Morgunblaðið - 11.11.1997, Page 4
C 4 ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997
. KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Marseille á fornar slóðir
Gamla stórveldið komíð upp að hlið PSG og Metz í efsta sæti
Marseille gerði góða ferð til
Parísar á sunnudag, vann
PSG 2:1 og er á toppnum í frönsku
deildinni ásamt Parísarliðinu og
Metz. Marseille hefur ekki verið á
þessum slóðum síðan 1994 þegar
liðinu var vikið úr deildinni fyrir
svindl.
„Það væri heimska að vera ekki
ánægður en ég er jarðbundinn,"
sagði Rolland Courbis, þjálfari
Marseille, sem varð fyrst liða til
að sigra PSG á heimavelli á tíma-
bilinu. „Við verðum að hafa í huga
að PSG lék í miðri viku, var án
lykilmanna og við högnuðumst á
þvt“
Italinn Ravanelli hóf að leika
með Marseille í september og síð-
an hefur liðið ekki tapað, reyndar
alltaf sigrað þegar hann hefur
spilað. Brotið var á honum um
Enn tvö
rauð hjá
Sporting
EINS og í síðasta leik voru
tveir leikmenn hjá Sport-
ing Lissabon reknir af velli
um helgina, að þessu sinni
þegar Iiðið gerði 1:1 jafn-
tefli við Porto. Heimamenn
sóttu stíft en Filip de Wilde
var góður í marki Sporting
og gestirnir voru á undan
að skora, fyrirliðinn Oce-
ano Cruz gerði markið úr
vítaspyrnu á 12. mínútu.
Mario Jardel, markahæsti
leikmaður deildarinnar,
jafnaði um miðjan hálfleik-
inn með skallamarki.
Varnarmaðurinn Marco
Aurelio fékk rauða spjaldið
snemma í seinni hálfleik og
miðjumaðurinn Pedro Bar-
bosa, sem var vikið af velli
á móti Leverkusen í Meist-
aradeild Evrópu í liðinni
viku, fór sömu leið átta
mínútum fyrir leikslok en
gestirnir héldu fengnum
hlut.
miðjan seinni hálfleik og dæmt víti
sem fyrirliðinn Laurent Blanc
skoraði úr en Xavier Gravelaine
gerði fyrra markið eftir stundar-
fjórðungs leik. Fiorian Maurice
meiddist eftir 10 mínútur og tók
Jerome Leroy stöðu hans en Le-
roy jafnaði fyrir PSG 10 mínútum
fyrir hlé.
Metz fagnaði loks sigri, vann
Guingamp 2:1. Liðið var í tvo
mánuði í efsta sæti en lék síðan
fimm leiki án þess að sigra. Miðju-
maðurinn Frederic Meyrieu skor-
aði úr aukaspymu á þriðju mín-
útu, Daniel Moreira jafnaði eftir
klukkutíma leik en belgíski miðju-
maðurinn Danny Boffin gerði sig-
urmarkið um miðjan seinni hálf-
leik.
Bordeaux náði aðeins marka-
lausu jafntefli heima á móti Lyon.
Johan Micoud, leikstjórnandi
heimamanna, fékk rauða spjaldið
um miðjan fyrri hálfleik en gest-
irnir gátu ekki notfært sér liðs-
muninn. „Menn fóru illa að ráði
sínu,“ sagði Bernard Lacombe,
þjálfari Lyon, um frammistöðu
sinna manna.
Lens vann Rennes 3:2. Þjóð-
verjinn Patrick Weiser og mið-
herjinn Nicolas Gousse skoruðu
fyrir heimamenn en Júgóslavinn
Anto Drobnjak, Tékkinn Vladimir
Smicer og Tony Vairelles gerðu
mörk gestanna. „Við sýndum að
við getum líka skorað á útivelli en
verðum að laga varnarleikinn,"
sagði Stephane Ziani, leikstjórn-
andi Lens, en liðið hefur fengið 14
mörk á sig í sjö útileikjum og eitt í
átta heimaleikjum.
Bastia vann Strasbourg 2:0.
Fyrirliðinn Patrick Moreau skor-
aði úr vítaspyrnu á 62. mínútu en
Franck Jurietti gerði seinna
markið stundarfjórðungi fyi-ir
leikslok. Alexander Weneel varði
frá honum vítaspyrnu en hélt ekki
boltanum og Jurietti náði að skalla
boltann í netið.
Cannes fagnaði fyrsta sigrinum
heima á tímabilinu, vann Mont-
pellier 1:0. Svissneski miðherjinn
Marco Grassi skoraði með skalla
- fyrsta mark hans fyrir félagið.
Montpellier, sem hafði sigi’að í
fjórum leikjum í röð, var manni
færri síðustu mínúturnar eftir að
Laurent Robert hafði verið rekinn
af velli.
Auxerre og Le Havre gerðu
markalaust jafnteíli og krækti Le
Havre þar með í þriðja stigið í átta
leikjum á útivelli.
Reuters
PAUL Gascoigne hjá Rangers
ýtir Celtic-manninum Craig
Burley frá sér í nágranna-
slagnum í Glasgow.
Gough
tryggði
Rangers
sigur
Miðvörðurinn Richard Gough
hefur leikið stórt hlutverk hjá
Rangers á líðandi áratug og hann
var í sviðsljósinu þegar liðið sigraði
í nági-annaslagnum við Celtic í
skosku úrvalsdeildinni um helgina.
Hann gerði eina mark leiksins eftir
sendingu frá Dananum Brian
Laudrup, þegai- stundarfjórðungur
var til hálfleiks, og skallaði boltann
í stöng. Andy Goram hafði nóg að
gera í marki Rangers eftir markið
en meistararnir héldu fengnum
hlut.
Italski miðherjinn Marco Negri
skoraði í öllum leikjum Rangers í
deildinni fyrir nágrannaslaginn en
hitti ekki í mark mótherjanna að
þessu sinni. Celtic, sem hafði sigr-
að í átta leikjum í röð, lauk leiknum
með 10 menn - Frakkinn Steph-
ane Mahe fékk reisupassann eftir
tvær bókanir.
Annar nágrannaslagur var í Ed-
inborg þar sem Hearts vann Hib-
ernian 2:0 og er áfram í efsta sæti
með 27 stig. Rangers er með 26
stig og Celtic 24 en Glasgowliðin
eiga leik til góða. Miðherjinn John
Robertson skoraði fyrir Hearts á
18. mínútu og varamaðurinn Jose
Quitongo þætti öðru marki við und-
ir lokin. Ólafur Gottskálksson stóð
sig vel í marki Hibs en Bjarnólfur
Lárusson kom inná 10 mínútum
fyrir leikslok.
Reuters
BRASILÍUMAÐURINN Leonardo fagnar síðara marki sínu fyrir Milan gegn Brescia og í leiksiok fögn-
uðu Leonardo og samherjar fyrsta sigri liðsins á heimavelli á keppnistímabilinu.
Vandræði hjá
liði Barcelona
Inter gefur
ekkert eftir
Barcelona tapaði óvænt á heima-
velli fyi-ir Real Valladolid nú um
helgina, 1:2, en hefur þó fjögurra
stiga forskot á Real
Madrid Kiev í Evr-
ópukeppninni og
gert vonir sínar um
að komast áfram í
átta liða úrslit að
engu, og þar að auki vantaði 9 leik-
menn í leikmannahópinn, meðal ann-
ars Giovanni sem dæmdur var í
tveggja leikja bann fyrir ruddaskap
er hann fagnaði sigurmarki sínu
gegn Real Madrid.
Strax á 10. mín. kom Eusebio gest-
unum yfir með marki beint úr auka-
spyrnu og þar við sat í leikhléi. Strax
í upphafí síðari hálfleiks bætti Króat-
inn Peternac við marki og þrátt fyrir
fjölmörg marktækifæri, m.a. tvö skot
í marksúluna, náðu leikmenn
Barcelona ekki að koma knettinum í
mark andstæðinganna sem komu
mjög vel skipulagðir til leiks. Það var
ekki fyrr en á síðustu mínútu sem
Pizzi, sem kom inn á sem varamaður,
náði að minnka muninn en of seint
fyrir heimamenn.
Real Madrid vann sanngjarnan
sigur yfir Racing í frekar slökum leik
þar sem rigndi linnulaust allan leik-
inn. Real byrjaði leikinn án 5 fasta-
manna, þar á meðal Mijatovic og
Seedorf sem sátu á bekknum.
Markalaust var eftir fyrri hálfleik en
í byrjun síðari hálfleiks kom Mori-
entes Real yfir eftir hælsendingu fi’á
Suker. Seedorf bætti síðan við marki
eftir glæsilegan einleik á 76. mín., en
fjórum mín. síðar minnkaði Abeijon
muninn með skallamarki. Undir lokin
fengu leikmenn Real tvö ákjósanleg
færi tO að bæta við mörkum en án ár-
angurs.
Lid Atletico virkar afar sannfær-
andi um þessar mundir og á sunnu-
daginn var Compostela engin hindr-
un fyrir þá. Leikurinn byrjaði að vísu
ekki vel fyrir þá þvi að strax á 9. mín.
þurfti ítalski landsliðsmaðurinn Vieri
eða „Doctor Gol“ eins og hann er
kallaður í spænsku blöðunum, að yf-
irgefa leikvanginn vegna meiðsla og
talið er að hann verði frá í u.þ.b. einn
mánuð. Það hafði hins vegar engin
áhrif á leikmenn Atletico og mörk frá
þeim Aguilera, Bogdanovic og Pantic
komu þeim í 3:0. En einni mín. fyrir
leikslok náði Búlgarinn Lubo Penev
að minnka muninn og þar við sat í
leikslok. Espanyol féll úr 2. í 7. sæti
eftir að hafa beðið lægi’i hlut fyrir
Real Sociedad, 2:0, og Valencia með
Romario innanborðs, vann sinn
fyrsta sigur á heimavelli, 2:1, á Zara-
goza. Romario fékk slæmar einkunn-
ir í spænsku blöðunum fyrir frammi-
stöðu sína og það vakti athygli að
Claudio Ranieri valdi ekki Argent-
ínumanninn Ariel Ortega í leik-
mannahópinn fyrir leikinn.
Taribo West tryggði Inter 2:1 sig-
ur á Atalanta, gerði fyrsta mark
sitt fyrir félagið á síðustu mínútu.
Djorkaeff skoraði með skalla um
miðjan fyrri hálfleik en var rekinn af
velli á 73. mínútu. Nicola Caccia jafn-
aði fyrir heimamenn 10 mínútum
fyrir leikslok, jafntefli var í augsýn
en Nígeríumaðurinn sætti sig ekki
við það og Inter er með tveggja stiga
forystu á Juventus í ítölsku deildinni.
Þetta er besta byrjun liðsins síðan
tímabilið 1988 til 1989 þegar það
varð meistari.
Varamaðurinn Daniel Fonseca var
hetja Juve í Napólí, gerði sigur-
markið rétt áður en flautað var til
leiksloka. Franski miðvallarleikmað-
urinn Zinedine Zidane skoraði fyrir
Juve seint í fyrri hálfleik og allt
stefndi í öruggan sigur en Claudio
Bellucci jafnaði snemma í seinni
hálfleik.
Roma vann Bari 3:1 en Paolo
Sergio fékk tækifæri til að bæta
fjórða markinu við - skoraði ekki úr
vítaspyrnu á síðustu mínútu.
Francesco Totti gerði tvö mörk og
sæti.
Lazio vann Sampdoria 3:0. Dario
Marcolin skoraði úr vítaspyrnu um
miðjan fyrri hálfleik en Pavel Ned-
ved og Alen Boksic skoruðu eftir
hlé.
Annar sigur Milan í röð
AC MOan vann Brescia 2:1 og
gerði leikstjórnandinn Leonardo
bæði mörk Mílanóliðsins í fyrri hálf-
leik en Dario Huber minnkaði mun-
inn eftir hlé. „Það var kominn tími
til,“ sagði Fabio Capello, þjálfari AC
Milan, eftir fyrsta sigur liðsins á San
Siro á tímabilinu.
Fiorentina vann Lecce 5:0, fyrsti
sigur liðsins síðan 14. september.
Batistuta var með tvö mörk og ei
kominn með níu mörk í átta leikjum.
Ivar
Ragnarsson
skritar
frá Spáni