Morgunblaðið - 04.01.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.01.1998, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ „8 E SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 Bakari og aðstoðar- maður óskast í bakarí í Breiðholti. Upplýsingar í síma 557 2600. Ritari Fasteignasala vill ráða ritara til framtíðar. Um er að ræða fjölbreytt og líflegt starf í vaxandi fyrirtæki í góðu starfsumhverfi. Umsóknir óskast sendar á afgreiðslu Mbl. merktar: „Ritari — 3067", sem fyrst. Gröfumenn Vana gröfumenn vantar sem fyrst. Upplýsingar í símum 852 5568, 565 3140 og 564 4316. Klæðning ehf. „Au pair" Brussei Óska eftir barngóðum, duglegum og reyklaus- um einstaklingi 20 ára eða eldri til gæslu 2ja barna og léttra heimilisstarfa frá áramótum. Möguleiki á frönskunámi. Upplýsingar í síma 565 6669 eftir kl. 20.30. Vélfræðingur Vélfræðingur (VF1) óskar eftir starfi. Góð starfs- reynsla, bæði til sjós og lands. Góð tungu- málakunnátta. Áhugasamir leggi inn nafn og síma á afgreiðslu Mbl. merkt: „V — 3061". Fasteignasala Öflug fasteignasala óskar eftir sölumanni til að selja fasteignir vegna aukinna umsvifa framundan. Um er að ræða framtíðarstarf fyrir dugmikinn mann. Umsóknir óskast sendar á afgreiðslu Mbl. merktar: „F — 3066", sem fyrst. AQAUGLVSI ÓSKAST KEYPT asByigi Byggingarkrani Óskum eftir að kaupa byggingarkrana með 30-40 m langri bómu. Upplýsingar í síma 564 3107 og 853 6307. TILKYISIMIMGAR tÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK Til nemenda Iðnskólans í Reykjavík Nemendur skulu koma til fundar með umsjón- arkennurum þriðjudaginn 6. janúar kl. 13.00. Pá verða stundaskrár afhentar og skráð í nauðsynlegar töflubreytingar sem fram fara daginn eftir. Kennsla hefst fimmtudaginn 8. janúar sam- kvæmt stundaskrá. Kennsla í kvöldnámi hefst mánudaginn 12. janúar samkv. stundaskrá. Þjódhátíðarsjóður Seðlabanka Islands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík Þjóðhátíðarsjóður -3uglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 1998. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361 30. september 1977 er tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menning- ar, sem núverandi kynslóð hefurtekið í arf. a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til Friðlýsingarsjóðs til náttúru- verndar á vegum Náttúruverndarráðs. b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til varðveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menningarverðmæta á vegum Þjóðminjasafns. Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöf- unarfé hverju sinni í samræmi við megintil- gang hans, og komi þar einnig til álita viðbót- arstyrkirtil þarfa, sem getið er í liðum a) og b). Við það skal miða, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlag til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opin- ber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.” Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs. Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 1998. Eldri umsóknir ber að endurnýja. Umsóknareyðublöð liggja fammi í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofsvegi 1, Reykjavík. Nánari upplýsingar gefur ritari sjóðstjórnar, Sveinbjörn Hafliðason, í síma 569 9600. Reykjavík, 29. desember 1997. r. Þjóðhátíðarsjóður IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK Innritun í kvöldnám Innritað verður í eftirtalið nám. 5. og 6. janúar kl. 16.00-18.00 og 7. janúar kl. 16.00-19.00. I. Meistaranám: Boðið er upp á meistaranám í öllum löggiltum iðngreinum. Athugið að á þessari önn er boðið upp á fagnám í kjóla- saumi. Staðfest afrit af sveinsbréfi fylgi um- sjón. II. Öldungadeild: 1. Grunndeild rafiðna, 2. önn. 2. Grunndeild tréiðna. 3. Húsasmíði. 4. Hönnun, 2. og 4. önn. 5. Rafeindavirkjun, 4. önn. 6. Tölvufræðibraut. 7. Aðrir áfangar: Bókfærsla Danska Enska Eðlisfræði Efnafræði Félagsfræði Fríhendisteikning Grunnteikning íslenska Myndskurður Stærðfræði Tölvufræði Tölvuteikning Þýska Vélritun BÓK102 DAN102/202/212 ENS102/202/212/303 EÐL103 EFN103 FÉL102 FHT102/202 GRT103/203 ÍSL102/202/242/252 MYS106 STÆ102/112/122/202/243 TÖL103 TTÖ103 ÞÝS103 VÉL103 Kennslugjald er kr. 3.000 á hverja náms- einingu, þó aldrei hærri upphæð en kr. 27.000. Auk þess greiða allir nemendur innritunar- gjald, kr. 3.000. Innritun í einstaka áfanga er með fyrirvara um þátttöku. Þýðingarsjóður Auglýsing um styrki og lán til þýdinga á erlendum bókmenntum Samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerð nr. 638/1982 með síðari breytingu um Þýðing- arsjóð, er hlutverk sjóðsins að lána útgefend- um styrki eða lán til útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslensku máli. Greiðslurskulu útgefendur nota til þýðingarlauna. Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera þessi: 1. Verkið sé þýtt úr frummáli, ef þess er kostur. 2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1000 eintök. 3. Gerð og frágangur verka fullnægi almenn- um gæðakröfum. 4. Eðlileg dreifing sé tryggð. 5. Útgáfudagur sé ákveðinn. Fjárveiting til Þýðingarsjóðs í fjárlögum 1998 nemur 7,6 milljónum króna. Eyðublöð fyrir umsóknir um framlag úr sjóðn- um fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarfrestur rennur út 1. febrúar 1998. Reykjavík, 30. desember 1997. Starfsmenntastyrkir félagsmálaráðuneytisins Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins aug- lýsir hér með eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu., sbr. lög nr. 19/1992. Styrkir eru veittir til að styðja skipulega starfs- menntun, undirbúning, náms- og kennslu- gagnagerð, kennslu og starfsþjálfun. Miðað er við að styrkir séu veittir vegna viðfangsefna á árunum 1998—1999. Rétt til að senda umsóknir eiga: samtök at- vinnurekenda og launafólks, einstök atvinnu- fyrirtæki, einkaaðilar, eða opinberir aðilar sem standa fyrir starfsmenntun í atvinnulífinu, starfsmenntaráð einstakra atvinnugreina og samstarfsverkefni á vegum tveggja eða fleiri framangreindra aðila. Umsóknirfrá skólum koma til álita þegar um er að ræða samstarf við samtök sem áður eru nefnd. Umsóknir berist Vinnumálastofnun, Hafnar- húsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík, á sér- stökum eyðublöðum sem þarfást og skal þeim skilað þangað eigi síðar en 6. febrúar 1997. Félagsmálaráðuneytið, 29. desember 1997. Jólatréssf&mmtun 'Tí^, Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrésskemmtun fyrir börn félagsmanna, sunnudaginn 4. janúar n.k. kl.15:00 á Hótel íslandi. Miðaverð er kr. 600,- fyrir börn og kr. 200,- fyrir fullorðna. Miðar eru seldir á skrifstofu VR í Húsi verslunarinnar, 1 .hæð og við innganginn. Nánari upplýsingar í síma félagsins 510 1700. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Kjósarhreppur Breyting á deiliskipulagi við Eyjavík Hér með er lýst eftir athugasemdum við tillögu að breyttu deiliskipulagi við Eyjavík og í landi Eyja I.Tillagan liggurframmi á sveitarskrif- stofu Kjósarhrepps, Félagsgarði í Kjós, frá 5. jan. til 2. feb. nk. Athugasemdum skal skila til oddvita Kjósarhrepps fyrir 4. feb. nk. og skulu þær vera skriflegar. Oddviti Kjósarhrepps.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.