Morgunblaðið - 04.01.1998, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 E 7
Starfsfólk óskast
Óskum eftir starfsfólki í sai og eldhús.
Umsækjendur verða að vera eldri en 18 ára.
Einnig leitum við að matreiðslumanni í fullt
starf.
Umsækjendur hafa tækifæri til að vinna á
vinnustað þar sem hress og skemmtilegur
starfsandi er í hávegum hafður. Tekið verður
á móti umsækjendum á Hard Rock Cafe, dag-
ana 5. og 6. janúar eftir kl. 15.00.
Kennari
Rafiðnaðardeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti
vantar kennara á vorönn 1998. Æskilegt er að
viðkomandi sé iðn- eða tæknifræðingur.
Laun samkvæmt kjarasamningum kennara
og ríkisins. Nánari upplýsingará skrifstofu
skólans í síma 557 5600.
Skólameistari.
MÚLAKAFFI
Múlakaffi/veisluréttir
óskarað ráða starfsfólktil afgreiðslu og í upp-
vask. Vaktavinna.
Upplýsingar eru gefnar í Múlakaffi mánudag-
inn 5. janúar og þriðjudaginn 6. janúar milli
kl. 11.00 og 14.00.
Fossakot
einkarekinn leikskóli
Leikskólakennara eða uppeldismenntaðan
starfsmann vantar við nýjan einkarekinn leik-
skóla um er að ræða 100% stöðu á aldurs-
blandaðri deild.
Allar nánari upplýsingar veita Guðríður og Þor-
steinn í síma 586 1838 kl. 9 — 18 daglega og
í síma 587 3140 kvöld og helgar.
Leikskólinn Fossakot, Fossaleynir 4,
112 Reykjavík, sími 586 1838.
M KÓPAVOGSBÆR
Snælandsskóli
Laust er til umsóknar starf heimilisfræðikenn-
ara við Snælandsskóla. Um er að ræða 100%
starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 554 4911.
Starfsmannastjóri.
Þjónustulund
Vegna mikilla anna þurfum við liðsauka. Við
leitum að röskum starfskrafti með ríka þjón-
ustulund til starfa í móttöku okkar. Vaktavinna.
Skriflegar umsóknir berist afgreiðslu okkar
ásamt meðmælum fyrir 8. janúar.
Rafiðnaðarenn
Óskum eftir rafiðnaðarmönnum og rafvirkja-
nemum til starfa við nýbyggingu Norðuráls
á Grundartanga. Æskilegt væri að viðkomandi
gætu hafið störf sem fyrst. Um er að ræða fjöl-
breytt og krefjandi störf.
Möguleiki á góðum launum fyrir rétta
menn.
Séð verður fyrir fæði, gistingu o.fl.
Lysthafendur sendi skriflegar umsóknir til
Elpro sf. með uppl. um aldur og starfsreynslu.
Elpro sf., Stangarhyl 6, 110 Reykjavík.
Sölumaður —
fasteignasala
Fasteignasala óskar eftir duglegum og traust-
um sölumanni. Æskilegt er, en ekki skilyrði,
að viðkomandi sé löggiltur fasteignasali. Ýmsir
möguleikar fyrir réttan aðila.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 9. janúar
merktar: „F — 3071".
M KÓPAVOGSBÆR
Sundlaug Kópavogs
Laust er til umsóknar starf við baðvörslu
kvenna í Sundlaug Kópavogs.
Unnið er á vöktum og laun samkvæmt kjara-
samningum SfK. Góð sundkunnátta áskilin.
Reyklaus vinnustaður.
Upplýsingar gefur forstöðumaður sundlaugar
í síma 564 2560. Umsóknarfrestur er til
5. janúar 1998.
Starfsmannastjóri.
LANDSPÍTALINN
.../ þágu mannúðar og visinda...
Forstöðumaður
hugbúnaðardeildar
Forstöðumaður hugbúnaðardeildar óskast.
Starfssvið:
• Eftirlit með verkefnum og verkefnaáætlun.
• Umsjón með útboðum og samningum.
• Ráðgjöf fyrir deildir og stjórnendur.
• Þátttaka í stefnumótun í upplýsingamálum.
• Starfsmannahald.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg
menntun.
• Stjórnunar- og skipulagshæfileikar ásamt
samstarfshæfni.
• Reynsla í verkefnastjórnun og þróun tölvu-
kerfa.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
í síma 560 2360.
Umsóknir berist til starfsmannahalds Ríkisspít-
ala, Þverholti 18,105 Reykjavík, fyrir 20. janúar
1998.
----------------------------------------
Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags
og fjármálaráðherra.
Umsóknareydublöd fást hjá starfsmannahaldi
Ríkisspítala, Þverholti 18 og í upplýsingum á Landspítala.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
_______________I______________________J
Bókari
Bókari óskasttil starfa hjá reyndu fyrirtæki á
höfuðborgarsvæðinum. Um er að ræða 50-70%
starf fyrir vana manneskju. Viðkomandi þarf
að hafa fullkomið vald á bókhaldskerfinu TOK
og Exel-töflureikni.
Mjög góð starfsaðstaða í boði.
Vinsamlega skilið inn umsóknum fyrir
miðvikudaginn 7. janúartil afgreiðslu Mbl.
merktar: „B 3081".
Framkvæmdastjóri
Laust er starf framkvæmdasjtóra við vaxandi
fjölmiðlafyrirtæki.
Starfið felur m.a. í sér stjórn fjármála, markaðs-
mála, auk daglegs reksturs.
Eignarhlutur kemur til greina.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst, en ekki skilyrði.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. merkt: „Fjöl-
miðlun — 3096" fyrir 12. janúar.
asByigi
Trésmiðir verkamenn
Byrgi óskar eftir mönnum í eftirfarandi störf:
Trésmíði í almenna trésmíðavinnu og fleka-
mót.
Verkamenn til ýmissa starfa.
Kranamenn á byggingarkrana.
Upplýsingar í síma 564 3107 og 853 6307.
„Au-pair" Austurríki
Austurrískfjölskylda búsett í nágrenni Vínar
óskar eftir „au-pair" nú þegar til að gæta
tveggja barna, 1 og 1/2 árs og 6 mán., í eitt ár.
Móðirin er heima. Þýskukunnátta ekki nauð-
synleg. Reyklaus. Upplýsingar í síma eða faxi
0043 2236 45368.
Frá Þelamerkurskóla
Kennara vantar að Þelamerkurskóla frá miðjum
janúar. Meðal kennslugreina er myndmennt.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 462 6555
eða aðstoðarskólastjóri í síma 462 6227.
Samskiptamiðstöð
htvrnurlausra og hcyrnarskcrtra
Námskeið í táknmáli
Námskeið í táknmáli hefjast mánudaginn
12. janúar.
Innritun og nánari upplýsingar í síma
562 7702.
Samskiptamiðstöd heyrnarlausra.
Saumastarf
Það hefur losnað hjá okkur eitt starf á sauma-
stofu okkar sem við bjóðum laust til umsóknar.
Við leitum að traustum starfskrafti sem hefur
reynslu af saumastörfum og hefur áhuga á
framtíðarstarfi hjá traustu fyrirtæki þar sem
ríkir góður starfsandi.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Mbl. merktar:
„Dugleg - 3077".
Húsvörður
Félagsheimilið á Blönduósi ehf. óskar að ráða
húsvörð. Miðað er við fullt starf sem lýtur að
daglegum rekstri hússins.
Skriflegum umsóknum, ásamt um upplýsing-
um um fyrri störf, skal skila til formanns hús-
stjórnar, Gests Þórarinssonar, Urðarbraut 4,
540 Blönduósi.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 1998.
Sölustarf
Húsgagnaverslun óskar eftir að ráða karl og
konu á „besta aldri" til sölustarfa. Um er að
ræða heilsdagsstarf hjá traustu og vaxandi
fyrirtæki.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi góða fram-
komu, sé þjónustulipur og áhugasamur.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Mbl. merktar:
„Traust — 3076".
Skrifstofustarf
í verzlunar- og innflutningsfyrirtæki í boði.
50—100% starf við bókhald, bréfaskriftir,
afgreiðslu o.fl. Verzlunarskólamenntun eða
bókhaldsreynsla æskileg.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. merktar:
„S — 1001" fyrir 10. janúar.