Morgunblaðið - 08.01.1998, Síða 7
■
i
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 C 7 6
I
M
) |
M
>
)
) i
M
) i
) i
) í
M
► i
M
M
) i
11
M
►
►
►
I
>
SKÍÐI
Efstu íslensku skíðamennirnir á styrkleikalista Alþjóða skíðasambandsins (FIS)
Smanburður Svig Stórsvig Risasvig
á stöðu þeirra 28/10 1997 6/1 1998 28/10 1997 6/1 1998 28/10 1997 6/1 1998
28. okt. 1997 og FIS- Sæti FIS- Sæti FIS- Sætiá FIS- Sætiá FIS- Sæti á FIS- Sætiá
6. janúar 1998 S stig á lista stig álista stig heimsl. stig heimsl. stig heimsl. stig heimsl.
Kristinn Björnsson, Ólafsfirði 13,89 53. 9,83 28. 27,38 1 75. 25,52 184. 21.95 71. 26,30 96.
Haukur Arnórsson, Ármanni 26,87 167. 27,54 169. 40,57 422. 38,71 459.
Arnór Gunnarsson, ísafirði 28,47 179. 29,14 182. 48,14 579. 46,28 627.
Jóhann H. Hafstein, Ármanni 60,41 670. 57,36 655. 39,92 405. 36,90 421. 74.60 632. 74,95 660.
Sveinn Brynjólfsson, Dalvík 49,90 462. 50,57 514. 47,30 555. 45,44 602. 83.97 797. 84,32 836.
Brynja Þorsteinsdóttir, Akureyri 36,71 170. 36,71 179. 45,79 222. 47,77 340. 41,45 170. 43,77 1 74.
Theodora Mathiesen, KR 53,57 333. 50,91 326. 42,43 274. 39,33 219.
Sigríður Þorláksdóttir, ísafirði 51,31 300. 48,19 289.
I Þau náðu ekki inn á topp-500 listann í október og eru því ekki gjaldgeng á ÓL:
Björgvin Björgvinsson, Dalvík 57,25 611. 48,17 469. 44,68 504. 42,82 540.
Dagný L. Kristjánsdóttir, Ak. 63,80 569. 54,29 422.
Fimmtán
íslendingar
til Nagano
rei
l»k('
ÍSLENSKA landsliðið í alpagreinum hefur æft erlendis í vetur og hafa sameiginlegar æfingar verið i Lillehammer í Noregi undir stjórn
landsliðsþjálfarans, Guðmundar Sigurjónssonar. Efri röð f.v.: Guðmundur Sigurjónsson, þjálfari, Theódóra Matthiesen, Sveinn Brynjólfs-
son, Sigurður M. Sigurðsson og Kristinn Björnsson. Neðri röð f.v.: Brynja Þorsteinsdóttir, Amór Gunnarsson og Haukur Arnórsson. Jó-
hann Haukur Hafstein og Sigríður Þorláksdóttir voru fjarverandi þegar myndin var tekin.
»EIKNAÐ er með að átta
keppendur og sjö manna
fylgdarlið verði sent á vegum
íþrótta- og Ólympíusambands ís-
lands á Vetrarólympíuleikana í
Nagano sem verða settir 7. febrú-
ar. Skíðamennirnir sem hafa náð
lagmörkum Alþjóða ólympíu-
nefndarinnar eru: Kristinn
Björnsson, Haukur Arnórsson,
Arnór Gunnarsson, Jóhann Hauk-
ur Hafstein, Sveinn Brynjólfsson,
Theodóra Matthiesen, Brynja
Þorsteinsdóttir og Sigríður Þor-
láksdóttir.
Aðalfararstjóri Islands í Naga-
no verður Krisiján Vilhelmsson
frá Akureyri, sem er varaformað-
ur Skíðasambands íslands. Þjálf-
arar ísienska liðsins verða Guð-
mundur Sigurjónsson, sem er
landsliðsþjálfari og Valdemar
Valdemarsson verður honum til
aðstoðar. Steinunn Sæmundsdótt-
ir, fyrrum skíðadrottning úr Ár-
manni, verður sjúkraþjálfari liðs-
ins, auk þess sem hún mun verða
aðstoðarþjálfari kvennaliðsins.
Kristinn Svanbergsson, fram-
kvæmdastjóri Skíðasambandsins,
verður liðinu til halds og trausts.
Fulltrúar Ólympíunefndar fs-
lands í Nagano verða EUert B.
Schram, forseti íþrótta- og
Ólympíusambands íslands og
Stefán Konráðsson, framkvæmda-
sljóri þess. Þeir fara í boði Al-
þjóða Ólympíunefndarinnar.
Islenska liðið mun halda til
Japans 4. febrúar. Liðið fer héð-
an til Kaupmannahafnar og það-
an í beinu flugi til Japans. Ellert
og Stefán verða ekki í Nagano
allan tímann, líklega í viku til tíu
daga.
Fjórir af átta hafa sýnt framfarir
Vetrarólympíuleikarnir verða settir í
Nagano í Japan 7. febrúar. Reiknað er með
að átta Islendingar verði sendir á leikana.
Valur B. Jónatansson skoðaði af því tilefni
árangur íslensku skíðamannanna í vetur
og komst að því að helmingur þeirra
hefur ekki náð að bæta sig.
Vetrarólympíuleikarnir í Nagano í
Japan hefjast eftir mánuð. Um
helgina mun Ólympíunefnd íslands
endanlega ákveða hvaða skíðamenn
verða fulltrúar íslands á leikunum.
Átta skíðamenn, þrjár konur og
fimm karlar, hafa náð lágmörkum
Alþjóða ólympíunefndarinnar í alpa-
greinum og er búist við að þeir verði
allir sendir til Japans. Til að öðlast
þátttökurétt á leikunum þurftu
skíðamennirnir að vera innan við 500
á styrkleikalista Alþjóða skiðasam-
bandsins á heimslistanum sem kom
út í nóvember sl.
Þeir skíðamenn sem náðu lág-
mörkunum eru: Kristinn Björnsson
frá Ólafsfirði, Haukur Arnórsson og
Jóhann Haukur Hafstein úr Ár-
manni, Ai-nór Gunnarsson og Sigríð-
ur Þorláksdóttir frá ísafirði, Sveinn
Brynjólfsson frá Dalvík, Brynja Þor-
steinsdóttii’ frá Akureyri og Theo-
dóra Matthiesen úr KR.
Kristinn Björnsson
Alþjóða skíðasambandið sendi frá
sér nýjan styrkleikalista í gær. Þai’
kemur fram að fjórir íslensku skíða-
mannanna hafa bætt sig frá síðasta
lista en hinir færst aftar. Ki’istinn
Björnsson fer lang fremstur í flokki
íslensku skíðamannanna - hefur
bætt sig um 25 sæti frá því á listan-
um í nóvember og er nú kominn í 28.
sæti í svigi, sem er frábær árangur.
Kristinn hefur tekið þátt í sex mót-
um í vetur og skilað sér niður í
þremur þeirra, heimsbikarmótinu í
Park City þar sem hann varð í 2.
sæti og síðan í tveimur Evrópubikar-
mótum, í því fyrra í 3. sæti og síðan í
4. sæti í mótinu á þriðjudag. Hann er
nú með 9,83 stig í svigi en var með
13,89 á síðasta lista. Hann hefur að-
eins keppt í svigi í vetur, en hann
hyggst keppa í stórsvigi í Nagano.
Haukur Arnórsson
Haukur hefur tekið þátt í 11 al-
þjóðlegum mótum (FlS-mótum) í
vetur og skilað sér niður í sjö þeirra.
Hann er nú i 169. sæti í svigi og 459.
sæti í stórsvigi. Hann hefur bætt
stöðu sína stigalega á heimslistanum
frá því í nóvember en fallið niður um
tvö sæti í sviginu og 37 sæti í stór-
svigi. Besti árangur hans í vetur er
4. sæti í svigi á móti í Aurdal í Nor-
egi 11. desember og fékk hann fyrir
það 37,01 FlS-stig.
____ Arnór Gunnarsson
Arnór hefur tekið þátt í tíu mótum
í vetur og komist í mark í sex þeirra.
Hann er númer 182 á nýja heimslist-
anum í svigi og hefur fallið niður um
þrjú sæti frá því á nóveberlistanum.
Hann er númer 627 í stórsviginu og
hefur hrapað niður um 48 sæti. Besti
árangur hans í vetur er 5. sæti í svigi
sem fram fór í Rjukan 22. nóvember
en fyrir það fékk hann 25,71 FIS-
stig.
Jóhann Haukur Hafstein
Jóhann Haukiu- hefur tekið þátt í
flestum mótum íslendinganna í vet-
ur, eða 14 alls. Hann hefur hins vegar
ekki klárað nema fjögur mót. Hann
er nú í 421. sæti í stórsvigi en var í
405. sæti á nóvemberlistanum. I svigi
er hann í 655. sæti en hefur færst
upp um 15 sæti frá síðasta lista. Besti
árangur hans í vetur er 18. sæti í
stórsvigi á móti í Geilo 7. desember.
Fyrir það fékk hann 33,90 FlS-stig.
Sveinn Brynjólfsson
Sveinn hefur tekið þátt í ellefu
mótum í vetur og skilað sér niður í
sex þeirra. Hann er nú fallinn út af
topp-500 listanum, er númer 514 í
svigi og 555 í stórsvigi. Hann var
númer 462 í svigi á nóvemberlistan-
um. Besti árangur hans í vetur er 13.
sæti í stórsvigi á móti í Aurdal 14.
desember. Fyrir þann árangur fékk
hann 41,52 FlS-stig.
Theódóra Matthiesen
Theódóra hefur keppt í tíu mótum
í vetur og komst í mark í átta þeirra.
Hún hefur bætt sig verulega bæði í
svigi og stórsvigi. Er nú 219. sæti í
stórsvigi, en var í 274. sæti á nóvem-
berlistanum. í sviginu er hún 326 og
hefur bætt sig um sjö sæti. Besti ár-
angur hennar í vetur er 2. sæti í
svigmóti í Geilo 8. desember. Fyrir
það fékk hún 32,02 FlS-stig.
Brynja Þorsteinsdóttir
Brynja hefur tekið þátt í sex mót-
um í vetur og skilað sér niður í
tveimur. Hún hefur ekki náð að bæta
sig á heimslistanum, fallið niður um
níu sæti í sviginu og er nú í 179. sæti.
í stórsviginu er hún í 340. sæti og
hefur fallið niður um 118 sæti. Besti
árangur hennar í vetur er 10. sæti í
svigi í Aurdal 2. desember. Fyrir ár-
angur sinn þar fékk hún 43,68 FIS-
stig.
Sigríður Þorláksdóttir
Sigríður hefur tekið þátt í fimm
mótum í vetur og náð að skila sér
niður í þeim öllum. Hún hefur bætt
stöðu sína á heimslistanum frá því í
nóvember, er nú í 289. sæti en var í ,
áður númer 300. Besti árangur
hennar í vetur er 4. sæti í svigi í Aur-
dal 11. desember. Fyrir árangur sinn
þar fékk hún 42,49 FlS-stig.
Björgvin og Dagný
Björgvin Björgvinsson frá Dalvík
og Dagný L. Kristjánsdóttir frá
Akureyri komust ekki inn á topp-500
listann í nóvember og eru því ekki
gjaldgeng á Ólympíuleikana í Nag-
ano. Þau eru hins vegar bæði komin
inn fyrir 500 á nýja listanum sem ■
kom út í gær. Björgvin er í 469. sæti
í svigi og Dagný í 422. sæti í stór- -
svigi. Þau eru bæði 17 ára og eiga
því fi’amtíðina fyrir sér.
Þess má geta að Ólympíunefnd ís-
lands hefur ekki formlega gefið það
út hverjir verða fulltrúar Islands í
Nagano en samkvæmt heimildum
blaðsins er líklegt að það verði þessir
átta sem taldir eru upp hér að fram-
an. Síðasti dagur til að skila inn þátt-
tökulista fyrir leikana er 10. janúai’.