og staðan 2:0. Hann náði að setja
mark sitt á leikinn með því að skora
fimm mínútum eftir að hann kom inn
á, skoraði af stuttu færi eftir þvögu
í vítateig Kilmarnock. Hann átti einn-
ig tvö góð skot af löngu færi, annað
varði markvörðurinn vel en hitt fór
rétt framhjá.
Ólafur Gottskálksson var í marki
Hibernian og sagði að síðara markið
sem hann fékk á sig mætti skrifa á
sig. „Ég tók áhættu og hljóp á móti
framherjanum Nevin sem var kom-
inn einn inn fyrir vörnina. Hann
nýtti sér það og vippaði boltanum
yfír mig og í markið. Þetta var ekki
nógu gott. Við unnum þetta lið, 4:0,
í fyrstu umferð deildarinnar og því
átti þessi leikur að vinnast," sagði
Ólafur. Þetta var þriðji tapleikur liðs-
ins í röð. Ólafur sagði að Bjarnólfur
hefði átt skemmtilega innkomu í lið-
ið. „Hann stóð sig mjög vel þennan
stutta tíma sem hann lék. Það er
gott að byija hjá nýju félagi með
því að skora."