Morgunblaðið - 25.11.1997, Page 17

Morgunblaðið - 25.11.1997, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 D 17 MIKIÐ útsýni er út yfir sundin til Esjunnar frá byggingarstaðnum, sem gefur byggingununi aukið gildi. Morgunblaðið/Golli VIÐAR Daníelsson, aðaleigandi og framkvæmdastjóri Viðars hf. og Guðmundur Sigurbjörnsson yilrverkstjóri. Þessi mynd er tekin ofan á fyrsta fjölbýlishúsinu, sem Viðar hf. byggir við Skúlagötu, en þar er þegar búið að steypa upp eina hæðina. um við með tilbúna lóð fyrir 125 íbúðir og framkvæmdir við þær hefj- ast strax eftir áramót. Mér sýnist líka sem nú sé aftur kominn markaður fyrir atvinnuhús- næði á verðum, sem eitthvert vit er í, enda má nú sjá talsvert af nýju at- vinnuhúsnæði í smíðum. A undan- förnum árum hefur nánast ekkert verið byggt af slíku húsnæði. Miðað við þá uppsveiflu, sem nú er í þjóðfé- laginu, má áfram gera ráð fýrir góðri eftirspurn. Sem dæmi má nefna, að undanfar- in ár hef ég verið að dunda við 1.400 ferm. iðnaðarhúsnæði á tveimur hæðum á mjög góðum stað við Viðar- höfða, beint á móti Bifreiðaskoðun Islands. Húsið var steypt upp í sum- ar og nú er töluverður áhugi á þessu húsnæði og búið að selja þar tvö bil af sex eða um 500 ferm. Þessu hús- næði verður skilað fullbúnu snemma á næsta ári. 1 lyftu og opnum vinnuplássum. Lagn- ir í byggingunni verða utanáliggj- andi til að auðvelda viðhald. Upphit- un er hefðbundin með ofnum, sem að jafnaði eru staðsettir við útveggi og í hverju herbergi. Bilastæðin á lóðinni verða um 60 og undir byggingunni er bílakjallari með stæðum fyrir um 50 bíla, en þau verða seld sér þeim sem kaupa hús- næði i byggingunni. Aðkoma að bíla- kjallara verður um skábraut við suð- urhlið. Selzt í einingum eða í heilu lagi Hver hæð er um 860 ferm., nema efsta hæðin sem er um 650 ferm., en hún er inndregin og með geysilegu útsýni. Alls er stærð byggingarinnar um 3.200 ferm. fyrir utan bílakjall- ara og geymslur. „Fyrirkomulag skrifstofubygging- arinnar býður upp á margvíslega möguleika," segir Viðar Daníelsson. „í henni eru tvö stigahús með sér inngöngum og tvær lyftur. Hægt væri að stúka húsnæðið þannig nið- ur, að fjögur til sex fyrirtæki væru á hverri hæð. Einnig gætu stór fyrir- tæki helgað sér heilu hæðirnar eða jafnvel allt húsið. Byggingunni verðui- skilað fullfrá- genginni að utan, en að innan verða útveggir málaðir og með lagnastokk. Gólf verða múrhúðuð og tilbúin fyrir gólfefni og loft tilbúin til klæðningar og málunar. Salerni, anddyri og lyft- ur verða fullfrágengnar og tilbúnar til notkunar og bílastæði og kjallari verða sömuleiðis tilbúin. Lóð verður malbikuð og lögð túnþökum. Fjölbýlishúsin verða þrjú sem að framan greinir og með samtals 63 íbúðum og standa á lóð sunnan við Skúlagötuna. Þau verða steypt og klædd með granítasalla að utan og ljós að lit. Hæsta húsið verður átta hæðir og ris, en hin tvö verða sex hæðir og ris. Húsin mynda hálflokað- an inngarð, sem snýr í suður og snúa allar svalir og helztu íveruherbergi inn að þessum garði. Undir honum verður bílageymsla. Aðkoma að íbúð- unum verður frá Skúlagötu og eitt bílastæði verður á hverja íbúð, þar af verða 50 stæði yfirbyggð. Allar blokkirnar eru lyftuhús og innan- gengt í lyftur úr bílastæðum. Ibúðirnar eru hannaðar i samráði við Húsnæðisnefnd Reykjavíkur- borgar, sem kaupir íbúðirnar. Þær eru mismunandi að stærð, frá 45 og upp í 120 ferm og frá einu og upp í fimm herbergi. Að sögn Viðars Dani- elssonar eru þetta mjög hentugar íbúðir og nýtist plássið í þeim vel. Eldhús og borðkrókur í íbúðunum i hæstu blokkinni verða með ská- glugga með útsýni að Esjunni. Hinar blokkirnar verða með þessum mögu- leika á gaflendunum. Þakíbúðirnar í öllum blokkunum eru sérhannaðar með miklu útsýni. Að sögn Viðars hefur markaður- inn iyrir íbúðarhúsnæði verið góður undanfarna mánuði. „I Kópavogsdal erum við búin að byggja 220 íbúðir og allar þessar íbúðir eru nú seldar og fólk flutt inn í þær,“ segir hann. „En það er alls ekki svo, að við séum að fara burt úr Kópavogsdal. Þar er- Nýtt byggingar- svæði í Kópavogi Á nýju byggingarsvæði í Kópa- vogi, sem liggur í eystri hluta Fífu- hvammslands, beint í austur frá Lindahverfinu, hefur Viðai- hf. fengið úthlutað byggingasvæði fyrir 130 íbúðir sem alverktaki. Það þýðir, að fyrirtækið skipuleggur svæðið og annast þai- alla gatnagerð. í þessu hverfi er gert ráð fyrir 1000 íbúðum í heild og það mun væntanlega byggj- ast upp á næstu árum. Hverfinu hef- ur þegar verið gefið nafnið Salir, þar sem öll götuheiti munu enda á orðinu salir. „Það svæði, sem ég hef fengið út- hlutað í Salahverfinu er skipulagt af Albínu Thordarson arkitekt," segir Viðar. „Nú er unnið að hönnun hús- anna, en arkitekt er Orri Árnason. Hann lærði arkitektúr á Spáni og hefur unnið þai- um árabil. Orri fitjar upp á ýmsum nýjungum í hönnun sinni, þannig að húsin verða í senn falleg og þægileg að búa í. Bygginga- framkvæmdir á þessu svæði eiga að hefjast í febrúar eða marz. á næsta ári.“ Hjá Viðari hf. starfa nú um 35-40 manns fyrir utan undirverktaka. „Rekstur fyrirtækisins var réttum megin við strikið í fyrra og hann hef- ur gengið ágætlega í ár, sagði Viðar Daníelsson að lokum. „Eftirspurn eftir bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði er nú mun meiri en var, enda er ís- lenzkur byggingariðnaður að komast upp úr þeirri lægð, sem hér rikti um árabil. Því er ég bjartsýnn á framtíðina “ Fasteignasalan Suðurveri ehf. Stigahlíð 45-47, 1Q5 Reykjavík Sími 581 2040 Fax 581 4755 Fersk fasteignasala Einar Örn Reynisson, Reynir Þorgrímsson, Helgi Hákon Jónsson, viðskiptafr. og löggiltur fasteignasali. TVÆR GÓÐAR í GAMLA BÆNUM ÞINGHOLTSSTRÆTI Rúmgóð 4ra herbergja íbúð með útsýni í hjarta bæjar- ins. íbúðin er vel skipulögð 93,5 fm í lyftuhúsi. Vestur- svalir. Sameiginlegt þvottahús í kjallara. Skuldlaus eign. íbúðin er laus. Verð 8,4 milj. NÝTT í SÖLU - NJARÐARGATA Efri hæð og ris, samtals 106,1 fm. Á hæðinni eru tvær stofur, borðstofa, eldhús og baðherbergi. Á efri hæðinni eru 4 herbergi, þar af eitt með kvisti, í kjallara er eitt her- bergi. (búðinni hefur verið vel við haldið. Gott tvöfalt gler og Danfoss á ofnum. Verð 7,4 milj. BRYNJ0LFUR J0NSS0N Fasteignasala ehf., Barónsstíg 5,101 Rvík. Jón Ól. Þórðarson, hdl., lögg. fasteignasali Fax 511-1556. Farsími 89-89-791 SÍMI511-1555 Opið laugardaga 11.00-14.00 Einbýli - raðhús ÞINGASEL Ca. 350 fm glæsilegt og vandaö einbýlishús á tveim hæö- um. Tvöfaldur bílskúr. Möguleiki á aukaíbúö. Gróinn fallegur garður meö sólverönd og sundlaug. Ahv. 6,7 m. hagstæö lán. LÁHOLT MOS Glæsilegt 152 fm einbýli á einni hæö. 46 fm bílskúr og 4 svefnherbergi. Arinn, í stofu. Fallegt útsýni til Esjunnar. Verð 13,9 m. Áhv. 8,2 m. húsbr. Skipti á 4ra herb. íbúð. REYKJAMELUR MOS. 140 fm einbýlishús á einni hæö. Stór stofa, stórt eldhús. Skipti á minni eign í Mos- fellsbæ. Verð 12,5 m. Áhv. 3,8 m. LINDARBRAUT SELTJ,- NESI Ca 300 fm vandaö einbýlishús meö studiói á neöri hæö og 43 fm bíl- skúr. Eign í algjörum sérflokki. Verð 19,5 m. Áhv 3,7 m. HLÍÐARTÚN MOS. Ca 170 fm einbýli á einni hæö ásamt 40 fm bíl- skúr, 6-7 svefnherbergi. Möguleiki á aukaíbúö. VerÖ 12,5 m. Ca 2400 fm ræktuö lóö. Laust. HRÍSRIMI Stórglæsilegt parhús, 165 fm meö 28 fm innbyggöum bíl- skúr. Verö 13,4 m. Áhv. 6,4 m. Hæðir ÚTHLI'Ð Stórglæsileg og algjörlega endurnýjuð 140 fm neöri sérhæö á þessum frábæra stað. Verö 12,5 m. Áhv. 4,6 m. Eign fyrir vandláta. HALLVEIGARSTIGUR Mikiö endurnýjuð ca 120 fm efri sérhæö og ris I góðu bakhúsi. Verð 9,8 m. Áhv. 5,2 m. LANGHOLTSVEGUR Ca. 140 fm efri sérhæð i tvíbýli. Möguleiki á 5 svefnherb. Verð 9,6 m. Áhv. 1,6 m. GRENIGRUND Falleg og vel skipuylögö 130 fm efri sérhæö í tví- býli. 4 svefnherbergi. 32 fm bílskúr. Verð 9,8 m. Áhv. 5,8 m. 4ra herb. og stærri BLÖNDUHLÍÐ Mikiö endumýjuö risíbúö sem er mikiö undir súð. 4 svefnherb. Verö 6,7 m. Áhv. 3,2 m. Laus. Lyklar á skrifstofunni. EYJABAKKI Glæsileg og mikiö endumýjuö ca. 80 fm íbúö á 2. hæö. Mikiö útsýni. Verð 6,9 m. Áhv. bygg- sj. 3,7 m. VIÐ SUNDIN Falleg 100 fm íbúö á 1. hæð í litlu fjölbýli ásamt stóru herbergi í kjallara. Verð 7,5 m. Áhv. 2,5 m. byggsj. Laus. 3ja herb. BÁRUGATA NÝTT Sérlega vinaleg og lítiö niðurgrafin 64 fm kjall- araíbúö á besta staö viö Bárugötuna. Verö 5,6 m. Áhv. 3,2 m húsbr. og byggsj. ÆGISSÍÐA NÝTT Stórglæsileg, vönduö og algjörlega endurnýjuö 2ja til 3ja herbergja risibúö. 4 m. lofthæö í stofu, franskir gluggar og fl. Áhv. 3,0 m byggsj. RAUÐÁS Sórlega falleg og vinaleg 75 fm á jaröhæö íbúö meö útsýni yfir Rauöavatn. Verð 6,3 m. Áhv. 3,5 m. byggsj. og húsbr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.