Morgunblaðið - 11.11.1997, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRINIA
ÞRIÐJUDAGUR11. NÓVEMBER1997 C 5
Arsene Wenger ánægður eftir að Arsenal sigraði Manchester United
„Held að margir hafi
fagnað sigri okkar“
Leikmenn ensku úrvalsdeildar-
innar voru í miklu stuði um
helgina og áhorfendur fengu að sjá
óvenju mörg mörk, allt upp í sjö í
einum leik, þegar Leeds vann Derby
4:3 eftir að hafa verið 3:0 undir í
fyrri hálfleik.
Arsenal stöðvaði meistarana
Stórleikur umferðarinnar var á
Highbury þar sem Arsenal tók á
móti meisturum Manchester Un-
ited. Ekkert var gefíð eftir, mikill
hraði og ótrúlegar sveiflur en David
Platt tryggði heimamönnum 3:2
sigur með skallamarki í kjölfar
hornspyrnu átta mínútum fyrir
leikslok.
Heimamenn voru mun ákveðnari
og eftir 27 mínútur var staðan 2:0.
Frakkinn Nicolas Anelka gerði
glæsilegt mark og mark Patricks
Vieiras var ekki síður glæsilegt. Þá
var komið að þætti Teddys Shering-
hams sem gerði tvö frábær mörk
fyrir United áður en fyrri hálfleikur
var úti.
Seinni hálfleikur var ekki eins
tilþrifamikill en góðir taktar sáust
inni á milli. Til dæmid sýndi Peter
Schmeichel ótrúlega markvörslu
þegar hann náði boltanum eftir
skot Christophers Wrehs. Bjargað
var í horn og sigurmarkið kom upp
úr því.
„Þetta var stór leikur og sigurinn
var mjög mikilvægur," sagði Ars-
ene Wenger, knattspyrnustjóri Ars-
enal. -„Ekki síst með baráttuna um
titilinn í huga,“ bætti hann við. „Ef
United hefði sigrað hefði liðið verið
með sjö stiga forystu á okkur en
nú er allt opið. Ég held að margir
sem ekki áttu hlut að máli hafi
fagnað sigri okkar.“
Alex Ferguson, stjóri United,
sagði úrslitin sanngjörn. „Ég var
ánægður með hvernig við snerum
leiknum við í fyrri hálfleik en ekki
með frammistöðuna eftir hlé. Við
getum gert betur en Arsenal var
betra í seinni hálfleik og átti skilið
að sigra.“
Bolton tapaði stórt
„íslendingaliðið“ Bolton mátti
þola stóran skell í Sheffield, tapaði
5:0 fyrir Wednesday og komu öll
mörkin í fyrri hálfleik.
Heimamenn léku við hvern sinn
fingur og hefðu þess vegna getað
náð tveggja stafa tölu fyrir hlé.
Paulo di Canio, sem gerði fyrsta
markið, fór á kostum og lagði upp
tvö mörk, Norðmaðurinn Petter
Rudi var hættulegur á vinstri
vængnum og Andy Booth var
klappað lof í lófa þegar hann fór
af velli eftir að hafa gert þrennu á
stundarfjórðungi. Hann hefur verið
frá vegna meiðsla síðan í ágúst en
sýndi hvers hann er megnugur.
Bolton lék illa og vörnin var í
molum en hélt hreinu eftir hlé.
Arnar Gunnlaugsson var í fyrsta
sinn í byijunarliðinu en Guðni
Bergsson var á sínum stað sem
hægri bakvörður.
Crystal Palace óheppið
Hermann Hreiðarsson og sam-
herjar í Crystal Palace voru óheppn-
ir að ná aðeins 1:1 jafntefli við
Aston Villa.
Neil Shipperley skoraði fyrir
heimamenn undir lok fyrri hálf-
leiks, skallaði í netið eftir auka-
spyrnu Andys Roberts. Gestirnir
mótmæltu harðlega og höfðu nokk-
uð til síns máls, aukaspyrnan var
tekin á kolröngum stað, en dómar-
inn hafði sagt Palace að taka spym-
una, hlustaði ekki á mótmælin en
bókaði Savo Milosevic. Mikil harka
Reuters
DAVID Platt fagnar fallegu slgurmarki sínu fyrlr Arsenal gegn Manchester Unlted. Hann skall-
aðl knöttlnn firnafast efst í bláhorn Unlted-marksins eftlr hornspyrnu átta mínútum fyrlr lelks-
lok, án þess að Peter Schmelchel ætti möguleika á að verja. lan Wright er númer 8.
var í leiknum, sjö menn bókaðir,
og Jamie Smith hjá Palace rekinn
af velli á 77. mínútu. Milosevic átti
skilið að fara sömu leið skömmu
síðar en slapp með skrekkinn og
átti hlut að máli í jöfnunarmarkinu,
Kevin Miller varði frá honum, hélt
ekki boltanum og varamaðurinn
Julian Joachim skoraði. Palace hef-
ur því ekki enn sigrað á heimavelli
á tímabilinu.
Ótrúlegt í Leeds
Áhorfendur fengu mikið fyrir
aura sína í Leeds, sáu spennandi
og góða viðureign og sjö mörk.
Derby byijaði með miklum látum
og var komið í 3:0 eftir hálftíma.
Dean Sturridge gerði tvö fyrstu
mörkin og Aljosa Asanovic bætti
því þriðja við úr vítaspyrnu. En þá
tóku heimamenn við sér. Rod
Wallace og Harry Kewell frá Ástral-
íu skoruðu fyrir hlé og Jimmy Hass-
elbaink, sem hafði ekki leikið síðan
4. október en kom inn á 77. mín-
útu, jafnaði átta mínútum fyrir
leikslok. Rétt áður en flautað var
til leiksloka var Hasselbaink aftur
á ferðinni, sendi á Lee Bowyer, sem
skoraði við mikinn fögnuð heima-
manna.
Southampton á sigurbraut
Southampton er á hraðri leið úr
„kjallaranum" og vann Barnsley
4:1, sjötti sigur liðsins í síðustu sjö
leikjum.
Eftir fimm mínútur var staðan
2:0, Matt Le Tissier og Carlton
Palmer skoruðu. Kevin Davies gerði
þriðja markið fyrir hlé og David
Hirst átti síðasta orðið snemma í
seinni hálfleik en Jovo Bosancic
skoraði fyrir Barnsley úr vítaspyrnu
í fyrri hálfleik.
Óvenjulegt mark
Newcastle fékk óvenjulegt mark
á sig í bytjun leiks í Coventry. Shay
Given, markmaður gestanna, náði
boltanum á undan Dion Dublin eft-
ir fyrirgjöf og var hinn rólegasti,
sétti boltann niður og kannaði stöð-
una. Dublin, sem hljóp aftur fyrir
endalínu, var fljótur að átta sig,
kom aftan að markverðinum, „stal“
boltanum og sendi hann í markið.
John Barnes, sem var einn
frammi hjá Newcastle, jafnaði eftir
hálftíma í kjölfar mistaka hjá Steve
Ogrizovic í marki heimamanna.
Gestirnir fengu síðan nokkur góð
færi en þegar Dublin skoraði í kjöl-
far hornspyrnu átta mínútum fyrir
leikslok blasti sigur Coventry við.
Robert Lee var ekki sama sinnis,
gerði fallegt mark og tryggði liði
sínu mikilvægt stig, en Newcastle
hefur ekki sigrað í síðustu sex leikj-
um.
Blackburn viö toppinn
Blackburn vann Everton 3:2 og
er aðeins stigi á eftir Manchester
United en liðið mátti hafa mikið
fyrir sigrinum, þó hann væri sann-
gjarn.
Gary Speed skoraði fyrir gestina
eftir gagnsókn snemma leiks en
Kevin Gallacher jafnaði fyrir hlé.
Gary Flitcroft skaut í slá á 55.
mínútu, Everton sneri vörn í sókn
og Duncan Ferguson skoraði. Ne-
ville Southall, sem er 39 ára og lék
800. leik sinn fyrir Everton, varði
vel en gat hvorki komið í veg fyrir
jöfnunarmark varamannsins Dami-
ens Duffs skömmu fyrir leikslok
né sigurmark Tims Sherwoods
þremur mínútum síðar.
Mörk á færibandi
Þrátt fyrir nokkur færi á Anfield
var ekkert mark gert í fyrri hálf-
leik hjá Liverpool og Tottenham en
heimamenn tóku við sér eftir hlé
o g gerðu fjögur mörk. Steve
McManaman braut ísinn og þremur
mínútum síðar bætti Norðmaðurinn
Öyvind Leonhardsen öðru marki
við. Jamie Redknapp gerði þriðja
markið um miðjan hálfleikinn og
táningurinn Michael Owen, sem
skipti við Karl-Heinz Riedle stund-
arijórðungi fyrir leikslok, minnti
enn einu sinni á sig 10 mínútum
síðar.
Þetta var §órða tap Spurs í síð-
ustu fimm leikjum og Gerry Franc-
is, knattspyrnustjóri, sagði ástandið
ekki þægilegt.
Chelsea rétti
úr kútnum
Chelsea hafði tapað öllum úrvals-
deildarleikjunum þremur í kjölfar
Evrópuleikjanna í haust en sneri
dæminu við eftir 7:1 sigur á Tromsö
í liðinni viku. Liðið tók á móti West
Ham í fyrradag, vann 2:1 og er
4. sæti með leik til góða.
Gianfranco Zola kom mikið við
sögu. Rio Ferdinand gerði sjálfs-
mark hjá West ham eftir skot ítal-
ans og hann skoraði síðan úr auka
spyrnu skömmu fyrir leikslok. John
Hartson minnkaði muninn úr víta-
spyrnu.
Bayern
Munchen
án taps í
13 leikjum
Kaiserslautern vann Hansa
Rostock 4:3 í miklum bar-
áttuleik um helgina og er með fjög-
urra stiga forystu í þýsku deild-
inni. Sforza skoraði fyrir heima-
menn þegar á annarri mínútu en
Barbarez jafnaði sex mínútum síð-
ar. Dowe náði síðan forystu fyrir
gestina skömmu síðar, en Rische
jafnaði fyrir hlé. Schjönberg gerði
þriðja mark Kaiserslautem í byrjun
seinni hálfleiks, Neuville jafnaði
um miðjan hálfleikinn en Rische
gerði sigurmarkið sjö mínútum
fyrir leikslok.
Miðheijinn Giovane Elber frá
Brasilíu tryggði Bayern Munchen
1:0 sigur á Bielefeld með marki
um miðjan fyrri hálfleik eftir frá-
bæran undirbúning miðjumannsins
Mehmet Scholl. Bayern tapaði 1:0
fyrir Kaiserslautern í 1. umferð en
hefur ekki beðið ósigur síðan, leik-
ið 13 leiki í röð án taps, og er í
öðru sæti.
Bayem var ekki sannfærandi
en stigin em mikilvæg. „Mjög
mikilvægt var fyrir okkur að sigra
eftir tapið í París,“ sagði Giovanni
Trapattoni, þjálfari liðsins. „Ég
vildi breytingu og sá hana þó leik-
urinn hafí ekki verið sérstakur.“
Vamarmaðurinn Thomas Linke
og miðjumaðurinn Michael Buesk-
ens skoruðu fyrir Schalke í 2:0
sigri á Karlsruhe, en Schalke er í
þriðja sæti, fjórum stigum á eftir
Bayern. Dortmund náði aðeins
jafntefli við Gladbach. Miðjumað-
urinn Stephan Passlack skoraði
fyrir heimamenn á fjórðu mínútu
en skoski miðherjinn Scott Booth
jafnaði fyrir Dortmund 13 mínút-
um síðar.
Leverkusen vann HSV 1:0 í
Hamborg og var Christoph Daum,
þjálfari, ánægður en liðið tók
Sporting 4:1 í Meistaradeildinni í
liðinni viku. „Leikmennirnir hafa
fengið aukið sjálfstraust í síðustu
leikjum og þeir þurftu á því að
halda,“ sagði Daum. Danski miðju-
maðurinn Jan Heintze gerði mark
Leverkusen snemma í seinni hálf-
leik.
Hertha vann 1860 Munchen 2:0
en Michael Preetz og Andreas
Schmith skoruðu fyrir Hertha í
fyrri hálfleik. Þetta var þriðji sigur-
leikur nýliðanna í röð sem fóru úr
neðsta upp í 16. sæti. „Þetta geng-
ur örlítið betur hjá okkur um þess-
ar mundir en við eigum mikið verk
fyrir höndum ef við ætlum að ná
markmiðinu, sem er að vera áfram
í deildinni," sagði Jiirgen Röber,
þjálfari Hertha.
Spartak
meistari
SPARTAK Moskva vann Rotor 2:0
i síðustu umferð rússnesku deildar-
innar og varð meistari í fímmta sinn
í sex ára sögu deildarinnar.
Spartak var með tveggja stiga
forystu á Rotor fyrir leikinn og
nægði því jafntefli. Ékkert var skor-
að í fyrri hálfleik en heimamenn
voru betri. Hins vegar fóru þeir illa
með færin og vonleysi gerði vart
við sig þegar Oleg Veretennikov,
markahæsti leikmaður deildarinn-
ar, skaut hátt yfir markið af átta
metra færi. Valery Kechinov skor-
aði fyrir gestina með skoti af um
30 metra færi 20 mínútum fyrir
leikslok og Alexander Shirko inn-
siglaði sigurinn og meistaratitilinn
skömmu áður en flautað var til
leiksloka.