Morgunblaðið - 08.01.1998, Síða 1
BLAÐ ALLRA
LANDSMANMA
1997
JfticrrgunMafrfö
■ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998
BLAÐ
Olafur Þór
með Sheff.
Wed. gegn
Barnsley
ÓLAFUR Þór Gunnarsson, mark-
vörðurinn efnilegi úr ÍR, er nú í her-
búðum Sheffíeld Wednesday á Hills-
borough - verður þar í hálfan már.-
uð. Ron Atkinson, knattspyrnustjóri
liðsins, sem hefur verið að fá unga
leikmenn utan Englands til æfínga,
bauð Ólafí Þór, sem er 20 ára, og
Pólveijanum, Pawel Wojtala, 25 ára
miðverði frá Hamborg, til að æfa
með liðinu og leika með varaliðinu.
Þeir fá að spreyta sig með varaliðinu
í leik gegn Bamsley annað kvöld.
Ólafur Þór er afar efnilegur mark-
vörður, var kjörinn besti leikmaður-
inn á alþjóðlegu móti á Italíu með
landsliðinu skipað undir 18 ára leik-
mönnum 1996, en þá varði hann stór-
kostlega í úrslitaleik gegn Slóveníu
- var frábær í framlengingu og í
vítaspyrnukeppni sem Islendingar
unnu, 4:3, varði Ólafur Þór tvær víta-
spyrnur.
Ólafur Þór, sem er í námi í við-
skiptafræði í Bandaríkjunum, ætlar
sér að leika með ÍR-liðinu í efstu
deild næsta sumar - til að öðlast
reynslu. Hann mun leika með liðinu
út allt keppnistímabilið, en ekki halda
vestur um haf áður en tímabilið er
úti, eins og tíðkast hefur með leik-
menn sem eru í námi í Bandaríkjun-
um á undanförnum árum. Ólafur Þór
verður hann að öllum Iíkindum í leik-
mannahópi 21 árs landsliðsins í sum-
ar.
ÍR-ingar, sem tryggðu sér rétt til
að leika í efstu deild slT keppnistíma-
bil, hafa fengið liðsstyrk. Garðar
Newmann, fyrirliði Skallagríms, er
kominn í herbúðir þeirra og einnig
Sævar Gíslason frá Selfossi.
Halldórog Ing-
ólfurtil Álaborg-
arog Parísar
KARATEMENNIRNIR Hall-
dór Svavarsson og Ingólfur
Snorrason halda til Danmerk-
ur á morgun, þar sem þeir
verða í æfingabúðum með
danska landsliðinu í Álaborg.
Þeir félagar koma síðan heim
eftir helgina, en fara um aðra
helgi til Parísar þar sem þeir
taka þátt í sterku alþjóðlegu
móti, sem er eingöngu ætlað
landsliðsmönnum.
Reuters
NORÐMAÐURINN Tore Andre Flo og Graeme Le Saux fagna - þeir skoruðu fyrlr Chelsea gegn
Ipswlch á Portman Road í ensku delldarbikarkeppninnl í gærkvöldi, lelkmenn Ipswlch jöfn-
uðu, 2:2. Chelsea, sem vann í vítaspyrnukeppni 4:1, m»tir Arsenal í undanúrslitum og
Llverpool, sem vann Newcastle 2:0, mætlr Mlddlesbrough.
Björn
Borg
ver sig
BJÖRN Borg segir að greiðslur
þær sem hann fékk einn liðs-
manna fyrir að leika með
sænska landsliðinu í Davis-Cup
á árunum 1978 og 1979 hafi
verið réttlætanlegar. Sænska
tennissambandið hafi hagnast
mikið á velgengni hans. Því
hafi ekki verið óeðlilegt að
hann fengi nokkurn hlut í þeim
hagnaði fyrir að gefa kost á sér
en á þeim tíma fengu sænskir
tennismenn ekki greiðslur fyrir
að leika með landsliðinu. A
þessum tveimur árum sem um
er að ræða fékk Borg um 220
þúsund dollara í sinn hlut. Borg
sagði gær að hann myndi ekki
hvort þetta væri rétt upphæð
sem um væri að ræða.
Upp á síðkastið hafa sænskir
liðsmenn Davis-Cups liðsins
skipt verðlaunagreiðslum á
milli sín og tennissambandsins,
en margar þjóðir greiða sínum
leikmönnum fyrir að keppa fyr-
ir þjóð sína burtséð frá verð-
launafé. Fram til ársins 1981
voru engar peningagreiðslur í
Davis-cup keppninni.
BLAK
Vamariið NATÓ með
í bikarkeppninni
Bikarkeppnin í blaki hefst á
morgun með tveimur leikj-
um í karlaflokki. Athygli vekur
að varnarliðið á Keflavíkurflug-
velli er meðal þátttakenda í
bikarkeppninni, bæði karla- og
kvennaflokki, og mætir Stjörn-
unni í karlaflokki annað kvöld.
„Það hefur verið gott samstarf
við NATÓ í gegnum árin og
stjórnin [stjórn Blaksambands-
ins, BLÍ] samþykkti að leyfa
NATÓ að vera með,“ sagði Guð-
mundur Helgi Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri BLÍ, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Guðmundur sagðist halda að
þetta væri í annað sinn sem
varnarliðið væri með í bikar-
keppninni og að lið af Keflavík-
urvelli hefði verið með í 2. deild-
inni í blaki í nokkur ár, en sú
deild er leikin í formi helgar-
móta víða um land. „Það segir
í reglugerð BLÍ að þátttakendur
séu þau félög sem sambandið
samþykki," sagði Guðmundur.
Aðspurður hvort það bryti
ekki í bága við reglugerðir ISl
að erlend félög væru með í Is-
landsmóti og bikarkeppni sagði
Guðmundur: „Við förum með
æðstu mál blakmála hér á landi
og þó einhveijar reglur ÍSI hljóði
ef til vill á annan veg verður að
hafa í huga að þær reglur eru
barn síns tíma. Þetta styrkir
bikarkeppnina hjá okkur og ger-
ir það að verkum að við fáum
átta lið og því þarf ekkert lið
að sitja hjá í fyrstu umferð.“
Þess má geta að fyrsta umferð
er jafnframt átta-liða úrslit.
Guðmundur sagði ennfremur
að lið frá varnarliðinu hefðu oft
verið með í hraðmótum og því
um líku. „Liðin eru ekki sterk
og því ekki líkleg til afreka. Ég
skal ekki segja hvort þau fengju
að vera með væru þau líkleg til
að sigra,“ sagði Guðmundur.
KNATTSPYRNA
SKÍÐI: KRISTINN BJÖRNSSON í 28. SÆTIÁ HEIMSLISTANUM í SVIGI / C8