Morgunblaðið - 08.01.1998, Blaðsíða 2
2 C FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998
KNATTSPYRNA
MORGUNB LAÐIÐ
Coventry vill ekki
missa Dublin
DION Dublin, miðherji Coventry, er eftirsóttur þessa dagana
- Liverpool, Leicester, Middlesbrough og fleiri félög vilja fá
hann til sín. Þessi 28 ára marksækni leikmaður á átján mánuði
eftir af samningi sínum við liðið sem hefur boðið honum nýjan
samning - til ársins 2002. Það ætti ekki að væsa um Dublin ef
hann tekur boöinu, hann á að fá 1,2 millj. ísl. kr. í vasann í
vikulaun. „Við viljum ekki missa Dion Dublin, hann er einn af
okkar bestu leikmönnum," segir Gordon Strachan, knatt-
spyrnustjóri Coventry, sem bætti við: „Barcelona seldi Ron-
aido. Þess vegna get ég ekki ekki sagt - Coventry selur ekki
Dublin. Dublin er einstakur Ieikmaður - það má segja að hann
sé tveir leikmenn; mikill markaskorari, einnig stórkostlegur
miðvörður.“
Það er nokkuð víst að Dublin er til sölu - ef gott tilboð kem-
ur. Forráðamenn Coventry vita að þegar samningur hans
rennur út eftir átján mánuði fær liðið ekki krónu fyrir hann.
Hér á myndinni fagna samheijar marki sem Dublin skoraði
gegn Liverpool um sl. helgi.
Reuters
Vialli líkir Manchester United
við AC Milan og Juventus
Verður
Evrópu-
meistari
ÍTALINN Gianluca Vialli gerði tvö glæsileg mörk á móti
Manchester United í Ensku bikarkeppninni um liðna helgi en
mátti ásamt samherjum sínum í Chelsea þola 5:3 tap. Vialli,
sem er 33 ára, hefur unnið allt sem hægt er að vinna í
evrópskri knattspyrnu, á auðvelt með að greina kjarnann frá
hisminu og veit hvað hann segir þegar knattspyrna er annars
vegar. „Ég held að ekkert geti komið í veg fyrir að liðið
[Manchester United] verði eitt af þeim bestu sem um getur í
sögu Evrópu,“ sagði Vialli.
Vialli sagði að enginn veikur
hlekkur væri hjá United og það
gæfi hvergi eftir. Hann hefði leikið
með frábæru liði Juventus, sem
varð Evrópumeistari 1995, og á
móti AC Milan þegar það var stór-
veldi á Italíu og í Evrópu en United
minnti sig á þessi lið. „Þegar þau
voru á toppnum voru þau ósnertan-
leg og sama má segja um United.
Liðið er að komast a sama stall og
Juve og AC Milan. Ég er sannfærð-
ur um að það verður Evrópumeist-
ari á tímabilinu. Leikmennirnir eru
ungir, hungraðir í árangur og vinna
hver fyrir annan rétt eins og ein-
kenndi fyrrnefnd ítölsk lið.“
Hungraðir í árangur
Steve Clarke, varnarmaður hjá
Chelsea, tók í sama streng. „Ég hef
aldrei séð leikmenn United eins
hungraða í árangur. I liðinu eru frá-
bærir leikmenn eins og hjá okkur
en þeir eru gráðugii. Þeir sækja í
hópum og þegar úrvalsmenn vinna
hver fyi'ir annan verður úr sam-
heldið og óstöðvandi lið. Þeir sóttu
að okkur, gáfu okkur aldrei frið og
neyddu okkur til að gera mistök
sem þeir síðan refsuðu okkur fyrir.“
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, sagðist hafa
fundið fyrir því í búningsklefanum
fyrir leikinn að leikmenn United
ætluðu sér sigur en áréttaði að liðið
gæti gert betur. „Við getum bætt
okkm' hvað stöðugleika varðar,“
sagði hann. Peter Schmeichel mark-
vörður er á sama máli. „Við leggjum
mjög mikið á okkur á æfingum en
vinnan er til einskis ef hún skilar
sér ekki í leikjum,“ sagði hann og
vísaði til markanna þriggja s'em
Chelsea gerði undir lokin í um-
ræddum leik.
Einn besti leikur okkar
„Við gerðum fimm mörk hjá Chel-
sea og þegar á heildina er litið er
þetta með bestu leikjum okkar í
ensku knatspyrnunni. En menn
muna gjarnan það sem gerist í lokin
og ég er sannfærður um að margir
gleyma seint mörkunum sem við
fengum á okkur. Þetta var hræði-
legt. Við hægðum á ferðinni og
gerðum mistök sem við eigum ekki
að gera. Við áttum að vinna 5:0 eða
jafnvel með meiri mun. Því verðum
við að vera óánægðir með mörkin
sem við fengum á okkur. Þeir skor-
uðu ekki af því að við töldum að
þetta væri búið. Mistökin særa
stoltið og við vitum að við eigum eft-
ir að bæta okkur á ýmsum sviðum."
—
nnm
m í’i 3. i
i% ÍTALÍA Árangur á heimavelli X 9 f 1 i r \í w Þín spá
H.janúar úrslit frá 1988 Leiftur | Valur |
1 AC Milan - Roma T 3 0 17:5 1 1 T X
2 Sampdoria - Parma 5 2 0 13:4 1 X 1 2 1
3 Juventus - Vicenza 2 0 0 3:0 1 1 1
4 Brescia - Fiorentina 1 1 1 6:6 T X 2 X 7 1 X 2
5 Bari - Atalanta 2 1 1 9:4 1 1 X 1
6 Empoli - Bologna 0 0 0 0:0 1 x 1 X 2 i
7 Piacenza - Inter 2 0 1 3:4 7 1 2 ~2
8 Udinese - Napoli 3 2 0 12:7 1 1 1
9 Lazio - Lecce 3 1 0 8:0 1 1 1
10 Chievo - Torino 1 0 0 1:0 1 X ; c 2 n X
11 Venezia - Cagliari 0 0 0 0:0 1 2 1 1 X 2
12 Lucchese - Verona 0 2 1 2:3 1 X 1 X 2 1 X
13 Reggiana - Fid. Andria 0 1 0 0:0 1 1 1 X
Urslit í
síöustu viku:
Fram: IQréttir
KR: 9 réttir
6 réttir
STAÐAN I 1 i 2 i 3 i 4 5 STIG Fjöldi réttra
1 Fram röi 0 2 2 22
2 IA 2 1 ~2~ 5 23
3 Keflavík 2 1 O O 3 34
4 KR O 2 O 2 29
5 IR o 2 LIj 4 22
I næstu
viku
mætast:
ÍAog
KR
□ Úrslit í síðustu viku: | STAÐAN l 1 i 2 i 3 4 5 STIG Fjöldi réttra
k 4 1 Valur m rn 2 2 5 27
Grindavík: lOréttir 2 Grindavík 1 m 1 ~2~ 4 26
Þróttur: öréttir 3 Þróttur R. o 1 ~2 1 4 35
PJ: lOréttir 4 ÍBV 0 O m O O 30
5 Leiftur ~ð~ 1 S m 3 28
I næstu
viku
mætast:
Grindav.
og ÍBV